Morgunblaðið - 22.07.1998, Side 1

Morgunblaðið - 22.07.1998, Side 1
STOFNAÐ 1913 163. TBL. 86. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Talið þokast í samkomulagsátt 1 Mið-Austurlöndum Israelar bjóða málamiðlun Jerúsalem. Reuters. ÍSRAELAR hafa boðið Palestínu- mönnum málamiðlun um tvo helstu ásteytingarsteinana þeirra í millum í lejmilegum viðræðum er miða að því að komast að samkomulagi um landaafsal og öryggisgæslu sam- kvæmt tillögum Bandaríkjamanna að friðarsamkomulagi. Israelskir fjölmiðlar greindu frá þessu í gær. Yasser Arafat, forseti heima- stjórnar Palestínumanna, sagði hins vegar að samningamenn sínir hefðu ekkert nýtt heyrt frá ísraelum í tveim nýafstöðnum, opinberum samningalotum er haldnar voru að undirlagi bandarískra stjórnvalda. Sú síðasta var í gær. Þetta var í fyrsta sinn í marga mánuði sem hátt- settir fulltrúar deiluaðila hittust op- inberlega. „Nei,“ sagði Arafat í gær er fréttamenn á Gaza spurðu hann hvort einhver árangur hefði náðst á fundunum. Þegar hann var spurður nánar hvort Israelar hefðu lagt fram eitthvað nýtt, sagði hann aftur: „Nei.“ Aðstoðarmaður Arafats sagði í gær að Palestínumenn væru reiðu- búnir til að halda áfram viðræðum á núverandi forsendum í sólarhring, eða svo. „Eftir það munu Palestínumenn meta stöðuna og tjá bandarískum yf- irvöldum að Israelsstjórn neiti enn að ganga að tillögum Bandaríkja- manna,“ sagði aðstoðarmaðurinn. Viðræðurnar snúast um þær til- lögur Bandaríkjamanna að Israelar afhendi Palestínumönnum 13% lands á Vesturbakkanum til viðbótar gegn því að Palestínumenn gefi loforð um herta öryggisgæslu. Benjamin Net- anyahu, forsætisráðherra Israels, hefur verið tregur til að samþykkja tillögurnai'j en Arafat hefur gengið að þeim. Israelsk dagblöð greindu frá því í gær að Netanyahu hefði lagt til að 3% af umræddum 13% yrðu gerð að „grænum svæðum“, náttúru- verndarsvæðum þar sem bæði ísra- elum og Palestínumönnum yrði bannað að ráðast í byggingafram- kvæmdir. Blaðið Ha’aretz sagði að Palestínumenn væru reiðubúnir að ganga að tillögunni. Þá sagði blaðið Maariv ísraels- stjórn vera tilbúna til að slaka á kröfum sínum um að Ai-afat kalli saman Þjóðarráð Palestínu og það felli úr stefnuskrá sinni ákvæði um að Ísraelsríki skuli lagt í rúst. Sagði blaðið Netanyahu vei'a sáttan við að Arafat fái miðstjórn Frelsissamtaka Palestínu (PLO) til að gera breyting- ar á skránni en lofi að kalla Þjóðar- ráðið saman síðar. Sálfræðingar vara við „sjálfsdýrkun“ barna Gamaldags agi ekki svo slæmur Washington. Reuters. 19 farast í Slóvakíu Jarovnice í Slóvakíu. Reuters. AÐ minnsta kosti 19 manns, flestir börn, fórust í flóðum í austurhluta Slóvakíu og í gær var tuga manna saknað, að því er innanríkisráðu- neytið greindi frá. Urhellisrigning olli flóðum í nokkrum ám og bárust flóðbylgjur um að minnsta kosti 20 bæi og sígaunabúðir. Ríkisfréttastofan TASR greindi frá því að 16 þeirra sem fórust hafi verið frá bænum Jarovnice, sem er að mestu byggður sígaunum, í aust- urhluta landsins um 25 km frá landa- mærunum að Póllandi. Um 60 bæj- arbúa er enn saknað. Miðbærinn var illa útleikinn eftir að áin Mala Svinka flæddi um hann, rústaði húsum, reif upp tré og velti bílum. I allan gærdag voru björgun- arsveitir að grafa í þykkri leðju til þess að komast að húsarústum og ná upp líkum hinna látnu. Slóvakíska sjönvarpið sagði 21 hafa farist, en sú tala hafði ekki fengist staðfest í gær. Utvarp Keikó? Vancouver. Reuters. LÍTIL útvarpsstöð sem hefur útsendingar í Bresku Kól- umbíu í Kanada í dag mun ein- ungis senda út „samræður" há- hyrninga er eiga heima í John- son-sundi um 200 km norður af Vancouver. Þar hefur verið komið fyrir litlum neðansjávar- hljóðnema og útsendingarnar munu aðallega nást um borð í skipum og hvalaskoðunarbát- um í nágrenninu. Einnig verð- ur útsendingin flutt um síma- línu til Sædýrasafnsins í Vancouver. UNDANFARNA áratugi hafa uppeldisfræðingar lagt mikla áherslu á nauðsyn þess að for- eldrar og aðrir uppalendur geri sitt besta til að efla sjálfstraust barna og unglinga. Það kann þó að vera óráðlegt að ganga of langt, ef marka má sálfræðinga sem vara nú við því að of hátt sjálfsmat geti leitt til „sjálfsdýrk- unar“, og eigi jafnvel sök á auknu ofbeldi í samfélaginu. Bandarísku sálfræðingarnir Brad Bushman og Roy Baumeist- er halda því fram að fólk sem haldið er sjálfsdýrkun þoli illa gagnrýni og sé líklegt til að bregðast við henni á ofbeldisfull- an og óútreiknanlegan hátt, að því er fram kemur í grein þeirra í júlíhefti tímaritsins Journal of Personality and Social Psych- ology, sem bandaríska sálfræð- ingafélagið gefur út. Þeir byggja kenningu sína á rannsókn sem þeir gerðu á 540 háskólanemum. Hver nemi gekkst undir persónuleikapróf og var síðan látinn skrifa ritgerð. Óháð- ur aðili fór yfir ritgerðimar og gaf þeim umsagnir sem vom allt frá hástemmdu lofi til beinna sví- virðinga, t.d.: „Þetta er með verstu ritgerðum sem ég hef nokkm sinni Iesið!“ Niðurstöður rannsóknarinnar bentu til þess að þeir sem töldust sjálfsdýrkendur samkvæmt persónuleikaprófinu sýndu mikla tilhneigingu til árás- argirni í garð gagnrýnandans, ef þeir fengu neikvæða umsögn. Bushman og Baumeister vísa á bug kenningum þeirra uppeldis- frömuða og afbrotafræðinga sem telja að lágt sjálfsmat sé höfuðor- sök árásargirni. Þeir vilja þvert á móti meina að fólk, sem hefur í æsku búið við óverðskuldað hrós og öðlast þannig of hátt sjálfs- mat, sé illa í stakk búið að takast á við mótlæti síðar í lífinu og bregðist við erfiðleikum með reiði. Það sé því mikilvægt að sjálfsmynd fólks mótist í sam- ræmi við verðleika en ekki af innantómu oflofi. Baumeister segir að foreldrar eigi að varast að ýta undir ofmat barna á sjálfum sér og getu sinni, og að ekki sé skynsamlegt að hrósa börnum fyrir allt sem þau gera óháð frammistöðu. Hann ráðleggur uppalendum að „gleyma sjálfstraustinu en ein- beita sér að sjálfsstjórn". Hann telur að gamaldags agi sé ekki alltaf svo slæmur, jafnvel þó beit- ing hans falli börnum ekki í geð. „Fólk á stundum að vera ósátt við sjálft sig þegar það stendur sigilla,“ bætir hann við. I tímaritinu birtist einnig grein eftir sálfræðingana Claudiu Mueller og Carol Dweck við Col- umbia-háskóla, þar sem fram kemur að mikið hrós fyrir góðar gáfur geti leitt til þess að börn verði hrædd við að gera mistök. Rannsókn þeirra leiddi í ljós að slík börn fari á endanum að velja verkefni sem þau vita að þau ráði vel við. Börn sem fái hins vegar hrós fyrir að leggja sig vel fram séu hins vegar fús til að læra nýja hluti, þótt þau nái ekki endi- lega eins góðum árangri. Reuters Kosningabarátta UNG kambódísk stúlka heldur á gamalli mynd af Norodom Sihanouk, konungi Kambódíu, á kosningafundi sonar hans, Norodoms Ranariddhs prins, í gær. Prinsinn berst fyrir því að komast aftur til valda eftir að keppinautur hans bolaði honum úr embætti annars af tveimur forsætisráðherrum landsins í fyrra. Upplýst var í gær að 95.000 manna vopnað öryggisgæzlulið muni vera á verði á kjördag, nk. sunnudag. Breytt afstaða Breta og Bandaríkja- manna í Lockerbie-málinu Réttarhöldin verði í Hollandi London, Washing^on. Reuters. BRESK og bandarísk stjórnvöld hyggjast breyta afstöðu sinni og sam- þykkja að tveir Líbýumenn, sem gi'unaðir eru um að hafa verið valdir að sprengingu í flugvél Pan Am-flug- félagsins yfir bænum Lockerbie í Skotlandi sem olli dauða 270 manns, verði sóttir til saka í Haag í Hollandi. Atti Madeleine Albright, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, símafund með bandarískum ættingjum fómai'- lambanna í gær þar sem hún tilkynnti þeim að verið væri að leita að nýjum stað fyrir réttarhöldin. Bretar og Bandaríkjamenn hafa hingað til krafíst þess að Líbýu- stjórn framselji mennina til að hægt verði að sækja þá til saka í Skotlandi eða í Bandaríkjunum og samþykkti öryggisráð Sameinuðu þjóðanna þessa afstöðu árið 1992. Hafa verið í gildi refsiaðgerðii' gegn Líbýu vegna þess að þeir neita að framselja mennina nema þeir verði saksóttir í hlutlausu landi og af hópi alþjóðlegra dómara. Breska dagblaðið The Guardian sagði frá því í gær að stefnubreyt- ingin kæmi til af því að andstaða gegn refsiaðgerðum SÞ gegn Líbýu hefði vaxið mjög á síðustu missemm og að ljóst virtist að tilraunh- til að þvinga Líbýu til hlýðni hefðu mistek- ist. Viðbrögð ættingja fórnar- lambanna við fregnum af stefnu- breytingunni vora misjöfn. Þannig fagnaði Jim Swire, talsmaður ætt- ingjanna í Bretlandi, fregnunum en Susan Cohen og Kathleen Flynn, sem báðar eru bandarískar, kváðust hins vegar afar ósáttar og sögðu réttarhöld í Haag einungis verða sýndarréttarhöld.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.