Morgunblaðið - 22.07.1998, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Krabbameinssjúkir Frakkar hjóla í kringum landið
Vilja komast á heimskautsbaug
HÓPUR krabbameinssjúkra
Frakka lagði af stað í hjólreiða-
ferð í kringum landið í gær-
morgun. Tíu franskir krabba-
meinssjúklingar frá Dunkerque
svæðinu í Norður-Frakklandi
ætla að hjóla um landið næstu
tvær vikurnar en með þeim í
för er 30 manna fylgdarlið að-
standenda, lækna og blaða-
manna.
Sjúklingarnir eru á aldrinum
25 til 40 ára en þátttakendur í
heild á aldrinum 13 til 50 ára.
Með í för er einnig bæjarstjóri
Gravelines- bæjar, Léon Panier,
en bærinn er vinabær Fá-
skrúðsíjarðar.
Tilgangurinn með ferðinni er
að sýna fram á að hægt sé að
lifa eðlilegu lífí eftir að hafa
fengið krabbamein. Ferðin er
skipulögð af samtökunum „Au-
del'a du cancer“, sem á íslensku
útleggst sem „handan krabba-
meins“, en á þeirra vegnm hafa
krabbameinssjúklingar gengið
á Mont Blanc, Kilimanjaro og
fleiri fjöll.
Skiptast á að hjóla
Ástæður íslandsferðarinnar
eru einkum þrjár. í fyrsta lagi
hafa forvarnir í krabbameins-
sjúkdómum á Islandi verið ár-
angursríkar og læknar á
Dunkerque svæðinu veitt því at-
hygli, en svæðið er álíka Qöl-
mennt og ísland. Mikill áhugi
var því fyrir hendi að kynnast
eftirlitinu á Islandi, sem er að
sögn Frakkanna mun árangurs-
ríkara en í Norður-Frakklandi.
I öðru lagi höfðu nokkrir
þátttakendanna átt sér þann
draum að komast einhvern
tímann á ævinni á norðurheim-
skautsbauginn, og munu þeir
fá ósk sína uppfyllta með ferð
út í Grímsey undir lok mánað-
arins. í þriðja lagi eru fyrir
hendi vinabæjartengsl á milli
Morgunblaðið/Jim Smart
HÓPUR franska hjólreiðafólksins tilbúinn að
leggja í ‘ann frá Árseli í gærmorgun.
Gravelines og Fá-
skrúðsfjarðar og mun
hópurinn dvelja á Fá-
skrúðsfírði í tvær næt-
ur.
Með í för verða tutt-
ugu hjól og fjórir jepp-
ar auk langferðabif-
reiðar. Farnir eru milli
100 og 280 km á dag
og skiptast þátttakend-
urnir á að hjóla. Fyrsti
áfanginn var farinn í
gær, frá Reykjavík að
Hvolsvelli, en í dag
heldur hópurinn frá
Hvolsvelli til Kirkju-
bæjarklausturs. Aðrir
viðkomustaðir í ferð-
inni eru Höfn í Horna-
fírði, Fáskrúðsíjörður,
Mývatn, Sauðárkrókur,
Grímsey og Borgarnes.
Komið verður við á
Akranesi þar sem
hópnum er boðið til há-
degisverðar hjá heil-
brigðisráðherra. Von
er á hópnum aftur til
Reykjavíkur hinn 2.
ágúst og heldur hann
til Parísar daginn eftir.
MEÐ hjólreiðagörpunum í för er Léon Pani er
bæjarstjóri Gravelines, sem jafnframt er vina-
bær Fáskrúðsfjarðar.
Fangi á Litla-Hrauni sektaður fyrir vörslu barnakláms
Tillit tekið til sér-
stöðu refsiákvæðis
FANGI á Litla-Hrauni hefur verið dæmdur til
að greiða 25.000 kr. sekt vegna þess að hann
hafði barnaklámefni í vörslu sinni. Fanginn af-
plánar fjögurra ára dóm vegna kynferðisbrota
gegn sex stúlkum.
Tveir fangar á Litla-Hrauni voru fyrr á þessu
ári kærðir fyrir að hafa bamaklámefni í fórum
sínum. Eftir rannsókn málsins var einungis
annar þeirra ákærður og er þvi ranghermt í
Morgunblaðinu í gær að báðir hafi verið ákærð-
ir. Dómur féll í Héraðsdómi Suðurlands hinn
14. júlí síðastliðinn. Var fanganum gefið að sök
að hafa um nokkurt skeið fyrir 19. febrúar 1998
haft í vörslu sinni í klefa í fangelsinu á Litla-
Hrauni tölvugeisladisk og tölvudiskling með
myndum sem sýna börn á kynferðislegan og
klámfenginn hátt.
Helmingur mynda refsiverður
Taldist þetta athæfi varða við 4. mgr. 210. gr.
almennra hegningarlaga sem hljóðar svo:
„Hver sem hefur í vörslu sinni ljósmyndir,
kvikmyndir eða sambærilega hluti sem sýna
böm á kynferðislegan eða klámfenginn hátt
skal sæta sektum. Sömu refsingu varðar að
hafa í vörslu sinni ljósmyndir, kvikmyndir eða
sambærilega hluti sem sýna böm í kynferðisat-
höfnum með dýrum eða nota hluti á klámfeng-
inn hátt.“
Ákært var vegna 17 mynda en dómari taldi
ekki rétt að refsa nema fyrir helming þeirra.
Þar sæjust kynlífsathafnir, eða væru gefnar
skýrt til kynna, með stúlkum sem væru á að
giska 8-14 ára gamlar. Um aðrar myndir yrði
ýmist ekki fullyrt hvort unglingar sem þar
sæjust væru börn í skilningi 4. mgr. 210. gr.
hegningarlaga eða þá að þær gætu ekki talist
klám.
í dómnum er fjallað rækilega um rétta skýr-
ingu þessa ákvæðis sem tekið var í lög árið 1996
eftir töluverða umræðu á Alþingi. Ekki kemur
fram í ákvæðinu sjálfu við hvaða aldursmark sé
miðað en í greinargerð með frumvarpinu til
breytinga á hegningarlögum sagði að átt væri
við einstaklinga innan 16 ára aldurs. „Óumdeilt
er að ákærði hafði umræddar myndir í vörslu
sinni. Engu skiptir hvernig vörslur hans stofn-
uðust, en ákærða hafði um skeið verið kunnugt
um myndirnar. Þá verður ekki krafist sönnunar
um aldur viðkomandi barns, en telja verður að í
íslenskum rétti gildi það sjónarmið sem skýrt
er orðað í norsku hegningarlögunum að það sé
hin ytri ásýnd sem ráði úrslitum,“ segir í dómn-
um.
Við ákvörðun refsingar er litið til þess að
brotið sem sakfellt var fyrir sé „talsvert ólíkt
öðrum brotum sem refsað er fyrir í íslenskum
rétti. Má þó hafa til hliðsjónar sektarfjárhæðir
þar sem lífi og heilsu manna er stofnað í sér-
staka hættu, t.d. með ölvunarakstri, eða þegar
athafnir manna sem beinast að þeim sjálfum
eru refsiverðar, t.d. neysla fíkniefna...“ Var
refsingin ákveðin 25.000 kr. sekt og geisladisk-
ur og disklingur gerð upptæk. Dóminn kvað
upp Jón Finnbjörnsson héraðsdómari.
Samkvæmt upplýsingum frá ríkissaksókn-
araembættinu hefur ekki verið ákveðið hvort
dómnum verður áfrýjað.
Afplánar dóm fyrir kynferðisbrot
Dómþoli afplánar nú fjögurra ára fangelsis-
dóm sem hann hlaut með dómi Héraðsdóms
Norðurlands eystra í apríl 1997. Var hann þá
dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn sex stúlku-
börnum. I tölvu hans fundust þá u.þ.b. 1.200
klámmyndir, m.a. af nöktum og fáklæddum
börnum, sem sum hver var verið að misnota
með ýmsum hætti.
Að sögn Erlends Baldurssonar hjá Fangels-
ismálastofnun er föngum heimilt að hafa tölvur
hjá sér á Litla-Hrauni. Er talið að meira en
helmingur þeirra hafi aðgang að tölvu. Ekki
hafa fangarnir hins vegar aðgang að Netinu.
Fylgst sé með því hvaða efni fangarnir hafi á
tölvudiskum sínum og við slíkt eftirlit hafi kom-
ið í ljós hið ólöglega efni sem dæmt var fyrir.
Líklega hafi gestir smyglað því inn í fangelsið.
Lenti með
fót undir
valtara
MAÐUR ristarbrotnaði og er
hugsanlega eitthvað meira
brotinn eftir að fótur hans
lenti undir valtara í gær. Var
hann við störf hjá verktaka
sem vinnur að malbikun í
Kópavogi.
Únnið var við viðgerðir á
malbiki á mótum Grænu-
tungu og Hrauntungu en
slysið varð um klukkan 15.15
í gær. Lögreglan í Kópavogi
fór á staðinn og sjúkrabíll
flutti manninn á slysadeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur. Að
sögn lögreglu var hann rist-
arbrotinn og hugsanlega
meh-a slasaður.
Arekstur á
Keflavíkur-
flugvelli
HARÐUR árekstur varð á
Keflavíkurflugvelli síðdegis í
gær er fólksbíll og vörubíll
rákust saman. Ökumaður
fólksbílsins hlaut minniháttar
áverka og var fluttur á
Sjúkrahúsið í Keflavík.
Fátt er um árekstra á
Keflavíkurflugvelli enda er
hámarkshraði í íbúðahverfi
vallarsvæðisins 35 km.
Áreksturinn varð hins vegar í
svonefndu verktakahverfí, á
athafnasvæði verktakanna
sem starfað hafa á vellinum,
þar sem leyfður er meiri
hraði.
Nafn kon-
unnar
sem lést
FRANSKA ferðakonan sem
lést í umferðarslysi í Öræfa-
sveit á sunnudaginn hét
Edith Blondeau Marchais-
seau. Hún var 48 ára gömul
og lætur eftir sig eiginmann
og 19 ára son. Hún var búsett
í Bures sur Yvette í Frakk-
landi.
Eiginmaður hennar og
ökumaður bifreiðarinnar
voru fluttir til Reykjavíkur á
mánudag. Ökumaðurinn
reyndist handarkrikabrotinn
og rifbeinsbrotinn og eigin-
maðurinn var enn í miklu
losti.
EM í brids
Island í
10. sæti
ÍSLAND var í 10. sæti eftir
10 umferðir á Evrópumóti
spilara 25 ára og yngri í
brids, sem nú fer fram í Vín í
Austurríki.
Mótið hófst á fimmtudag
og íslenska liðinu gekk vel í
byrjun en í gær tapaði það
fyrir Ungverjum, 14-16, og
Tyrkjum, 3-25. í 8. umferð á
mánudag vann liðið hins veg-
ar Finna, 25-5.
ítalir voru efstir eftir 10
umferðir með 198 stig, Norð-
menn í 2. sæti með 187,5 stig
og Hollendingar í 3. sæti með
185 stig. íslendingar voru
með 160,5 stig í 10. sæti.