Morgunblaðið - 22.07.1998, Page 10

Morgunblaðið - 22.07.1998, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Laust búfé vandamál víðar en á íslandi Ráðuneytið hyggst gera úrbætur Víðast hvar eru ökumenn í órétti aki þeir á lausan búpening. Þeir eru skyldir til að greiða búfjáreiganda bætur, auk þess sem þeir í flestum tilvikum bera kostnað af eigin tjóni. Slys sem þessi eru tíð hér á landi en eru vandamál víðar. Nýlega var skipuð nefnd sem fjalla á um leiðir til að halda búfé frá helstu þjóðvegum landsins. Ragna Sara Jónsdóttir kynnti sér ólík sjónarmið varðandi lausagöngu búfjár, réttarstöðu bænda og ökumanna. ARI Teitsson, formaður Bænda- samtakanna, segir að umferð lifandi dýra á þjóðvegum sé vandamál sem glímt sé við viðar en á Islandi og ökumenn þurfí að hafa hættuna stöðugt í huga. „Það hefur komið fram í fjölmiðl- um undanfarið að töluverð vinna hefur verið lögð í að girða meðfram helstu þjóðvegum þar sem umferð er mikil og hröð. Vegagerðin hefur kostað það og bændur hafa séð um viðhaldið að hálfu á móti Vegagerð- inni. Stóra vandamálið er hins vegar það að stór hluti af bújörðum lands- ins er ekki lengur nýttur til búskap- ar og viðhald girðinganna á þeim svæðum er orðið að vandamáli. Féð lendir inni í rennum girðinga sem ekki er haldið við. Það getur þvælst þar töluverðar vegalengdir og eng- inn ber þá ábyrgð á því. Meginhlut- inn af því fé sem er á beit að sumri er í algerri lausagöngu og það eru mjög fá svæði sem eru lokuð hólf. Ég tel að þetta sé vandamál sem margir þurfa að koma að til að leysa. Þeir sem enn eru bændur og reyndar kannski landeigendur al- mennt þurfa að halda við girðingum í samstarfí við Vegagerðina og það myndi draga úr þessari hættu. Einnig þarf að fylgjast með því að fé sem lendir inni í þessum rennum sé rekið út aftur, hvort sem lög- gæslan eða sveitarstjórnir myndu sjá um það. Að auki verðum við að horfast í augu við það að ennþá eru stórir hlutar af vegakerfi landsins þar sem ekki er girt meðfram veg- unum. Á þeim svæðum þarf að merkja vegina betur og vara við lausu búfé,“ segir Ari. Hann bendir á að laust búfé sé vandamál víðar en hér á landi. Elg- urinn sé til dæmis stórvandamál í Svíþjóð og víða í Austurríki, Þýska- landi, Sviss og á Norðurlöndum gangi búfé laust um vegi. Hann seg- ir að umferð búpenings og lifandi dýra um þjóðvegi landsins sé og verði vandamál. „Ókumenn þurfa að horfast í augu við það að lausagang- ur búfjár er eitthvað sem þeir verða að hafa gætur á, en það þarf að minna á hættuna betur en gert hef- ur verið hingað til.“ Nefnd kanni tillögur til úrbóta Landbúnaðarráðherra lét fyrir skömmu skipa nefnd sem fjalla á um mögulegar leiðir til að halda búfé frá helstu þjóðvegum landsins. Árið 1989 starfaði einnig nefnd á vegum landbúnaðarráðunejtisins sem fjall- aði um málefnið og lauk hún störfum það ár. Ennfremur stendur fyrir dyrum heildarendurskoðun á lögum um búfjárhald. Hinni nýskipuðu nefnd er gert að ljúka störfum fyrir 1. október næstkomandi. Árið 1991 voru sett lög um bú- fjárhald, en áður höfðu þau verið byggð á lögum um búfjárhald í kaupstöðum og kauptúnum. í fímmtu grein laganna um búfjár- hald, sem fjallar um vörslu búfjár, kveður á um að sveitarstjórnum sé heimilt að koma í veg fyrir ágang búfjár með því að ákveða að eigend- um þess sé skylt að hafa það í vörslu allt árið eða tiltekinn hluta ársins. Heimildin getur tekið til af- markaðs hluta umdæmisins, svo sem umhverfis þéttbýli eða fjölfar- inna vega. Jón Erlingur Jónasson, aðstoðar- maður landbúnaðarráðherra, segir að það sé eindregin stefna landbún- aðarráðuneytisins að bæta öryggi akandi vegfarenda með því að skoða leiðir til að halda búfé frá helstu þjóðvegum. „Hlutverk nefndarinnar er að koma með tillögur til úrbóta og það er eindregin stefna landbún- aðarráðuneytisins að fara út í ein- hverjar úrbætur. Þá erum við að horfa til helstu þjóðvega, fjölförn- ustu leiða og áhættusvæða. Hvort lagabreytingu þurfí til verður að koma í ljós í nefndarstarfinu. Við stefnum að því að banna lausagöngu á helstu þjóðvegum en það er óraunhæft markmið að ætla að losna við laust búfé meðfram öllum vegum landins,“ segir Jón Erlingur. I nefndinni eiga sæti Níels Árni Lund, deildarstjóri í landbúnaðar- ráðuneytinu og formaður nefndar- innar, Ólafur R. Dýrmundsson, ráðunautur, tilnefndur af Bænda- samtökum íslands, Stefán Eiríks- son, deildarstjóri, tilnefndur af dómsmálaráðuneytinu, Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri, til- nefndur af Félagi íslenskra bifreiða- eigenda, Valgarður Hilmarsson, oddviti, tilnefndur af Sambandi ís- lenskra sveitarfélaga, og Stefán Er- lendsson, lögfræðingur hjá Vega- gerðinni, tilnefndur af samgöngu- ráðuneytinu. 60 miHjónir í bætur til búfjáreigenda og bænda Sumarliði Guðbjömsson, deildar- stjóri tjónadeildar hjá Sjóvá-Al- mennum, segir að bætur sem bænd- ur og búfjáreigendur fái þegar skepnur þeirra drepast séu um og undir 10 þúsund krónum. Viðmiðun- artölur séu 6.200 krónur fyrir tví- lembing, 7.600 krónur fyrir einlemb- ing og tíu þúsund krónur fyrir full- orðna ær. Hann segir ennfremur að þær tölur séu þó aðeins lítill hluti af heildartjónakostnaði því oft verði tjón á bifreiðum töluvert. I könnun sem Hugi Hreiðarsson gerði á fjölda slysa og tjóni sem hlýst af völdum lausagöngu búfjár, og birt var í Morgunblaðinu í janúar sl., kemur fram að greiðslur ís- lenskra tryggingarfélaga til bænda vegna taps á búfé hafi numið um 60 milljónum króna frá árinu 1990 til ársins 1996. Það jafngildir um átta og hálfri milljón króna á ári og þá eru ekki meðtaldar þær greiðslur sem ökumenn greiða búfjáreigend- um án milligöngu tryggingarfélaga. Meðalgreiðsla fyrir hross er sam- kvæmt þessum útreikningum 195 þúsund krónur og um 7.600 krónur fyrir lamb eða kind. 540 skepnur drápust á tveimur árum í könnuninni hefur greinarhöf- undur samband við 30 lögregluemb- ætti landsins og tryggingarfélög. Hann kemst að því að stærstu tjón- þolendur í umferðaróhöppum þar sem ekið er á búpening eru öku- menn sjálfir. Þeir beri kostnað af eigin tjóni og greiði bændum fyrir dýrið hafi það drepist. Tjónatölur ökumanna vegna skemmda á bif- reiðum liggi hins vegar ekki fyrir þar sem þær fari sjaldan í gegnum tryggingakerfið sökum bónusmissis ökumanna láti þeir tryggingafélögin greiða tjónið. í könnuninni kemur fram að að meðaltali hafi rúmlega eitt hundrað ökumenn ekið árlega á búfé á árun- um 1990 til 1996. Flest höfðu slysin orðið á þjóðvegi 1 og helst að sum- arlagi. I flestum tilvikum eru öku- menn í órétti í slíkum óhöppum og þau svæði sem oftast eru nefnd í skýrslum lögreglu eru Húnavatns- sýsla og Mýra- og Borgarfjarðar- sýsla. Þar fer saman mikill ökuhraði á vegum og mikil landbúnaðarhér- uð. Á árunum 1994 til 1996 drápust alls 411 kindur og 129 hross eða alls 540 skepnur. Sams konar könnun var gerð fyrir árin 1986 til 1988 en þá drápust 450 skepnur. Fjöldinn hefur því aukist hin síðustu ár. I þessum ákeyrslum var oftast um minniháttar óhöpp að ræða segir í greininni og tjón að jafnaði innan við 100 þúsund krónur. Bændur báðu ekki um lagningu vega í heimalöndum Ökumenn geta þó stundum verið í rétti. Ef girt er beggja vegna vegar- ins þar sem óhappið á sér stað getur verið að ábyrgðin liggi hjá búfjár- eigandanum. Varðandi rétt öku- manna segir Sumarliði að veik von sé til þess að hann sé í rétti jafnvel þó girt sé beggja vegna vegar. Vegalögin sem kveða á um að lausa- ganga sé bönnuð á slíkum vegar- köflum stangist á við umferðarlögin, sem kveða á um ótakmarkaða ábyrgð ökumanns. Ekki hafi enn reynt á hvort umferðarlögin eða vegalögin séu rétthærri. Bent hefur verið á að þó bændur og búfjáreigendur beri ekki ábyrgð á búpeningi í lausagangi sé ekki við þá að sakast heldur þurfi allir sem að málunum koma að taka höndum saman. Bændum ber lögum sam- kvæmt skylda til að leyfa lagningu vegar í gegnum heimalönd. Fyrir árið 1994 hafði veghaldari heimild til að leggja vegi án þess að honum bæri skylda til að girða meðfram þeim. Umboðsmaður Alþingis úr- skurðaði árið 1994 að veghaldara bæri skylda til að girða meðfram vegum og að auk þess skyldi greiða hluta af viðhaldi girðinganna á móti landeiganda. Bændur hafa bent á að þessi breyting hafi verið þeim mikil- væg, sérstaklega þar sem þeir kalli ekki eftir lagningu veganna né að á þeim sé leyfður 90 km hámarks- hraði. Þeim sé alls ekki sama um ökumenn og vilji ráða bót á þessu máli líkt og allir aðrir. Verktakar segja að kostnaðaráætlanir opinberra aðila séu of lágar Segja áætlanir miðast við samdráttarárin KOSTNAÐARÁÆTLANIR opin- berra aðila miðast við verkkostnað eins og hann var þegar lægð var í verktakaiðnaðinum, er mat verk- taka sem Morgunbíaðið hafði sam- band við. í blaðinu í gær var haft eftir verkefnisstjóra Fram- kvæmdasýslu ríkisins að tilboð í verk fyrir opinbera aðila séu al- mennt 20-50% yfir kostnaðaráætl- un. ísleifur Guðmannsson, hjá Fjöl- verk-verktakar ehf., sem vinnur mest fyrir Reykjavíkurborg að lagningu gangstétta og hellulagna, segir að tilboð í verk hjá opinberum aðilum hafi yfírleitt verið talsvert hærri síðastliðið vor en þau hafi áð- ur verið og talsvert yfir kostnaðar- áætlun. „Hins vegar er kostnaðaráætlun opinberra aðila yfirleitt út í hött. Þegar slagurinn var sem mestur um verkefnin voru þau boðin niður úr öllu valdi. Verktakar voru þá að taka að sér verk fyrir 60-70% af kostnaðaráætlun. Þegar samdrátt- urinn hafði verið viðvarandi svona í nokkur ár lækkuðu menn kostnað- aráætlanir í samræmi við ástandið þannig að kostnaðaráætlanir voru komnar langt niður fyrir raunveru- legan framkvæmdakostnað. Enda fóru verktakar, að minnsta kosti hinir smærri, hver á fætur öðrum á hausinn,“ sagði ísleifur. ísleifur segir að það að tilboð séu nú 20-50% yfir kostnaðaráætl- un þýði ekkert annað en að tilboðin endurspegli nú leiðréttar kostnað- aráætlanir. Hann segir að Fjöl- verk-verktakar hafi mörg verk í takinu en þau rétt dugi til að fyrir- tækið skrimti en nægi ekki til þess að fyrirtækið geti safnað í sjóði til endumýjunar á tækjum. „Ég vil því fullyrða að tilboðin séu langt frá því að vera mikið yfir réttum kostnaðaráætlunum. Góð- ærið hefur vissulega skilað verk- tökum auknum tekjum en undan- farin ár hafa margir smærri verk- takar verið að tapa miklum pening- um á hverju ári og margir fóru í gjaldþrot," segir ísleifur. Gunnar Gissurarson, fram- kvæmdastjóri Gluggasmiðjunnar hf., segir að það sem valdi hækkun tilboða sé hinn stutti framkvæmda- tími á öllum verkum. „Það er Ijóst að það er meira að gera en framkvæmdatíminn er stuttur. Þess vegna myndast tölu- verð spenna um þetta leyti árs. Virkjana- og stóriðjuframkvæmdir hafa tekið til sín töluverðan mann- afla af Reykjavíkursvæðinu og meðan svo er myndast mikil pressa á markaðnum sem hækkar tilboð- in. Hinn stutti framkvæmdatími veldur því að menn eru komnir í bullandi yfirvinnu með sinn mann- skap og þá hækka náttúrulega til- boðin sem því nemur,“ sagði Gunn- ar. Hann sagði að eðli tilboðanna réðist líka mikið af því um hvers konar framkvæmd væri að ræða. Flóknari og erfiðari verk skiluðu hærri tilboðum. Hann kvaðst ekki kannast við að tilboð hefðu hækkað að ráði þegar um einfaldari verk- efni væri að ræða. Gunnar tók undir þá skoðun að opinberir aðilar miðuðu kostnaðar- áætlanir við þau verð sem voru í gangi meðan samdráttur var í verktakaiðnaðinum á árum áður. „I mörgum tilfellum er það því miður orðið þannig að menn eru hættir að gera kostnaðaráætlanir. Heldur er tekið markaðsverð yfir vetrarmán- uði þegar ekkert er að gera og því haldið fram að það eigi að vera kostnaðaráætlun. Þetta er mark- aðsverð á tilteknum tíma en það þýðir ekki að það sé endilega rétta kostnaðarverðið,“ sagði Gunnar. I ( i i í I t f 8 f 1 1 ! i I L i t I I í

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.