Morgunblaðið - 22.07.1998, Side 12

Morgunblaðið - 22.07.1998, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ 'i AKUREYRI Kristjana syngur á djasskvöldi KRISTJANA Stefánsdóttir söng- kona ásamt akureyrsku djasstríói syngur á heimtum fimmtudegi í Deiglunni fimmtudagskvöldið 23. júlí kl. 21.30. Tríóið er skipað þeim Jóni Rafnssyni kontrabassa, Ósk- ari Einarssyni á píanó og Benedikt Bi-ynleifssyni á trommur. Kristjana hefur þrátt fyrir ung- an aldur komið víða við í tónlistinni og er í hópi efnilegustu söngvara landsins, en hún syngur bæði djass og klassík. Kristjana lauk prófi frá Söngskólanum í Reykjavík árið 1966, en var einnig við djassdeild Tónlistarskóla FIH. Hún stundar nú nám við djassdeild tónlistarhá- skólans í Hilversum í Hollandi. Jazzklúbbur Akureyrar stendur fyrir djasstónleikum í Deiglunni á hverju fimmtudagskvöld á sumrin í tengslum við Listasumar en Tu- borg styrkir þessa fimmtudagstón- leika. Morgunblaðið/Björn Gíslason Vinnu- skólakrakk- ar í reiptogi KRAKKARNIR í Unglingavinn- unni á Akureyri gerðu sér glað- an dag í Kjarnaskógi í gær. Farið var í leiki, m.a. reiptog, sem stóð sem hæst er ljósmyndara bar að garði og þá var vitanlega kveikt upp í grillinu og boðið upp á veit- ingar. Um kvöldið var ball í Sjall- anum. Um 300 unglingar, 14 og 15 ára, eru í vinnuskólanum og leggja þeir gjörva hönd á margt, en einkum fegrun umhverfisins. ---------------- Fjöruferð FRÆÐSLU- og ævintýraferð á veg- um Sumarháskólans á Akureyri verð- ur farin á morgun, fimmtudaginn 23. júlí. Að þessu sinni verður farin fjöru- ferð með Þóri Haraldssyni líffræð- ingi. Ekið verður út á Sílastaðatanga og gengin fjaran þaðan í átt að Akur- eyri. Mæting er við Háskólann á Akureyri, Þingvallastræti, kl. 17. S 1 s 1 f f Forsvarsmenn tjaldsvæða tilbúnir að taka á móti fjölda gesta á Halló Akureyri Fjölbreyttir möguleikar á gistingu UNDIRBÚNINGUR vegna hátíðar- innar Halló Akureyri sem haldin verður um verslunarmannahelgina gengur vel, en forsvarsmenn tjald- stæða á Akureyri og í nágrenni kynntu það sem boðið verður upp á á þeirra vettvangi á fundi sem haldinn var í gær. Tvö tjaldstæði eru rekin í ná- grenni bæjarins, á Húsabrekku gegnt Akureyri, þar sem komast fyr- ir um 4-500 manns í gistingu og við Vin á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit þar sem 350 manns komast fyrir auk þess sem varasvæði eru í næsta ná- grenni. Um 10 km eru að Hrafnagili og 7 að Húsabrekku frá miðbæ Akureyrar. Haraldur Guðmundsson í Húsa- brekku og Guðmundur Oddsson í Vin sögðu að á þeirra svæði sækti einkum fjölskyldufólk sem kysi næt- urkyrrð og til algjörra undirtekn- inga heyrði ef afskipti þyrfti að hafa af fólki á svæðinu vegna ölvunar. Að- sókn að þessum tjaldstæðum hefur verið góð síðustu verslunarmanna- helgar. Á Húsabrekku er góð hrein- lætisaðstaða, aðgangur að þvottavél, þurrkara og sturtum og þar er rekin lítil verslun með helstu nauðsynjum. Á Hrafnagili er sundlaug, góð hrein- lætisaðstaða, matsölustaður á hótel- inu og veitingasala í blómaskálanum Vín. íþróttafélögin reka Ijaldstæði íþróttafélögin KA og Þór reka líkt og á síðasta ári tjaldstæði á félags- svæðum sínum. Ami Stefánsson hjá KA sagði að tjaldstæði þar væru ætluð ungling- um. Gæsla væri afar öflug og mikið lagt upp úr því að halda því snyrti- legu. Stórt veitingatjald verður sett upp á svæðinu. Gestum gefst kostur á að nota sturtur í KA-heimilinu en önnur hreinlætisaðstaða er einnig yf- ir hendi. Hjúkrunaríræðingar verða á vakt allan sólarhringinn sem og tveir starfsmenn Stígamóta. Unglinga- dansleikir verða í íþróttahúsinu. Um 1.700 unglingar voru á tjaldstæðinu síðustu verslunarmannahelgi. Svala Halldórsdóttir hjá Þór sagði að ekki væri um hreinræktaðar fjöl- skyldubúðir að ræða, þróunin hefði orðið sú að á svæðið sækti fólk sem vildi sinna næturlífinu, en kysi jafn- framt að hafa öll þægindi innan seil- ingar, s.s. ljósalampa, heitan pott og aðgang að grilli og verönd við félags- heimilið. Barnafólk hefur því ekki í miklum mæli gist á svæðinu heldur einkum fólk yfir tvítugu. Sólar- hringsgæsla er á svæðinu. Hjá íþróttafélögunum er greitt gjald við komu og gilda sérstök arm- bönd sem aðgöngumiði að hvoru svæði. Þeir sem dvelja frá fimmtu- AKSJON Miðvikudagur 22. júlí 21.00^-Sumarlandið Þáttur fyrir ferðafólk á Akureyri og Ákureyringa í ferðahug. SUMARHÓTEL Góð aðstaða fyrir ættarmót, Allar veitingar Sundlaug Svefnpokapláss Tjaídsvæði Sími 464 3340 — fax 464 3163 rE^Ut Reykjadal, S-Þingeyjarsýslu. Morgunblaðið/Björn Gíslason HUGUR er kominn í aðstandendur hátíðarinnar Halló Akureyri en í gær var gistiaðstaða kynnt. Frá vinstri eru Tryggvi Marinósson, Klakki, Svala Halldórsdóttir, Þór, Ásgeir Hreiðarsson, Klakki, Haraldur Guð- mundsson, Húsabrekku, Árni Steinar Jóhannsson og Magnús Már Þorvaldsson í undirbúningsnefnd hátíð- arinnar, Guðmundur Oddsson, Vin, og Árni Stefánsson, KA. degi til mánudags greiða 3.000 krón- ur, 2.500 krónur ef dvalið er frá föstudegi, 1.500 krónur frá laugar- degi og 750 krónur frá sunnudegi til mánudags. Fjölbreytt dagskrá í Kjarnaskógi Skátafélagið Klakkur rekur fjöl- skyldutjaldstæði í Kjarnaskógi um verlunarmannahelgina, nú í fimmta sinn. Tjaldsvæðið við Þórunnar- stræti sem félagið annast í samstarfi við Akureyrarbæ verður lokað frá hádegi á fimmtudag, 30. júlí. Skógur- inn verður eftir sem áður opinn al- menningi sem njóta vill útivistar- svæðisins. Tryggvi Marinósson hjá Klakki sagði að smám saman hefði tjald- svæðið verið að breytast í að vera sérstök hátíð innan hátíðarinnar, en mikið er lagt upp úr að bjóða sem veglegasta dagskrá frá morgni til kvölds. Nefna má ratleiki, Kjarna- leikana, hópleiki af ýmsu tagi, þrautabraut, kraftakeppni, ævin- týraferð fyrir unglinga, gömlu dans- amir verða stignir, kvöldvaka við varðeld og þá er von á skemmtikröft- um úr miðbæ í heimsókn í Kjarna- skóg. íþróttatæki af ýmsu tagi eru í kjarnaskógi og þrír leikvellir með margs konar tækjum. Stórt tjald verður á svæðinu, þar sem verða borð og stólar fyrir um 100 manns, salernisaðstaða er á fimm stöðum í skóginum og hægt er að komast í sturtur í Kjarnalundi. Strætisvagnar Akureyrar verða með ferðir milli Kjarna og miðbæjar á klukkustundarfresti frá kl. 10 að morgni, en á kvöldin er bætt við vagni þannig að hálftími er á milli ferða til kl. 5 að morgni. Viðskiptastofa Landsbanka Islands á Akureyri Selja bréf sameinaðs sveitarfélags VIÐSKIPTASTOFA Landsbanka Islands á Akureyri sér um sölu á skuldabréfum í sameinuðu sveitar- félagi Dalvíkur, Árskógshrepps og Svarfaðardals. Landsbanki Islands sölutryggir útboðið en samtals eru seld skuldabréf fyrir 100 milljónir króna og eru þau til 12-15 ára. Þau eru verðtryggð og bera 5% vexti miðað við vísitölu neysluverðs, en þau verða seld á ávöxtunarkröfunni 5,19, sem er einungis 29 punktum yfir ávöxtunarkröfu húsbréfa. Lág ávöxtunarkrafa bréfanna endur- speglar sterka fjárhagsstöðu hins nýja sameinaða sveitarfélags. Ætl- unin er að nota andvirði bréfanna til hitaveituframkvæmda á Árskógs- strönd og við endurbætur á grunn- skólum sveitarfélagsins. Morgunblaðið/Björn Gíslason SIGURÐUR Sigurgeirsson, svæðisstjóri Landsbanka Islands á Norð- urlandi, Rögnvaldur Skíði Friðbjörnsson, bæjarsljóri á Dalvík, og Stefán B. Gunnlaugsson á viðskiptastofu Landsbankans á Akureyri við undirritun skuldabréfaútboðsins. í i | 1 I i s r i i 1

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.