Morgunblaðið - 22.07.1998, Side 18

Morgunblaðið - 22.07.1998, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1998 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞORVALDUR Skúlason: Málverk, olía á striga, 1965. ALFREÐ Flóki Nielsen: Blýantsteikning, 1960. BRAGI Ásgeirsson: Málverk, olía á striga, 1956. List og sfld á Siglufirði Lengi hefur það verið á stefnuskrá listrýn- is blaðsins, Braga Asgeirssonar, að grennslast fyrir um listasafn Siglufjarðar, o g afdrif fágætrar listaverkagjafar þeirra heiðurshjóna Arngríms Ingimundarsonar og Bergþóru Jóelsdóttur, sem kennd voru við verslunina Vörðuna á Grettisgötu 2a hér í borg. Og þá hann hermdi að megin- hluti þess væri til sýnis í stjórnsýsluhúsi staðarins héldu honum engin bönd. RÓALDSBRAKKI. Morgunblaðið/Bragi Ásgeirsson MARGT hefur verið um dýrðir á Siglufírði í sum- ar og tilefnið er að 80 ár eru síðan byggðakjam- inn fékk kaupstaðarréttindi og heil 180 ár frá því hann fékk löggilt verslunarréttindi. Hvorutveggja og margt fleira hefur rækilega verið tí- undað í fjölmiðlum, og ferð mín norður engan veginn farin til að minnast þess, heldur gera úttekt á Listasafni staðarins. Það varð til ár- ið 1980, er þau hjónin Arngrímur Ingimundarson, kaupmaður í Reykjavík, og kona hans, Bergþóra Jóelsdóttur, gáfu Siglufjarðarkaup- stað einkasafn sitt, sem aðallega samanstendur af málverkum, en einnig vatnslitamyndum, teikning- um og þrykkmyndum, grafík. Lengi hef ég vitað af þessu safni, sem ég vissi að væri vert allrar at- hygli og af þeirri gerð er kemur frá hjartanu. Hjónin voru fastagestir á sýningum um árabil og miklir aufúsugestir fyrir það hve vel þau rýndu í þær, auk þess að koma aftur og aftur ef þeim hugnaðist svo. Voru þannig af þeim gamla skóla, að þau flýttu sér hægt og ýfirveg- uðu yfirleitt kaup sín vandlega áður en að þeim var gengið. Frá þeim báðum stafaði manngæska og hlýja, Amgrímur hæglátur og djúpur en Bergþóra opin og broshýr. Hvorugu kynntist ég tiltakanlega, en naut þó þessara eiginleika þeirra ríkulega, einkum var sólskinsbros Bergþóru ávallt fallegt og uppörvandi er ég mætti henni á fömum vegi. Þegar þau festu sér myndverk, munu þau hafa haft þann háttinn á að lokinni sýningu, að stefna lista- manninum á skrifstofu fyrirtækis- ins á heimili þeirra á efri hæð á Grettisgötu 2a. Sjálf verslunin var á jarðhæð og þöktu málverk þar flesta veggi, og var afar óvenjulegur bakgmnnur og gluggaskreyti þessa mikla úrvals bamavagna og barna- rúma sem mikið til var höndlað með. Allir veggir heimilisins og skrifstofunnar vora sömuleiðis þaktir myndverkum og minnist ég þess er ég kom með málverk mitt, að íyrst var það skoðað vandlega í bak og fyrir, síðan boðið upp á vind- il og í glas, og að lokinni nokkurri orðræðu seilst ofan í skúffu, tekinn upp snyrtilegur seðlabunki og and- virði þess reitt af hendi að fullu. Áreiðanlega hefur farið fyrir mörg- um sem mér, að svífa niður stiga- ganginn að þeim fundi loknum og líta heiminn bjartari augum. Eink- um var ræktarsemin mikil gagnvart framsæknum og upprennandi lista- mönnum, sem þau trúðu á og vissu að áttu á brattann að sækja í þessu litla og fyrir suma mikilsverða hluti, óþroskaða þjóðfélagi. Trúlega hefur þeim fundist það fara saman, að flytja inn afar vandað úrval bama- vagna og barnarúma til að láta yngstu kynslóðinni líða vel, fleira henni til gleði og vegsemdar, hlú um leið að nýgræðingi í menningarlífí þjóðarinnar. Hér var líkast á ferð íslensk út- gáfa þeirrar manngerðar sem Danir hafa gefið samheitið „De glade givere“ og lögðu granninn að flest- um frábærastu listasöfnum í Dan- mörku, einnig mörgum fleiri lönd- um. Þetta vora aristókratar og list- höfðingjar í æðra veldi, með mikinn metnað fyrir hönd þjóða sinna, og þótt þau hjónin hefðu engan veginn MYNDAÐ við Sfldarminjasafnið. úr viðlíka sjóðum að miðla og þeir í útlandinu, var gæska þeirra og meðfædd höfðingslund engu minni. Það eru slíkir sem hafa gert svo marga staði og borgir yndislegar heim að sækja og svipað hefur þeim heiðurshjónum gengið til er þau gáfu safn sitt til Siglufjarðar í minn- ingu foreldra sinna, þeirra Ingi- mundar Sigurðssonar og Jóhönnu Arngrímsdóttur, Hvammskoti, Höfðaströnd, og Jóels Sumarliða Þorkelssonar frá Efstadal í Laugar- dal og Sigríðar Kristjánsdóttur frá Grafarbakka, Ytrihreppi, Arnes- sýslu. Atján ár munu liðin síðan safnið var afhent, þótt enn sem komið er hafí það ekki fengið samastað til frambúðar þar sem fólk getur geng- ið að því dags daglega. Ósjálfrátt dettur mér í hug, að sameina megi það annarri mikilvægri framkvæmd á staðnum og í rífandi uppbyggingu, sem er Síldarminjasafnið. Jafn- framt veitingaskála sem á að rísa í tengslum við það, þannig að úr verði eins konar listaskáli af hám gráðu, í líkingu við þann sem risið hefur í Hveragerði, og er hinn fyrsti sinnar tegundar á öllu landinu. Sfldarminjasafnið er líka sér á báti fyrir markað skipulag og upp- byggingu á menningarlegum grunni, og ber í sér möguleika á minjasafni á heimsmælikvarða. Harla gott í kaupstað með einungis um 1700 íbúa. Tímabilið sem hér skal mörkuð umgerð, er svo ævin- týralegt að það á sér fáar hliðstæð- ur og enga í þessari ákveðnu mjmd. Sagt hefur verið um Siglufjörð, að hann hafí verið höfuðstaður lands- ins á sfldarárunum fyrir hið mikla og iðandi líf er þar ólgaði. í öllu falli beindust augu allra landsmanna | þangað sumar eftir sumar er von var á síldargöngum. Allir fylgdust grannt með fréttum þaðan, ekki síð- | ur en örlagaríkum heimsviðburðum, vörðuðu hag þjóðarbúsins, hvers einasta manns á landinu um árabil. Engin frambærileg salarkynni munu vera til að hýsa listaverka- gjöfina í heild sinni, og nú er lista- verkin eru loks til sýnis er þeim dreift um stigaganga, fordyri, sal og fundarherbergi stjórnsýsluhússins. Safnið er margþætt og eini rauði þráðurinn er hið sérstaka litaskyn | hjónanna, eins og Brynja Baldurs- | dóttir myndlistarkona, sem hefur haft veg og vanda af uppsetningu myndanna, benti réttilega á. Var ekki rými fyrir nema vel helming safnsins, sem er um 120 verk, en það sem uppi er mun vera veiga- meiri hluti þess. Myndverkin eru í upprunalegu ástandi og umgerðir um þau af ýms- | um toga eins og verða vill, einkum ef þau hafa verið til upphengingar í | heimahúsi og rammar valdir með hliðsjón af tilfallandi rými. Brýnast er að gera nákvæma spjaldskrá yfir öll verkin, yfirfara ástand þeiira, hreinsa þau sem safnað hafa óhrein- indum og samhæfa umgerðir svo þær grípi ekki hver í aðra. Þetta era hyggindi sem í hag koma til lengri tíma litið, og ávinn- ingurinn ótvíræður, en hins vegar | fylgir því jafnaðarlega drjúgur kostnaður og óþægindi að vanrækja | þessa framþætti. Þegar þetta og I framtíðarrými er komið á rekspöl er ,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.