Morgunblaðið - 22.07.1998, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1998 21
AÐSENDAR GREINAR
Breyttar áherslur
í byggðamálum
í APRÍL sl. lagði for-
sætisráðherra fram á Al-
þingi tillögu til þingsá-
lyktunar um stefnu í
byggðamálum íyrir árin
1998-2001. Stjóm
Byggðastofnunar gerði
drög að þessari tillögu
sem ríkisstjórnin breytti
lítillega. Því miður komst
tillagan ekki á dagskrá
Alþingis í vor, en verður
væntanlega tekin til um-
ræðu og afgreiðslu í
haust.
Mikil vinna og rann-
sóknir liggja að baki til-
lögunni, en stjórn
Byggðastofnunar leitaði
til ýmissa utanaðkom-
andi aðila með verkefni þessu tengd,
m.a. Háskólans á Akureyri, Hagþjón-
ustu landbúnaðarins, Stefáns Olafs-
sonar prófessors og Haraldar L. Har-
aldssonar hagfræðings. Skýrslur
þessara aðila eru stórfróðlegar og
gefa glögga mynda af högum fólks á
landsbyggðinni og þeirri miklu
byggðaröskun sem átt hefur sér stað.
Ástæður byggðaröskunar
Stefán Olafsson gerði viðamikla
viðhorfskönnun á síðasta ári, þar sem
200 manns í hverju kjördæmi voru
spurð fjölda spurninga, m.a. um
ánægju og óánægju með einstaka
þætti búsetuskilyrða og eins hvort
þeii' hygðu á flutning og þá hvers
vegna. Þar kom í ljós að langflestir
þeirra sem hyggja á flutning gera það
vegna einhæfni atvinnulífsins, einnig
vegur þungt aðstaða til menntunar og
hár húshitunarkostnaður. Það er því
fróðlegt að skoða hvernig brugðist er
við þessum þremur þáttum í tillögu
forsætisráðherra.
Húshitunarkostnaður
I tillögu forsætisráðherra er það
markmið sett að verð á orku til hit-
unar íbúðarhúsnæðis verði á næstu
þremur árum fært til samræmis við
meðaldýrar hitaveitur
með aukinni þátttöku
Landsvirkjunar og
ríkissjóðs. Þetta er
auðvitað gríðarlegt
hagsmunamál fyrir
landsbyggðina þar
sem húshitunarkostn-
aður er víðast hvar
langt yfir þessum
mörkum.
Þá er það mikilvægt
atriði í tillögunni að
heimilt verði að nýta fé
sem ætlað er til niður-
greiðslna rafhitunar í
fimm ár til þess að
lækka stofnkostnað
nýrra hitaveitna. Um
15% landsmanna hafa
ekki aðgang að hitaveitum, en á næst-
unni verður kannað ítarlega hvort
ekki finnst heitt vatn á þeim svæðum
þar sem ekki er hitaveita. Að því
verkefni standa ríkisstjómin,
Byggðastofnun og Orkusjóður.
Menntun
í tillögunni segir að menntun á
landsbyggðinni verði stórefld, sér-
staklega hvað varðar verklegar
greinar tengdar atvinnulífínu og
tölvunám. Jafnframt verði bætt skil-
yrði þess fólks sem sækja verður
nám utan heimabyggðar sinnar.
Námsráðgjöf verði aukin. Komið
Þingsályktunartillaga
forsætisráðherra er
metnaðarfullt plagg,
segir Guðjón Guð-
mundsson, og það tek-
ur á fjölmörgum mál-
um landsbyggðarinnar.
verði á samstarfi atvinnulífs og
skóla á landsbyggðinni um endur-
og sérmenntun og stuðlað að því að
allir eigi tækifæri á að afla sér nýrr-
ar þekkingar, m.a. í samræmi við
breytingar í atvinnuháttum. Mögu-
leikar á fjarkennslu verði að fullu
nýttir.
Atvinnumál
Um aðgerðir í atvinnumálum seg-
ir m.a. í tillögu forsætisráðherra:
Unnið verði markvisst að aukinni
fjölbreytni atvinnulífs á landsbyggð-
inni. Þróunarstofur verði efldar og
þannig treystur grandvöllur til ný-
sköpunar og aukinnar fjölbreytni.
Hlutverk þeirra verði m.a. að auka
samkeppnishæfni atvinnulífs á
landsbyggðinni og aðstoða fyrmtæki
við öflun verkefna og styrkja innan
lands sem utan. Tryggt verði að að-
stoðin skili sér til starfandi fyrir-
fyrir
steinsteypu.
Léttir ^
meöfærilegir
viðhaldslitlir.
Ávallt fyrirliggjandi. y
Góö varahlutaþjónusta.
Þ. Þ0RGRÍMSS0N & C0 Ármúla 29, simi 38640
FYRIRLIGGJkKDI: GðLFSLlPIVÉLAR - RIPPER ÞJÖPPHR - DJELUR
STEYPUSA6IR - HRfRIVÉLAR - SA6ARBLÖB - VbbKuÍ framlellsla.
Guðjón
Guðmundsson
tækja jafnt sem nýrrar atvinnu-
starfsemi.
Til að tryggja nauðsynlegt eigið
fé í nýsköpunarverkefnum verði
komið á fót eignarhaldsfélögum á
landsbyggðinni með aðild Byggða-
stofnunar og varið allt að 300 millj.
kr. á fjárlögum hvers árs á áætlun-
artímabilinu í þeim tilgangi. Þátt-
taka Byggðastofnunar getur numið
allt að 40% af hlutafé viðkomandi
félags.
40 millj. kr. á
Vesturland
Á fundi stjórnar Byggðastofnunar
í maí var samþykkt að leggja 40 millj.
kr. í hlutafé í eignarhaldsfélag til efl-
ingar atvinnulífs á Vesturlandi. Á
móti verða heimamenn að leggja 60
millj. Mikilvægt er að það takist sem
fyrst, því enginn vafi er á að öflugt
eignarhaldsfélag er árangursríkasta
leiðin til að fjölga atvinnutækifærum
og auka fjölbreytni atvinnulífsins.
Það er a.m.k. reynsla Sunnlendinga,
en á tveggja ára starfstíma Atvinnu-
þróunarfélags Suðurlands hafa um
30 ný fyrirtæki komið á svæðið með
talsvert á annað hundrað störf og 600
millj. kr. fjárfestingu.
Metnaðarfull stefna
Þingsályktunartillaga forsætisráð-
herra er metnaðarfullt plagg sem
tekur á fjölmörgum málum lands-
byggðarinnar. Eg hef hér aðeins
nefnt 3 þeirra mála sem eru helstu
orsakavaldar búferlaflutninga, en ég
hvet þá sem áhuga hafa að kynna sér
tillöguna og þá ítarlegu greinargerð
sem henni fylgir.
I könnun Stefáns Olafssonar kom
fram að um 20% íbúa landsbyggðar-
innar (19.000 manns) vilja heldur búa
á höfuðborgarsvæðinu. Á móti kemur
að 13% íbúa höfuðborgarsvæðisins
(23.000 manns) vilja heldur búa á fá-
mennara svæði. Misvægið í búsetu-
þróun á landinu er því fyrst og fremst
vegna óánægju með búsetuskilyrði
sums staðar á landsbyggðinni.
Tilefni til byggðaþróunaraðgerða
er nú mun meira en verið hefur á síð-
ustu áratugum. Tillaga forsætisráð-
herra vísar leiðina í þeim efnum, en
meginmarkmið hennar er að fólks-
fjölgun á landsbyggðinni verði ekki
undir landsmeðaltali á næstu árum
og nemi 10% til ársins 2000.
Höfundur er þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins á Vesturlandi.
Fríkirkjan í Reykjavík
Safnaðarferð Fríkirkjunnar í Reykjavík
Efnt verður til árlegrar safnaðarferðar Fríkírkjunnar sunnudaginn
26. júlí. Farið verður frá Fríkirkjunni kl. 9.00 árdegis. Ekið verður
austur fyrir fjall og tekið þátt í guðsþjónustu í Oddakirkju á
Rangárvöllum kl. 11.00, og í lok guðsþjónustu mun staðarprest-
ur, sr. Sigurður Jónsson, greina frá merkri sögu staðarins.
Síðan verður farið í Gunnarsholt þar sem starfsemi Landgræðsl-
unnar verður skoðuð.
Um eftirmiðdaginn verður farið um lágsveitir Árnessýslu og
komið við á Stokkseyri þar sem snæddur verður kvöldverður og
kirkjan skoðuð í fylgd sr. Úlfars Guðmundssonar prófasts.
Þátttökutilkynningar berist og nánari upplýsingar veitast
í símum: 552 7270, 551 8208, 562 7020 eða 553 2872.
Safnaðarprestur
iir
9,85%*
• ÓvBrfttryggt meftafielm 2% lántokugjaldl
Vörðufélagar Landabankana og þelr aam gerast Vörðufélagar fyrlr 30. aaptombor
1998 fara atyttrl lolðlna þogar þolr taka Bílalén hjé Landabankanum. Lénlð
gotur numlð allt að 78% af kaupverð! nýrrar blfrolðar og allt að 60% af kaupvorðl
notaðrar blfrolðar. Lénatímlnn or allt að 6 ér moð ménaðarlogum afborgunum.
•Bértllboft fyrlr Viirftufélago tam gildir tll »0,08,08.
ik\
andsbankl
slands
Bankl allra landamanna
HAFDU SAMBAND VID ÞjONUSTUFULLTRUANN Þ I N N S F M VI I I I It Þ F It Al LAR NANARI UPPI YSINGAR OG ADSTOD.