Morgunblaðið - 22.07.1998, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1998 37
<
I
I
<
<
(
(
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
I
f
i
BRÉF TIL BLAÐSINS
Hjálpum fátækum barna-
íjölskyldum til sjálfshjálpar
Frá Ólöfu Elfu Sigvaldadóttur:
ÞEGAR verið er að fjalla um mann-
réttindamál, fátækt og dapurlegt
hlutskipti fólks er alltaf leitað að
fyrirmyndum ut-
an íslands. Þegar
svo athyglin bein-
ist að íslandi er
ævinlega stað-
næmst við „sjúka
einstaklinga" og
farið af stað með
safnanir fyrir þá.
En hvað með
„heilbrigð börn“
fátækra ís-
lenskra foreldra sem ekki geta séð
þeim farborða. Þetta er hópur
barna sem er vanræktur á margvís-
legan máta vegna þess að foreldrar
þeirra hafa ekki bolmagn til að
standa undir þeim eðlilegu útgjöld-
um sem uppeldið hefur í för með
sér. Öll börn bera sig saman við fé-
lagana og þá sem þau þekkja og
þegar þau finna sig í hlutverki
„öskubusku" fyllast þau vanmáttar-
kennd og verða óhamingjusöm.
Þessi vanmáttarkennd getur svo
hæglega leitt til þess að börnin fá
einkenni „langveikra barna“ sem
stafar af afleiðingum langvarandi
fátæktar, höfnunar, eineltis og virð-
ingarleysis. Hver vill að börnin
okkar á íslandi gangi um vannærð í
reiðileysi og vanhirðu? Það ætti að
vera auðveldasta mál í heimi að
hjálpa þeim, því vandamál þeirra er
fyrst og fremst vöntun á beinhörð-
um peningum, sem nóg er af í þjóð-
félaginu.
Dagleg barátta
Þessar fjölskyldur eru atvinnu-
lausar einstæðar mæður, einstæðir
öryrkjar með börn eða fjölskyldur
þar sem fyi-irvinnan er mjög
skuldug af einhverjum ástæðum
eða á lægstu launatöxtum og fólkið
nær ekki að láta enda ná saman um
hver mánaðamót. Skuldirnar
hrannast upp. Hótunarbréf frá
veitustofnunum, lögfræðingum og
lánardrottnum eru daglegur póstur
og fólkinu finnst orðið óbærilegt og
þrúgandi að opna póstinn sinn.
Þegar svo bréfin frá sýslumannin-
um eru ekki opnuð eða bréfin frá
Dómhúsi Reykjavíkur eða öðrum
stofnunum, þar sem „réttlætið“ er í
fyrirrúmi, eru ekki opnuð í tæka tíð
ganga útivistardómar í skuldamál-
um þessa fólks með tilheyrandi
fjárnámum og aðförum. Þetta fólk
er oftast nær ofurselt Félagsmála-
stofnunum og verður að draga fram
lífið af því sem það fær skammtað
þaðan. Þegar peningurinn er upp-
urinn er leitað til hjálparstofnana
og reynt að lifa af þeim matar-
skömmtum sem þaðan fást þangað
til næsti peningur kemur frá Fé-
lagsmálastofnun.
Hjálparstarf fyrir fátæka
Hjálparstarf til handa fátækum
fjölskyldum á íslandi þarf að end-
urskipuleggja frá grunni. Húsnæð-
isnefnd og Félagsmálastofnun
verða að vinna skipulegar saman.
Ekki gengur að krefjast hárrar
húsaleigu af fjölskyldu með 50 þús.
kr. í ráðstöfunartekjur. Það gengur
heldur ekki að byggja hjálparstarf
á matargjöfum með vöru sem er
komin framyfir gildistímann og
varan komin á þann tímapunkt að
rýrna að gæðum. Er eitthvert eftir-
lit með að ekki sé gefínn of gamall
matur sem ekki bara hefur rýrnað
að gæðum heldur er byrjaður að
skemmast og dregur kraftinn úr
fólkinu sem verður að gera sér
hann að góðu?
Orðbragð, viðmót og framkoma
gagnvart fátæku fólki þarf stórlega
að batna. Fátæka fólkið okkar er
oft öðru fólki fremur mjög við-
kvæmt og annt um sjálfsvirðingu
sína. Vinalegt viðmót og kurteisi
getur gert mikið gagn og er í raun
eitt af þeim þáttum sem fátækt fólk
þarf mikið á að halda ef frá er talið
matur, húsnæði og einhver lág-
marks afþreying eða upplyfting.
Foreldri sem reynir að gera allt til
að sjá sér og sínum farborða má
aldrei lenda í þeirri aðstöðu að enga
hjálp sé að fá. Þess vegna verða að
vera til stuðningsfélög sem eru við-
bót við þau opinberu úrræði sem
finnast.
Hver einasti einstaklingur
er ómissandi
íslendingar eru fámenn þjóð þar
sem hver einstaklingur er í raun
ómissandi. Þeir tímar koma að fjöl-
skyldur eru hjálparþurfi og þeim á
að hjálpa, því í landinu er ofgnótt
matar og nóg til handa öllum og
miklu meira en það. Sá sem þiggur
hjálp í dag getur verið gefandi á
morgun og skilað til baka margfalt
því sem hann þáði þegar viðkom-
andi var hjálparþurfi.
Bætum kjör fátæks fólks á ís-
landi. Hækkum lágmarksbætur og
eflum hjálparstarfið. Gefum í safn-
anir handa fátækum börnum því
þeim er hægt að hjálpa með fjár-
munum. Hjálpum ekki bara „sjúk-
um“ eða erlendu fólki í atvinnuleit.
Það væru margar íslenskar fjöl-
skyldur tilbúnar að leggja land
undir fót og fara til Vestfjarða eða
Norðvesturlands ef það sama væri
í boði og erlendu fólki er boðið upp
á, sem nýleg dæmi eru fyrir. Við
skulum taka þátt í erlendu hjálpar-
starfi en við skulum líka hjálpa
okkar eigin fólki sem býr við eymd
og vonleysi og sér ekki út úr vand-
ræðum sínum. Langvarandi veik-
indi, slys, barnmergð, atvinnumiss-
ir og langvarandi atvinnuleysi eru í
langflestum tilfellum ástæða fá-
tæktarinnar. Hafi fátæktin ekki
verið of langvarandi og yfirþyrm-
andi og ekki náð að gera út af við
fólkið þá geta úr þessum jarðvegi
sprottið einstaklingar sem geta
haft ómetanlegt gagn fyrir land og
þjóð vegna seiglu sinnar og lífs-
skoðunar sem er okkur hinum til
eftirbreytni.
Á síðastliðnu hausti var stofnað
stuðningsfélag fyrir börn fátækra
foreldra. Stuðningsfélagið hefur
tekið á móti framlögum á tékka-
reikningi nr. 3440 í Búnaðarbanka,
Seljaútibúi, og einnig er hægt að
styðja hjálparstarfið með því að
kaupa geisladiska og hljóðsnældur
af sölufólki sem hringir og býður
fjölbreytt úrval af ofannefndu til
kaups. Sími hjálparstarfsins er 588
4343.
ÓLÖF ELFA SIGVALDADÓTTIR,
í stjórn stuðningsfélagsins Fátæk
börn á íslandi.
Stökktu til
Benidorm
5. ágúst
frá kr. 29.932
Aðeins
16 sæti
Heimsferðir bjóða nú þetta ótrúlega tilboð til
Benidorm þann 5. ágúst, en nú fyllum við síðustu
sætin í ágúst. Þú bókar núna og tryggir þér sæti í
ferðina og fjórum dögum fyrir brottför hringjum við í þig og tilkynnum
þér á hvaða gististað þú gistir í fríinu. Benidorm er nú einn vinsælasti
áfangastaður Islendinga og hér getur þú notið hins besta í fríinu.
Verð kx.
29.932
Verð kr.
39.960
M.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára, M.v. 2 í studio/íbúð, vika, 5. ágúst.
vikuferð, 5 ágúst -------------------------------------
4E1MSFERÐIH
Verð kr.
49.960
\
•wBBriír
M.v. 2 í studio/íbúð, 2 vikur,
5. ágúst.
Austurstræti 17, 2. hæð ♦ sími 562 4600
ÓlöfElfa
Sigvaldadóttir
qætir
Farið f
bílaleik
- með alvöru bílum!
í kvöld er dregið í Víkingalottóinu
um tugi milljóna króna!
Fáðu þér miða fyrir kl. 16 í dag.
I
I
I
SKEIFAN 11 • SÍIVII 550-4444 • PÓSTKR. 550-4400