Morgunblaðið - 22.07.1998, Side 38

Morgunblaðið - 22.07.1998, Side 38
38 MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Silungur með hvönn Því miður var það ekki silungur úr Grenlæk sem ég setti á grillið um helgina segir Kristín Gestsdóttir. EG græt Grenlækjarsjóbirting- inn og bleikjuna sem ekki eru lengur til í hinum vatnslausa Grenlæk. Hvílik eftirsjá, en í Grenlæk er að líkindum bragð- besti bleikjustofn landsins. Þetta er sá silungur sem ég hefí mest borðað af um mína daga. Hins fagra umhverfís Grenlækjar hefi ég hér áður oft notið í veiði með mínum börnum og Seglbúðar- börnunum. Margir góðir veiði- staðir voru við Grenlæk en í mestu uppáhaldi var staðurinn of- an gömlu rafstöðvarinnar sem var upphaflega byggð árið 1926. Einnig var gaman að sitja á berg- brúninni fyrir ofan Tröllshyl og horfa á glampandi bleikjuna. Hér vex hún vel og er ekki stygg. I Kirkjubæjarstofu á Klaustri eru upplýsingakort um fólksfjölda á bæjum í Landbroti eftir Skaftár- elda. Fækkað hafði á öllum bæj- um nema í Seglbúðum, en þar skorti ekki silung sem sóttur var í hyl sem kallaður var Oddsbúr eft- ir Seglbúðabóndanum. Hann var bammargur og frá þeim systk- inahóp eru komnar stórar ættir. Vonandi verða þessir úrvalsstofn- ar bleikju og sjóbirtings ekki út- dauðir þegar vatn fer aftur að renna um Grenlæk, en Vegagerð- in er nýlega búin að ryðja burt garði þeim sem hindraði Skaftá í að renna út í Eldhraunið. Þeir sem veiða silung á ferðum sínum og grilla á staðnum þurfa sjaldn- ast annað en teygja sig eftir kryddinu, hvönninni á ár- eða vatnsbakkanum og túnsúrum í nálægum lautum. Hér er upp- skrift að grilluðum heilum silungi, en að sjálfsögðu má flaka hann og leggja flökin saman. Bein eru í silungi sem öðrum fiski og getur verið erfítt að forðast þau ef fisk- urinn er heill en ekki flakaður. Hellið sjóðandi vatni á roð físks- ins og skafíð allt slím af hvort sem fiskurinn er heill eða flakað- ur, en sjálfsagt er að borða roðið, enda er silungur án roðs ekki sami matur. Brakandi grillað sil- ungsroð, namm, namm. Grillaður silungur með hvönn og lúnsúrum 1 silungur, um 1 kg 2 tsk. salt 'k msk. milt sinnep 1-2 ungir hvannaleggir nokkur túnsúrublöð (má sleppa) nokkur hvannablöð olia til að pensla með 1. Hellið sjóðandi vatni á roðið og skafið vel, skerið af ugga og takið tálknin út hausnum ef hann er hafður með. Skerið örlítið upp með dálknum að aftanverðu inn í holdið og niður að framanverðu frá kviðnum. 2. Stráið salti inn í fískinn, smyrjið með sinnepi þar sem þið skáruð í fískinn og inn í kviðinn. 3. KJjúfíð hvannaleggina, sker- ið í um 5 em bita, raðið þeim ásamt súrublöðum þétt inn í físk- inn ofan á sinnepið 4. Penslið roðið með matarolíu og leggið hvannablöð báðum megin á það. 5. Notið samlokugrind. Hitið hana og penslið með olíu. Leggið fískinn í hana og setjið ofan á grindina á grillinu. Grillið þetta við mesta hita í um 12 mínútur á hvorri hhð. Snúið nokkrum sinn- um meðan á grillun stendur. Ekki er hægt að gefa upp nákvæman tíma, grill eru mismunandi svo og fjarlægð grindar frá glóð. Þegar fiskurinn er laus frá beinum er hann tilbúinn. 6. Leggið fískinn á fat, fjarlæg- ið hvönnina inni í honum. Blöðin utan um má borða. Meðlæti: Smjör og brauð bakað á grillinu eða annað brauð. Hvannabrauð á grillið 10 dl hveiti 1 tsk. salt 2 tsk. þurrger 1-2 dl klipptir blómsveipar af hvönn 4 '/»dl fingurvolgt vatn Setjið allt í skál og hnoðið deig. Skerið í bita á stærð við lítil hænuegg. Þrýstið þunnt út með höndunum eða notið kökukefli, flösku eða gosdós. Setjið á grillið, hafið mesta hita og bakið í 1-2 mínútur á hvorri hlið. Fylgist vel með, erfítt er að gefa upp ná- kvæman tíma. Brauðið má alls ekki brenna en brúnir blettir eiga að myndast á yfirborðinu. Takið brauðið af grillinu, setjið jafnóð- um í plastpoka og vefjið í stykki svo að það haldist mjúkt og heitt. Athugið: Best er að byrja á að baka brauðið. Þurrefni í brauðið má blanda saman í plastpoka og taka með sér í veiðiferðina eða aðra ferð og blanda volgu vatni í á staðnum. í DAG VELVAKAMII Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Tapað/fundið GSM-sími fannst SKAK limsjón Margeir Pétursson STAÐAN kom upp á Mechanics alþjóðaskák- mótinu í San Fransisco í Bandaríkjunum sem lauk í síðustu viku. Tyrkinn Suat Atalik (2.595) var með hvítt, en Bandaríkjamað- urinn Larry Christiansen (2.575) hafði svart og átti leik. Atalik var að enda við að leika gróflega af sér með 29. Hcl-el?? í stöðu sem var u.þ.b. í jafrivægi. 29. Dxg3+! 30. Hg2 (Auðvitað ekki 30. Hxg3? - Hhl mát) 30. - Dd6 31. De2 - Dd4+ 32. Df2 Dxf2+ 33. Kxf2 Hf8+ 34. Kg3 - Bxg2 35. Kxh4 - Hf4+ 36. Kg3 - Hf3+ 37. Kxg2 - Hxd3 38. He8+ - Kh7 39. b4 - Hc3 40. Hb8 - Hxc4 41. Hb7 - a6 og Tyrkinn gafst upp. Englendingurinn Julian Hodgson sigraði á mótinu með 7 v. af 9 mögulegum, 2.-3. Christiansen og Fedorowicz, Bandaríkjun- um 6 v., 4.-5. Benjamin, Bandaríkjunum og Atalik 5'A v., 6. D. Gurevich, Bandaríkjunum 5 v., 7. Soltis, BandaiTkjunum 3'A v. o.s.frv. Sérstök íþróttarás ÉG er ekki íþróttamaður lengur, því það er löngu búið að drepa niður þann áhuga. Ég gat samt sett mig í spor íþróttafíkla þegar HM-keppnin fór fram og raskaði öllum tímasetningum i sjónvarp- inu. Ég hugsaði því gott til glóðarinnar þegar HM- keppninni væri lokið, þá gæti ég aftur farið að horfa á Leiðarljós og frétt- ir kl. 17.30. En Adam var ekki lengi í Paradís. Nú er það golfið sem ryður öllum um koll. Ekki veit ég hvað margir fylgjast með því. Af hverju er ekki höfð sér- stök íþróttarás eins og margoft hefur verið beðið um? Einar. SL. laugardag fannst GSM-sími í Alfaborgum í Grafarvogi. Upplýsingar í síma 899 7273. Hjólajakki tapaðist BLAR hjólajakki með end- urskinsröndum tapaðist föstudaginn 10. júlí, líklega á jeppavegi í Flateyjardal við Skjálfanda. Finnandi vinsamlega hringi í síma 552 9090 eða 899 4416. Dýrahald Tvær kanfnur fást gefins TVÆR gráar karlkyns kanínur fást gefíns. Upp- lýsingar í síma 557 1170. Morgunblaðið/Kristinn KONA með barn í kerru við Ægisíðu Víkverji skrifar... HVAR nema á íslandi er hægt að spóka sig í þéttbýli fjarri umferðarhávaða, finna gróðurangan og hlusta á fuglasöng? Trúlega óvíða. Víkverji dagsins gekk nýlega spölkorn milli hverfa í Reykjavík í blíðuveðri og reyndi framangreinda stemmningu. Þetta mátti reyna á göngustígn- um meðfram Ægisíðu, sunnan flug- vallar og kirkjugarðsins í Fossvogi. Fátt var um mannaferðir á miðjum hvunndegi nema helst stúlkur í vist (það er ennþá til!) með börn í kerr- um og stöku hjólreiðamaður fór hjá. Á Ægisíðukaflanum teygaði göngu- maður að sér sjávarilmj naut jafn- framt útsýnis yfir á Álftanes og lengra suður um út á Reykjanesið og horfði á eftir bátum og skipum. Vert er geta um listaverkin mörgu sem komið hefur verið upp á þessari leið og eru hin skemmtilegustu. rSkerjafirðinum mátti sjá léttklætt fólk í garðvinnu við hús sín eða bara að njóta sólarinnar. Fuglar létu í sér heyra og voru tjaldur og stelk- ur þeirra háværastir. Átti stelkurinn það til að tylla sér á öðrum fæti á ílugvallargirðinguna og hefja upp raust sína. Stundum yfirgnæfðu vél- fuglarnir fuglasönginn á þessum kafla en það tók yfirleitt fljótt af. Líflegt var í Nauthólsvíkinni þar sem ungviðið stundaði siglingar af kappi á alls konar fleytum. Ró var hins vegar yfir öllu þegai' nálgaðist kirkjugarðinn eins og vera ber en þar voru starfsmenn þó að snyrta og fólk á ferli við leiði ástvina. xxx Á má hæla stígagerðarmönnum fyrir áningarstaðina, þ.e. bekki sem settir hafa verið niður á nokkrum stöðum og við flugbrautar- endann er eins konar æfingastaður þar sem göngumenn og trimmarar geta teygt sig og tekið nokkrar sveiflur í einfoldum tækjum. Þama eru meira að segja leiðbeiningar. Framundan var göngubrúin mikla yfir Kringlumýrarbraut og þar ræð- ur umferðarhávaðinn ríkjum. Sjón- arhomið er þó skemmtilegt yfir göt- una en lítil ástæða til að staldra þar lengi við. Þegai' yfir var komið varð göngumaður að hverfa til norðurs en stígurinn góði heldur áfram gegnum Fossvoginn og er næsta víst að þar er sama góða stemmningin. En niðurstaðan er þessi: Farið um göngustíginn við öll möguleg tæki- færi og dragið gesti ykkar og gang- andi með, innlenda sem útlenda. Munið bara að segja við alla eins og við bömin áður en lagt er að heiman: Ertu búinn að fara á klósettið? Ann- ars gæti orðið úr vöndu að ráða.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.