Morgunblaðið - 22.07.1998, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 22.07.1998, Blaðsíða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ — NYTT OG BETRA TILBOP KR. 400 A ALLAR MYNDIR KL. 5 OG 7 ARMAGEDD profilN^Sifxijk ÁLAUGAVEGi 24 Alfabíikka 8, simi 587 8900 og 587 8905 Hagatorgi, sími 552 2140 ENDALOKIN ERU NÆR EN ÞIG GRUNAR THE MAK MÍMO KhlEWK TTOO 8^ SWITCHBACK TONLiSTIN UR BLUES www.samfilm.is mfmmum LPfffiUR ENDURHUÓÐBLÖNDUÐ í DIGITAL STEREO ffciGHT Sýnd kl. 5, 7 og 9. B. i. 12. Sýnd kl.4.40, 6.50, 9 og 11.10. Sýnd kl. 5. Sýnd kl. 7, 9og 11. B. i. 14. Synd U II Þr IJ v.n L Godzilla vinsæl í Japan GODZILLA virðist ekki hafa mikið álit á bandarískum Ieigubflstjðrum. GODZILLA tók risaskref inn í japanska kvikmyndasögri þeg- ar hálf milljón áhorfenda fór á myndina fyrsta sýningardag- inn. Fyrra metið átti „Horfínn heimur: Júragarðurinn" og var aðsóknin á hana 350 þús- und áhorfendur. Því hefur verið spáð að að- sóknin á Godzillu í Japan verði 14 milljónir og að hún hali inn ríflega 700 milljónir króna. Hún er sýnd í 389 kvikmynda- húsum og hefur engin mynd fengið jafnmikla dreifíngu. Engfu að síður voru farnar að myndast raðir áður en miða- sölur voru opnaðar á laugar- dag. Eftir að Godzilla kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1954 og traðkaði á skýjakljúfum í Tókýó hafa leikföng úr mynd- um um þetta japanska risa- skrímsli verið vinsæl þar í landi. Þau munu þó að öllum líkindum rjúka upp í vinsæld- um eftir að Hollywood-útgáfan af Godzillu er komin til sög- unnar. 4 þúsund manns stóðu í röð fyrir utan kvikmyndahús sem tekur aðeins nokkur hundruð manns í hverfínu Yurakucho í miðborg Tókýó. Voru það mun fleiri en fylgdust með tíma- mótaræðu Ryutaro Hashimoto forsætisráðherra á laugardag, daginn áður en flokkur hans beið afhroð í kosningum. Yfírmenn Toho Co. kvik- myndaversins sem færði heim- inum hina geislavirku Godzillu árið 1954, halda vart vatni yfir því að flytja skrímslið í japönsk kvikmyndahús. „Að fara með heimaræktuðu skepnuna okkar til Hollywood var eins og japönsku hafna- boltamennirnir Hideo Nomo og Hideki næðu að slá í gegn í bandarísku úrvalsdeildinni," sagði einn þeirra í samtali við blaðamenn. Utsending frá öðrum tíma TRYGGVI Hansen, torfhleðslumaður, myndlistarmaður og tónlistar- maður. TðlVLIST Geisladiskur VÚBBIÐ ERA KOMA f Vúbbið era koma, geisladiskur með Tryggva Hansen og Seiðbandinu. Tryggvi semur tónlist og texta nema þjdðkvæði og eitt ljóð á Jónas Hallgrímsson, en ýmsir leggja honum lið í flutningi, meðal annarra Vala Valrún, Þór Eldon, Marteinn Þórðarson, Andrea Gylfadóttir og Sigurbjörn Þorgrímsson. Heimaútgáfan gefúr út. TRYGGVI Hansen er mörgum kunnur fyrir verk sín og baráttu fyrir því að gamlir siðir og verkiag * falli ekki í gleymsku. Tryggva er margt til lista lagt annað en torf- húsagerð, því hann hefur meðal annars sinnt myndlist af kappi og tónlist og þvl ætti ekki að koma á óvart að hann sendi frá sér plötu. Plötuna vinnur Tryggvi að mestu einn, tekur hana upp og útsetur og framleiðir hvert eintak í heimaverk- smiðju eftir eftirspurninni. Platan, Vúbbið era koma, er ein sú sérkennilegasta sem rekið hefur á fjörur gagnrýnenda í langan tíma og erfitt að henda reiður á henni, því þar ægir saman ólíkum straum- um, hugmyndum, hljóðfærum og hljóðum. Á plötunni fléttar Tryggvi saman tölvutónlist, ambient-tónlist, og upplifun sína af íslenskum þjóð- ararfí, rímnakveðskap og hringdönsum. Inn á miklli skýtur hann svo náttúrhljóðum svona rétt til að undistrika jarðsambandið og ekki veitir af því víðast missir hlust- andinn fótanna og veit ekki hvaðan á sig stendur veðrið, til að mynda þegar orðlaust söngl rennur saraan við flautuleik, vélahljóð og álfta- kvak. Reyndar er varia hægt að tala um eiginleg lög á plötunni, frekar tónfléttur sem byrja smám saman og fjara loks út í lokin með ótal kaflaskiptum og tilfæringum. Tryggvi bregður sér þó á stundum í lagaham á plötunni, til að mynda þegar hann flytur á sinn hátt iagið um Ólaf Liljurós með eftirminni- legu undirspili og sérkennilegum lokakafla. Ekkert er eins og það sýnist og ekkert lag eins og hlust- andi býst við fyrirfram. Vúbbið hans Tryggva er ekki fyr- ir alla og reyndar eiga flestir eftir að verða áttavilltir á plötunni. Hún er þó vel þess virði að hlustað sé á hana og vlða nær Tryggvi að bræða eftirminnilega saman ólíka þætti og hugmyndir, Helsti galli hennar er hversu löng hún er og þar sem Tryggvi framleiðir hana eftir pönt- un er spurning hvort hann ætti ekkí að sniða hana betur til, því boðskap- urinn og stemmningin missa marks ef hlustandi þreytist á leið sinni að inntakinu. Bestu lögin á plötunni eru þau sem Tryggvi nánast spinn- ur á piastið og reynir ekki að halda í hefðbunda laglínu eða texta, til að mynda Vúbbið, öndunarijóð, Ró- sóttii' sumarkjólar á Reykjavíkur- flugvelli og Tryggvi um Tryggva. Með því að sníða af plötunni allt aukaefni og leyfa lögum eins og þessum að njóta sín yrði platan sterkari upplifun og reyndar nánast skotheld sem útsending frá öðrum tíma en við þekkjum og annarri og framandi menningu. Árni Matthíasson MYNDBÖND Buscemi leikstýrir Trjábarinn (Trees Lounge) Drama ★★% Framleiðsla: Brad Wyman og Chris Hanley. Leikstjórn og handrit: Steve Buscemi. Tónlist: Evan Lurie. Aðai- hlutverk: Steve Buscemi, Chloe Sevigny, Mark Boon Junior, Anthon- io Lapaglia og Elizabeth Bracco. 96 mfn. Bandarisk. Háskólabíó, júlí 1998. Leyfð öllum aldurshópum. Steve Buscemi hefur undanfarinn áratug sannað sig sem einn sér- stæðasti og besti kvikmyndaleikari Bandaríkjanna. Hann hefur löng- um sýnt óvenju- legan metnað í hlutverkavali og verið valinn til samstarfs við marga fremstu kvikmyndagerð- armenn heims. „Trees Lounge" er fyrsta kvikmyndin í fullri lengd sem hann leikstýrir og hann á jafn- framt heiðurinn af handriti hennar og aðalhlutverki. Sagan segir frá Tommy (Buscemi) sem er glórulaus lúser og fyllibitta. Hann ver flestum stundum á hverfískránni þar sem álíka rislítið lið hangir daginn út og inn. Myndin er að mestu leyti raun- sæ lýsing á lífi Tommys og fólksins í kringum hann. Fyrrverandi kærasta er barnshafandi og í sam- búð með fyrrverandi yfírmanni og bæði eru þau hluti af fyrrverandi lífí Tommys. Allt sem hann reynir til að endurheimta líf sitt misheppnast, því eins og svo margir aðrir alkó- hólistar, er Tommy meistari í að klúðra hverju því sem hann tekur sér fyrir hendur. Þessi frumraun Buscemis er að mörgu leyti frábær kvikmynd. Allur leikur er að vonum fyrsta flokks. Fjöldi frábærra leikara fer með misstór hlutverk í myndinni og svo virðist sem þessi virti leikari geti valið sér samstarfsfólk eftir geð- þótta. Handritið er heldur sundur- laust og óþétt á köflum, og þótt slík frásögn geti samræmst viðfangsefn- inu líður myndin nokkuð fyrir það. Buscemi virðist mikið niðri fyrir og hefur afgerandi boðskap að flytja. Myndin er raunsær harmleikur, og því óhjákvæmilega bráðfyndin á köflum, en alls staðar er grár veru- leikinn að baki. Það er vonandi að Buscemi haldi áfram á þessari braut, því hans fyrsta mynd lofar mjög góðu. Guðmundur Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.