Morgunblaðið - 25.07.1998, Síða 2

Morgunblaðið - 25.07.1998, Síða 2
2 LÁUGARDAGUR 25. JÍJLÍ 1998 morgunb'ladíð FRÉTTIR Morgunblaðið/Kristinn Kringlumýrarbraut lokaðist um hríð KRIN GLUMÝRARBR AUT sunnan Bústaðavegar lokaðist að hluta til í gær þegar aftaní- vagn á dráttarvél lagðist á hliðina. Ekki er vitað um nán- ari tildrög óhappsins en engar skemmdir urðu aðrar en á vagninum sjálfum. Var lög- reglan kölluð til að stjórna umferð en beina þurfti henni upp á nærliggjandi umferðar- eyjar. Kalla þurfti til kranabíl til að ná vagninum á réttan kjöl. Bygging póstmiðstöðvar fyrir íslandspóst Tilboð langt undir kostnaðaráætlunum LÆGSTA tilboð í byggingu 5.700 fermetra póstmiðstöðvar fyrir Is- landspóst er rúmlega fjórðungi lægra en kostnaðaráætlun og lægsta tilboð í gasaflstöð íyrir Landsvirkjun var 69% af kostnað- aráætlun. Einar Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri Islandspósts, segir að um fjórtán aðilar hafi gert tilboð í byggingu póstmiðstöðvarinnai- sem á að vera tilbúin til notkunar haustið 1999 í Jörfa, á lóð við hlið Tækniskólans. Kostnaðaráætlun var rúmar 490 milljónir kr. en lægsta tilboð var um 380 milljónir króna. Nokkur önnur tilboð undir 400 milljónum kr. bárust. Einar segir að frétt í Morgun- blaðinu nýlega, þar sem haft var eftir verkefnisstjóra Fram- kvæmdasýslu ríkisins að tilboð í verk fyrir opinbera aðila vænj að jafnaði 20-50% yfir kostnaðaráætl- unum, hafi komið sér verulega á óvart. Sjáum ekki þensluáhrifin „Það eru fagmenn sem hafa unn- ið alla hönnun og áætlanir fyrir okkur og ég hef enga ástæðu til að efast um að kostnaðaráætlunin sé rétt. Lægsta tilboðið sem við fáum er innan við 80% af kostnaðaráætl- un. Við erum ekki sérfræðingar í byggingariðnaði en okkar mat er það að við sjáum ekki þessi stóru þensluáhrif í verktakaiðnaðinum. Þó gæti það skýrt málið að fyrir-, huguð póstmiðstöð er mjög þægi- leg í byggingu og byggingartíminn er frekar langur, eða rúmt eitt ár. Það getur verið að menn sjái sér hag í því að hefja svo stórt verk í haust,“ sagði Einar. Ráðgert er að ganga frá samn- ingum í næstu eða þamæstu viku og framkvæmdir eiga að hefjast í lok ágúst eða byrjun september. Tilboð í byggingu gasstöðvar Landsvirkjun hefur opnað tilboð í byggingu húss yfir gasstöð á móts við Islenska álfélagið. Lægsta til- boðið var 110 milljónir kr. en kostnaðaráætlun var 170 milljónir króna. Þorsteinn Hilmarsson, upp- lýsingafulltrúi Landsvirkjunar, segir að tilboðin hafi ekki verið skoðuð neitt sérstaklega ennþá en ráðgert er að taka afstöðu til þeirra á næstu vikum. Islandsmótið í hestaíþróttum hófst á Æðarodda á Akranesi í gær Sigurður og Prins efstir í fimmgangi eftir fyrri dag ÍSLANDSMÓTIÐ í hestaíþróttum sem haldið er á Æðarodda á Akra- nesi hófst í gær í blíðskaparveðri. Meginhluta forkeppninnar var lok- ið í gær en keppt var á tveimur völlum. Hans F. Kjerúlf náði hæstu einkunn í tölti á Laufa frá Kolluleiru með 8,20, Sigurbjöm Bái’ðarson kom næstur á Oddi frá Blönduósi með 7,80. í fimmgangi, opnum flokki, er Sigurður Sigurð- arson efstur á Prins frá Hörgshóli með 6,97 og félagi hans í Herði, Elías Þórhallsson, kemur næstur á Vála með 6,63 og Vignir Siggeirs- son þar á eftir á Gammi frá Hreið- urborg. í slaktaumatölti er Elsa Magnús- dóttir efst á Demanti frá Bólstað með 6,63, Sævar Haraldsson kemur næstur á Sikli frá Hofi með 6,13 og Dagur Benónýsson þriðji á Galsa frá Bæ með 5,73. Davíð Matthíasson er efstur í tölti ungmenna á Prata frá Stóra Hofi með 6,93, Ásta D. Bjamadóttir er önnur á Eldi frá Hóli með 6,63 og Guðmar Þ. Pétursson á Háfeta frá Þingnesi þriðji með 6,43. I fimmgangi unglinga hefur Dan- íel I. Smárason forystu á Vestfjörð frá Hvestu með 5,97, Viðar Ingólfs- son er annar á Freyþór frá Garða- bæ með 5,83 og Sigurður S. Pálsson þriðji á Toppu frá Lækjamóti með 5,70. í tölti unglinga er efstur Sigurð- ur S. Pálsson á Huga frá Mosfells- bæ með 6,57, Þórdís E. Gunnars- dóttir kemur næst á Stimi frá Kví- arhóli með 6,50 og Daníel I. Smára- son er þriðji á Seiði frá Sigmundar- stöðum með 6,40. I tölti barna stendur efstur Sig- urþór Sigurðsson á Erli frá Leifs- stöðum með 6,13, Freyja Amble kemur næst á Muggi frá Stangar- holti með 5,93 og Gunnhildur Gunn- arsdóttir er þriðja á Skugga frá Skeljabrekku með 5,90. B-úrslit hefjast í dag klukkan fjórtán að lokinni forkeppni í fjór- gangi, opnum flokki, en mótinu lýk- ur um kvöldmatarleytið á morgun. Morgunblaðið/RAX Sýknudómur um ökuleyfíssviptingu Sýslumaður mælir með áfrýjun til Hæstaréttar Happdrætti Háskóians Yann 15 milljónir á trompmiða REYKVÍKINGUR á sjötugsaldri fékk 15.640.000 króna happdrættis- vinning á trompmiða þegar dregið var í Heita pottinum hjá Happ- drætti Háskóla íslands í gær. Aðalvinningurinn kom á miða núm- er 20787 og skipti vinningshafinn alls 28.152.000 krónum með fjórum öðrum aðilum með sama miðanúm- er. Fékk hver hinna vinningshaf- anna í sinn hlut 3.128.000 krónur. Allir miðamir voru seldir í Reykjavík. Fannst látinn MAÐUR fannst látinn í Meðal- fellsvatni í Kjós um kvöldmatar- leytið í gær. Lögreglu barst tilkynning síð- degis í gær um að maður, sem hafði farið út á vatnið á kajak, hefði ekki skilað sér og að ekki sæist til hans á vatninu. Bátur- inn fannst mannlaus á botni vatnsins og var kallað til allt til- tækt lið til að leita með strönd- inni, hjálparsveitarmenn, kafar- ar, lögregla, lögreglubátur auk íbúa og fólks úr nærliggjandi sumarhúsum. Þyrla var einnig kölluð til og fannst maðurinn þá fljótlega. SÝSLUMAÐURINN á ísafirði hefur ritað ríkissaksóknara bréf þar sem hann mælir með að áfrýj- að verði dómi Héraðsdóms Vest- fjarða þar sem ökumaður var sýkn- aður af kröfu ákæruvalds um svipt- ingu ökuréttar. Bréfið fór frá Ólafi Helga Kjart- anssyni sýslumanni síðdegis í gær. Sagðist hann í samtali við Morgun- blaðið mæla þar með því að málinu verði áfrýjað og færa fyrir því ýmis rök. Niðurstaða Héraðsdóms var sú að umræddur ökumaður, sem mældur var á 67 km hraða þar sem aka má á 35 km hraða við Hnífsdal, skyldi hljóta 12 þúsund króna sekt og var sakarkostnaður greiddur úr ríkissjóði. Ekki var orðið við kröfu um mánaðarlanga sviptingu öku- leyfis. Lögreglan hafði boðið sátt- argjörð sem hljóðaði upp á ökuleyf- issviptingu í mánuð og 20 þúsund króna sekt. Því hafnaði ökumaður- inn og því var málið lagt í dóm. Hágöngumiðlun Fáninn tekinn LÖGREGLAN á Hvolsvelli tók niður íslenska fánann í gær sem komið hafði verið fyrir við Fögruhveri á bökkum Köldu- kvíslar í mótmælaskyni við Há- göngumiðlunarlón. Að sögn lögreglunnar var far- ið á bát frá stiflunni að hvera- svæðinu og átti vatnið eftir um 30 sentímetra að fánanum þegar hann var tekinn niður ásamt fánastöng. Það var Ingólfur Waage varðstjóri lögreglunnar á Hvolsvelli sem fjarlægði fánann. ÁLAUGARDÖGUM Verður Vala Flosadóttir íslands- meistari í fyrsta sinn? / B2 Hornamaðurinn Valgarð Thorodd- sen til liðs við Eyjamenn / B1

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.