Morgunblaðið - 25.07.1998, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
XrT'TTfTmtTrTTTT"
iíVi
iWiíw
.HMtsú-ií* Jt
KcJfiiX
ÍUjlHtfMluf
'4/f K«**u’Wt\l
lliaí^lwí
ÍSyf*C?á^
4 Hvnviívli
ZÍftu,'4UÍþtttt\ubl
KORT úr „Islands Kortlægning“, blað nr. 36, þar sera sýnd er „ferja“ yfir Hvalfjörð.
Akureyrarbréf
Morgunblaðið/Bflgreinasambandið
ÞORKELL Teitsson og farþegar hans 3. júlí 1928 fyrir framan húsið
París við Hafnarstræti 96 á Akureyri. Bifreiðin er Ford T árgerð 1926.
KRISTJÁN Kristjánsson bflakóngur á Akureyri ekur kónginum, nafna
sínum tiunda, og drottningu hans Alexandrine í Eyjafirði. Myndin er
tekin við konungsheimsóknina 1926. Aðrir í bflnum eru væntanlega
borðalagðir foringjar úr danska hernum.
Svo stórfenglegt er
þetta mannvirki, segir
Leifur Sveinsson um
Hvalfjarðargöngin, að
mér varð innanbrjósts
eins og þegar ég leit
skakka turninn í Pisa
augum í fyrsta sinni.
I.
Þáttaskil í samgöngum
„ÞAÐ BAR til tíðinda á Akur-
eyri 3. júlí 1928, að þangað kom bif-
reið alla leið frá Borgamesi eftir 22
stunda akstur og var það í fyrsta
sinni, sem bifreið var ekið alla
þessa leið. Frásögn af ferð þessari
birtist í Morgunblaðinu 5. sama
mánaðar.“ Bifreiðin var Ford ár-
gerð 1926, fólksbifreið af T-gerð.
Bflstjóri Þorkell Teitsson, sím-
stöðvarstjóri í Borgarnesi, fæddur
1891, dáinn 1949. Eigandi bílsins
var Ólafur Sigurðsson frá Kletti í
Reykholtsdal, þá búsettur í Borg-
amesi, þar sem hann stundaði
akstur. Erindi Þorkels til Akureyr-
ar var að sækja stórstúkuþing, sem
þar var háð. Ekki fýsti Þorkel að
aka Giljareitinn til baka, heldur
fékk hann bflinn fluttan með skipi
til Sauðárkróks. Þessar upplýsing-
ar era úr hinu stórmerka riti
„Bifreiðar á íslandi 1904-1930“, II,
bindi, bls. 90-91. Myndin af bílnum
er tekin við verslunina París í
Hafnarstræti 96 á Akureyri. Far-
þegar í ferðinni vora hjónin Ragn-
heiður Ólafsdóttir og Jón Guð-
mundsson úr Borgarnesi.
II.
Kristján var maður nefndur
Kristjánsson, fæddur að Kambs-
stöðum í Ljósavatnsskarði 19. júní
1899. Fluttist til Akureyrar með
foreldram sínum árið 1905. Hann
stofnaði Bifreiðastöð Akureyrar
(BSA) áríð 1923 með þrem bflum
og jafnmörgum bflstjóram og var
hann sjálfur einn þeirra. Kristján
skipulagði hópferð með bílum að
norðan á Alþingishátíðina á Þing-
völlum 1930 og undirbjó þá um leið
reglubundnar ferðir milli Akureyr-
ar og Reykjavíkur, er hófust sum-
arið eftir, ein ferð í viku, samdæg-
VIÐ Eyrar-Útkot, leifar af bryggjuaðstöðu.
VIÐ Kalastaðakot, leifar af bryggjuaðstöðu.
Á KALDADAL sumarið 1931. Buickinn A-50 á Langahrygg. Gísli Ólafsson lengst til hægri, unnusta
ljósmyndarans situr á vélarhúsinu, en Þorgrúnur Friðriksson lengst til vinstri. Ljósmyndari óþekktur.
VÖRUBÍLL með trébekkjum á palli eins og fólk var flutt í á
Alþingishátíðina. Á myndinni eru Tómas Ólafsson og Þorgrímur
Friðriksson. Myndina tók Gísli Ólafsson.
urs frá báðum stöðum. Einn þeirra
bílstjóra, er fyrstir óku suður fyrir
BSA er enn á lífi á Akm-eyri, Gísli
Ólafsson, fyrram yfirlögregluþjónn
þar í bæ, 88 ára gamall, en bráð-
hress og vel ern. Frásögn mín er
að nokkra byggð á erindi, sem Gísli
flutti í Lionsklúbbi Dalvíkur 3. apr-
íl 1997. Gísli hefur störf hjá BSA
vorið 1931. Kristján á BSA kvaðst
hafa tvær 7 manna Buick-bifreiðar
til þessara ferða, önnur bar skrá-
setningarnúmerið A-l, en hin A-50.
Ég átti að aka annarri, en Stein-
grímur Kristjánsson hinni. Ferð-
irnar hófust í júní 1931. Lagt var af
stað frá Akureyri kl. 8.00 að
morgni og komið að Bakkaseli eftir
tveggja tíma akstur og þar drakkið
morgunkaffi. Hádegisverður var
snæddur að höfðingsheimilinu að
Víðivöllum í Blönduhlíð hjá þeim
hjónum Gísla Sigurðssyni og konu
hans, Helgu Sigtryggsdóttur.
Lilja, systir Gísla og tvíburi við
hann, þau fædd 26. 2.1884, sá aðal-
lega um veitingamar, enda hafði
hún getið sér gott orð við uppsetn-
ingu Skagfirðingabúðar á Alþingis-
hátíðinni árið áður, en sú búð þótti
bera af öðrum á hátíðinni. Þegar
greiða átti fyrir matinn fannst
Lilja hvergi og þótti Gísla bílstjóra
það undarlegt, þar sem búið var að
semja um ákveðið verð fyrir mat-
inn. Síðar kom skýringin. Lilja
sagði Gísla bflstjóra, að hún hefði
ekki getað fengið af sér að taka við
peningum fyrir mat, þar sem Víði-
vellir hefðu verið í eigu ættar sinn-
ar allt frá 1856 og aldrei tekið þar
fyrir veitingar. Svo rík var gest-
risnin í hugum fólksins árið 1931.
Næsti áfangi var Blönduós, þar
sem drukkið var miðdegiskaffi. Þar
næst var haldið að Grænumýrar-
tungu og gist þar hjá þeim hjónum
Gunnari Þórðarsyni og Ingveldi
Bjömsdóttur. Morguninn eftir var
haldið yfir Holtavörðuheiði, suður
Borgarfjörð og Geldingardraga að
Kalastaðakoti, þar sem vélbátur
beið fólksins og ferjaði það yfir
Hvalfjörð að Eyrar-Utkoti í Kjós.
Mun bóndinn í Kalastaðakoti, Guð-
brandur Thorlacius, hafa annast
flutninginn með fólkið, en þó minn-
ir Gísla Ólafsson að Búi á Ferstiklu
hafi eitthvað komið nærri þessum
flutningum. I Eyrar-Útkoti tóku
Steindórsbílar við fólkinu og óku
því til Reykjavíkur. Gísla minnir,
að borðað hafi verið um hádegi að
Hreðavatni, en Vigfús Guðmunds-
son reisir ekki Hreðavatnsskála
fyrr en árið 1933, svo snætt hefur