Morgunblaðið - 25.07.1998, Side 11

Morgunblaðið - 25.07.1998, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ VERSLUNARMANNAHELGIN LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1998 11 verður ókeypis um verslunarmannahelgina. Sérleyfisbflar Norðurleiðar verða með af- sláttarverð til Skagastrandar um verslunar- mannahelgina en ferðir verða alla dagana milli Reykjavíkur og Skagastrandar. Síldarævintýri á Siglufirði Síldarævintýri verður haldið í áttunda sinn nú um verslunarmannahelgina á Siglufirði. Sfldarævintýrið verður með hefðbundnu sniði og hefst formlega klukkan fjögur fóstudaginn 31. júlí með tónlistarflutningi á Ráðhústorg- inu, Miðaldamenn og fleiri hljómsveitir koma fram og leikið verður á hannóniku. A fóstudagskvöldið verður bi-yggjuknall í umsjón Omars Hlynssonar og Sturlaugs Kri- stjánssonar. Kveiktur verður varðeldur, fjöldasöngur, kántrýdans og eldgleypir kem- ur fram. Dansleikir verða á Hótel Læk þar sem Miðaldamenn leika og í Bíó Sal spilar hljómsveitin Tvöföld áhrif, hljómsveitirnar leika á sömu stöðum á laugardagskvöld. A laugardagskvöldið verður útidansleikur á Ráðhústorginu með hljómsveitinni Sóldögg. Fjölbreytt dagskrá verður allan laugardag- inn, tónlistarveisla á torginu og sirkus, sjóstangveiðimót, sildarsöltun, götuleikhús, söngvakeppni barna í umsjón Línu Langsokks og margt fleira. Dagskráin á Ráð- hústorgi er öllum opin en greiða þarf að- gangseyri inn á dansleikina og iyrir tjald- svæði. Sérleyfisbflar fara frá Reykjavík til Siglufjarðar fostudag og laugardag og frá Siglufirði sunnudag og þriðjudag. Halló Akureyri Á Akureyri verður hátíðin Halló Akureyri haldin í fimmta sinn um verslunarmanna- helgina. Hátíðin verður sett klukkan 15 fimmtudaginn 30. júlí á Ráðhústorginu, þar verður grillað, nokkrar hljómsveitir frá Akureyri leika fyrir gesti og Páll Oskar tekur lagið. Föstudag, laugardag og sunnudag mun fjöldi hljómsveita og skemmtikrafta koma fram á Ráðhústorginu. Páll Oskar og Casino spila og hljómsveitirnar Seif, Hunang, Skíta- mórall, Greifarnir, Sálin hans Jóns míns og margar fleiri. Einnig koma fram dansarar frá Dansskóla Sibbu, Leikhúsið 10 fíngur, söng- konan Ingveldur Yr, töframaðurinn Pétur pókus og gospelkór frá Noregi. Fjöldi dansleikja verður bæði í Sjallanum og KA-heimilinu. í Sjallanum verður Páll Oskar á fimmtudagskvöld, Reggae on Ice og Páll Oskar á fóstudagskvöld, Sálin hans Jóns míns laugardagskvöld og Greifarnir sunnu- dagskvöld. í KA-heimilinu verða Sálin hans Jóns míns föstudagskvöld, Greifarnir laugar- dagskvöld og Sálin aftur á sunnudagskvöld, selt verður inn á hvern dansleik fyrir sig. Gisting á KA-tjaldsvæðinu kostar 3.000 krónur frá fimmtudegi til mánudags, en minna fyrir þá sem dvelja skemur. Lögð er áhersla á öfluga öryggisgæslu á svæðinu, þar verða m.a. hjúkrunarfræðingar á vakt og tveir starfsmenn Stígamóta. Á fjölskyldu- tjaldsvæði Þórs er lögð áhersla á góða þjón- ustu. Snyrtiaðstaða er á svæðinu með sturt- um, gufu og pottum. Þar eru einnig stór grill og við þau borð og stólar. Gisting á svæði Þórs kostar 3.000 krónur fyrir alla helgina, frá fimmtudegi, en er lægri fyrir þá sem koma síðar á svæðið. Skátafélagið Klakkur sér um rekstm- tjald- svæðis í Kjamaskógi, þar verður fjölbreytt dagskrá fyrir fjölskylduna, leikir, ævintýraferð og kvöldvaka auk þess sem leiktæki era á svæðinu. Neysla áfengis er bönnuð á tjald- svæðinu í Kjamaskógi. Oll dagskrá á svæðinu er innifalin í dvalargjaldi sem er fyrir 14 ára og eldri 2.400 krónur frá miðvikudegi til mánu- dags en lægra fyrir þá sem dvelja skemm-. Fyrir böm yngri en 14 ára kostai' 300 krónur. Strætisvagn gengur milli Kjarnaskógar og Ráðhústorgs. Rútuferðir era alla dagana mflli Reykjavíkur og Akureyrar og boðið er upp á sérstakt afsláttarverð íyrir þá sem kaupa sér far fram og til baka á Halló Akureyri. Ferða- og fjöl- skylduhelgi í Mývatnssveit Sérstök ferða- og fjölskylduhelgi verður um verslunarmannahelgina í Mývatnssveit. Boðið er upp á gönguferð frá Garði í Selja- hjallagil og þaðan meðfram Lúdents- og Þrengslaborgum og endað í Dimmuborgum. Einnig verður farið að Kröflu og gengið um Leirhnjúkasvæðið en nokkrar rútuferðir eru daglega að Kröflu. Farið verður í skoðunar- ferð í Lofthelli og boðið er upp á bátsferð milli Skútustaða og Reykjahlíðar. Einnig verður hægt að fara í hesta-, veiði- og fjalla- hjólaferðir. Á laugardagskvöldinu verður dansleikur með hljómsveitinni Mannakorn og varðeldur á sunnudagskvöld. í Reykjahlíð verða einnig sumartónleikar og uppákomur í Selinu og Gamla bænum. Miðað er við að fjölskyldufólk geti komið og notið náttúrufegurðar í friði og ró og nýtt sér þá afþreyingu sem hverjum hentar en hugað verður að yngstu kynslóðinni með sérstökum uppákomum. Tjaldsvæði eru í Reykjahlíð, í Vogum, við Grænavatn og á Skútustöðum en tíðar rútuferðir verða um sveitina um versl- unai-mannahelgina. Vopnaskak á Vopnafirði Vopnaskak og Vopnafjarðardagar eru orðnir ái'viss viðburður á Vopnaftrði. Vopna- fjarðardagar hefjast 25. júlí á hagyrðinga- kvöldi undir kjörorðinu „Með íslenskuna að vopni“. Skemmtunin hefst kl. 21:00 í íþrótta- húsinu á Vopnafirði. Stjórnandi hagyrðingá- kvöldsins er Karl Ágúst Úlfsson. Einnig verða flutt lög eftir vopnfirska höfunda. Á Vopnafjarðardögum er frítt inn á tjaldstæði en selt inn á einstaka liði og er aðgangseyrir á hagyrðingakvöld 1.200 krónur. Eitthvað er um að vera alla daga hátíðar- innar, má þar nefna íþróttamót af ýmsu tagi, siglingu í Fuglabjarganes, óvissuferð og sagnakvöld. Bustarfellsdagur eða starfsdagur verður sunnudaginn 3.8. frá 14 til 17, þar verða eldsmiðir, heyskapur, útileikir, unnið inni í bæ, þar verða einnig kaffi, lummur og harmóníkuleikur. Boðið verður upp á fjölskyldudagskrá á planinu við frystihúsið og í félagsheimilinu Miklagarði föstudag, laugardag og sunnudag, þar koma m.a. fram íþróttaálfurinn úr Lata- bæ, Skítamórall, Greifarnir og Disneyhópur- inn, boðið verður upp á leiki fyrir börnin, and- litsmálun og leiktæki eru á svæðinu við frysti- húsið, ókeypis aðgangur er á fjölskylduhátíð- irnar en dagskráin er breytileg milli daga. Dansleikur verður með Greifunum fóstu- dagskvöld, Skítamóral laugardagskvöld og Reggae on Ice á sunnudagskvöld. Dansleik- irnir fara allir fram i Miklagarði og er að- gangseyrir á hvern þeirra 2.000 krónur, for- sala aðgöngumiða verður í anddyri frysti- hússins fimmtudaginn 30.7. og 31.7. frá klukkan 17 til 19. Krafist verður nafnskír- teina og foreldrar era beðnir að senda ekki börn yngri en 16 ára á Vopnaskak nema í fylgd með fullorðnum. Neistaflug ‘98 Neskaupstað Fjölskylduhátíðin Neistaflug ‘98 verður haldin í sjötta sinn um verslunarmannahelg- ina. Ferðamálafélag Norðfjarðar hefur haldið hátíðina frá upphafi, en hún er nú haldin í fyrsta skipti í sameinuðu sveitarfélagi á mið- fjörðunum. Frítt er inn á svæðið og tjaldstæði eru ókeypis en selt verður inn á innidansleiki. I Neskaupstað er hægt að fara í sund, golf eða siglingu um Norðfjarðarflóann með Fjarðar- ferðum. Þar gefst tækifæri til að skoða Nípuna, hæsta strandberg landsins, eða eyði- firðina tvo, Hellisfjörð og Víðfjörð, ásamt Rauðubjörgum og fleiru. Einnig er hægt að skoða Náttúrugripasafn Neskaupstaðar, fara á málverkasýningar og tónleika. Á Neistaflugi verða hljómsveitirnai- Skíta- mórall, Karma, Reggae on Ice, Valgeir Guð- jónsson, Orvar Kristjánsson, Shape og Butt- ercup. Þar verða einnig íþróttaálfurinn og fleiri úr Latabæ og Hálandaleikar verða haldnir þar sem almenningi gefst kostur á að taka þátt í kraftakeppni sem Hjalti Úrsus og Andrés Herkúles stjórna. I Egilsbúð verða dansleikir öll kvöldin, heimamenn skemmta á föstudagskvöldið, Karma laugardagskvöld og Skítamórall sunnudagskvöld. Kirkjubæjar- klaustur Á Kirkjubæjarklaustri verður dagskrá fyrir fjölskyldufólk um verslunarmannahelgina. Guðsþjónusta verður á Núpsstað, útimarkað- ur og harmónikuleikur, gönguferðir og sögu- stundir, dansleikir og línudans utandyra fyrir alla fjölskylduna, hljóðfæragerð með bömum og andlitsmálun. Sest verður við varðeld með tilheyi'andi fjöldasöng og flugeldum. Hægt verður að stunda ýmsar íþróttir, t.d. götubolta og sund, róðrarkeppni verður og stutt er að fara í golf, veiði eða á hestaleigur. Vík í Mýral I Vík í Mýrdal verður ýmislegt í boði fýrir fjölskylduna um verslunai-mannahelgina. Á tjaldsvæðinu er eldunaraðstaða og sundlaug, stutt er í hestaleigur og golfvöll. A tjaldsvæð- inu verður komið saman við varðeld á kvöldin. Frá Vík er hægt að fara í ferðir með hjóla- bátnum í Reynisdranga og Dyrhólaey og stuttar sjóstangveiðiferðir og útsýnisflug. Einnig verður hægt að fara í jeppaferðir og gönguferðir með leiðsögn og trukkaferðir um Mýrdalsafrétt. Fjölskylduhátíð Flugmálafélagsins í Múlakoti Eins og undanfarnar verslunarmannahelg- ar koma flugáhugamenn og fjölskyldur þeiira saman til hátíðahalda í Múlakoti. Á mótinu gefst fólki kostur á að sjá margar þekktar flugvélar og aðrar sem telja má óvenjulegar. Farið er í útsýnisflug um nágrenni Múla- kots. Dalir og skriðjöklar Eyjafjallajökuls og Mýrdalsjökuls eru skammt undan og þykir flug yfir þá og Þórsmörk ógleymanlegt. Ef veður leyfir verða svifflugmenn með kennslu- svifflugu. Á sérstakri dagskrá fyrir börn verður m.a. keppni í svifflugi, auk margra óvenjulegra leikja. Sérstök flugíþróttadag- skrá verður. Meðal íþróttagreina verður lend- ingakeppni og hveitipokakast. Á laugardagskvöldinu verður kvöldvaka og sameiginlegur kvöldverður Grillmeistaranna. Allir sem gista í Múlakoti um helgina eiga kost á að hreppa veglegan happdrættisvinn- ing. Þeir sem koma fljúgandi á hátíðina geta haft samband við mótsstjórn á tíðninni 118.1 sem hér segir: Föstudagur 31.7. 17:00-21:00, laugardagur 1.8.10:00-20:00, sunnudagur 2.8. 10:00-20:00, mánudagur 3.8.11:00-15:00. Á staðnum verður selt bensín á flugvélarnar. Landsmót hvíta- sunnumanna Kirkjulækj arkoti, Fljótshlíð Hvítasunnumenn halda sitt árlega lands- mót um verslunarmannahelgina í Kirkju- lækjarkoti, Fljótshlíð. Mótið verður sett fimmtudagskvöldið 30. júlí og því lýkur að morgni mánudagsins 3. ágúst. Dagskrá móts- ins verður fjölbreytt. Mikill og líflegur söng- ur einkennir samverustundirnar ásamt góðri fræðslu og fyrirbænaþjónustu. Kvöldvökur verða haldnar fyrir yngri kynslóðina, kveikt- ur varðeldur auk fjölda annarra atriða. Sér- stakur gestur mótsins verður Daníel Karlsen frá Noregi. Samhliða mótinu verður sérstakt mót fyrir bömin og er þetta sjötta árið í röð sem sá háttur er hafður á. Þar verður boðið upp á leiki, fóndur og fræðslu auk brúðuleikhúss. Á barnamótinu verður dagskrá fyrir börnin all- an daginn og gæsla fyrir yngstu börnin á meðan á samkomum stendur. I Kirkjulækjarkoti reka hvítasunnumenn safnaðarmiðstöð og þar er aðstaða til sam- komuhalds. Skálinn rámar á annað hundrað manns í gistingu. Næg tjaldstæði eru á svæð- inu og aðstaða fyrir tjaldvagna og húsbíla. Samkomurnar verða haldnar í nýju sam- komuhúsi sem verið er að reisa og barnamót- ið mun fara fram í stóra samkomutjaldi. Bindindismótið 1 Galtalæk Bindindismótið í Galtalæk verður nú haldið í 31. sinn. Dagskráin er miðuð við að öll fjöl- skyldan finni eitthvað við sitt hæfi. Á föstu- dags-, laugardags- og sunnudagskvöld verða dansleikir bæði á palli og í kúlu, þar munu hljómsveitirnar Á móti sól, Saga Class og Sp- ur halda uppi fjörinu. Laugardag og sunnu- dag verða barnadansleikir á palli. Einnig verður skemmtidagskrá á palli þar sem Smaladrengir, Magnús Scheving, Dóra og Benni og fleiri skemmta, söngvarakeppni bama verður á laugardeginum og keppt verð- ur í ökuleikni. Kvöldvökur og fjöldasöngur verða og flugeldar og varðeldur á laugardags- kvöldi. Séra Pálmi Matthíasson messar undir berum himni klukkan 14 á sunnudeginum. Á svæðinu eru veitingahús, verslun, tívolí, leiktæki og hestar og margt fleira. Miðaverð fyrir 16 ára og eldri er 5.000 krónur en 4.300 krónur í forsölu, fyrir ung- linga 13-15 ára kostar miðinn 4.000 krónur og 3.300 krónur í forsölu, frítt er inn á svæðið fyrir börn 12 ára og yngri. Forsala miða er í Seglagerðinni Ægi, Everest, Skeifunni 6, og á Umferðarmiðstöðinni. Sætafei'ðir verða alla dagana milli Reykjavíkur og Galtalækjar- skógar og hægt verður að kaupa pakkaferðir á afsláttarverði á Umferðarmiðstöðinni. Þjóðhátíð í Eyjum Vestmannaeyingar halda að venju þjóðhá- tíð í Eyjum um verslunarmannahelgina. Dag- skráin er hefðbundin og verður formlega sett klukkan hálfþrjú á föstudaginn. Frá klukkan eitt til þrjú á föstudaginn verða leikin létt lög í Dalnum og Götuleikhús Vestmanannaeyja dreifir gjöfum frá þjóðhátíðarnefnd. Alla dagana er barnadagskrá, á Brekku- sviði á föstudaginn en á Tjarnarsviði laugar- dag og sunnudag. Þeir sem skemmta börnun- um era Hálft í hvoru, Litlu lærisveinarnir, Brúðubíllinn, Leikhúsið 10 fingur og Fim- leikafélagið Rán. Ovænt uppákoma verður á föstudeginum og söngvakeppni á laugardeg- inum, barnaböll eru alla dagana. Leiktæki verða á Fjósaflöt alla helgina fyrir börnin og er aðgangur að tækjunum frír. Á þjóðhátíð koma fram margar hljómsveit- ir bæði á kvöldvökum, tónleikum og dans- leikjum, meðal þein-a eru Stuðmenn, 8-villt, Geirmundur Valtýsson, Á móti sól, Páll Ósk- ár og Kasínó og Land og synir. Árni Johnsen stjórnar Brekkusöng yfir varðeldinum á sunnudagskvöldið og á miðnætti verður flug- eldasýning á Fjósakletti. Hægt er að kaupa miða í forsölu í Spai'i- sjóði Vestmannaeyja frá 20. til 27. júlí og er verðið þá 6.500 krónur. Frítt er fyrir börn til fjórtán ára aldurs, unglingar 14-15 ára borga 3.500 krónur inn og fyrir 16 ára og eldri kost- ar 7.000 krónur inn. Herjólfur, Flugfélag ís- lands og Flugfélag Vestmannaeyja bjóða upp á pakkaferðir, þ.e. far fram og til baka og að- göngumiða á þjóðhátíð. Pakkamiðar á þjóð- hátíð með Herjólfi eru seldir á Umferðannið- stöðinni en sætaferðir verða milli Reykjavík- ur og Þorlákshafnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.