Morgunblaðið - 25.07.1998, Side 6

Morgunblaðið - 25.07.1998, Side 6
6 LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Fjallagarpar komnir heim frá Kazakstan Morgunblaðið/Ásdís PÉTUR Aðalsteinsson (t.v.) og Sigurður Ó. Sig- urðsson voru hinir ánægðustu með leiðangurinn, þótt þeir hefðu ekki náð á toppinn. Veðrið setti strik í reikninginn * -'sri' '-v /' Íil' • ___í__L_________________ Morgunblaðið/Sigurður Ó. Sigurðsson LEIÐIN upp var ekki svo brött en mikill snjór gerði það að verkum að ákveðin svæði voru mjög erfíð yfirferðar. „VIÐ fengum allt sem við vild- um út úr ferðinni, nema að komast á toppinn,“ sögðu fjallagarparnir Pétur Aðal- steinsson og Sigurður Ó. Sig- urðsson við komuna til landsins í gær, en þeir gerðu tilraun til að klífa „Marmaravegginn“, sem er 6.414 metra hár. Félag- amir komust hæst í 5.300 metra hæð og vom hinir ánægðustu með allt, nema veðrið. „Veðráttan hamlaði för okk- ar á toppinn, það snjóaði marga daga í röð, en leiðin upp á fjall- ið er þannig að í henni em ákveðnir flöskuhálsar sem ekki er hægt að komast yfír eftir svo mikla snjókomu," sögðu féfag- arnir, en „Marmaraveggurinn" er í Tien-Shan-fjalIgarðinum í Mið-Austurlöndum. Þeir voru þátttakendur í breskum tólf manna leiðangri um þessar fá- förnu slóðir. Aðeins er vitað um tvo Breta og einn Bandaríkja- mann sem hafa komist á tind „Marmaraveggjarins", auk rússneskra og japanskra fjall- göngugarpa. Allir tilbúnir í slaginn Pétur og Sigurður segja að leiðangrinum hafí verið sett ákveðin tímamörk og eftir fímm daga óveður og snjókomu hafi ekki lengur verið hægt að freista þess að komast á topp- inn. „Snjóflóðahættan sem myndast á Ijallinu er gífurleg eftir jafn mikla snjókomu og við lentum í, en það snjóaði um 50-60 cm á einni nóttu. Fjallið þarf að jafna sig í u.þ.b. tvo daga til þess að hægt sé að ganga á það eftir slíka snjó- komu. Tekin var ákvörðun um að stofna ekki Ieiðangrinum í hættu með því að ganga í fann- ferginu svo við snérum við.“ Félagarnir segja veðrið hafa verið mjög slæmt mest allan tímann. Rofað hafi til í nokkra daga, og þá hafí þeir komist upp í fyrstu búðir, sem eru í 4.100 metra hæð. Síðan hafí þeir komist í 2. búðir sem eru í 5.000 metra hæð. „Þar gerði óveður aftur, við héldum samt af stað áleiðis upp í 3. búðir en sáum fljótlega að það gengi ekki upp og snerum við.“ Þeir segja að hópurinn hafi verið vel á sig kominn allan tímann. Enginn hafí veikst al- varlega og allir verið tilbúnir í slaginn á sama tíma eftir aðlög- unarferlið vegna hæðarinnar. Þeir hafí verið vel undirbúnir fyrir ferðina og lagt sig alla fram. „Við erum sáttir, við gerðum allt sem í okkar valdi stóð en þættir sem við réðum ekki við hömluðu för okkar á toppinn," sögðu þeir að lokum og voru glaðir að vera komnir til íslands eftir tæpa mánaðar- veru á ókunnum slóðum. ísland með augum Vigdísar Vigdís Finnbogadóttir I BíGERÐ er að gera heimilda- mynd um Island þar sem Vigdís Finnbogadóttir verður í aðal- hlutverki. Að myndinni standa Norð- maðurinn Pett- er Wallace og Islendingurinn Ragnar Hall- dórsson en báðir búa þeir og starfa í Noregi. Þeir eru nú staddir hér á landi til að funda með Vigdísi um handritið, leita að fjármagni og samstarfi hér á landi og til að skoða tökustaði en stefnt er að því að taka myndina næsta sumar. „Þetta verður mjög persónuleg heimildamynd þar sem Vigdís leiðir áhorfendur um sína staði á Iandinu. Við höfum hitt hana og talað um hvað hún vill sýna og hvaða fólk hún vill tala við í myndinni. Það er vitaskuld mjög mikilvægt að hún taki þátt í að semja handritið þar sem hún leikur stórt hlutverk í þættin- um,“ sagði Petter Wallace í sam- tali við Morgunblaðið. Wallace segir stöðu Vigdísar vera ótrúlega sterka á Norður- löndum, í raun sé litið á hana sem persónugerving Islands og því hafi verið rökrétt að biðja hana um að leiða áhorfendur um landið. „Ég held að það sé ekki einn einasti Norðmaður sem þekkir ekki Vigdísi," segir Wallace og efast ekki um að það sé áhugi fyrir hendi á Norður- löndum og jafnvel víðar fyrir þætti sem þessum. Vigdís vinsæl í Noregi Ragnar tekur undir með Wallace þegar vinsældir Vigdísar ber á góma. „Ég er viss um að hún er einn þekktasti Norður- landabúinn innan Norðurlanda. Það er mjög gott að vera Islend- ingur í Noregi og það er ekki síst henni að þakka.“ Að sögn Ragnars hófst vinna við verkefnið í mars en það er á byijunarstigi ennþá. Verið er að leita að fjármagni og samstarfi, hér á landi sem og í Noregi og annars staðar á Norðurlöndum. „Við erum að undirbúa farveginn við samstarfsaðila á Islandi. Við vonumst auðvitað eftir að ein- hverjir á íslandi hafi áhuga á þessu verkefni og vilji styðja það.“ Skoðanakönnun Gallups um fylgi stjórnmálaflokka Fylgi Sverris Her- mannssonar 3,2% FRAMBOÐ Sverris Hermannsson- ar fengi 3,2% fylgi ef gengið væri til kosninga nú. Þetta kemur fram í könnun Gallup sem framkvæmd var Ertu fylgjandi eða andvíg(ur) álagningu veiðil eftir tekjum 73,5% 47,7% Andvígur 66,2% -HvorMfylgj. né andv. eftir StarfSStétt 77,3% 61,4% 25,4% 75,5% 817,3% 17,0% H 17,1% O' n r 0-99 þús. 100-199 200-299 300 þús og hærri Verkafólk og Sjómenn Faglærðir Skrifstofu- Sérfræðingar einföld þjón- og bændur iðnaðar- störf og fag- ustustörf starfsmenn lærtverkaf. Stjórnunar- Nemar Heimavinn- störf og andi og ör- atvinnurek. yrkjar 77,3% sjómanna styðja veiðileyfagj ald 77,3% sjómanna og bænda eru fylgj- andi því að lagt verði á veiðileyfa- gjald. Þetta hlutfall er hærra en meðal annarra starfsstétta, en með- altalið er 67,9%. Mest andstaða við veiðileyfagjald er meðal fólks sem hefur lægstar tekjur. Þetta kemur fram í skoðanakönnun Gallup, sem gerð var fyrir Ríldsútvarpið. Greinilegur mismunur er á af- stöðu fólks til veiðileyfagjalds eftir búsetu. 73,8% þeirra sem búa á höf- uðborgarsvæðinu eru fylgjandi veiðileyfagjaldi, en þetta hlutfall er 59,3% hjá þeim sem búa á lands- byggðinni. Óverulegur munur er á afstöðu kynjanna. 68,8% karla eru fylgjandi veiðileyfagjaldi, en 66,2% kvenna. Minnstur stuðningur meðal verkafólks Minnstur stuðningur við veiði- leyfagjald er hjá fólki sem hefur lægstar tekjur. 47,7% þeirra sem hafa tekjur undir 100 þúsund krón- um á mánuði styður veiðileyfagjald, en 20,5% eru hvorki fylgjandi eða andvíg. Mestur stuðningur við veiði- leyfagjald reyndist vera meðal þeirra sem hafa 100-200 þúsund krónur í laun á mánuði eða 73,5%. Fylgið við veiðileyfagjald meðal þeirra sem eru með yfir 200 þúsund í laun var 67%. Svipaða útkomu má lesa út úr tölunum ef skoðuð eru svör eftir aldri. Minnstur stuðningur er við veiðileyfagjald í yngsta aldurs- hópnum, 18-24 ára, eða 41,5% og þar eru einnig talsvert margir óá- kveðnir, 26,4%. Heldur meiri stuðningur er við veiðileyfagjald í aldurshópnum 25-34 ára eða 65,5%, en mestur stuðningur er í aldurs- hópnum 35-44 ára eða 75,2%. Ef skoðaður er stuðningur við veiðileyfagjald eftir stéttum kemur í ljós að mestur stuðningur við gjaldið er meðal sjómanna og bænda eða 77,3%, en minnstur mlmeðal nema eða 35,7% og verkafóiks og fólks sem vinnur þjónustustörf eða 61,4%. Þess ber að geta að nemar, bændur og sjómenn eru fámennustu hóparn- ir í úrtakinu. 69,2% faglærðra iðnað- armanna styðja veiðileyfagjald, 75,5% skrifstofufólks, 77,1% sér- fræðinga ög 68,5% stjórnenda og at- vinnurekenda. dagana 11.-13. júní. Sverrir fékk tæplega 7% fylgi í könnun Gallup í maí. Fylgi ríkisstjórnarinnar er 66,2% en var 63,2% í síðustu könnun. Stjórnarfiokkamir, Sjálfstæðis- flokkur og Framsóknarflokkur bæta Ktillega við sig frá síðustu könnun, fylgi Sjálfstæðisflokksins eykst úr 44,9% í 46,7% og Fram- sóknarflokksins úr 18,3% í 18,5%. Fylgi sameiginlegs framboðs eykst Sameiginlegt framboð félags- hyggjuflokkanna fær nú rúmlega 10% fylgi en hafði rösklega 6% í síð- asta mánuði en ekki var spurt sér- staklega um framboðið. Fyigi Al- þýðuflokks og Aiþýðubandalags minnkar lítillega en Aiþýðuflokkur fengi 10,4% og Alþýðubandalag 8,3% væri gengið til kosninga nú. Kvennalisti mælist með 3% fylgi sem er aukning frá síðustu könnun þegar hann mældist með 2,2% fylgi- Rúmlega 20% svarenda voru 6á- kveðnir eða neituðu að svara og tæplega 7% myndu ekki kjósa eða skila auðu ef kosið væri nú. Úrtak könnunarinnar var 1.139 einstaklingar af öllu landinu á aldr- inum 18-75 ára, valdir af handahófi úr þjóðskrá. Svarhlutfall var 71,1% og skekkjumörk svara í könnuninni eru á bilinu 1%-M%. -------♦ ♦ ♦------- Laugavegur- inn opnaður fyrir umferð LAUGAVEGURINN verður opn- aður fyrir umferð í dag eftir breyt- ingar og endurbætur milli Frakka- stígs og Barónsstígs. Ýmiss konar frágangur er þó enn eftir og er mið- að við að honum verði lokið í ágúst- byrjun. Formleg opnun með hátíða- höldum verður 6. ágúst að sögn Stefáns Hermannssonar borgar- verkfræðings.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.