Morgunblaðið - 25.07.1998, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 25.07.1998, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1998 9 FRÉTTIR Morgunblaðið/Golli Gras í stað malar STARFSMENN Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma eru hér að tyrfa yfír inalargangstíg í kirkjugarðinum í Gufunesi. Segir Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri kirkjugarðanna, það vera til að fá samfelldari grasflöt á þessum bletti en áfram verður hægt að aka um á þessu svæði í sérstök- um tilvikum. Flogaveiki hefur ekki áhrif á frjósemi FRJÓSEMI flogaveikra er eðlileg, en ekki minni en hjá heilbrigðum, eins og áður hefur verið talið. Þetta kemur fram í rannsókn dr. Elíasar Ólafsson- ar taugasjúkdómalæknis sem birtist í júlíhefti tímaritsins Neurology. Rannsóknin byggist á rannsókn- um dr. Gunnars Guðmundssonar sem hann gerði á árunum 1960 til 1964, en þá fann hann alla Islendinga sem greindust med flogaveiki á því tímabili. I rannsókn Elíasar er síðan ákvarðaður fjöldi barna flogaveikra og hann borinn saman við barna- fjölda viðmiðunarhóps, sem tekur til- lit til aldurs og kynferðis. Niðurstöð- ur rannsóknarinnar leiða í ljós að meðalbarnafjöldi hvers flogaveiks einstaklings er tvö börn sem er það sama og hjá viðmiðunarhópi. Fyllstu nafnleyndar er gætt og nöfn viðkom- andi koma hvergi fram við úrvinnslu gagna. Að sögn Elíasar hefur frjósemi flogaveikra lítið verið rannsökuð áður, og fyrri rannsóknir erlendis hafa bent til þess að flogaveikir ættu færri börn en heilbrigðir. Elías segir að þessar niðurstöður séu því líklegar til þess að breyta þeim viðhorfum almennt. Rannsóknin hefur þegar verið kynnt í Bandaríkjunum og vakið at- hygli meðal þeirra sem láta sig mál- efni flogaveikra varða. Tímaritið Ne- urology, sem er eitt virtasta tímarit á sviði taugasjúkdóma, birtir niður- stöðurnar og sá til dæmis ástæðu til þess að senda út sérstaka fréttatil- kynningu um niðurstöður rannsókn- arinnar. Samstarfsmenn Elíasar við rannsóknina eru Gunnar Guðmunds- son fyrrum prófessor og W. Allen Hauser prófessor í taugasjúkdómum við Columbia háskóla í New York. Sérstakt að geta rannsakað heila þjóð „Þessi rannsókn getur svarað mik- ilvægri spurningu þar sem hún er gerð hjá heilli þjóð. Með þessari að- ferð er m.a. hægt að taka tillit til allra þeirra sem hafa sjúkdóminn, en ekki bara þeirra sem eru med erfið- an sjúkdóm. Það er alltaf ánægjulegt ad geta stuðlað að aukinni þekkingu á flogaveiki, sérstaklega þegar nið- urstöðurnai- eru til þess fallnar að minnka fordóma gegn flogaveikum, eins og hér er. Þess er skemmst að minnast að bæði á Islandi og víðar á Vesturlöndum var flogaveikum bannað að ganga í hjónaband lengi fram eftir öldinni, þótt nú þyki slík bönn fráleit,“ segir Elías. Hann er prófessor í taugasjúkdómafræði við Háskóla Islands og yfirlæknir tauga- lækningadeildar Landspítalans. Umrædd rannsókn tengist viðamik- illi rannsókn sem verið hefur í gangi hér á landi undanfarin ár. Hún mun standa í alls fimm ár og miðar bæði að því að ákvarða tíðni flogaveiki og finna áhættuþætti hennar. Sú rann- sókn er einnig gerð í samvinnu við læknana W. Allen Hauser og Gunnar Guðmundsson, auk Péturs Lúdvígs- sonar læknis, og er hún kostuð af bandarískum heilbrigðisyfirvöldum. Engin leiktæki við Grafarvogslaugina Ekki á fjárlögum þessa árs NOKKUÐ hefur borið á óánægju meðal barna í Grafarvogshverfi með að engin leiktæki séu komin að nýju sundlauginni sem þar var opnuð í maí sl. Omar Einarsson, framkvæmdastjóri Iþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur, segir leiktæki ekki vera á fjárlögum þessa árs. „Við heyrum það á fólki að það saknar leiktækja fyrir börnin,“ segir AJfreð Alfreðsson, starfs- maður Iþróttamiðstöðvar Grafar- vogs. Að sögn Omars er verið að vinna við innilaug sem gert er ráð fyrir að verði tilbúin fyrir haustið, svo að skólasund geti fengið þar inni. Þá er eftir að koma fyrir eim- baði og útisturtum, auk leiktækja fyrir yngi'i sundlaugargesti, en það er ekki á fjárlögum þessa árs, svo Omar segir það allt verða rætt við gerð fjárhagsáætlunar næsta árs. -------------- Stolið úr golfskálanum á Höfn BROTIST var inn í golfskálann á Höfn í fyrrinótt. Stolið var bæði peningum og vamingi. Lögreglan á Höfn rannsakar málið en lítil ummerki sáust um þjófnaðinn. Peningakassa golfskál- ans var stolið en hann hafði nýlega verið tæmdur og talið að í honum hefðu verið milli 6 og 10 þúsund krónur. Einnig var stolið sælgæti og bjór. ------♦“♦“♦--- Sjúklingar sótt- ir í skemmti- ferðaskip TVEIR sjúklingar voru sóttir um borð í skemmtiferðaskipið Queen Elisabeth II, sem lá á ytri höfninni í Reykjavík á fimmtudag. Voru þeir fluttir á spítala í borginni. Sjúkraflutningamenn fóru um borð í skipið með hafnsögubáti og fluttu sjúklingana í land. Var óskað liðsinnis úr landi eftir bráðaveikindi þeirra. ÁLFELGUR - HEILSÁRSDEKK - FJARSTÝRÐ SAMLÆSING - GEISLASPILARI BALENO SEDAN NU GETUM VIÐ BOÐIÐ TAKMARKAÐAN FJOLDA baleno Vökva/veltistýri • Rafmagn í rúðum og speglum 2 loftpúðar • Aflmikil 16 ventla vél • Dagljósabúnaður Styrktarbitar í hurðum • Samlitaðir stuðarar Hæðarstillanleg kippibelti • Upphituð framsæti 1 sdmar/ vinv'ú't' $ SUZUKI BALENO SEDAN EXCLUSIVE frá 1.265.000 kr. SUZUKI BILAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. Heimasíða: www.suzukibilar.is SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, slml 431 28 00. Akureyri: BSA hf„ Laufásgötu 9, siml 462 63 00. Egllsstaðir: Bila- og biivélasalan hf., Miðási 19, simi 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. Isafjörður: Bílagarður ehf.Grænagarði, simi 456 30 95. Keflavik: BG bilakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrismýri 5, simi 482 37 00. Hvammstanga: Bila- og buvélasalan, Melavegi 17, simi 451 26 17.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.