Morgunblaðið - 25.07.1998, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VERSLUNARMANNAHELGIN
FJOLSKYLDAN OG
FJÖLBREYTNI f FYRIRRIJMI
Skipulagðar hátíðir eru í boði víða um landið um versl-
unarmannahelgina. Hátíðahöldin standa misjafnlega
lengi og eru með misjöfnu sniði en víðast virðist gert
ráð fyrir að fjölskyldan geti skemmt sér saman. Ymist
eru skemmtikraftar, náttúruskoðun, íþróttir eða
mannrækt í aðalhlutverki og sumstaðar er þessu
blandað saman að einhverju eða öllu leyti eins og sjá
má á samantektinni sem hérgefurað líta.
SkipulögcS hátíðarSiðld um
verslunarmannaii @Bgina «
m
Siglufjörður.
.rX C
Skagaströnd
V T '
in
StaðarfelL,-? ■ {
'VV'
j!
AkureyfÍT\V>^\n Vopnafjörður
V
X
■ m.
Hellnar
Neskaupstaður
C Avatnaskógur
X
Galtalækur
XXY
Kirkjulækjarkot A A Múlakot Kirkjubæjar-
klaustur
Vestmannaeyjar
Vík
Sæludagar
í Vatnaskógi
í Vatnaskógi standa Skógarmenn KFUM
fyrii’ Sæludögum um verslunarmannahelg-
ina. Sumarbúðimar í Vatnaskógi eru 75 ára á
þessu ári og verður því sérstaklega vandað til
dagskrárinnar. Meðal annars verða kvöld-
vökur, varðeldur, bryggjupartí, miðnætur-
sund, Sæludagaleikar, bænastundir, kodda-
slagur á vatninu, gönguferðir, kassabílarallý,
fótbolti og tónleikar.
Á svæðinu er veitinga- og nestisaðstaða og
fullbúið íþróttasvæði. Aðstandendur hátíðar-
innar bjóða alla velkomna á hátíðina og
leggja áherslu á skemmtun án áfengis. Að-
gangseyrir á Sæludaga er 2.700 krónur en
ókeypis er fyrir yngri en 13 ára og eldri en 67
ára. Hægt er að panta gistingu í svefnskálum
hjá KFUM en greiða þarf sérstaklega fyrir
hana. Sérleyfísbíll fer frá Reykjavík í Vatna-
skóg 31. júlí og aftur til baka 3. ágúst.
Snæfellsásmót
Snæfellsás-samfélagið stendur fyrir mann-
ræktarmóti um verslunarmannahelgina á
Brekkubæ á Hellnum. Fólki með áhuga á
sjálfsrækt og andlegri vinnu er boðið að safn-
ast saman og fræðast um nýjar stefnur og
strauma. Dagskráin byggist á fyrirlestrum
um ýmis málefni. Meðal fyrirlesara má nefna
Þorstein Njálsson heimilislækni, sem fjallar
um ábyrgð einstaklingsins á eigin heilbrigði,
og Guðrúnu Hjörleifsdóttúr miðil, sem verð-
ur með fyrirlestur um Sai Baba. í öðrum fyr-
irlestrum verður meðal annars fjallað um
talnaspeki, listmeðferðarfræði, andlega tengt
kynlíf, nokkur atriði úr jógaheimspeki,
stjömuspeki, vemdarvættir Islands og vist-
vænan hugsunarhátt.
Boðið verður upp á fjölda námskeiða m.a. í
samskiptum, líföndun og leiklist. Einnig verð-
ur hægt að fá einkatíma í spilalestri, lestri í
talnaspeki, lífóndun og komast í svitahof.
Daglega verða heilunarvígslur og gönguferð-
ir til grasatínslu og á kvöldin verða kvöldvök-
ur með losunarathöfn, söng, leik og friðarat-
höfn. Á sunnudeginum verður helgistund
með séra Ólafi Jens Sigurðssyni við lífslind
Hellnamanna, sem í daglegu tali er kölluð
Maríulindin.
Ymislegt er í boði fyrir bömin, m.a. jóga,
ævintýraferð, leiklist fyrir böm og unglinga
og hugleiðsluvinna með litum. Veitingasala
verður á staðnum. Snæfellsásmótið er vímu-
laust. Verð aðgöngumiða er 3.000 ki’ónur og
frítt er fyrir börn yngri en 14 ára. Ef miðar
em keyptir fyrir 25. júlí er veittur 10% af-
sláttur. Miðar era seldir hjá Snæfellsás-sam-
félaginu. Sérleyfisbílar fara milli Reykjavíkur
og Hellna alla daga verslunarmannahelgar-
innar nema sunnudag, mikilvægt er að bóka
far frá Reykjavík að Hellnum.
Mjólkurgleði SÁÁ
og Dalamanna
SÁÁ og Mjólkursamlagið í Búðardal halda
saman vímuefnalausa útihátíð að Staðarfelli í
Dölum um verslunarmannahelgina. Hátíðin
ber heitið Mjólkurgleði SÁÁ og Dalamanna,
boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá og
lögð áhersla á heilbrigða skemmtun og úti-
vist. Tveir danspallar era á svæðinu og þar
verða dansleikir, diskótek og harmónikuböll.
íþróttamót verður hluti af hátíðinni og boð-
ið verður upp á bátsferðir, sund og hestaferð-
ir. Á laugardagskvöldinu verður brenna og
flugeldasýning. Aðgangseyrir verður 3.000
krónur á mann en ókeypis fyrir böm 13 ára
og yngri í fylgd með fullorðnum.
Kántrýhátíð á
Skagaströnd
Kántrýhátíðin á Skagaströnd er fjölskyldu-
hátíð og hefst með dagskrá fóstudaginn 31.
júlí. Meðal þess sem boðið verður upp á eru
myndlistarsýningar, kassabílarallý, krafta-
keppni, marhnútaveiði, flugeldasýning, út-
sýnisflug og gospelmessa. Keppt verður í
línudansi en boðið verður upp á kennslu í
kántrý- og greasedönsum alla helgina undir
handleiðslu Jóhanns Amars Ólafssonar dans-
kennara.
Meðal þeirra sem koma fram á kántrýhátíð
era Magnús Eiríksson, Pálmi Gunnarsson,
Kjartan Valdimarsson og Viðar Jónsson.
Hljómsveitirnar Lukkulákarnir, Lausir og
liðugir og Dalton-bræður spila, að ógleymd-
um Hallbimi Hjartarsyni. Dansleikir verða
bæði í Kántrýbæ og Félagsheimilinu Fells-
borg, aðgangseyrir verður að dansleikjunum
en aðgangur að tjaldstæðum á Skagaströnd
I
s
51
L
l
I
l
I
I
»
r
i
\