Morgunblaðið - 25.07.1998, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn í Japan velur sér nýjan leiðtoga
Obuchis bíða erfið verk-
efni í efnahagsmálum
Vart er hægt að segja að fregnum af sigri
Keizo Obuchis, utanríkisráðherra Japans,
í leiðtogakjöri Frjálslynda lýðræðisflokks-
ins í fyrrinótt hafí verið fagnað af miklum
ákafa, segir Davíð Logi Sigurðsson.
Skiptar skoðanir eru hins vegar um
hvort kjör Obuchis muni leiða til
klofnings í stjórnarflokknum.
Reuters
UNGIR kjósendur fylgjast með beinni sjónvarpsútsendingu frá kjöri
Keizos Obuchis í embætti leiðtoga Fijálslynda lýðræðisflokksins (LDP).
SIGUR Obuchis er talinn tákna sigur
hefðbundinna og íhaldssamra viðhorfa
í Frjálslynda lýðræðisflokknum
(LDP), sem fer með stjómartaumana
í Japan, og er nokkur vonbrigði fyrir
ungliðahreyfingu flokksins og aðra þá
sem töldu róttækra breytinga þörf í
ljósi gífurlegrar efhahagskreppu í
landinu og hraklegrar útkomu LDP í
kosningum til efri deildar japanska
þingsins fyrir tæpum tveimur vikum.
Jafnframt eru þeir ósáttir sem töldu
þörf á nýju andliti í forystusveit
flokksins enda á Obuchi langan feril
að baki í stjómmálum Japans og þyk-
ir minna helst til of mikið á Ryutaro
Hashimoto, sem sagði af sér for-
mennsku í flokknum, og þar með for-
sætisráðherraembættinu, í síðustu
viku.
Sigur Obuchis vai- ekki óvæntur en
það kom fréttaskýrendum nokkuð í
opna skjöldu hversu afgerandi hann
var, Obuchi fékk 225 atkvæði af 411
strax í fyrstu umferð og kom því ekki
til þess að kjósa þyrfti aftur. Seiroku
Kajiyama, gamall refur í japönskum
stjómmálum, hlaut 102 atkvæði og
Junichiro Koizumi, heilbrigðisráð-
herra, aðeins 84 en sá síðamefndi
naut stuðnings margra ungliða í
flokknum. Nokkuð ömggt þykir að
Obuchi taki senn við forsætisráð-
herraembættinu því neðri deild jap-
anska þingsins, þar sem LDP hefur
enn ömggan meirihluta, er mun
valdameiri stofnun en efri deild þess
og getur tekið fram fyrir hendur þing-
manna efri deildarinnar, skyldu þeir
hafna tilnefningu Obuchis.
Tilnefning Obuchis í forsætisráð-
herraembættið er hins vegar ekki
áhyggjuefni heldur frekar þau erfiðu
vandamái sem bíða úrlausnar. Auk
innbyrðis deilna í LDP verður Obuchi
nefnilega að hafa í huga kosningar til
neðri deildar þingsins sem eiga að
fara fram í síðasta lagi um haustið
2000. Til að ekki fari á sömu leið þar
og í nýliðnum kosningum þarf Obuchi
aldeilis að iáta verkin tala því ef
marka má skoðanakannanir hefur
LDP aldrei notið eins lítils stuðnings
meðal kjósenda.
Þessi vandræði tengjast vitaskuld
THORKILD Simonsen innanríkis-
ráðherra hefur nú torveldað dönskum
bæjar- og sveitafélögum að selja
eignir sínar til að afla fjár í sjóði sína.
Frá og með næstu viku verður að
binda afrakstur slíkrar sölu á reikn-
ing, þannig að hann verður ekki til
frjálsrar ráðstöfunar. Eins og við
mátti búast fær tilskipunin blendnar
móttökur, en að mati ráðherra getur
hann gefíð slíka tilskipun án þess að
hún fari fyrir þingið.
Samkvæmt nýju reglunum verður
nú að binda fé, sem fæst af eigna-
því megin verkefni sem nú bíður
Obuehis, að reyna að stemma stigu við
gífurlegum efhahagsvanda í Japan og
auka tiltrú bæði almennings og er-
lendra markaða á japönskum efna-
hag. Atvinnuleysi er nú 4.1% í Japan
og hefur aldrei verið meira, gjaldþrot
fyrirtækja eru nú algengaii en undan-
farin fímmtíu ár og japanskir bankar
eiga útistandandi ýmis lán sem talið
er að þeim muni reynast erfítt að inn-
heimta.
„Herra venjulegur"
í baráttunni um leiðtogastöðu LDP
var Obuchi gjaman kallaður „herra
venjulegur“ og var ekki nóg með að
ýmsir teldu hann að mestu sneyddan
persónutöfrum heldur var hann
einnig sakaður um að vanta algerlega
frumlegar og djarfar hugmyndir til að
takast á við vanda Japans. Obuchi tók
gagnrýni þessari með jafnaðargeði og
lofaði kjósendum því að hann væri
þrátt fyrir allt maður sem ekki hikaði
við að taka til hendinni þegar nauðsyn
krefði.
Obuchi er 61 gamali og hefur setið á
japanska þinginu sleitulaust frá því
hann náði kjöri einungis 26 ára gamali
í kjördæmi í norðurhluta Tókýó sem
faðir hans hafði áður setið á þingi fyr-
ir. Á sínum yngri árum ferðaðist
Obuchi mikið og á námsárunum heim-
sótti hann t.d. 37 lönd. Árið 1962 lauk
hann gráðu í enskum bókmenntum
frá Waseda-háskólanum í Tókýó og
Qallaði lokaritgerð hans um bækur
George Orwells.
Obuchi átti sér velgjörðarmann í
Noboru Takeshita, fyrrverandi for-
sætisráðherra og framámanns í LDP,
gegndi fyrst starfi undirráðherra árið
1979 og var síðan aðstoðarmaður Ta-
keshitas í stjómartíð hans 1987-1989.
Hafa andstæðingar Obuchis kallað
hann strengjabrúðu Takeshitas og
einnig hafa verið uppi efasemdir um
heiisufar Obuchis sem þjáist af þjarta-
kvilla og notast við gangráð.
Árið 1993 völdu flokkseigendur
LDP Obuchi til að gegna starfi fram-
kvæmdastjóra flokksins sem hefur yf-
irumsjón með sjóðum og kosninga-
baráttu flokksins. Obuchi varð um
sölu. Þeir sem styðja söluna halda
því fram að hún sé samt sem áður
fysileg, þar sem vextirnir séu eftir
sem áður seljanda til frjálsra afnota.
Það muni einnig koma bæjarfélögum
til góða að þurfa ekki að reka eign-
imar, heldur nýta þær aðeins sem
leigjendur.
Eignasalan er deilumál, sem klýfur
stóra flokka eins og Jafnaðarmanna-
flokkinn og Venstre. Þó jafnaðar-
mannaráðherra gangi hér gegn söl-
unni hafa ýmsir bæjar- og sveitastjór-
ar flokksins lýst stuðningi við fyrir-
svipað leyti ieiðtogi stærstu flokks-
deildar LDP-flokksin og í fyrra gerði
Hashimoto Obuchi síðan að utanríkis-
ráðherra þótt hann hefði enga sér-
þekkingu á utanríkismálum. Hann
þótti hins vegar og þykir enn afar fær
í að miðla málum og slyngur samn-
ingamaður.
Nokkrir fréttaskýrendur töldu jafn-
vel í gær að ágæt framganga Obuchis
sem utanríkisráðherra hefði tryggt
honum leiðtogastöðuna í LDP. Þiða í
samskiptum Japans við bæði Kína og
Rússland var t.d. meðal fárra afreka
sem Hashimoto gat stært sig af í ný-
liðnum þingkosningum og víst þykir
að Obuchi átti drjúgan þátt í að koma
þeim á.
Obuchi þykir hlédrægur í um-
gengni og var haft eftir einum stjóm-
málamanni í gær að Obuchi væri
„ekki frábær leiðtogi en góður í að
hlusta á aðra og aðlagast aðstæðum,
sem gæti vel verið jákvætt hvað
stefnumyndun varðar." Jafhvel stuðn-
ingsmenn hans viðurkenna hins vegar
að Obuchi virðist heldur daufgerður
út á við. Hann hefur hins vegar þrnft
að há sína hildi á sviði stjómmálanna í
gegnum tíðina og má því ætla að
frami hans nú gefi til kynna að Obuchi
sýni ekki alltaf af sér linkind.
komulagið. Þó það sé helst Venstre-
maðurinn Peter Bilxtofte þingmaður
og bæjarstjóri í Famm, sem kenndur
er við fyrirkomulagið hefur það
tíðkast víða. En einnig í Venstre er
májið umdeilt.
Á það hefur verið bent í fréttum
danska útvarpsins að það hefur um
árabil þekkst í Svíþjóð að bæjarfélög
seldu eignir sínar og leigðu sig síðan
inn í þær. Þó einkavæðing sænskra
bæjarfélaga hafi lengi verið hitamál,
virðist þessi hluti einkavæðingarinn-
ar ekki hafa vafist fyrir Svíum.
Á sigurstundu í fyrrinótt fór Obuchi
fram á það við flokksmenn LDP að
þeir sýni samstöðu á ögurstundu og
að imgliðar létu ekki verða af hótun-
um sínum um að kljúfa flokkinn.
Koizumi, sem atti kappi við Obuchi
um leiðtogastöðuna, tók í sama streng
í gær og sagðist skilja tilfinningar
ungu mannanna í flokknum en að
betra sé að þeir nái umbótum sínum
fram innan LDP fi-emur en segja skil-
ið við flokkinn. Sjálfur kvaðst Obuchi
sannfærður um að ekki kæmi til
klofnings.
Réttur maður á réttum stað?
Á fréttamannafundi sagði hann sitt
höfuðmarkmið nú vera að bæta efna-
hág Japans, „gegna þeirri stöðu á al-
þjóðavettvangi sem búist er við af
okkur og jafnframt auka tiltrú jap-
ansks almennings á framtíð sinni.“
Stjórnmálaskýrandinn Shigenori
Okazaki sagðist í gær hins vegar ekki
reikna með mikium breytingum frá
þeirri stefnu sem Hashimoto fylgdi
enda nyti Obuchi stuðnings sömu
manna í LDP og studdu Hashimoto.
Richard Jerram, virtur hagfræð-
ingur og sérfróður um málefni
Japans, sagðist hins vegar þrátt fyrir
allt telja Obuchi rétta manninn í starf-
ið. „Ég tel menn einum of gjama á að
útmála Obuchi sem skúrk, eða
leiksopp annarra manna, því stað-
reyndin er sú að hann hefur einmitt
rétta boðskapinn fram að færa og
hann á sér öflugan stuðningshóp sem
mun hjálpa honum til að hrinda nauð-
synlegum aðgerðum í framkvæmd."
Er þess nú beðið að sjá hverjir munu
sitja í ráðuneyti Obuchis en sennilega
yrðu aðilar á fj ármálamörkuðum ekki
ósáttir við tilnefningu Seirokus Kaji-
yamas, keppinauts Obuchis um leið-
togaembættið, en hann setti fram rót-
tækar tillögur í efnahagsmálum.
Og þótt japanska jenið félii strax í
verði í kjölfar sigurs Obuchis tók það
fljótlega við sér á nýjan leik og náði
fyrri stöðu. Þvi bíða menn nú milli
vonar og ótta eftir því að sjá hvort
Obuchi takist að endurlífga næst um-
svifamesta efnahag í heiminum og
leiða Asíuríkið út úr verstu efnahag-
sógöngum sem yfir það hafa dunið um
árabil.
Varað við
fleiri flóð-
bylgjum
FREKARI jarðskjálftar í ná-
grenni Papúa Nýju-Gíneu hafa
vakið ótta manna og sögðu
skjálftafræðingar í gær að um
50% líkur væru á fleiri flóð-
bylgjum, en ein slík gekk yfir
landið um síðustu helgi og olli
dauða þúsunda manna. Opin-
ber tala yfir fjölda látinna er
nú 1.300 en um 6.000 er enn
saknað og er óttast að þeir hafi
einnig farist.
„Paparazzo“
látinn
LJÓSMYNDARINN Tazio
Secchiaroli, sem var kvik-
myndaleikstjóranum Federico
Fellini fyrir-
mynd að per-
sónunni
„Paparazzo" í
kvikmyndinni
La Dolce
Vita, lést í
gær, 73 ára
að aldri. Orð-
ið paparazzi
festi sig fljótt
í sessi sem alþjóðlegt heiti yfir
ágenga tískuljósmyndara og er
skemmst að minnast umræð-
unnar um þá í kringum dauða
lafði Díönu af Wales í fyrra.
Indónesía
kallar her-
menn heim
STJÓRN Indónesíu tilkynnti í
gær að hún hygðist kalla fjölda
hermanna heim frá Austur-
Tímor en frelsissveitir Austur-
Tímor berjast enn fyrir sjálf-
stæði frá Indónesíu. Talið er að
um eitt þúsund af þeim fimm
þúsund hermönnum sem nú
eru staddir í Austur-Tímor
verði kallaðir heim.
IRA viðriðið
morð
LÖGREGLAN á N-írlandi
staðfesti endanlega í gær að
hún teldi víst að Irski lýðveld-
isherinn (IRA) hefði verið við-
riðinn morðið á Andrew Kear-
ney, sem myrtur var í síðustu
viku. Eykur þetta enn þrýsting
á að forystumönnum Sinn
Féin, stjórnmálaarms IRA,
verði gert erfitt fyrir að taka
sæti sín í n-írskri ríkisstjóm ef
ekki kemur fyrst til afvopnun
IRA.
Skæð
hungursneyð
í Súdan
TALIÐ er að allt að fimmtíu
manns deyi nú daglega úr
hungri í suðurhluta Afríkurík-
isins Súdan en hungursneyðin
er verst í héraðinu Bahr el-
Ghazal, að sögn þarlendra
stj ómarerindreka.
Berlusconi
enn ákærður
ÍTALSKI auðkýfingurinn Silvio
Berlusconi sagðist í gær reiðu-
búinn til að mæta fyrir rétt á
Spáni og svara til saka fyrir
skattsvik en hann var ákærður í
Madrid í gær. Berlusconi, sem
áður var forsætisráðherra Ital-
íu, var fyrr í þessum mánuði
sakfelldur í þriðja sinn í heima-
landi sínu fyrfr spillingu.
Eignaútsala danskra
sveitarfélaga torvelduð
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.