Morgunblaðið - 25.07.1998, Qupperneq 36
36 LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1998
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+ Pétur Björn
Ólason var
fæddur í Galtanesi í
Víðidal 31. október
1915. Hann lést á
Héraðssjúkrahús-
inu Blönduósi að
morgni laugardags-
ins 18. júlí síðastlið-
ins. Foreldrar hans
voru Óli Jóhannes-
son, f. 18.10. 1884,
d. 1927, og Sigur-
laug Jónsdóttir, f.
18.3. 1877, d. 14.9.
1937. Systkini hans
voru, Olafía Stein-
unn, f. 6.1. 1898, og Jóhannes, f.
19.4. 1903, sammæðra en faðir
þeirra var Pétur Jóhannesson,
fyrri maður Sigurlaugar en
hann var bróðir Óla. Albróðir
Péturs var tvíburabróðir hans
Ingvi, hann lést 12.11. 1995.
Hinn 31.10. 1942 kvæntist
Pétur Sigurborgu Fanneyju
Daníelsdóttur frá Bergsstöðum
á Vatnsnesi, f. 3.12. 1913, d.
2.10. 1968, foreldrar hennar
voru Daníel Teitsson, bóndi á
Bergsstöðum, og kona hans Vil-
borg Árnadóttir. Börn Péturs
og Fanneyjar eru Ólafía Sigur-
Iaug, f. 8.4. 1942, maður hennar
er Guðmundur Ásgrímsson, f.
29.12. 1934. Eru þau búsett á
Blönduósi en áður bændur á Ás-
brekku í Vatnsdal, eiga þau þijú
í dag kveðjum við mág minn, Pét-
ur Bjöm Ólason, bónda í Miðhús-
um, Vatnsdal. Hann var góður og
heilsteyptur vinur og mjög farsæll í
lífí sínu og störfum. Hann var
greindur vel og las mikið þegar tími
var til. Hann hafði gott minni,
fylgdist vel með og var glöggur og
fróður um margt. Hann var forsjáll
og gætti þess vel að stíga ekki þau
skref sem mikil áhætta gat fylgt.
Hann var mikill reglumaður og
ábyrgur fyrir fjölskyldu sinni og
hugsaði um hag hennar í hvívetna.
Hann var mikill öðlingur í öllu við-
móti, hjálpsamur og greiðvikinn,
traustur og orðheldinn og mátti
ekki vamm sitt vita.
Árið 1942, 31. október, kvongaðist
hann systur minni, Fanneyju, og
hófu þau þá búskap í Miðhúsum.
Fanney lauk námi frá Kvennaskól-
anum á Blönduósi og hafði búið sig
vel undir það að geta staðið fyrir
heimili og það gerði hún af miklum
myndarskap. Við urðum fyrir því að
missa föður okkar þegar Fanney var
á 10. ári, elst fímm systkina. Hún
þurfti því snemma að fara að vinna
ýmis störf bæði innan húss og utan.
Það fór saman að hún var harðdug-
leg, verklagin og velvirk.
Þau Fanney og Pétur voru um
margt l£k og mjög samhent um að
byggja upp heimili sitt og framtíð
barna sinna. Alltaf var eitthvað að
gerast hjá þeim hjónum sem til
framfara horfði. Túnið stækkaði,
byggingar voru endurnýjaðar og
auknar og vélakostur varð fullkomn-
ari.
Bæði voru þau hjónin hlý í við-
móti og tóku vel á móti fólki. Og
ekki var þeim vísað frá garði sem
minnst máttu sín og umkomulaus-
astir voru. Fanney og Pétur eignuð-
ust fimm böm sem öll lifa foreldra
sína. Lögð var áhersla á að búa þau
sem best undir lífsstarfíð. Þótt
barnahópurinn væri stór tóku þau,
börn. Magnús, f.
5.11. 1944, bóndi
Miðhúsum í Vatns-
dal, sambýliskona
hans var Erla Njáls-
dóttir, f.15.7. 1937
frá Sandi í Aðaldal,
þau slitu samvistum,
eiga þau þrjú böm,
auk þess ólust upp
hjá þeim þijú böra
Erlu frá fyrra
hjónabandi. Vil-
borg, f. 5.11. 1944,
kennari, maður
hennar er Valgarð-
ur Hilmarsson, f.
29.8. 1947 bóndi á Fremstagili í
Langadal, eiga þau þijú böra.
Hjalti, f. 12.1. 1952, múrari í
Reykjavík, kona hans er Sigríð-
ur Gísladóttir, f. 7.8. 1952, eiga
þau íjögur böra. Ðaníel Ingi, f.
4.10. 1957, hann dvelur erlendis.
Eru barnaböra Péturs því orðin
13 og bamabarnabömin 12.
Faðir Péturs lést þegar hann
var 12 ára, en hann ólst upp í
Víðidal og Vesturhópi fram að
14 ára aldri er hann flutti með
móður sinni að Miðhúsum í
Vatnsdal, sem var hans heimiii
til æviloka. Síðustu árin dvaldi
hann á dvalarheimili Héraðs-
sjúkrahúsins á Blönduósi.
Útför Péturs fer fram frá
Þingeyrakirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
um mörg ár, böm til sumardvalar og
mynduðust þannig góð tengsl við
fólk í þéttbýlinu.
Það var mikill harmur kveðinn að
fjölskyldunni þegar Fanney féll frá
2. október 1968. Pétur hélt þá áfram
búskap í samvinnu við Magnús, son
sinn. Hin síðari ár vann hann við
sláturvinnu á Blönduósi samhliða
búskapnum. Árið 1993 hætti Pétur
búskap og fór á Héraðssjúkrahúsið
á Blönduósi og dvaldi þar til ævi-
loka. Hann ferðaðist talsvert innan-
lands og naut þess að kynnast landi
og þjóð.
Pétur naut virðingar og vinsælda
meðal samferðafólks á lífsleiðinni.
Hann talaði ávallt vel um fólk. Mat
mikils hreinskilni, heiðarleika og
traust. Hann var alinn upp við að
virða hinar góðu dyggðir, trúnað,
samviskusemi og umburðarlyndi við
samferðafólkið og á þeim vegi villt-
ist hann aldrei. Minningarnar um
slíkan samferðamann eru góðar og
kærar. Pétur var ávallt til fyrir-
myndar og farsællar eftirbreytni.
Við eigum honum því mikið að
þakka. Kynnin við hann hafa létt
mörgum lífsgönguna. Hann var góð-
ur, heill og skemmtilegur félagi. Við
kveðjum ágætan dreng með söknuð
í huga, þökkum samfylgdina og biðj-
um honum blessunar á nýjum veg-
um. Börnum hans og fjölskyldum
þeirra flytjum við innilegar samúð-
arkveðjur.
Páll V. Daníelsson.
Eins og fram hefur komið missti
Pétur foreldra sína ungur að aldri
og varð því snemma að vinna fyrir
sér sjálfíir. Þegar hann flutti að
Miðhúsum með móður sinni, þá 14
ára að aldri, til Magnúsar Halldórs-
sonar bónda þar hóf hann þegar að
vinna við bústörf í Miðhúsum, þá
vann hann snemma við landbúnað-
arstörf á nágrannabæjum, lengst á
Hnjúki. Pétur var glöggur á fé og
natinn og góður skepnuhirðir.
Magnús bóndi í Miðhúsum tók
snemma ástfóstri við Pétur sem
varð til þess að hann trúði honum
fyrir jörðinni þegar hann hætti að
treysta sér að standa fyrir bú-
rekstri. Pétur hóf búskap í Miðhús-
um 1941 og var bóndi þar allt til
þess að Magnús sonur hans tók við
búrekstri 1968 en dvaldi þar áfram
og tók virkan þátt í búrekstri sonar
síns allt til þess að hann flutti á dval-
arheimilið 1995.
Á yngri árum stundaði Pétur
vinnu við vegagerð í sýslunni og
vann lengi á haustin í sláturhúsinu á
Blönduósi. Þótti hann eftirsóttur
starfskraftur fyrir trúmennsku og
ósérhlífni og var hann alltaf sérstak-
lega vinsæll meðal samstarfsmanna
og eignaðist marga góða vini á þess-
um árum sem sýnt hafa honum
mikla tryggð allt til dauðadags. Pét-
ur var traustur og góður vinur og
kom það meðal annars fram þegar
hann flutti á dvalardeildina og var
óþreytandi að stytta öldruðum sjúk-
lingum á sjúkrahúsinu stundir með
heimsóknum.
Pétur var mikill áhugamaður um
gömul fræði og þá sérstaklega ætt-
fræði og grúskaði hann mikið í
henni. Hann var sérstaklega minn-
ugur og gat rakið ættir langt aftur
án þess fletta þyrfti upp í bókum.
Pétur tók þátt í ýmsum félagsstörf-
um og var meðal annars markavörð-
ur fyrir Austur-Húnvetninga um
langt ára bil.
Leiðir okkar Péturs lágu fyrst
saman á sláturhúsinu á Blönduósi
og mynduðust þá þegar góð kynni
og vinskapur sem urðu enn nánari
þegar við Vilborg gengum í hjóna-
band og hefur hann verið okkur og
bömum okkar einstaklega tryggur
og góður faðir og afi. Pétur var mjög
bamgóður og böm hændust mjög að
honum og hafði hann mikla ánægju
af að víkja góðu að þeim, bæði í orð-
um og gjörðum. Með Pétri í Miðhús-
um er genginn traustur maður sem
vildi láta gott af sér leiða og hafði
tileinkað sér að sælla væri að gefa
en þiggja, tilbúinn að gefa af sér til
þeirra sem stóðu einhverra hluta
vegna höllum fæti. Hann hafði alist
upp við nægjusemi og gerði ekki
kröfur til annarra en sjálfs sín.
Hann var glaðlyndur og hafði gam-
an af græskulausu gamni og sagði
sérlega vel frá og var þá oft glettinn,
hafði gaman af vísum og kunni
ógrynni af þeim. Pétur var skemmti-
legur og naut sín vel í góðra vina
hópi. Að lokum vil ég þakka fyrir all-
ar stundimar sem við áttum saman
og þau góðu áhrif sem ég varð að-
njótandi í smvistum við tengdaföður
minn og allt það sem hann hefur
verið okkur hjónunum og bömum
okkar.
„Far þú í friði, friður guðs þig
blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt.“
Valgarður Hilmarsson.
Elsku afi okkar. Við kveðjum þig
nú með söknuði en minnumst jafn-
framt góðu stundanna í gegnum árin
með þér.
Við systkinin minnumst þess vel
hve tilhlökkunin hjá okkur var alltaf
mikil þegar við voram lítil og vissum
að Pétur afi í Miðhúsum væri á leið-
inni í heimsókn til okkar. Þú varst
alltaf svo hlýr og góður við okkur og
þú hafðir alltaf nógan tíma til þess
að spjalla við okkur um heima og
geima og síðan sagðirðu okkur
margar skemmtilegar sögur frá því
hvemig lífið var þegar þú varst lítill
strákur. Þú nenntir líka alltaf að
spila við okkur og spiluðum við þá
oftast nær „svarta Pétur“, sem var
þá í miklu uppáhaldi hjá okkur, og
skemmtum við okkur konunglega
yfir honum.
Elsku góði afi okkar, við viljum
kveðja þig og þakka þér samfylgd-
ina með þessari bæn.
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir sálu mína,
því nú er komin nótt
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll bömin þín, svo blundi rótt.
(M.Joch.)
Hilmar Pétur, Óli Reimar
og Fanney Hanna.
+ Gestur Karl
Karlsson fædd-
ist á Stokkseyri 14.
júní 1933. Hann lést
19. júlí síðastliðinn
á Sjúkrahúsi Suður-
lands. Foreldrar
Gests voru Aðal-
heiður Gestsdóttir,
húsmóðir, f. 15.
október 1907, d. 8.
apríl 1997, og Karl
Jónasson, véla- og
rennismiður, f. 19.
febrúar 1909, d. 14.
apríl 1980. Gestur
var þriðji í hópi tíu
barna Áðalheiður og Karls.
Systkini Gests voru: Margrét, d.
29. mars 1987, eftirlifandi maki
Bogi Þórir Guðjónsson, Ársæll,
sambýliskona Einara Sigurðar-
dóttir. Jónas, f. 13. október
1934, d. 18. október 1934. Krist-
inn, maki Bryndís Sigurðardótt-
ir. Óskírður drengur, f. 13. jan-
úar 1938, d. 16. janúar 1938.
Magnús, maki Jenný Gestsdótt-
ir. Agnes, maki Hörður Jó-
hannsson. Gunnar, maki Þóra
Gísladóttir. Jón Ólafur, maki
Ásgerður Jónsdóttir.
Gestur kvæntist Hafdísi Ingv-
arsdóttur, d. 26. janúar 1997, og
átti með henni tvö börn, Hafþór,
f. 21.5. 1954, og Aðalheiði, f.
20.10. 1963. Hafþór er kvæntur
Emmu G. Eiríksdóttur. Dætur
í dag verður borin til grafar afi
okkar systra, Gestur Karlsson. Það
var sorgarfrétt sem pabbi færði
okkur systranum snemma morguns
19. júlí sl. Afi Gestur hafði látist þá
um nóttina aðeins 65 ára gamall. Áfi
háði stutta en hetjulega baráttu við
hinn skæða sjúkdóm krabbamein,
en varð því miður að lúta í lægra
haldi. Það er ótrúlegt að hugsa til
þess að elsku afi okkar sé farinn frá
okkur. Þó að við höfum kannski ekki
eytt með honum löngum samveru-
stundum hefur hann alltaf verið
fastur punktur í tilvera okkar
systra. Þegar við voram yngri var
hann um tíma búsettur í Danmörku
og þá var nú spennandi að fá jóla-
pakkana frá afa í útlöndum og var
þeirra alltaf beðið með mikilli eftir-
væntingu.
Síðar flutti afi aftur til Islands og
var þá alltaf í nágrenni við okkur
systurnar heima á Eyrarbakka. Afi
Gestur var ákaflega hjartahlýr og
góður maður. Hann vildi allt fyrir
okkur gera og vildi helst gefa meira
en hann gat. Það er sárt til þess að
hugsa að afi sé farinn frá okkur, og
það virðist óréttlátt að hann sé tek-
inn frá okkur nú aðeins 65 ára gam-
all. Þessar hugsanir víkja þó fyrir
þeirri vissu að nú hefur hann öðlast
frið og er laus við þær þjáningar
sem fylgdu þeim sjúkdómi sem hann
barðist við.
Við kveðjum elsku afa okkar með
miklum söknuði og minningin um
hann mun ávallt lifa í hjörtum okkar.
Fel þú Guð, í faðminn þinn
fúslega hann afa minn.
Ljáðu honum ljósið bjarta,
lofaðu hann af öllu hjarta.
Leggðu yfir hann blessun þína,
berðu honum kveðju mína.
(L.E.K)
Hinsta kveðja frá sonardætram.
Sandra Dís, Eyrún
og Karen Dröfn.
Ég man vel fyrstu kynni mín af
Gesti. Konan mín fór þá með mig
austur á Eyrarbakka til að kynna
mig fyrir verðandi tengdapabba og
Nínu sambýliskonu hans. Það era
liðin átta ár. Við höfum átt margar
samverastundir síðan og meðal ann-
ars höfum við farið saman nokkrum
sinnum í veiðitúr. Það að vera úti í
náttúranni með veiðistöng var eitt
hans helsta áhugamál. Ein veiðiferð-
in var mér sérstaklega minnisstæð.
Þá var Finni, yngsti sonur hans,
með í for, þá nýfluttur til íslands frá
þeirra eru þijár og
auk þeirra átti Haf-
þór eina dóttur fyr-
ir. Aðalheiður er
gift Sigurði Þór Sig-
urðssyni. Þau eiga
tvo syni og fyrir átti
Aðalheiður tvo syni.
Gestur kvæntist síð-
ar Þórlaugu Finn-
laugsdóttur og átti
með henni einn son,
Finnlaug Pétur, f.
23.1. 1971. Finn-
laugur er kvæntur
Ditte Poulsen og
eiga þau einn son.
Gestur og Þórlaug slitu samvist-
um.
Eftirlifandi sambýliskona
Gests er Jónfna Kjartansdóttir,
f. 13.5. 1939. Gestur og Jónína
hafa búið saman á Háeyri á
Eyrarbakka frá 1983. Börn
Jónfnu eru: Brynja Matthías-
dóttir, gift Steinari Áraasyni.
Þau eiga tvö börn. Aldfs Mar-
teinsdóttir. Hún á fjögur börn.
Guðmundur Marteinsson,
kvæntur Ararúnu Sigurmunds-
dóttur. Þau eiga eitt bara. Elva
Marteinsdóttir sem á tvo syni
og Helena Marteinsdóttir sem á
einn son. Sambýlismaður Hel-
enu er Brynjólfur Stefánsson.
Útför Gests fer fram frá Eyr-
arbakkakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukk an 13.30.
Danmörku. Gestur lagði sig allan
fram um að kynnast syni sínum upp
á nýtt eftir margra ára aðskilnað.
Honum tókst líka að vinna hug hans
á tiltölulega skömmum tíma. A sama
hátt tókst Gesti að vinna hug og
hjarta allra bama sem kynntust
honum. Hann var óþreytandi við að
sinna börnum. Ailtaf að búa eitthvað
til handa þeim í höndunum eða að
segja þeim alveg magnaðar „lyga-
sögur“.
Hjálpsemi og greiðvikni hans var
takmarkalaus. Síðustu árin, eftir að
heilsu hans tók að hraka, átti hann
oft bágt með að sætta sig við að geta
ekki hjálpað til við eitthvað sem
þurfti að gera. Hann kunni líka vel
til verka, hvort sem það vora bflavið-
gerðir, málningarvinna, smíðar eða
eldamennska. Hann vandaði alltaf til
þess sem hann gerði og sætti sig
ekki við annað, en að gera hlutina
vel. Málningarvinnan hjá OLÍS er til
vitnis um það, en þar starfaði Gestur
síðustu árin sem hann lifði. Hann
hjálpaði okkur hjónunum oft og sér-
staklega í sambandi við að byggja
okkur hús. Þegar starfsþrek hans
var þrotið gat hann samt veitt okkur
hjálp með ráðleggingum hvemig út-
færa ætti eitt og annað.
Ég er þakklátur fyrir að hafa
fengið að kynnast Gesti. Hann var
einstaklega hlýr og tilfinningai-íkur.
Hann átti enga óvildarmenn og tal-
aði hlýlega um alla sem hann þekkti.
Efst í huga hans vora þó án efa kon-
an hans, „hún Nína mín“ eins og
hann sagði alltaf, bömin hans þrjú
og Amar. Amar ólst að miklu leyti
upp hjá Nínu og Gesti og þótt Arnar
hafi alltaf kallað hann afa, má segja
að Gestur hafi verið Amari miklu
heldur sem faðir. Gestur talaði oft
um það við okkur hvað þau væra
heppin með strákinn og hvað Araar
væri góður við sig.
Ég vil votta Nínu og Arnari, böm-
um Gests og öðram aðstandendum
mína innilegustu samúð.
Sigurður Þór.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.Í8) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina
fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal-
línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Crfíéryííji
Upplýsingar í símum
562 7575 & 5050 925
| IIOIII lOt lillOIR
§ ' « C 1 t A
■■ '■
Glæsileg KAFFIHLAÐBORÐ
FALLEGIR SALIR
OG MJÖG GÓÐ ÞJÓNUSTA
* « « n o t 1 t s
PETUR BJORN
ÓLASON
GESTUR K.
KARLSSON