Morgunblaðið - 11.08.1998, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
178. TBL. 86. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
MJÖG heitt er víða í Evrópu
þessa dagana. Hér kæla nokkrir
íbúar Ziirich í Sviss sig í gos-
brunni í Ziirich-vatni, en skæðust
hefur hitabylgjan verið á Kýpur,
þar sem 48 hafa látizt og hund-
ruð annarra þurft á læknishjálp
að halda undanfarna sólar-
hringa. Flestir hinna látnu Kýp-
urbúa voru af léttasta skeiði og
heilsulausir en hitinn hefur náð
allt að 43 gráðum, sem er um
fimm gráðum yfir því sem annars
gerist mest í venjulegu árferði.
Reuters
Hitabylgja í Evrópu
Genabreytt
matvæli
skaðleg
mönnum?
London. Reuters.
GENABREYTT fæða getur
hamlað vexti rottna og valdið
skemmdum á ónæmiskerfi
þeirra, samkvæmt niðurstöðum
breskrar rannsóknar sem
kynntar voru í gær. Þetta er í
fyrsta sinn sem rannsókn leiðir
slíkt í ljós og niðurstöðurnar
hafa kynt undir ótta um að
genabreytt matvæli kunni að
hafa skaðleg áhrif á menn.
Arpad Puztai, prófessor við
Rowett Research Institute í
Aberdeen, fóðraði tilraunarott-
ur á genabreyttum kartöflum í
110 daga. í ljós kom að dregið
hafði úr vexti þeirra og að þær
höfðu minna mótstöðuafl gegn
sjúkdómum. Puztai segir að
niðurstöðurnar bendi til þess
að gera þurfi mun ítarlegri
rannsóknir á genabreyttum
matvælum áður en þau eru
leyfð til manneldis. „Okkur er
talin trú um að [genabreytt
matvæli] séu algjörlega skað-
laus, en ef ég ætti að velja
myndi ég ekki leggja mér þau
til munns,“ sagði hann.
Sú genabreytta kartöfluteg-
und sem notuð var í rannsókn-
inni hefur ekki verið leyfð til
sölu en ýmsar aðrar tegundir
genabreyttra matvæla, meðal
annars sojabaunir, hafa verið á
markaði í um tvö ár.
Vísa skaðsemi á bug
Talsmaður Monsanto-fyrir-
tækjasamsteypunnar, sem ver-
ið hefur leiðandi í framleiðslu
genabreyttra afurða, vísaði í
gær á bug vangaveltum um að
þær geti verið skaðlegar mönn-
um, og sagði að þau matvæli
sem nú væru á markaði hefðu
verið rannsökuð gaumgæfilega
og væru algjörlega hættulaus.
Kabila sakaður um að leita blórabögguls
Hart barizt í
Austur-Kongó
New York, Kinshasa. Reuters.
HART var barizt við austurlanda-
mæri Lýðveldisins Kongó í gær, þar
sem Laurent Kabila Kongóleiðtogi
sakar Rúanda um að hafa gert inn-
rás, en hann hefur sakað stjórn Ug-
anda um hið sama og segir bæði
lönd styðja við bak uppreisnar-
manna.
Sagt var frá því í The New York
Times í gær að allt benti til þess að
ásakanir Kabilas ættu við rök að
styðjast og að Rúandastjórn hefði
ekki aðeins stutt við bak uppreisnar-
manna heldur jafnvel haft frum-
kvæði að uppreisninni.
Stjórnvöld í Rúanda ítrekuðu í yf-
irlýsingu í gær til öryggisráðs Sam-
einuðu þjóðanna að þau bæru enga
ábyrgð á uppreisn sem hófst í Lýð-
veldinu Kongó (áður Zaire) 2. ágúst
síðastliðinn. Sökuðu þau Kabila um
að leita blórabögguls erlendis þegar
honum væri hollara að líta í eigin
barm. Talsmenn Kabilastjórnarinn-
ar sögðu í gær að stjórnarherinn
hefði náð yfirhöndinni í baráttunni
við uppreisnarmenn.
Uppreisnarmenn á flótta
Útvarpsstöð í Kinshasa, höfuð-
borg landsins, greindi frá því í gær
að hermenn hliðhollir Kabila hefðu
hrakið uppreisnarmenn frá borginni
Boma sem liggur við ósa Kongó-
fljóts og sæktu nú að þeim í austur-
hluta landsins. Boma er um 350 km
suðvestur af Kinshasa og höfðu upp-
reisnarmenn náð henni á sitt vald í
upphafi mánaðarins. Höfðu þeir
einnig sótt nokkuð í átt til höfuð-
borgarinnar um helgina.
Viðræður sem fram fóru í
Zimbabve um helgina um lausn
Kongó-deilunnar fóru út um þúfur
þegar ljóst var að deiluaðilar gátu
ekki sætzt á umræðugrundvöll
Tíu lögreglumenn
falla í Kosovo
Pristina. Reuters. Tlie Daily Telegraph.
SERBAR fullyrða að albanskir upp-
reisnarmenn í Kosovo-héraði hafi
drepið tíu serbneska lögreglumenn í
átökum í fyrrinótt og á sunnudag.
Þá herma sömu heimildir að þrír
uppreisnarmenn hafi látið lífið. Vax-
andi ótta gætir nú á meðal Albana
við að serbneskar öryggissveitir,
sem ráða ríkjum í stórum hluta hér-
aðsins, hefji hefndaraðgerðir gegn
óbreyttum borgurum vegna upp-
reisnar fólks af albönskum uppruna.
Bardagar nærri albönsku landa-
mærunum hörðnuðu að nýju um
helgina en albanskir íbúar Kosovo
segja öryggissveitirnar hafa ráðist
af auknum þunga á þorp sem eru
undir stjórn uppreisnarmanna. Þá
hefur serbnesk lögregla hert mjög
eftirlit á vegum og götum höfuð-
borgarinnar, Pristina. Fullyrða Alb-
anir að lögregluofbeldi hafi færst í
aukana og að fólk sem ræðir við
blaðamenn og hjálparstofnanir
verði fyrir barsmíðum lögreglu í
kjölfarið.
Yfir 500 manns hafa látið lífið í
átökum í Kosovo sl. hálft ár en frið-
arumleitanir hafa hingað til reynst
árangurslausar.
GPS brátt
í farsíma
Detroit. Morgunblaðið
TVÖ stórfyrirtæki í farsímaiðnað-
inum, Nokia og Ericsson, tilkynntu
í gær áætlanir um að framleiða
farsíma sem verða útbúnir með
GPS-staðsetningartækni. Banda-
ríska stórblaðið The New York
Times greindi frá þessu.
Bæði Nokia og Ericsson hafa
gert samning við bandarískt fyr-
irtæki sem kallast Sirf
Technology, en því fyrirtæki hef-
ur tekist að framleiða GPS-
tölvukubba sem eru smærri og
næmari fyrir merkjasendingum
en núverandi staðsetningartæki,
auk þess að vera mun ódýrari.
Að sögn sérfræðinga sem skoð-
að hafa kubbana, virka þeir
einnig mun betur í þéttbýli en nú-
verandi tækni. Þetta mun, að
sögn blaðsins, gera kleift að setja
slík staðsetningartæki f farsíma
og mörg önnur tæki og þýðir að í
framtíðinni verður mögulegt að
nota GPS-tæknina til dæmis sem
þjófavörn fyrir næstum alla hluti
sem hægt er að færa úr stað, eins
og bfla, tölvur eða farangur.
Bandaríkjastjórn setur fé til höfuðs tilræðismönnum í A-Afríku
Grunaðir hand-
teknir í Tansaníu
Nairóbí, Washington. Reuters.
Reuters
PRUDENCE Bushnell, sendi-
herra Bandaríkjanna í Kenýa,
fylgist með er landgönguliðar
bera Iflddstu eins þeirra banda-
rísku ríkisborgara sem Iést í til-
ræðinu á föstudag um borð f
herflugvél á flugvellinum í Na-
iróbí, sem flutti þær til
Þýskalands í gærkvöldi. Madel-
eine Albright utanríkisráð-
herra mun fylgja kistunum síð-
asta spölinn til Bandaríkjanna.
STJÓRNVÖLD í Tansaníu hand-
tóku í gær nokkra menn grunaða
um aðild að sprengitilræðinu við
bandaríska sendiráðið í Dar es
Salaam á fóstudaginn var. Áður
hafði verið tilkynnt að lögreglan í
Tansaníu hefði handtekið þrjá hópa
manna. Ali Ameir, innanríkisráð-
herra landsins, tjáði fréttamönnum
að þrír menn, þar á meðal einn frá
Súdan, væru nú til yfirheyrslu í
tengslum við tilræðið. Hann nefndi
ekld þjóðerni hinna tveggja, en að
sögn innlendra fjölmiðla var þar um
að ræða íraka og Egypta.
Háttsettur embættismaður
bandaríska utanríkisráðuneytisins,
Susan Rice, staðfesti að tilkynnt
hefði verið um handtökurnar, en
sagði óvíst að þær leiddu leitina að
ódæðismönnunum á „heitt spor“.
Yfír tvö hundruð látnir
Bandaríkjastjórn hefur hótað að
refsa hverju því landi, sem rann-
sókn kann að leiða í ljós að beri
ábyrgð á tilræðunum. Madeleine
Albright, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, greindi frá þvi í gær að
bandarísk yfirvöld væru tilbúin að
greiða allt að tvær milljónir dollara
fyrir upplýsingar sem leiddu til
handtöku þeirra sem stóðu að baki
ódæðisverkunum.
Hún lét þessi orð falla eftir að lík
ellefu af þeim tólf Bandaríkjamönn-
um, sem létu lífið í tilræðunum, voru
flutt frá Nairóbí til Þýskalands,
áleiðis heim til Bandaríkjanna.
Björgunarstarfi var fram haldið í
rústum Ufundi-byggingarinnar í
Nairóbí í gær. Talið var að ein kona
væri með lífsmarki í rústunum en
óvíst hvort hún myndi lifa af þar
sem björgunarmenn höfðu ekki
komist til hennar.
Síðdegis í gær höfðu yfir 200 lík
fundist eftir sprengitilræðin. Yfu-
190 höfðu fundist í Nairóbí og tíu í
Dar es Salaam. Yfir 5.000 manns
hlutu meiri eða minni meiðsl í til-
ræðinu í Kenýa en 70 manns slösuð-
ust í höfuðborg Tansaníu. Tæplega
500 manns eru enn á sjúkrahúsi eft-
ir sprengingarnar.
■ Ölíklegt að fleiri/22