Morgunblaðið - 11.08.1998, Síða 4

Morgunblaðið - 11.08.1998, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Um 150 björgunarsveitarmeim leituðu árangurslaust í gær að einkaflugvél sem hvarf við Höfn í Hornafírði um hádegisbil Morgunblaðið/Garðar Sigurvaldason FLUGVÉL feðganna lenti í óhappi á flugvellinum við Mývatn í síðustu viku þegar hjól sprakk í lendingu. Leitarsvæðið erfitt yfir- ferðar og skyggni slæmt Víðtæk leit stóð í allan gærdag og fram á nótt að einkaflugvél sem hvarf af radar við Höfn í Hornarfirði um há- degið í gær. I vélinni voru þrír Þjóðverjar, --- O---------7 gamall maður og synir hans, fæddir 1978 og 1986. Undir kvöld voru tæplega 400 bj örgunar sveitarmenn komnir til Hafnar en til að tryggja öryggi þeirra var ákveðið að draga úr leit frá mið- nætti til klukkan 5. LEIT að einkaflugvélinni, sem er af gerðinni Piper Saratoga, hófst upp úr klukkan eitt eftir hádegi í gær. Flugmaður vélarinnar tilkynnti um aðflug að flugvellinum á Höfn í Homafirði en vélin virðist hafa ver- ið í rangri aðflugsstefnu og hvarf af radar á flugstjómarsvæðinu á Höfn þegar klukkuna vantaði um það bil korter í eitt. Björgnnarsveitarmenn leituðu við erfíð skilyrði TF-Líf, þyrla Landhelgisgæsl- unnar, og flugvél Flugmálastjómar vora strax sendar til Hafnar. Fyrstu leitarmenn fóra af stað frá Höfn strax upp úr klukkan eitt til leitar á Fjarðarheiði. Fljótlega var óskað eftir liðsauka frá björgunar- sveitum af höfuðborgarsvæðinu og leituðu um 150 manns í gær. Fokker-flugvél Landhelgisgæslunn- ar flaug yfir leitarsvæðinu með end- urvarpa til að halda uppi fjarskipta- sambandi við björgunarsveitamenn. Til að byrja með var leitað á Fjarðarheiði og á sjó. Seinnipart vKetí!laugar- Fjarðarheiði UGrund !■ Efrt-Fjoi^uu ^Máttraála-. .^tihdúrú; Akumes " , * Sdii Brunnhorn Árnanes pl&lná,up irænahraun Þinganes Öaúðanes Flói rf Hafnames" Kántbhorn Hafnar til að taka þátt í leitinni. Um 150 björgunarsveitamenn skiluðu sér í fyrra útkalli en um 230 í seinna útkalli samkvæmt upplýsingum frá landsstjóm. í gærkvöldi var reiknað með því að dregið yrði úr leit frá klukkan 24 til til 5 til að tryggja ör- yggi björgunarmanna. Einhver leit stóð þó yfir í alla nótt þar sem að- stæður era skástar. Samkvæmt upplýsingum frá landsstjóm áttu björgunarsveitamennimir sem eru 372 auk fjögurra leitarhunda að leggja af stað í birtingu í morgun. Ef ástæða þykir til í dag verður kallað til björgunarlið víðar af landinu. Voru hér í sumarleyfi Þjóðverjamir komu hingað til lands í síðustu viku. Þeir komu fyrst til Hafnar frá Færeyjum og vora tollafgreiddir þar. Hafa þeir flogið víða um land og fóru m.a. til Akur- eyrar og Reykjavíkur. Þeir lentu á flugvellinum við Mý- vatn að kvöldi dags miðvikudaginn 5. september og sprakk hjólbarði á vél þeirra í lendingunni. yélin end- aði þversum á flugbrautinni en eng- in slys urðu né frekari skemmdir á vélinni. Var gert við hjólbarðann þar en feðgarnir dvöldu við Mývatn eina nótt. Starfsmaður Mýflugs, sem hitti feðgana, segir þá hafa verið stadda á íslandi í sumarleyfi. Faðirinn og eldri sonurinn eru báðir með einkaflugmannsréttindi og sögðust vera með um 700 flugtíma hvor. Þeir hefðu áður komið til Islands en þá millilentu þeir í Reykjavík þegar þeir voru að flytja vélina frá Bandaríkjunum til Þýskalands. Faðirinn sagði einnig að hann hefði komið til íslands sem ungur maður. Starfsmaður Mýflugs segir flugmennina tvo hafa sýnt mikinn áhuga á flugaðstæðum á íslandi og þeir hafí verið að nota sumarleyfíð til að æfa sig í flugi. Þeir hafi svo flogið frá Mývatni til Akureyrar og þaðan til Reykjavíkur. Voru þeir að koma frá Reykjavík í gær og ætluðu að lenda á Höfn til að taka eldsneyti áður en þeir héldu af landi brott. Véiin er af tegundinni Piper Saratoga, eins hreyflls, skrásett í Bandaríkjunum. Morgunblaðið/Jim Smart LEITIN skipulög í sljórnstöð Landsbjargar í gærkvöldi. dags var leitarsvæði á landi stækkað og aðaláhersla lögð á svæðið milli Hundagilstinds og Fjarðarheiði. Leit var skipulögð á um 50 ferkíló- metra svæði, mest var þó leitað í kringum Náttmálatind á um 13 fer- kílómetra svæði en þar er síðast vit- að um vélina samkvæmt upplýsing- um frá landsstjóm. Að sögn Sólveig- ar Smith í landsstjóm björgunar- sveita er leitarsvæðið mjög erfítt yf- irferðar, mikið um skriður og kletta auk þess sem skyggni var mjög slæmt í gær en leitarmenn þurftu að fara fótgangandi um svæðið. Einn leitarmanna, sem leitaði í Endalausadal, sagði þétta þoku nið- ur í miðjar hlíðar og skyggni mjög slæmt í dalnum, uppi á tindum var skyggni því nánast ekkert. Dregið úr Ieit milli 24 og 5 Undir kvöld vora tæplega 400 björgunarsveitamenn komnir til Leit í gær markaðist af Höfn, Bergárdal, Endalausadal, Papafirði og Stokksnesi Ósland (& V^jí'iHonj Skarðsfjörður , Áandlagl ^ örur ^ Stoitksnes Hafnartangi f°rnsv(k Hornafjarðarós 5 km Hringveg- urinn fór í sundur ÞJÓÐVEGUR númer eitt fór í sundur um sexleytið í gær- morgun við Virkisá í Öræfum. Að sögn Vegagerðarinnar rigndi mikið á þessum slóðum í fyrrinótt og hækkaði vatnsborð Virkisár hratt, bæði vegna rign- ingarinnar og jökulbráðnunar sem fylgdi henni. Afleiðingam- ar vora þær að áin flæddi yfír bakka sína og vegurinn rofnaði. Starfsmenn Vegagerðarinnar á Höfn hófu viðgerð á veginum milli sjö og átta í gærmorgun og var því verki lokið um ellefu- leytið. Andlát INGÓLFUR FALSSON INGÓLFUR Falsson, fyrrverandi forseti Farmanna- og fískimanna- sambands íslands og bæjarfulltrúi í Keflavík um margra ára skeið, lést laugardaginn 8. ágúst síðastliðinn, 58 ára að aldri. Ingólfur fæddist 4. desember 1939 í Keflavík. Foreldrar hans voru hjónin Falur Siggeir Guð- mundsson, skipstjóri og útgerðar- maður, og Guðný Helga Þorsteins- dóttir. Ingólfur lauk gagnfræða- prófí árið 1956 og fískimannaprófi frá Stýrimannaskóla íslands 1960. Hann stundaði sjómennsku um ára- bil frá árinu 1955, fyret sem háseti og síðan sem stýrimaður. Ingólfur var vigtarmaður við Landshöfnina í Keflavík og Njarðvík frá 1964 til 1981. Framkvæmdastjóri Aðal- stöðvarinnar frá 1981 til 1988. Hann var framkvæmdastjóri Hraðfrysti- húss Keflavíkur frá 1988 til 1994. Síðustu árin rak Ingólfur fyrirtækið Brú flutningar í Biskupstungum, ásamt Margeiri syni sínum. Ingólfur var stjórnarmaður í Skipstjóra- og stýrimannafélagi Vísis á Suðumesjum frá 1965 til 1985. Hann átti sæti í stjórn Far- manna- og fiskimannasambands Is- lands frá 1967 og var forseti sam- bandsins frá 1979 til 1983. Ingólfur var fyrsti varafulltrúi Sjálfstæðis- flokksins í bæjarstjóm Keflavíkur frá 1974 til 1978 og tók sæti sem að- alfulltrúi 1976. Hann var aðalfull- trúi í bæjarstjórn Keflavíkur frá 1978 til 1982, varabæjarfulltrúi 1982 til 1986 og aðalbæjarfulltrúi frá 1986 til 1990. Ingólfur gegndi fjöl- mögram öðram trúnaðarstörfum um ævina. Hann var trúnaðarmaður Fiskifélags íslands og sat á fiski- þingum um árabil. Þá átti hann sæti í stjóm Fiskveiðasjóðs og Afla- tryggingasjóðs. Ingólfur kvæntist Elinborgu Ein- arsdóttur frá Kjarnholtum í Bisk- upstungum 3. júní árið 1961. Þau skildu árið 1991. Eignuðust þau fímm börn og eru fjögur þeirra á lífi. Ingólfur Falsson var um árabil fréttaritari Morgunblaðsins í Kefla- vík. Um leið og blaðið þakkar vel unnin störf sendir það aðstandend- um hans innilegar samúðarkveðjur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.