Morgunblaðið - 11.08.1998, Síða 6

Morgunblaðið - 11.08.1998, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1998 MORGUNB LAÐIÐ FRÉTTIR I gæsluvarðhald til 24. september fyrir hrottafengna kynferðis- og líkamsárás VETTVANGUR atburðanna við Reykjanesbraut. Árásin átti sér stað í lautinni hægra megin við veginn. Kveðst muna „að hafa böggast í einhverri konu“ Kveðinn var upp í Héraðsdómi Reykjaness í gær að kröfu sýslumannsins í Kópavogi gæsluvarðhaldsúrskurður til 24. september næstkomandi yfír manni á þrítugsaldri. Maðurinn var kærður fyrir hrottafengna kynferðis og líkamsárás á konu á fímmtugsaldri við Reykjanesbraut aðfaranótt sl. laugardags. LÖGREGLAN hóf snemma á laug- ardagsmorgun leit að manninum. Kópavogslögreglan stjórnaði leit- inni en fleiri lögreglulið komu að henni. Böndin beindust fljótt að ákveðnum manni og lögreglan á Akureyri handtók hann sl. sunnu- dag á götu á Akureyri og veitti hann ekki mótspymu við handtök- una. Maðurinn hefur áður komið við sögu lögreglu. Úrskurður Héraðsdóms Reykja- ness fer hér á eftir. Felld eru út nöfn og heimilisfóng: „Rannsóknari, Sýslumaðurinn í Kópavogi, hefur krafist þess að kærða verði gert að sæta gæslu- varðhaldi allt til fímmtudagsins 24. september 1998. Rannsóknari styður kröfu sína við a. lið 1. mgr. 103. gr. og 2. mgr. 103 gr. laga nr. 19/1991. Kærði mótmælir kröfu rannsóknara. I greinargerð rannsóknara kem- ur fram að kl. 5.14 aðfaranótt laug- ardagsins 8. ágúst hafi verið hringt til lögreglunnar í Kópavogi og henni tjáð að maður nokkur hafi verið að elta konu á Reykjanes- braut í Kópavogi, á móts við bens- ínafgreiðslustöð Shell. Hafi lög- reglan farið á staðinn undir eins og hitt þar fyrii' konuna sem hafi tjáð henni að ungur maður hafi ráðist á sig, þar sem hún gekk suður Reykjanesbraut, hrint sér af vegin- um og nauðgað sér, þrátt fyrir að hún hafi brotist um og veitt harða mótspymu. Hafí konan getað gefið greinargóða lýsingu á útliti og klæðnaði árásarmannsins sem hún kvaðst aldrei fyrr hafa séð. Við mat á því hvort uppfyllt séu skilyrði 1. mgr. og 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 í máli þessu hefur dómarinn litið til eftirgreindra sönnunaratriðia: Kennsl borin á hinn kærða í fyrsta lagi virðist rannsókn á vettvangi hins ætlaða brots renna sterkum stoðum undir frásögn brotaþolans um þá atburði sem hún kvað hafa átt sér stað hina örlaga- ríku nótt laugardagsins 8. ágúst sl. í öðra lagi bendir skoðun kven- sjúkdómalæknis á líkama brotaþol- ans sýnilega til þess að hún varð fyrir hrottafenginni kynferðis- og líkamsárás. I þriðja lagi hefúr leigubifreiðar- stjóri borið fyrir rannsóknara að hafa ekið manni í nágrenni við hinn ætlaða brotavettvang, stöðvað leigubifreiðina sunnan við bensín- afgreiðslustöð Shell og rekið þar manninn út úr bifreiðinni. Hafði þessi maður óskað eftir því að verða ekið að . . . [húsi í austurbæ Reykjavíkur, innsk. blm.] sem rannsókn hefur leitt í ljós að er dvalarstaður kærða. I fjórða lagi hafa rannsóknar- menn lagt hald á fatnað kærða á dvalarstað hans sem hafi verið for- ugur og komið heim og saman við lýsingu brotaþola á fótum árás- armannsins. í fimmta lagi verður litið til þess að brotaþoli hefur borið óræk kennsl á kærða, sem hinn meinta árásarmann. í sjötta lagi hefur kærði síðan borið fyrir rannsóknara að hann muni lítið eftir atburðum nætur- innar sökum ölvunar, en hann kvaðst þó muna eftir því að hafa verið á Reykjanesbrautinni um- rædda nótt og verið „að böggast í einhverri konu“. Með skírskotun til framan- greindra atriða, sem ráða má af þeim rannsóknargögnum, er nú liggja fyrir, telur dómurinn að fyrir hendi sé sterkur granur um að kærði hafí gerst sekur um brot gegn refsiheimild 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 2. gr. laga nr. 40/1992. Fallist er á það með rannsóknara að rannsóknar- hagsmunir kunni að réttlæta vistun kærða í gæsluvarðhaldi, sbr. a. lið 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991. Þá verður að árétta sérstaklega að kærði er undir sterkum gran um að vera valdur að sérlega alvarlegum og hrottafengnum glæp, sem varð- að getur óskilorðsbundinni fangels- isrefsingu allt að 16 árum. Era því uppfyllt skilyrði 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 sbr. og 3. ml. 3. mgr. 67. gr. stjómarskrár lýðveld- isins íslands nr. 33/1944, sbr. 5. gr. stjómarskipunarlaga nr. 97/1995, enda verður með vísan til eðlis brotsins að telja nauðsynlegt með tilliti tO almannahagsmuna að kærði verði nú vistaður í gæslu- varðhaldi. Að þessu virtu verður fallist á kröfu rannsóknara, Sýslumannsins í Kópavogi, um að kærði sæti gæsluvarðhaldi allt til fimmtudags- ins 24. september 1998, kl. 13.00.“ Úrskurðinn kvað upp Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari. Afskipta- leysi smitar út frá sér AÐ SÖGN Helga Gunnlaugssonar ddsents í félagsfræði við Háskóla Islands sýna rannsóknir að afskiptaleysi fólks af atburðum líkt og þeim sem varð í Kópavogi aðfaranótt laugardags smitar út frá sér. Afar líklegt sé að þegar fólk sjái að enginn kemur til hjálpar taki það ekki af skarið. Helgi segir að þegar afbrot og ofbeldi sé framið á fjölförnum stað, svo sem var raunin í Kópavogi, þá dreifist ábyrgð vitna á marga aðila og þeir sem verða vitni að atburðinum fylgist með því hvernig aðrir bregðist við. Einnig sé raunin sú, að fari einhver að skipta sér af þá sé það einnig keðjuverkandi og valdi því að þeir sem á eftir koma hjálpi til. Ef afbrot er framið á afskekktum stað og einhver ókunnugur kemur á vettvang er hins vegar tilfellið að viðkomandi kemur undantekningarlítið til hjálpar. Helgi bendir einnig á að þeir sem verða vitni að atburði eins og í Kópavogi átti sig ekki endilega á því sem er að gerast og túlki atburðinn jafnvel þannig að um persónulegt mál sé að ræða sem þeir vilji ekki skipta sér af. „Fólk er hrætt við að missa andlitið ef það fer að skipta sér af einhverju sem er svo e.t.v. ekki jafn alvarlegt og það Iítur út fyrir að vera og þegar það svo sér að enginn annar skiptir sér af þá gerir það slíkt hið sama.“ Viðbrögð fólks við ofbeldi hafa verið mikið rannsökuð allt frá árinu 1964. Þá var kona myrt fyrir utan heimili sitt í New York og tók morðið hálftíma. 38 vitni voru að þeim atburði og kom enginn til hjálpar og vakti þetta mikinn óhug og umræðu. Helgi segir að afskiptaleysi veki gjarnan mjög hörð viðbrögð eftir á og fólk sjái það sem merki um kaldrifjað þjóðfélag. „Það er eðlilegt að almenningur fái áfall þegar svona gerist og öll málsatvik eru ljós; á þeim tíma sem atburðurinn á sér stað er ekki um það að ræða og fólk veigrar sér við að taka frumkvæðið og skipta sér af,“ segir Helgi. „Við búum í borgarsamfélagi hér og því fylgja ýmis samskipti sem eru mjög ópersónuleg og miklar líkur eru á því að þegar fólk verður vitni að atburði eins og þessum þá túlki það hann gjarnan sem persónulegan og forðist afskipti." Dómur fellur í máli sem spratt af strandi kaupskipsins Víkartinds í mars 1997 Háfsgljá og Háfs- fjara sameign bænda í Háfshverfí HÁFSGLJÁ og Háfsfjara í Djúp- árhreppi í Rangárvallasýslu til- heyra í óskiptri sameign jörðun- um í Háfshverfi, Háfi og Háfshjá- leigu, Hala og Háfshóli og tilheyr- ir 1/3 Háfi og Háfshjáleigu, 1/3 Hala og 1/3 Háfshóli. Héraðsdómur Suðurlands komst að þessari niðurstöðu í dómi sem kveðinn var upp 29. júlí og sýknaði þar með eiganda Hala, Jón V. Karlsson, og eig- endur Háfshóls, Sigurjón Sig- urðsson og Kristrúnu Sigurðar- dóttur, af aðalkröfu stefnenda í málinu, eigenda jarðarinnar Háfs, annars vegar Olafs Þórar- inssonar eiganda jarðarinnar að 3/4 hluta og hins vegar Víðis Reyrs Þórissonar eiganda Háfs- hjáleigu og Háfs að 1/4 hluta, en þeir kröfðust að svæðið yrði við- urkennt eign þeirra. Stefnendum var gert að greiða stefndu 350.000 kr. í málskostnað og réttargæslu stefndu 40.000 kr. í málskostnað. Deilur risu um eignarrétt Háfs- fjöra og Háfsgljár í framhaldi af strandi kaupskipsins Víkartinds í mars 1997. Stefnendur málsins héldu því fram að gróður í Háfs- gljánni hafi orðið fyrir veralegum skemmdum vegna aðgerða á strandstað án þess að þeir gætu nokkuð aðhafst þar sem eignartil- kall þeirra hafi ekki verið viður- kennt af yfirvöldum eða eigend- um jarðanna Hala og Háfshóls. Stefnendur byggðu aðalkröfu sína á því að landamerki Háfs- hverfis sem bæimir fjórir tilheyra séu í raun landamerki landnáms- jarðarinnar Háfs. Hjáleigur Háfs, Háfshóll, Háfshjáleiga, Horn og Hali, hafi fengið ákveðið land í sinn hlut þegar þær urðu að eign- arjörðum. Allt annað land, þar á meðal Háfsfjara og Háfsgljá, hafi verið áfram í eign landnámsjarð- arinnar. I niðurstöðu dómsins segir að stefndu í málinu hafi tekist að færa fullgild rök fyrir því að land- svæði þau innan marka Háfs- hverfis, sem ekki hafa verið lögð til einstakra jarða, hafi verið í óskiptri sameign jarðanna í Háfs- hverfinu. Þannig að sýkna beri stefndu af aðalkröfu stefnanda. Varakrafa stefnanda var sú að 40,74% svæðisins tilheyrðu Háfi og Háfshjáleigu en svæðið sé í óskiptri sameign með stefndu. Þessi krafa byggðist á jarðarmati frá 1861. Þessari kröfu er einnig hafnað í dómnum og segir í niður- stöðum dómsins að gögn málsins beri það með sér „að þrætulandið °g nytjar þess hafi skipst í sam- ræmi við hið forna mat, eða í hlut- fóllunum 1/3. Bent er á að hlutfall við skipti landsvæðis í austurhluta Háfs- hverfis, Fiskivatnseyrar, sem skipt var árið 1938, hafi verið 1/3 og var þá stuðst við hið forna mat frá árinu 1845. Einnig er vísað til landaskipta sem fram fóra í júní 1929, þá var skipt eftir jarðamati frá 1861 en eigandi Háfshóls var ekki sáttur við þau skipti og var gefin út sáttakæra 1931, og var höfuðkrafan að landinu yrði skipt eftir jarðamati frá 1845. Fallist var á þessar breytingar og greiddi eigandi Háfshóls 200 kr. til að ná fram sáttinni. Dómurinn var kveðinn upp af Kristjáni Torfasyni dómstjóra, ásamt meðdómendum, héraðs- dómuranum Eggerti Oskarssyni og Ólafi Berki Þorvaldssyni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.