Morgunblaðið - 11.08.1998, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 11.08.1998, Qupperneq 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Framkvæmdastjóri bandarískrar veitingahúsakeðju í heimsókn Islenskt í hávegum haft í 50 ár ✓ I 50 ára hefur veitingahúsakeðjan King Fish í Kentucky-fylki í Bandaríkjunum haft íslenskan físk á matseðli sínum. Kerry Self, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, var staddur hér á landi fyrir skömmu og ______spjallaði Hugi Hreiðarsson við___ framkvæmdastj órann. KERRY Self hóf störf hjá veit- ingahúsakeðjunni King Fish árið 1976. Fyrstu árin starfaði hann í veitingasal en hefur frá þeim tíma unnið sig upp og fyrir tveimur árum var hann ráðinn sem framkvæmdastjóri. Keðjan er ekki stór á bandarískan mæli- kvarða en fyrirtækið rekur 4 staði í Louisville í Kentucky og nýlega var opnaður einn til við- bótar í Indiana-fylki. Starfsmenn fyrirtæksins eru 550 en búist er við að þeim fjölgi nokkuð á næstu misserum. Frá upphafi hefur fyrirtækið verið fastheldið á þá rétti sem það hefur boðið á matseðli sínum og frá stofnun þess hefur ís- lenskur fiskur verið þar í fyrsta sæti. Gæði og stöðugleiki En hvað veldur þessari tryggð við íslenska fiskinn? „Ástæðan er fyrst og fremst gæðin og stöðugleikinn sem við höfum getað treyst. Það hafa t.d. komið upp vandamál hjá sumum birgjum sem ekki hafa getað boðið þorsk sökum ofveiði á við- komandi svæði, en sem betur fer hafa Islendingar ekki lent í því. Þið hafið sýnt mikla framsýni og látið fyrirhyggjuna ráða í stað græðgi. Þá erum við mjög ánægðir með samskiptin við Coldwater og lítum á okkur sem samstarfsaðila með sameiginleg markmið frekar en beina við- skiptaaðila. Þessi háttur er ekki formfastur og líkist frekar vin- áttu en viðskiptum," sagði Kerry Self. Matseðlar merktir King Fish kaupir eingöngu sjó- frystan þorsk af Coldwater, en áður fyrr voru flökin landfryst. Kerry segir að með sjófrysting- unni sé náð hámarks ferskleika sem skapi þeim samkeppnisyfir- burði. „Við erum stoltir af því að bjóða vöru sem upprunnin er frá Islandi. Til að sýna það merkjum við okkar matseðla og útkeyrslu- bfla Icelandic-vörumerkinu og þannig eiga viðskiptavinir okkar að geta treyst því að þeir fái góða vöru. Til viðbótar höfum við haldið matseðli okkar nær óbreyttum í fjölda ára og það hefur skapað stöðugleika sem fólk kann að meta. T.d. kemur fólk til okkar sem hefur keyrt í tvo til þijá tíma og þetta fólk veit að'hvaða gæðum það gengur.“ Morgunblaðið/Kristinn ÞAU voru ánægð með heimsóknina hingað til lands, Kerry Self, fram- kvæmdastjóri King Fish, og Donna eiginkona hans. Kerry segir að flestir við- skiptavinir keðjunnar séu úr millistétt og að staðirnir njóti þess hversu Kentucky sé mið- svæðis. Hann segir einnig að fyr- irtækið hafi í gegnum árin hald- ið sinni markaðshlutdeild þrátt fyrir nýjungar á skyndibita- markaðnum og að bjartir tímar séu framundan varðandi fiskneyslu. Fiskneysla á uppleið „Það hafa komið lægðir þegar almenningsálitið hefur talið að fiskur væri ekki sú hollusta sem af væri látið. Þetta hefur farið mikið eftir því hvaða aðilar eru að gera hvaða rannsóknir og hvernig niðurstöður eru kynnt- ar. Að mfnu mati er það hins vegar ekki spurning að fiskneysla er á uppleið í saman- burði við aðrar neysluvenjur. Hollusta fiskneyslu verður ekki hrakin og þeir eru æ fleiri sem eru meðvitaðir um gildi þess að neyta heilnæmrar fæðu. Nú er helsta vandamál viðskiptavina að vita hvernig fisk þeir eru að kaupa. Það hefur dregið úr áreiðanleika tilbúinna fiskrétta þar sem ekki er vitað hvaðan fiskurinn kemur eða hvaða teg- und um er að ræða. Það eiga ís- lenskir fiskframleiðendur að geta notfært sér í framtíðinni og eiga að leggja ríka áherslu á.“ Hann segir að þrátt fyrir hækkun á sjófrystum þorskflök- um frá íslandi líti fyrirtækið ekki til ódýrarri tegunda. „Á síð- ustu árum hafa margir veitinga- staðir hætt að kaupa fslenskan fisk sökum verðs og sem dæmi má nefna veitingahúsakeðjuna Long John Silver. Þeir sneru sér að ódýrari hvítfiski eins og ala- skaufsa en í staðinn hafa þeir átt í erfiðleikum með að halda gæð- um og eru komnir í fjárhagslega erfiðleika. Við getum lært af slíkum dæmum og það eru engar breytingar fyrirhugaðar með innkaup okkar frá Islandi." Góð afköst í heimsókn sinni til fslands heimsóttu Kerry og Donna eig- inkona hans frystihús á Akur- eyri og í Vestmannaeyjum auk þess sem þau skoðuðu aðbúnað um borð í frystitogara. Hvað kom honum mest á óvart í þess- um heimsóknum? „Mér fannst ótrúlegt hversu tæknivædd frystihúsin eru orðin og hversu vel þau nýta fiskinn. Þarna er engu hent, hvorki inn- yflum né roði og þá var hrein- lætið mjög til fyrirmyndar. Þá var einnig gaman að sjá hversu starfsfólkið er áhugasamt og af- köstin mikil sem ég held að skipti miklu máli hjá þjóð sem á svo mikið undir fiskveiðum kornið," sagði Kerry Self að lok- um. Nýr fram- kvæmda- stjóri KFUM og KFUK •STJÓRNIR KFUM og KFUK í Reykjavík hafa kallað og ráðið til starfa nýjan fram- kvæmda- stjóra en á næsta ári verða 100 ár frá stofnun þessara sí- ungu æsku- lýðsfélaga. Nýi fram- kvæmda- stjórinn heitir Sigurbjörn Þor- kelsson og tók hann formlega til starfa 1. ágúst sl. Sigurbjörn hefur undanfarin tólf ár gegnt starfi fram- kvæmdastjóra Landssam- bands Gídeonfélaga á íslandi, sem hann lætur nú af. Hann hefur tekið þátt í starfi KFUM frá unga aldri og m.a. verið forstöðumaður í sumarbúðum félagsins í Vatnaskógi nokkrar vikur á sumri undanfarin tíu sumur. Sigurbjörn hefur tekið saman og gefíð út fjórar bæk- ur. Sigurbjörn er 34 ára, kvænt- ur Laufeyju Geirlaugsdóttur söngkonu og eiga þau þrjá syni. Skipað í tvær prestsstöður •BISKUP íslands hefur skip- að í stöðu sendiráðsprests í Kaupmannahöfn og stöðu sjúkrahúsprests þjóðkirkjunn- ar á Ríkisspítölum. Sr. Birgir Ásgeirsson var eini umsækjandinn um stöðu sendiráðsprests og hefur hann verið skipaður til fímm ára frá 1. ágúst 1998. Umsækjendur um embætti sjúkrahúsprests voru fímm. Einn umsækjandi dró umsókn sína til baka. í embættið hefur verið skipuð sr. Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir. Skipunin gildir til fimm ára frá 1. sept- ember 1998. Garðar Gíslason hæstaréttardðmari fjallar um siðareglur lögmanna og dómstóla í Úlfljðti Ömálefnaleg gagnrýni brot gegn starfsheiðri Garðar Gíslason hæstaréttardómari hefur ritað grein um samskipti lögmanna og dómara og segir þar að freistist lög- menn til að ráðast á dómstóla á ómálefna- legum grundvelli yfírgefí þeir það siðaða samfélag, sem lögmenn og dómarar leitist við að halda uppi. GARÐAR Gíslason hæstaréttar- dómari skrifar um siðareglur lög- manna og samskipti þeirra við dóm- ara í júlíhefti Úlfljóte, tímarits laga- nema við Háskóla íslands, og segir að freistist lögmenn til að ráðast á dómstóla með ómálefnalegum hætti yfírgefí þeir það siðaða samfélag sem lögmenn og dómarar leitist við að halda uppi. Hann segir í grein- inni að málflutningur fjalli í eðli sínu um svo mikla hagsmuni og al- varlega hluti að gæta verði þar fyllstu virðingar: „Þarna eru menn samankomnir á vinnufundi til þess að leita réttlætisins, á þann hátt sem við höfum fengið í arf frá forn- Grikkjum, að sannleikurinn komi fram ef menn setji fram bestu rök með og móti skoðunum, gagnrýni þær og finni niðurstöðuna. Þetta krefst agaðra vinnubragða sem menn þurfa að læra og æfa. Þetta er sá sómi sem starfsmenn réttarkerf- isins sýna réttlætinu sjálfu.“ Garðar segir að dómarar hafí sín- ar ströngu reglur um framkomu í dómsölum og utan þeirra. Um leið hafi lögmenn mótað sínar siðareglur og haft áhrif á samskipti við dómar- ana með þeim. í þriðja kafla siðareglna lög- manna sé fjallað um skyldur lög- manna gagnvart dómstólum. Þar sé í fyrstu greininni kveðið á um að lögmaður skuli sýna dómstólum fulla tillitssemi og virðingu í ræðu, riti og framkomu. Tekið sé fram að gagnrýni á störf og starfsháttu dómstóla megi einungis hafa uppi á faglegum og málefnalegum grund- velli. Aðrar greinar kaflans snúist um störf lögmanna, en þessi um þá virðingu og tillitssemi, sem þeir þurfí að sýna dómstólunum og hvernig sú virðing þurfi að koma fram opinberlega. Síðan spyr hann hvaða rök séu fyrir þessum reglum og hvert mikilvægi þeirra sé. Brjóta gegn eigin starfsheiðri „Lögmenn vinna mál og tapa málum,“ segir Garðar. „Ef þeir ráð- ast á dómstólana þegar þeir tapa málum þá eru þeir í raun að brjóta gegn eigin starfsheiðri með því að vera ómálefnalegir í opinberri um- ræðu, og það gagnvart þeim sem ekki geta svarað fyrir sig. í dómsal er jafnræði milli málsaðila, en dóm- arinn svarar aldrei og þess vegna er út í hött að ráðast á hann eins og hann geti svarað til baka. Þetta hef- ur ekkert með málefnalega gagn- rýni að gera, sem er sjálfsögð og eðlileg. En ómálefnaleg gagnrýni gerir verra en að vera út í hött.“ Garðar segir að þar komi til fjöl- miðlar nútímans, sem flytji gagn- rýnina: „í fjölmiðlum koma fram ýmsir sem virðast fyrirfram á móti dómstólum eins og öllum valdhöfum þjóðfélagsins, og nýta hvert tæki- færi sem gefst til árása á þá. Ástæð- ur þessa geta verið margvíslegar. Sumir telja sig fulltrúa almennings sem eigi að vera á móti valdhöfum, aðrir á móti dómstólum sem dæma þá fyrir fjölmæli. Einföldust er ef til vill sú skýring að dómstólar beita ögðuðum vinnubrögðum og virða sannleikann og réttlætið. Nú á tím- um æsifrétta í fjölmiðlum, þegar sjónvarpið ræður ferðinni, er sann- leikur ekki lengur hafður að leiðar- ljósi í fréttaflutningi í jafn ríkum mæli og áður, og ýmsir eiga því erfítt með að þola að aðrir virði meginreglur sem þeir sjálfir virða ekki lengur, þegar þeir eru farnir yfír á vettvang púkans í fjósi Sæ- mundar." Niðurstaða Garðars er sú að siða- reglurnar eigi fullan rétt á sér og hann er ómyrkur í máli. „Ef lög- menn freistast til að ráðast á dóm- stóla á ómálefnalegum grundvelli fara þeir niður á þetta stig,“ skrifar hann. „Þar með yfirgefa þeir það siðaða samfélag sem lögmenn og dómarar leitast við að halda uppi. Þá hætta lögmenn að móta réttinn, hætta að hafa áhrif, hætta að vera þjónar réttar og sannleika. Mikil- vægi þessara siðareglna lögmanna er því meira en margan grunar." Garðar sagði í samtali við Morg- unblaðið að ritstjóri Úlfljóts hefði beðið sig að skrifa greinina með þó nokki'um fyrirvara. Beinist ekki gegn einstökum lögmönnum Um svipað leyti og grein Garð- ars birtist í Úlfljóti kom Lög- mannablaðið út. Þar skrifar Jakob R. Möller, formaður Lögmannafé- lags Islands, leiðara þar sem hann hvetur félagsmenn til að stilla gremju sinni í hóf þegar þeir tapi máli og biður þá að varast að láta að því liggja að dómar byggist á annarlegum sjónarmiðum. 1. ágúst birtist viðtal við Jón Steinar Gunn- laugsson í Morgunblaðinu þar sem hann heldur því fram að þessari gagnrýni sé beint gegn sér þótt hann sé ekki nefndur á nafn. Garðar benti á að hann hefði ekki vitað af leiðara Jakobs þegar hann skrifaði grein sína í Úlfljót og bætti við að hún væri almenns eðlis og hefði ekkert með einstaka lög- menn að gera. Þarna væri einfald- lega leitað raka fyrir fyrstu grein- inni í þriðja kafla siðareglna lög- manna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.