Morgunblaðið - 11.08.1998, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1998 15
Handverk ‘98
Handverks-
sýning að
Hrafnagili
HANDVERK ‘98, fjöguiTa
daga handverkssýning, verður
sett að Hrafnagili í Eyjafjarð-
arsveit fimratudaginn 13.
ágúst nk. Þetta er sjötta árið í
röð sem handverkssýning er
haldin síðsumars að Hrafna-
gili.
Handverk ‘98 er sölusýning
á handverki en sýningin er að
þessu sinni tileinkuð íslenska
hestinum. Þótti vel við hæfi á
þessu sumri, sem Landsmót
hestamanna var haldið í Eyja-
fjarðarsveit, að undirstrika
hversu snar þáttur íslenski
hesturinn hefur verið í þjóðfé-
laginu í gegnum aldir og
tengja hann íslensku hand-
verki um leið.
Aðal sýningarsalurinn verð-
ur í íþróttahúsinu að Hrafna-
gili en auk þess verður settur
glæsilegur útigarður þar sem
seld verður ýmiss konar heim-
ilisframleiðsla. Enn eru lausir
básar á þessu útisvæði.
Valgerður Sverrisdótir, al-
þingismaður, setur sýninguna
nk. fimmtudag kl. 15.30 en
sýningunni lýkur kl. 19.00
sunnudaginn 16. ágúst.
Snæfell hf. í Hrísey
Vaktavinna
tekin upp
BJÖRN Snæbjömsson, for-
maður Verkalýðsfélagsins
Einingar, sagði stefnt að því
að ganga frá samningi um
breytt vinnufyrirkomulag í
fiskvinnslu Snæfells í Hrisey í
þessum mánuði. Stefnt er að
því að setja upp vaktavinnu
hjá fyrirtækinu frá og með 1.
október nk.
Eins og fram kom í Morg-
unblaðinu á laugardag hefur
nær öllu starfsfólki Snæfells í
Hrísey, sem sagt var upp
störfum fyrr í sumar, verið
boðin endurráðning. Ráðgert
er að vinna á tveimur vöktum,
frá kl. 7-15 og kl. 15-19.
„Þessi breyting er ákveðin
þróun á vinnufyrirkomulagi og
við höfum séð m.a. hjá Útgerð-
arfélagi Akureyringa og það
er ekkert nema gott um að að
segja. Það er vilji hjá báðum
aðilum að ganga frá þessum
málum og við vonumst til að
niðurstaða liggi fyrir þegar
starfsfólkið kemur úr sumar-
leyfi um næstu mánaðamót,“
sagði Björn.
Magadans í
Deiglunni
MARIEKE Van Beek er hol-
lenskur listamaður, bæði maga-
dansmær og skúlptúristi, sem
nú í ágúst dvelur í Gestavinnu-
stofu Gilfélagsins á Akureyri.
Föstudaginn 14. ágúst nk.
kl. 20 kynnir hún sjálfa sig, list
sína og sögu arabísks maga-
dans í Deiglunni. Á kynning-
unni styðst Marieke við
skyggnur og rekur sögu þeirr-
ar tegundar magadans sem
hún ástundar, menningarsög-
una að baki hans og hvers
vegna hún tengir saman sem
starfandi listamaður dansinn
og vinnu sína við skúlptúra.
Hún lýkur kynningunni á
danssýningu en daginn eftir,
laugardaginn 15. ágúst, mun
hún gefa gestum og gangandi
tækifæri á að finna af eigin
raun fyrir listforminu og bjóða
upp á stutt námskeið í maga-
dansi gegn vægu gjaldi. Nám-
skeiðið fer fram í Deiglunni og
stendur kl. 18-20.
AKUREYRI
Morgunblaðið/Bjöm Gíslason
Haldið í róður
frá Hjalteyri
LIFIÐ gengur sinn vanagang á
Hjalteyri, þótt eitthvað hafi
verið gírað niður frá því í eina
tíð þegar síldin óð inn um allan
íjörð. Á Hjalteyri var löggiltur
verslunarstaður árið 1897 og
þar reis útgerðarstöð um alda-
mótin 1900 þegar útlendingar,
Svíar, Norðmenn og Þjóðveijar,
settu þar upp bækistöð sína og
stunduðu sfldveiðar á firðinum
og einnig höfðu þeir nokkuð
umleikis við sfldarsöltun.
Kveldúlfur hf. í Reykjavík tók
staðinn á leigu árið 1912 og
hélst sfldarvinnsla á hans veg-
um þar áratugum saman, en
verksmiðjuhúsin standa enn
þótt eitthvað hafi þau látið á sjá
í tímans rás. Nokkur útgerð er
stunduð enn frá Hjalteyri og
einn þeirra sem það gera er
Karl Sigurðsson sem sést hér
halda í róður.
Uppselt er í meira en helming ferðanna.
Bókið sæti strax!
Bókunarstaða:
Helgarferð 2 nætur
19 sæti laus
Bemt leiguflug til Edinborgar
Helgarferðir - 3 nætur
2. okt.
8. okt.
9. okt.
14. okt.
15. okt.
22. okt.
23. okt.
30. okt.
5. nóv.
6. nóv.
12. nóv.
13. nóv.
19. nóv.
20. nóv.
26. nóv.
uppselt/biolisti
uppselt/biðlisti
uppselt/biðlisti
uppselt/biðlisti
uppselt/biðlisti
uppselt/biðlisti
10 sæti laus
20 sæti laus
20 sæti laus
uppselt/biðlisti
uppselt/biðlisti
uppselt/biðlisti
laus sæti
laus sæti
Beint leiguflug til Edinborgar
- laus sæti
laus sæti
laus sæti
3. des.
4. des.
Serferðir i miðri viku - 4 nætur
11. okt. Úrvals-fólk
25. okt. Gigtarfélag íslands
9. nóv. Aukaferð/Urvals-fólk
Uppselt/biðlisti
Laus sæti
Laus sæti
Mn
Menning, matur og
meiri háttar verslanir
3ja nátta helgarferðir
í október og nóvember.
msm
Vænlegur kostur á
ótrúlegu verði og enn ótrúlegra
verðlag á staðnum. 3ja nátta ferðir
í október og 4ra nátta ferðir í nóvember
Brussel
í beinu leiguflugi 5.- 8. nóv. 20 sæti laus.
OATIAS0
Hafnarfirði: s(mi 565 2366, Keflavík: simi 421 1353,
Selfossi: st'mi 482 1666, Akureyri: sími 462 5000
- og bjá umboðsmönnum um land allt.
www.urvalutsyn.is