Morgunblaðið - 11.08.1998, Síða 18

Morgunblaðið - 11.08.1998, Síða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Sprenging í sölu sólar- landaferða s Mesta ferðasumar Islendinga til þessa samstarfsaðila Garðabær semur við Landsbankann SAMNINGAR hafa tekist um að Landsbanki fslands hf. hafi um- sjón með skuldabréfaútboði Garðabæjar að íjárhæð 225 millj- ónir króna. Bréfin eru til 10 ára og bera 4,99% ávöxtun umfram verðtryggingu. Fjármagninu verður m.a. varið til fjárfestinga í skólahúsi til að hægt sé að tryggja einsetningu grunnskólans í Garðabæ, svo og til að greiða niður eldri og óhag- stæðari lán, samkvæmt upplýs- ingum Landsbankans. Bankinn hefur verið umsvifamikill í íjár- málaþjónustu við sveitarfélögin í landinu og hefur hann markað þá stefnu að auka enn frekar þjónustuframboð sitt við þau. Meðfylgjandi mynd var tekin er gengið var frá samningum milli Landsbankans og Garða- bæjar í gær. Sitjandi frá vinstri: Ingimundur Sigurpálsson bæjar- stjóri, Halldór J. Kristjánsson, aðalbankastjóri Landsbankans, Davíð Björnsson, forstöðumaður fyrirtækja- og stofnanasviðs Landsbankans. Standandi: Guð- jón Erling Friðriksson bæjarrit- ari, Kristín Hilmarsdóttir fjár- málastjóri og Jón Otti Jónsson, verðbréfamiðlari hjá Landsbank- MGM leitar að SPRENGING hefur orðið í sölu sólarlandaferða að undanfómu og ber aðilum í ferðaþjónustu saman um að nær uppselt sé í allar sumar- ferðir þrátt fyrir að framboðið hafi aldrei verið meira. Þá hefur sala haust- og vetrar- ferða farið mjög vel af stað og stefnir jafnvel í að framundan sé mesta ferðahaust og -vetur í sögu þjóðarinnar. Goði Sveinsson, markaðsstjóri ferðaskrifstofunnar Úrvals-Útsýn- ar, segir ekki vafa leika á að yfir- standandi sumar sé langmesta ferðasumar Islendinga til þessa. Menn hafi því átt von á að markað- urinn væri að einhverju leyti mett- aður og að bókanir fyrir haust- og vetrarferðir færu rólega af stað. En það var öðru nær. „Bókanir fyrir haustið og veturinn hófust formlega með ferðakynningu á sunnudag og við höfum aldrei kynnst öðrum eins viðbrögðum viðskiptavina. Fólk stóð í biðröð fyrir utan húsið er ferðakynningin hófst og allar símalínur voru rauð- glóandi. Starfsfólk okkar hafði ekki undan við að bóka í ferðir og á þremur tímum seldum við t.d. í um eitt þúsund sæti til Kanaríeyja. Mánudagurinn hefur ekki verið síðri þannig að nú höfum við selt um tvö þúsund sæti til Kanaríeyja en heildarsætaframboð okkar þangað í vetur er um 5.500 sæti. Sala ferða til AJgarve í Portúgal, spm er vinsælasti áfangastaður Úrvals-Útsýnar erlendis, hefur einnig gengið framar vonum. Þá höfum við selt um 53% ferða til Edinborgar, sem er aðalákvörðun- arstaður okkar í svokölluðum borgarferðum. Ef svo heldur fram sem horfir lítur einnig út fyrir mesta ferðahaust og ferðavetur í sögu þjóðarinnar.“ Algengt að fólk fari utan oft á ári Goði segir að batnandi hagur landsmanna og breytt ferðamynst- ur ráði líklega mestu um þessa miklu aukningu. „Það er orðið mjög algengt að fólk fari í utan- landsferðir 2-3 á ári en áður fór það e.t.v. aðeins árlega og jafnvel annað hvert ár. Það hjálpar einnig að verðið hefur lækkað á hverju ári undanfarin ár, miðað við tekjur og verðbólgu. Goði segir að margir kjósi að haga ferðalögum sínum þannig að blanda saman gömlum og nýjum slóðum. „Það er athyglisvert að þrátt fyrir stóraukið framboð skuli nokkrar ferðir til Kanaríeyja selj- ast upp á fyrsta degi og ég man ekki eftir að það hafi gerst áður. Ungt fólk virðist nú sækja þangað í ríkari mæli en áður til að njóta sól- ar og afslöppunar á vetrarmánuð- um. Til að mæta vaxandi eftirspum bjóðum við nú nýjan áfangastað á Kanaríeyjum en það er eyjan Fu- erteventura og hún virðist fá góðar viðtökur. Sala til nýrra og spenn- andi staða hefur einnig gengið framar vonum. T.d. seldist 360 sæta haustferð til Peking í Kína á einum degi og ferð til Brussel seld- ist upp á einni viku. Þetta sýnir að vetrarferðir eru orðnar fastur liður í lífi margra Islendinga." Islenskir ferðalangar eru mun forsjálli og betur skipulagðir en áð- ur og kann það að hluta að skýra hin skjótu viðbrögð um helgina að sögn Goða. „Fólk er almennt orðið mjög vant ferðalögum og gerir miklar kröfur. Við bregðumst við með því að auka þjónustu. Meiri- hluti ferðalanga til Kanaríeyja er eldra fólk og þar höfum við t.d. ís- lenskan hjúkrunarfræðing, leikfim- istjóra og skemmtanastjóra." „Hef aldrei lent í öðru eins“ Heimsferðir hófu einnig bókanir í vetrarferðir á sunnudag og segir Andri Már Ingólfsson, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins, að sala hafi gengið framar vonum. „Ég hef aldrei lent í öðru eins og líklega er aukningin um 50% á milli ára. Við bókuðum t.d. í eitt þúsund sæti til Kanaríeyja á sunnudag og mánudag og þær hafa aldrei verið jafn vinsælar. Það er greinilegt að fólk skipuleggur vetrarfríið með lengri fyrirvara en áður. T.d. seld- ist strax upp í nokkrar jólaferðir. Ferðamynstur landans hefur tekið miklum breytingum og ljóst að fólk kýs almennt að fai’a til útlanda oft- ar en einu sinni á ári.“ Los Angeles. Reuters. METRO-Goldwyn-Mayer-kvik- myndafélagið leitar að sam- starfsaðila til að koma fjármál- um sínum á réttan kjöl, tæpum tveimur árum eftir að fjárfestir- inn Kirk Kerkorian tók við stjóm fyrirtækisins. MGM kveðst hafa átt í við- ræðum við ónafngreind fyrir- tæki, en segir að þær séu enn á byrjunarstigi. Fyrir hálfum mánuði kvaðst MGM ætla að bjóða út hlutabréf til að afla 250 milljóna dollara, nauðsynlegs fjár til að geta haldið áfram rekstri til ársloka 1999. Að sögn blaðsins Hollywood Reporter hefur MGM rætt við fjölmiðlarisana Time Wamer Inc. og News Corp., fyrirtæki Ruperts Murdochs, en fréttin er óstaðfest. Vegna fregna um hugsanleg- an samstarfsaðila hækkuðu hlutabréf í MGM um 1,06 doll- ara í 18,19 dollara í kauphöllinni í New York. MGM barðist lengi í bökkum þegar það var í eigu franska bankans Credit Lyonnais, en 1996 var félagið selt fjárfesting- arfyiirtæki Kerkorians, Tracinda Corp., og ástralska fjölmiðlafyrirtækinu Seven Network Ltd. fyrir um 1,3 millj- arða dolllara. MGM hefur að undanförnu gert samninga um sjónvarps- framleiðslu og hafa þeir valdið auknum kostnaði. Fyrir helgina kvaðst MGM ætla að hætta allri framleiðslu sjónvarpsþátta. Djásnið í krúnu MGM er safn 4.000 kvikmynda, 6.700 mynd- banda og ótal sjónvarpsþátta. Sæplast sel- ur fram- leiðsluvélar SÆPLAST HF. hefur selt Set hf. á Selfossi allar framleiðsluvélar plaströradeildar. Afhending véla og tækja fer fram 1. nóvember næstkomandi. Sæplast hóf fram- leiðslu á PB og PÉH plaströrum í ársbyrjun 1994 með kaupum á nú- verandi vélbúnaði frá fyrirtækinu Hulu hf. á Flúðum. I frétt frá Sæplasti kemur fram að mikil samkepppni hafi verið á plaströramarkaðnum bæði frá inn- lendum og erlendum aðilum und- anfarin misseri og því sé nauðsyn- legt að styrkja framleiðslueiningar til að mæta henni. „Set hf. er stærsta fyrirtækið á íslandi í röraframleiðslu og byggir framleiðslu sína eingöngu á rörum og lagnavörum. Þrátt fyrir mikla samkeppni á þeim markaði hyggst fyrirtækið fyrst og fremst beina vörum sínum þangað á komandi ár- um og mun þesssi viðbót styrkja fyrirtækið enn frekar. Sala röradeildar mun ekki hafa veruleg áhrif á afkomu Sæplasts hf. á árinu,“ segir í tilkynningunni. -----------^4-*----- íslensk fyrirtæki Skráning fyrir næsta ár hafin SKRÁNING í bókina íslensk fyr- irtæki 1999 er hafin. Þegar hafa verið send út 18.000 bréf til fyrir- tækja í landinu og þau beðin, ef þess þyrfti, að leiðrétta þær lág- marksupplýsingar sem til eru í gagnabanka íslenskra fyrirtækja. I fréttatilkynningu er greint frá því að nú verði í fyrsta sinn boðin þjónusta á Vefnum. Þar verður líka til staðar tölvutækt form af bókinni sem notendur geta vistað inn á tölvur sínar. Þá verða í fyrsta skipti birtar veltutölur fyrirtækja sem þess óska. Þar mun t.d. koma fram hver útflutningsprósenta fyr- irtækja er, eigið fé, hagnaður/tap o.fl. --------------- Leiðrétting RANGT var farið með titla tveggja manna í myndatexta með frétt á viðskiptasíðu á laugardag um samning Lífeyrissjóðs banka- manna við Landsbréf og Búnaðar- bankann-Verðbréf. Hið rétta er að Haukur Þór Haraldsson er stjórn- arformaður Lífeyrissjóðs banka- manna en Sigtryggur Jónsson er framkvæmdastjóri sjóðsins. Vel- virðingar er beðist á mistökunum. Líkur á að íslensk sjávarútvegsfyrirtæki ráði ekki öll við greiðslu veiðigjalds, komi slíkt til framkvæmdar Tekjur ríkisins ofmetnar að mati Vísbendingar TEKJUR ríkisins af hugsanlegu veiðigjaldi yrðu mun minni en haldið hefur verið fram. Sam- kvæmt úttekt vikuritsins Vísbend- ingar hefðu aðeins sjö af ellefu stærstu sjávarútvegsfyrirtækjun- um á hlutabréfamarkaði getað greitt eitthvert veiðigjald í fyrra. í úttektinni kemur fram að væri sjávarútvegsfyrirtækjum gert að greiða 18 milljarða króna veiði- gjald myndi það nema um 30% af brúttótekjum greinarinnar og það hefði jafnvel stórtap í för með sér fyrir stærstu fyrirtækin. Ef miðað er við fimm milljarða króna veiði- gjald hefði aðeins eitt fyrirtæki, Hraðfrystihús Eskifjarðar, ráðið við sinn skammt gjaldsins, 107 milljónir króna. í greininni er fjallað um hvaða áhrif veiðigjald hefði haft árið 1997 á afkomu fyrirtækja í sjávarútvegi sem skráð voru á Verðbréfaþingi Islands það ár. Þar er annars veg- ar litið á áhrif átján milljarða króna veiðigjalds, hins vegar fimm milljarða króna gjalds, en vísað er til þess að báðar tölurnar hafi heyrst i umræðum að undanfomu. Gífurlegt uppsafnað tap í sjávarútvegi Vísbending bendir á að lengi hafi íslensk stjómvöld fylgt þeirri stefnu að stemma gengi krónunnar þannig af að sjávarútvegurinn væri við núllið. Þessi stefna hafi verið ógæfuleg fyrir atvinnugreinina þar sem ekki hafi falist í henni krafa um að fyrirtæki hagræddu í rekstri því að forráðamenn þeirra vissu að ríkið myndi á endanum bjarga mál- unum. „Ekki skipti þó minna máli að með stefnunni var komið í veg fyrir hreina eignamyndun í útgerð og vinnslu. Á undanfórnum fimm ámm hefur ekki komið til neinna gengisfellinga og útgerðarmenn hafa verið upp á sjálfa sig komnir að þessu leyti. Enn þann dag í dag em þó fjölmörg fyrirtæki í sjávar- útvegi þannig stödd að þau munu ekki greiða tekjuskatta mörg ár í röð vegna þess að á þeim hvílir uppsafnað tap. Reksturinn hefur með öðmm orðum ekki skilað nein- um hagnaði." Kvótagróði nú þegar skattlagður Vísbending fjallar síðan um af- komu ellefu sjávarútvegsfyrir- tækja árið 1997 og kvótaeign mið- að við markaðsverð. Bent er á að fyrirtækin eignfæri keyptan kvóta beint eða óbeint og afskrifí hann síðan en leigður kvóti sé gjald- færður. Að því marki sem gjöld af kvótaleigu séu hærri en tekjur megi telja þau til kvótakostnaðar. Umrædd fyrirtækju séu með milli 35 og 40% af heildarhlut sjávarút- vegsfyrirtækja og því megi ætla að um tveir milljarðar hafi verið gjaldfærðir vegna kvótakaupa árið 1997, ef önnur félög hafi keypt jafnmikið. „Frá sjónarhóli skatt- heimtumanna era peningarnir þó alls ekki horfnir því þeir koma fram sem tekjur hjá seljanda, sem verða skattlagðar þar með venju- legum hætti. Það er útbreiddur misskilningur að kvótagróði sé ekki skattlagður, en svo er. Hann er hins vegar ekki skattlagður með öðmm hætti en aðrar tekjur. Það er þarflaust fyrir fyrirtæki að láta sem svo að þau geti ekkert veiði- gjald greitt. í fyrra greiddu þessi tíu fyrirtæki sem svarar um 700 milljónum í veiðigjald. Ríkið hefur notið góðs af. Viðtakendur þurftu að greiða skatta, þeir gátu greitt skuldir sínar við lánardrottna (oft ríkisbanka) og kaupendur em lík- legri en seljendur til þess að greiða skatta í framtíðinni af rekstri." Árið 1997 var hagnaður þessara

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.