Morgunblaðið - 11.08.1998, Síða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1998
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Goðar frettir fyrir
aðdáendur
LGG+ styrkjandi dagskammtur í litlu flöskunum
hefur verið á markaði á íslandi síðan í mars og
fengið frábærar móttökur neytenda, raunar svo
góðar að um tíma var ekki unnt að anna eftirspum.
Nú býðst neytendum nýr valkostur í LGG+ vörum sem er LGG+ styrkjandi mál. LGG+ styrkjandi
mál er sýrð, bragðbætt mjólkurvara. Ein dós af styrkjandi máli inniheldur sama magn LGG-gerla
og annarra heilnæmra gerla og náttúrulegra efna og ein flaska af styrkjandi dagskammti. Því geta
neytendur nú valið LGG+ í því formi sem best hentar.
Ný reglugerð um hollustuhætti á
sund- og baðstöðum
Vatnið heilnæm-
ara og öryggi
sundgesta meira
FYRIR mörgum árum var sónninn
í símanum með A-tóni sem hægt
var að nota tii að stilla eftir hljóð-
færi. Nú er boðið upp á A-tón í sér-
stöku númeri. Hvað kostar þjón-
ustan?
Að sögn Hrefnu Ingólfsdóttur,
blaðafulltrúa hjá Landssímanum, er
þjónustan veitt í ódýrasta verð-
flokknum á símatorginu og kostar
mínútan því 12,46 krónur. Númerið
sem hringt er í er 901-5151.
Kaffirjómi
í nýjar
umbúðir
ÞESSA dagana er að koma í versl-
anir kaffirjómi í nýjum umbúðum,
þ.e. í 12 ml dósum. Hver smásölu-
pakkning inniheldur 10 dósir af
kafftrjóma.
í fréttatilkynningu frá Mjólkur-
samsölunni kemur fram að lokin á
dósunum séu skreytt með fjölbreytt-
um myndum frá Islandi en víða er-
lendis safnar fólk slíkum myndum.
Kaffirjóminn verður á boðstólum
um borð í farþegaflugvélum, á hótel-
um, veitingastöðum, kaffihúsum og
víðar og standa vonir til að mynd-
skreytingarnar höfði til ferðamanna
sem landkynning.
Kaffirjóminn er 15% feitur og er
G-vara með allt að 180 daga
geymsluþol. Mælt er með því að
rjóminn sé geymdur í kæli til að
tryggja gæði og geymsluþol. Gert er
ráð fyrir að pakki með 10 dósum
kosti á bilinu 90-100 krónur út úr
verslun.
Varalitagloss
KOMIÐ er á markað varalitagloss
frá L’Oréal undir nafninu Rouge
Pulp. Glossið fæst í tíu litum.
Kays
vetrarlistinn
KOMINN er út Kays vetrarlistinn.
Á fyrstu síðunum sýnir Claudia
Schiffer nýjustu vetrartískuna. Þá er
að finna í listanum fatnað á stóra og
smáa. í fréttatilkynningu frá B.
Magnússyni hf. kemur fram að verð-
ið hafi lækkað á flestum vöruflokk-
um vegna hagstæðs innkaupsverðs í
Bretlandi.
► fjölþætt warnarverkun
LGG+ er náttúruleg vara, sérsniðin að nútíma-
lífsháttum. Að baki henni liggja umfangsmiklar
vísindarannsóknir og þróunarvinna sem sannað
hafa margþætta vamarverkun ef hennar er neytt
reglubundið. LGG+ inniheldur LGG-gerla auk
annarra æskilegra gerla, svo sem a- og b-gerla sem
neytendur þekkja af góðri reynslu auk
óligófrúktósa sem er hluti af náttúrulegu inúlini,
trefjaefni sem m.a. örvar vöxt heilnæmra gerla í
meltingarveginum. Sjálfur LGG-gerillinn er sá
mjólkursýrugerill sem hvað mest hefur verið
rannsakaður í heiminum.
► bætir meltinguna
og kemur jafnwægi ð hana
LGG+ er fyrir heilbrigt fólk á öllum aldri, böm
jafnt sem fullorðna. Einnig er mælt með LGG+ fyrir
fólk sem býr við ójafnvægi, röskun og vanlíðan af
völdum ytri þátta eins og streitu, kaffidrykkju,
inntöku fúkkalyfja, geislameðferða o.fl. Með
daglegri neyslu LGG+ getur það náð jafnvægi á
nýjan leik. Það getur tekið LGG+ einn mánuð að
byggja gerlaflómna upp á nýjan leik og til að
tryggja varanleg áhrif þarf LGG+ að vera daglegur
hluti mataræðis til framtiðar.
► mikið mótstöðuafl
LGG-gerlar búa yfir einna mestu mótstöðuafli allra
þekktra mjólkursýrugerla. Magasýmr og gall vinna
lítt á þeim og þeir halda fullum krafti á ferð sinni
um meltingarveginn. Það gerir þeim kleift að virka
jákvætt á sjálfa þarmaflóruna þar sem gagnsemi
þeirra er mest.
► stuðlar að wellfðan
Strangt gæðaeftirlit er með framleiðslu á LGG+ og
framleiðsluaðferðin tryggir að gerlamagnið sé alltaf
hæfilegt svo varan hafi tilætluð áhrif. Hver
skammtur inniheldur nákvæmlega það magn af
LGG-gerlunum sem þú þarfnast til þess að þér líði
vel. LGG+ er sjálfsagður hluti af hollu og
heilsusamlegu mataræði.
Þú getur valið milli tveggja gimilegra bragðtegunda
af LGG+ styrkjandi máli frá MS:
LGG+ styrkjandi mðl með
wanillu og morgunkorni og
LGG+ styrkjandi mál með
jarðarberjum og morgunkorni
iSSa
A-tónn hjá Landssímanum
INNSTREYMI í laugar og vatn í
sturtum má ekki vera heitara en
55°C þegar það er tekið til blöndun-
ar með köldu vatni og það á að
tryggja með segulrofa eða öðrum
viðurkenndum búnaði. Merkja skal
greinilega hita í setlaugum og aðra
þætti varðandi öryggi og slysahættu
s.s. dýpi lauga og hálku á laugar-
bökkum. Sund- og baðstöðum er
gert skylt að hafa laugargæslu og
viðurkenndan búnað til skyndihjálp-
ar.
Þetta kemur fram í nýrri reglu-
gerð sem kom út um síðustu mán-
aðamót og fjallar um holiustuhætti á
sund og baðstöðum. Ekki hefur fyrr
verið sett sér reglugerð um sund-
staði en fyrir voru í heilbrigðisreglu-
gerð ákvæði varðandi örverugróður
í baðvatni og sótthreinsun baðvatns.
Hæfnispróf fyrir
sundlaugarverði
„Markmiðið með setningu reglu-
gerðarinnar er að auka öryggi
sundlaugargesta og bæta heilnæmi
vatnsins," segir Kolbrún Haralds-
dóttir hjá Hollustuvernd.
Ymis nýmæli eru í reglugerðinni
sem Kolbrún telur að veita beri eft-
irtekt s.s. varðandi auknar gæða-
kröfur um örveruinnihald í laugar-
vatni.
Starfsmenn sem sinna laugar-
gæslu eiga að hafa staðist hæfnis-
próf og starfsfólk sundstaða á að fá
reglulega starfsþjálfun og þar með
taida þjálfun í skyndihjálp og
fræðslu um hreinlæti og hollustu-
hætti. Haldin skal skrá um slys í og
við laugar og hún höfð aðgengileg
heilbrigðiseftirliti."
Kolbrún segir að þá sé að finna
ákvæði um styrk klórs, sýrustig og
endurnýjunarhraða vatnsins. Vatn
sem er notað í laugar á að vera tært
og uppfylla kröfur sem gerðar eru
til neysluvatns varðandi örveruinni-
hald.
„Öllum laugum er skipt í þrjár
gerðir eftir hitastigi vatns og auk
þess eru þær flokkaðar eftir gerð
hreinsibúnaðar og miðlun á klór.
Allar laugar sem byggðar eru
nýjar eða endurbættar fara 1 A-
flokk en þar er kveðið á um full-
komna stjórnun sótthreinsiefna,
sýrustigs og annarra efna. Aðlögun-
artími er gefinn til ársins 2010 til að
koma upp þessum búnaði. Fullkom-
ið kerfi sparar bæði vatn og sótt-
hreinsiefni og veitir meiri vöm fyrir
óæskilegum og sjúkdómsvaldandi
örverum og kemur í veg fyrir önnur
vandamál sem vilja fylgja óná-
kvæmum tækjabúnaði."
Margarlaugar
eru í B-flokki
Kolbrún segir að margar íslensk-
ar laugar séu í B-flokki þar sem
stjómun efna er ekki eins nákvæm
og í A-flokki og vatnsnotkun því
meiri. Þetta segir hún að sé þó óð-
um að breytast í stærri sveitarfé-
lögum.
„í reglugerðinni eru sérstök
ákvæði fyrir laugar í C-flokki þar
sem sjálfVirkni er næstum engin og
nóg til af ódýru heitu vatni. Þessar
laugar eru oft á fámennum stöðum
en jafnframt á ferðamannastöðum."
Til að laugamar fái að halda sér-
stöðu sinni og jafnvel sleppa klór-
notkun segir Kolbrún að sýna verði
fram á að laugarvatnið standist ör-
verufræðilegar kröfur. Náttúra-
laugar falla utan þessarar reglu-
gerðar.
Kolbrún segir að baðstofur falli
undir ákvæði reglugerðarinnar.
Mengunarvaldar
„Við losun og hreinsun geta laug-
ar verið mengunarvaldar og því eru
ákvæði í reglugerð til að fyrir-
byggja slíkt. Óheimilt er að hleypa
klórmenguðu vatni út í ár og vötn
eða svæði þar sem það getur spillt
drykkjarvatni eða lífríki.
Jafnframt ber að fara að ákvæð-
um mengunarvarnareglugerðar.
Væntanlegar era leiðbeiningar með
reglugerðinni þar sem fjallað verð-
ur um hreinsi- og sótthreinsibúnað í
sundlaugum."
www.mbl.is
Spurt og svarað um neytendamál
Nýtt