Morgunblaðið - 11.08.1998, Page 22

Morgunblaðið - 11.08.1998, Page 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Sérþjálfað björgunarfólk leggur nótt við dag í Nairóbí Ólíklegt að fleiri fínn- ist á lífí í rústunum Óþekkt samtök lýsa ábyrgð á tilræðinu Nairóbí, Dar-es-Salaam, Landstuhl. Keuters. SÉRÞJÁLFUÐ ísraelsk björgun- arsveit hélt áfram leit að fólki á lífí í rústum Ufundi-byggingarinnar í Nairóbí í gær. Kona, sem sagðist heita Rose, fannst með lífsmarki í rústunum á sunnudag en síðdegis í gær hættu björgunarmenn að heyra til hennar og óttuðust þeir að hún væri látin. Olíklegt er talið að fleiri finnist á lífi í rústunum. Aðstæður til björgunar eru með erfiðasta móti í Nairóbí. Stæka nálykt leggur úr rústunum og ljóst að enn er eftir að ná mörgum líkum úr þeim. Hermennirnir í ísraelsku sveit- inni eru sérhæfðir í rústabjörgun. Gatili Nganga, sem var grafinn úr rústunum 36 tímum eftir spreng- inguna, sagði björgunarmenn hafa staðið sig vel: „Þeir reyndu að tala við mig allan tímann og ég missti því aldrei vonina,“ sagði Nganga. Israelska björgunarfólkið notar háþróaðan hlustunarbúnað, leitar- hunda og stórvirk tæki til leitar- innar. Björgunarstarf sveitarinnar hefur vakið mikla athygli og aðdá- un og fjölmiðlar í Israel hafa keppst við að segja fréttir af frammistöðu síns fólks í Kenýa. Flogið með slasaða til Þýskalands Tæplega 5.000 manns slösuðust í sprengingunni í Nairóbí. Af þeim þurfa 500 enn aðhlynningar við á sjúkrahúsi. Flogið var með 20 al- varlega slösuð fórnarlömb spreng- ingarinnar í Nairóbí á bandarískt hersjúkrahús í Landstuhl í Þýska- landi um helgina. Ein slösuð bandarísk kona var flutt á her- sjúkrahús í Bandaríkjunum. Dagblaðið Washington Post greindi frá því í gær að sjónar- vottar segðu öryggisverði við sendiráð Bandaríkjanna í Nairóbí hafa sent bifreið hryðjuverka- mannanna frá aðalinngangi sendi- ráðsins að bakdyrum þess á föstu- dag. Þar hafi hermdarverkamenn- irnir kastað handsprengjum að ör- yggisvörðum og drepið þá, áður en bifreiðin sprakk í loft upp. Myndbandsupptaka fundin í Tansaníu Bandarískir embættismenn segja að öryggismyndavél sem staðsett var á þaki sendiráðsins í Dar-es-Salaam kunni að hafa náð tilræðismönnunum á filmu. Grun- ur leikur á að sprengjan hafi verið falin í vatnsflutningabifreið sem ók upp að sendiráðinu rétt áður en sprengjan sprakk. Rannsakendur tóku fram að rannsókn sprengju- tilræðanna myndi taka langan tíma en einskis yrði látáð ófreistað til þess að hafa hendur í hári hryðjuverkamannanna. Bandarískir réttarlæknar hófu að kryfja lík þeirra tíu manna sem fórust í sprengjutilræðinu í Dar- es-Salaam í gærmorgun. Tólf Bandaríkjamenn fórust í sprengjutilræðinu í Nairóbí. Ell- efu lík voru flutt til Bandaríkjanna í gær en eitt verður grafið í Kenýa. Óþekkt samtök íslamskra öfga- manna hafa lýst tilræðunum á hendur sér og hótað því að standa fyrir fleiri tilræðum með það að markmiði að hrekja hermenn frá Vesturlöndum frá íslömskum ríkj- um. Reuters SERHÆFÐ ísraelsk björgunarsveit stjórnar björgunaraðgerðum í Na- íróbí. Á myndinni er verið að flytja burt lík konu sem fannst í rústunum. Hvetja Clinton til að segja satt Washinjjton. Reuters. Brezkum and- stæðingum EMU fækkar Lundúnum. Reuters. PATRICIA Ireland, forseti lands- samtaka kvenna í Bandaríkjunum (NOW), telur nauðsynlegt að Bill Clinton Bandaríkjaforseti geri hreint fyrir sínum dyrum í Lewin- sky-málinu og ávarpi þjóðina, en kannanir sýna minnkandi stuðning við forsetann meðal kvenna. „Bandaríska þjóðin vill heyra for- setann segja sannleikann og dæma fyrir sig sjálf,“ sagði Ireland í viðtali við Fox-sjónvarpsstöðina á sunnu- dag. Tilefni viðtalsins voru niður- stöður viðhorfskönnunar sem sýndu að stuðningur kvenna við Clinton hefur minnkað úr 60% í janúar í 53% íjúlí. MJÖG er nú þrýst á írska lýðveldis- herinn (IRA) að lýsa því yfir „að stríðinu sé lokið" á N-Irlandi, eftir að öfgasamtök sambandssinna, LVF, sögðust um helgina hafa bundið „varanlegan og algeran enda“ á of- beldisverk sín. LVF-samtökin eru talin hafa myrt sextán kaþólikka á síðustu tveimur árum, i mörgum til- fellum á afar hrottafenginn hátt. Gerry Adams, leiðtogi Sinn Féin, sagði hins vegar á fundi á sunnudag að ekki kæmi til greina að láta undan þrýstingi. „Við lýðveldissinnar mun- „Forseti Bandaríkjanna getur ekki verið þekktur fyrir að vera flag- ari og kvennabósi,“ sagði forseti NOW ennfremur. „Éf ásakanimar á hendur honum eru sannar er Bill Clinton ber að því að skipta konum í tvo hópa á mjög gamaldags og karllægan hátt: í þær sem ber að virða eins og Hillary Clinton og Ma- deleine Albright, og svo hinar, sem eru dræsur." Bill Clinton mun bera vitni fyrir Kenneth Starr saksóknara í Hvíta húsinu 17. ágúst næstkomandi, en rannsóknarkviðdómurinn mun fylgj- ast með yfirheyrslunni samtímis á sjónvarpsskjám. um ekki láta nokkurn mann segja okkur fyrir verkum og við munum ekki segja eitthvað þessu líkt til þess eins að þóknast sambandssinnum." Voru uppi getgátur um það í The Irish Times í gær að andstaða meðal grasrótarmeðlima Sinn Féin sé ástæða harðorðra ummæla Adams. Stjómmálamenn á N-Irlandi fögn- uðu flestir yfirlýsingu LVF og kom fram í The Irish Times að sennilega myndu samtökin láta vopn sín af hendi áður en nýtt þing kemur sam- an í Belfast í næsta mánuði. DREGIÐ hefur úr neikvæðri af- stöðu almennings í Bretlandi til Efnahags- og myntbandalags Evrópu (EMU), sem gæti ýtt undir aðgerðir af hálfu ríkis- sljórnar Tonys Blairs í þá átt að búa Bretland undir þátttöku í myntbandalag- inu, sem sljóm- in stefnir að því að geti orðið í upphafl næsta kjörtímabils. Samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar, sem MORI-stofnunin og fyrir- tækið Salomon Smith Barney stóðu að, er andstaðan við þátt- töku Bretlands í EMU nú sú minnsta sem mælzt hefur frá því 1991, þegar leiðtogar Evrópu- sambandsins (ESB) tóku á fundi sínum í Maastricht í Hollandi um þá ákvörðun að stefna að því að taka upp sameiginlega mynt í ársbyijun 1999. „Áfstaða almennings er enn of neikvæð til þess að skynsamlegt sé að efna til þjóðaratkvæða- greiðslu um EMU-aðild,“ segir í niðurstöðum könnunarinnar. „En þessi sveifla í afstöðu fólks eykur möguleikana á því að rík- issljómin geti gert alvöra úr þvi stefnumiði sínu að koma land- inu í EMU 2001-2003.“ Niðurstöður nýjustu könn- unarinnar, sem gerð var í júlí, sýna að þriðj- ungur aðspurðra væri tilbúinn að styðja inngöngu Bretlands í myntbandalagið ef þjóðarat- kvæðagreiðsla færi fram um málið núna. I marz var þetta hlutfall 30% og var 27% í októ- ber í fyrra. Þeir sem voru andsnúnir því að skipta á sterlingspundinu og evróinu, nýja Evrópugjaldmiðl- inum, vom um helmingur að- spurðra. í marz og október voru 54% á móti. Þeir sem em óá- kveðnir vora um 17%. Auka þrýsting- á IRA EVRÓPA% Tilræði við Castro af- hjúpað BROTTFLUTTUR Kúbumaður ráðgerði að ráða Fidel Castro Kúbuleiðtoga af dögum á ferða- lagi hans um Dóminíska lýðveld- ið seinna í þessum mánuði, að því er fregnir hermdu í gær. Stjómvöld í Bandaríkjunum komust hins vegar á snoðir um hið áformaða tilræði og hafa gert viðeigandi ráðstafanir til að hindra það. Ekki brugguð launráð ROBIN Cook, utanríkisráð- herra Bretlands, vísaði því um helgina sem „helberum hugar- burði“ á bug, að brezka leyni- þjónustan, MI6, hefði ráðgert að ráða Muammar Gaddafi Lýbíu- leiðtoga af dögum, eins og David Shayler, fyrrverandi starfsmað- ur leyniþjónustunnar, heldur fram. Samar beðnir afsökunar ANNIKA Ahnberg, landbúnað- arráðherra Svíþjóðar, bað um helgina fyrir hönd sænsku ríkis- stjórnarinnar Sama í Norður- Svíþjóð afsökunar á aldalangri kúgun. Sagði hún sænsk stjórn- völd hafa undirokað Samana, m.a. með því að stuðla að útrým- ingu þjóðtungu þeirra og með því að ræna landsvæði þeirra. Habibie til í endurkjör HABIBIE, forseti Indónesíu, sagðist í gær vera tilbúinn til að bjóða sig fram til endurkjörs ef íbúar Indónesíu færu fram á það. Hann hét hins vegar að beita ekki mútum eða þvingun- um til að tryggja endurkjör sitt. Leeson í uppskurð NICK Leeson, sem olli gjald- þroti Baringsbankans breska fyrir þremur árum með fjár- glæfrum sínum, var í gær skor- inn upp vegna krabbameins í meltingarfærum. Var æxli fjar- lægt ásamt hluta ristilsins og gekk aðgerðin vel, að sögn kunnugra. Viagra fyrir konur? EFTIR velgengni Viagra-frjó- semispillunnar hafa bandarískir vísindamenn nú uppi áform um að framleiða samskonar lyf handa konum sem lítinn áhuga hafa á kynlífí, sem og þeim sem erfitt eiga með að fá fullnæg- ingu. Hafa minnst sex af stóru lyfjafyrirtækjunum þegar hafið undirbúningsvinnu. Eitrað te í Japan TALIÐ er að eitrað hafi verið fyrir tíu starfsmenn fyrirtækis í norðurhluta Japans sem kenndu sér meins eftir að hafa drukkið te í morgunkaffi sínu í gær. Fyr- h’ þremur vikum var eitrað fyrir gesti hátíðar í borginni Waka- yama með blásýru og arseniki með þeim afleiðingum að fjórir dóu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.