Morgunblaðið - 11.08.1998, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 11.08.1998, Qupperneq 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1998 MORGUNB LAÐIÐ LISTIR Málað með nál o g tvinna Er verið að byggja? HRÖNN Amarsdóttir hefur opnað málverkasýningu í Jóni Indíafara í Kringlunni. Þema sýningarinnar er húsbygging- arferh en Hrönn hefur verið „að byggja" undanfarin ár. Hrönn útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Islands árið 1991 og er mynd- menntakennari frá Kennara- háskóla íslands frá árinu 1996. Hún hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum og síðastliðið vor kom út bókin Heimur litanna sem er kennslubók í litafræði eftir hana og Sigríði A. Skúladótt- ur. Sýningin stendur út ágúst- mánuð. ANITA Hedin er sænsk textíllista- kona sem hefur opnað sýningu á verkum sínum í Handverki og hönnun á Amtmannsstíg 1. Þetta eru ásaumsmyndir úr handlituðu efni og mótífin sækir listakonan m.a. í náttúruna og uppstillt kyrralíf. „Listmálarinn leitast við að fanga ljós og stemmingar með penslum og litum en ég kýs að nota saumavélina og textílinn," segir Anita. Hún er sjálflærð í faginu en hefur augljóslega öðlast mikla færni í meðferð efnisins. Sýningar á verkum Anitu hafa verið haldnar víða í Svíþjóð en þetta er fyrsta sýning hennar ut- an heimalandsins. „Allt hófst þetta þegar sonur minn fæddist fyrir 29 árum,“ segir Anita og brosir. „Þá datt mér í hug að gera lítið myndverk úr textfl til að hengja fyrir ofan rúmið hans og komst á sporið." Séð úr íjarlægð gætu myndverk hennar allt eins verið dregin olíu með pensli á striga, svo blæbrigða- ríkur er textfllinn í lit, frá hálf- gegnsæjum tónum til meiri þétt- leika og einföld formfesta í mynd- byggingu. „Ljósið skiptir mig mestu máli,“ segir Anita og bætir við að hún taki gjarnan Ijósmyndir úti í náttúrunni sem hún styðjist síðan við í ásaumsmyndunum. Anita segist lítillega fást við að mála meðfram þessari vinnu sinni og þá helst með vatnslitum en hún hafi fyrir Iöngu komist að því að aðferð ásaumsins henti henni einna best. Sýningin stendur yfir til 22. ágúst. SÆNSKA textfllistakonan Anita Hedin sýnir í Handverki og hönnun á Amtmannsstíg 1 Meira en höfuðverkur BÆKUR Sjálfshjálparbók MÍGRENI eftir Eileen Herzberg. Vasaútgáfan 1998. BÓK um mígreni er nýkomin út og er á titilsíðu sagt að mígreni sé meira en höfuðverkur. Bókin varð mér meira en höfuðverkur að lesa, enda uppfull af tortryggni og dylgjum í garð lækna. Hins vegar er höfundur afar skilningsríkur og umburðarlyndur gagnvart ýmiss konar náttúrulækningum og óhefð- bundinni meðferð, jafnvel þótt sumt af því hafi hérlendis flokkazt undir skottulækningar. Eileen Herzberg mun upphaflega hafa verið sjónvarpsfréttamaður í Bret- landi, en sneri sér síðan að þátta- gerð um heilbrigðismál og sjúk- dóma. Vegna þess að hún hafði sjálf snert af mígreni og fékk við því litla bót, að eigin sögn, beindist áhugi hennar að óhefðbundnum lækningum og segir í bókinni að slíkt séu „náttúrulækningar, enda voru þær áður hinar „hefðbundnu" í margar aldir áður en háskóla- læknisfræðin kom til sögunnar sem hefðbundin". Höfuðverkur er algengt ein- kenni, sem flestir þekkja af eigin raun, en þeir sem þjást af mígreni eru mun færri og kapítuli út af fyr- ir sig. Þeir líða mikið fyrir sjúk- dóm sinn og þurfa oft á heilbrigð- isþjónustu að halda. Maður gæti ætlað, eftir lestur bókarinnar, að læknar væru almennt talað skiln- ingslausir, tímanaumir lyfseðla- skrifarar, sem alls ekki skynja þjáningar sjúklinga sinna og þar til mótvægis eru kallaðir til (skiln- ingsríkari) heilarar, hómópatar, reikimeistarar og handayfir- leggjarar, svo dæmi séu nefnd. Jafnvel er gefið í skyn að þeir sem bjóða fram þjónustu sína á sviði óhefðbundinnar meðferðar séu nú bara næstum því með jafnlangt og strangt nám að baki og læknar. Þetta er auðvitað langt frá öllum sannleika. A bls. 39 segir, undir yfirskrift- inni Hvaða ráð hefur læknirinn þinn?: „Læknirinn minn átti engin ráð, en sagðist reiðubúinn að ávísa mér hvaða lyfi sem ég vildi, ef ég teldi að það myndi hjálpa". Svo segir: „Viðbrögð lækna þegar fólk leitar til þeirra með mígrenvanda- mál eru mjög misjöfn og fara þau eftir persónuleika þeirra, mannúð, fordómum og reynslu (innskot: auðvitað ekki eftir menntun eða þekkingu). Ef svo vill til að læknir- inn hefur sjálfur tilhneigingu til mígrenis er hann þjáningarbróðir þinn og verður þar af leiðandi óvenju vinsamlegur, einlægur og samúðarfullur. Ef ekki, er algengt að læknar séu afskiptalausir og skilningslausir." Þetta er staðhæft svo fortakslaust að furðu sætir. Það sem hér er kallað (á niðrandi veg) háskólalækningar er í raun það sem sjúklingurinn getur bezt treyst, þjónusta faglærðra sem hafa vísindalegan bakgrunn fyrh' þekkingu sinni og fullyrða ekki annað en þeii- geta staðið við. Margir mígrenisjúklingar hafa sjálfir fundir leiðir sér til hjálpar og má í sjálfu sér fagna því. Sjúk- dómur sem mígreni er oft háður ytri aðstæðum og getur því gagn- azt að breyta þeim sé þess kostur, hvort sem um lífshætti, hegðun, mataræði eða álag er að ræða, svo dæmi séu tekin. Mörgum lærist þetta með tímanum en aðrir sitja uppi með mígreniköstin. En að læknar taki atriði eins og þessi ekki inn í myndina er fráleitt að staðhæfa og í raun dapurlegt að bera á borð fyrir almenning í upp- lýstu þjóðfélagi. Mígreni er kval- ræði fyrir þann sem er haldinn því - eins og margir sjúkdómar eru - og því mikilvægt að litið sé á það frá sem víðustu sjónarhorni, en þessi bók er ekki til þess fallin. Vasaút- gáfan hlýtur að geta fundið sér betri bækur til að þýða íyrir ís- lenzka lesendur. Katrín Fjeldsted Bestu skáld- sögurnar, eða hvað? Dómnefndamennirnir tíu, sem Modem Libraiy bóka- forlagið hjá Random House bókaútgáfunni í Bandaríkjunum fékk nýlega til að velja hundrað bestu skáldsögur aldarinnar skrif- aðar á ensku, segjast fæstir hafa hugmynd um hvernig listin sem var bhtur í kjölfarið hafi verið búinn til, að minnsta kosti séu þeir ekki sam- mála því hvemig er raðað á hann í öllum tilfellmn. Samkvæmt grein Davids Streit- felds í The Washington Post voru dómnefndarmennimir tíu ekki beðnir um að raða skáldsögunum í töluröð eftir gæðum heldur merktu þeir einungis við nokkrar bækur af 440 bóka lista _sem Random House lét þeim £ té. I ljós hefur komið að sumar þeirra bóka sem gagnrýnendur listans hafa verið að segja að ættu að vera á honum vom ekki einu sinni á upp- haflega listanum. Skáldsaga Thomasar Wolfes, Look Homeward, Angel, sem talin hefur verið bandarísk tuttugustu aldar klassík var ekki á upphaflega list- anum frá Random House, hins vegar var 21 bók eftir einn af dómnefndarmönnunum á þessum lista, Gore Vidal, en hann er líka gefin út af Random House og á auk þess sæti í stjóm Modern Li- brary sem er eitt af forlögum Random House. Vidal átti sem sé fleiri bækur á upphaflega listan- um en William Fauikner, Henry James og Joseph Conrad saman- lagt. Engin bóka Vidals rataði hins vegar á hundrað bóka listann. Við nánari skoðun á vinnslu list- ans bendir því margt til að listinn sé jafnvel vafasamari en menn höfðu haldið og skýringarinnar er að leita í því hvemig hann var settur saman. Misjafnt var hversu margar bækur dómnefndarmenn völdu. Rithöfundurinn William Styron merkti til dæmis við fimmtíu til sextíu titla en sagnfræðingurinn Edmund Morris merkti aðeins við 37. að vom svo starfsmenn Random House sem töldu hversu margir hefðu valið hverja bók og röðuðu skáldsögun- um á listann eftir því; efstu bæk- umar fengu um þrjú til fjögur at- kvæði hver. Margar bækur fengu jafn mörg atkvæði en dómnefnd- armenn vom ekki látnir skera úr um slík tilfelli heldur gerðu þeir hjá Random House það sjálfir. Sömuleiðis komust margar bækur á listann með aðeins eitt atkvæði. Það hefur þvi ekki þurft mikið til að komast á listann en að sögn framkvæmdastjóra Modem Libr- ary þurftu bækur þó að hafa feng- ið eitt atkvæði til að vera á meðal þeirra hundrað bestu. I viðtölum við dómnefndar- mennina kemur fram að þeir völdu bækumar út frá mjög mis- munandi forsendum; sumir völdu best skrifuðu bækurnar, aðrir áhrifamestu bækurnar og enn aðr- ir mikilvægustu bækurnar. Einn dómnefndarmannanna viðurkenn- ir meira að segja að hafa valið bækur sem hann hefur ekki lesið enda hafi hann verið að velja þær bækur sem hefðu haft mest áhrif á engilsaxneskar bókmenntir á öld- inni og verið umtalaðar. William Styron átti eina bók á meðal hundrað bestu en eins og áður sagði átti hann sæti í dómnefnd- inni. I samtali við blaðamann Was- hington Post segir hann augljóst að listinn hafi fengið svo mikið umtal vegna þess að hann var settur saman á mjög undarlegum forsendum. „Ef ég hefði vitað að listinn yrði tekinn svona alvarlega þá hefði ég lagt til við Random House að þeir kölluðu okkur í dómnefndinni saman á fund til að ræða það hvernig ætti að raða á listann." Stjómarformaður Modem Li- brary, Christopher Cerf, sem átti einnig sæti í dómnefndinni, segist heldur ekki líta á val bókanna sem strangvísindalegt. „En mér finnst þetta hafa tekist vel. Listinn hefur fengið alla sem ég þekki til að tala um bækur, og það bækur sem fólk talar yfirleitt ekki um. Þetta hefur tekist betur en við þorðum að vona.“ g listinn hefur ekki einung- is kveikt umræðu heldur hefm- hann einnig fengið fólk til að hópast inn í bókabúðir með seðlaveskin á lofti. Þegar fyrmm forstjóri Random House, Harold Evans, setti fram þessa hugmynd um listann var tilgangur hans reyndar einmitt sá að koma skriði á bóksöluna. Evans hafði reyndar ætlað að verða ansi stór- tækur. Hann ætlaði að gera samn- ing við aðra útgefendur um að Modem Library fengi að gefa út sérstaka útgáfu af öllum þeim bókum á meðal þein-a hundrað bestu sem hann gæfi ekki út sjálf- ur. Þetta hefði orðið markaðslegt meistaraverk; allar bestu bækur aldarinnar til hjá Modem Libr- ary! En þótt aldrei hafi orðið neitt úr þessu þá mun Modem Library gefa út tíu titla á listanum á kom- andi mánuðum, auk allra þeirra sem það gefur út nú þegar. Onnur afleiðing listans, sem fáir hefðu getað séð fyrir, er að Ódysseifur James Joyce er orðin metsölubók en hún varð jú í efsta sæti listans. Arsbirgðir af þessari bók, sem margir segja að sé sú mest lofaða en jafnframt sú minnst lesna, seldust upp á nokkmm dög- um eftir að listinn birtist. orsvarsmenn netbókabúð- arinnar Amazon segja að listinn hafi aukið sölu margra bóka sem annars hafa hreyfst lítið. Ódysseifur er í öðra sæti á metsölulista búðarinnar, Brave New World eftir Aldous Huxley, sem dómnefndarmenn segjast reyndar ekki skilja hvem- ig endaði í fimmta sæti listans, er í áttunda sæti sölulistans, Lolita eftir Nabokov sem lenti í fjórða sæti á listanum er sjöunda sölu- hæsta bókin og The Great Gatsby sem var í öðra sæti á listanum er sú tíunda söluhæsta. Að mati fyrrnefnds stjórnarfor- manns Modern Library hefur hin aukna bókasala réttlætt listann. „Auðvitað var vinnsla hans að ein- hverju leyti svindl en þetta var gott svindl.“ Tilgangurinn helgar með öðram orðum meðalið. „Niðurröðunin á listann var kannski ekki að öllu leyti rétt,“ heldur stjórnamiaður- inn áfram, „en ef þessi listi hefði verið úthugsaður hefði hann ekki vakið eins mikil viðbrögð. Fólk væri þá ekki að tala um bækur núna heldur eitthvað allt annað.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.