Morgunblaðið - 11.08.1998, Síða 38

Morgunblaðið - 11.08.1998, Síða 38
MORGUNBLAÐIÐ 38 ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1998 AÐSENDAR GREINAR SKOÐUN Heilabrot ÉG BRÁ mér á kynningarfund hjá SÁA með konu einni til stuðn- ings, nú svo þegar komið var fram í u.þ.b. miðja kynningu talaði kynnirinn um að fólk færi í grein- ingu til að athuga hvort sýkin væri raun- verulegur sjúkdómur eða hefði verið þróuð upp í sjúkdóm þá flaug ýmislegt í gegnum kollinn á mér, svo þeg- ar kom að þeim hluta kynningarinnar sem • gestir máttu spyrja, gat ég ekki á mér setið og langaði að fá að vita muninn á raunveruleg- um sjúkdómi eða þró- uðum sjúkdómi en kynnirinn gat ekki með nokkru móti svarað því. Nú langar mig að segja frá heilabrotum mínum út frá þessum kynningarfundi mínum. Drykkjusýki, „sjúkdómur“, Drykkjusýki, „sjúk- dómur“, „fíkn“. Getum < við, spyr Selma Þorvaldsdóttir, þróað með okkur „fíkn“ og fengið það viðurkennt sem sjúkdóm. „fíkn“. Getum við þróað með okkur „fíkn“ og fengið það viðurkennt sem sjúkdóm? Gefum okkur að ég borði meira þessa viku en þá síð- "" ustu og svo tek ég mig á næsta hálfa mánuðinn eða reyki pakka af sígarettum á dag í einn mánuð en bara hálfan pakka næsta hálfan mánuð og hætti svo alveg að reykja í tvö ár og byrja svo aftur nú eða ég missi stjórn á mér í fata- kaupum í hálft ár og er að verða gjaldþrota út af því, börnin hafa verið hálfsvelt bæði andlega og lík- amlega vegna þessa stjórnleysis í mér, nú eða verið botnlaust fjar- verandi vegna golfáhuga, hesta- mennsku, nú eða gleymt mér í fjörum landsins vegna steinasöfn- unar o.fl. o.fl. Við skulum gefa okkur að vegna einhverra af þessum áhugamálum ’ mætti ég iUa í vinnuna og mundi missa hana og einnig húsnæðið, nú hvað verður svo um bömin? Vegna þessa duttlunga mannanna fínnst mér einkennilegt að drykkjuáhugi skuli vera dreginn úr og gert hátt undir höfði og kallaður sjúkdómur. Gæti verið að það sé auðveldara að þróa með sér drykkju „fíkn“ frekar en aðrar „fíknir" þar sem það er viðurkennt af samfélaginu sem sjúkdómur en ekki „áhuga- mál“ en hvar skyldu mörkin vera, „áhugamál“ eða „fíkn“, er ekki hver sinnar gæfu smiður? Erum við að gera áhugamönn- um um drykkju auðveldara en öðr- - * um að fá það sem þeir vilja meira af og finnst gott, samt köllum við þetta sjúkdóm, sjúkdóm sem við viljum útrýma, en hvað með hesta- mennsku, spilamennsku, ofát, steinasöfnun, pennasöfnun, fata- söfnun, o.fl. o.fl.? Eiga ekki allir val, og hver á að stjórna hverjum og á að setja upp meðferðarstofnun iyrir alla áhuga- hópa sem gera of mikið af þessu eða hinu? Sjáið þið fyrir ykkur framtíðarfjölskylduhópa ef hvert og eitt áhugamál fæst viðurkennt - sem sjúkdómur, þannig að það verða ekki heimili eins og nú, bara meðferðarheimili. Þá segir Gunni við Stínu, ég bý á golfmeðferð nr. 3 og hún segir ég bý í fatameðferð nr. 4 en gleymum ekki að þetta eru bara mín heilabrot, ég hef ekki kynnt mér neinar rannsóknir sem ^hafa verið gerðar á drykkjuáhuga. Hverjir búa til og stjórna rann- sóknum? Jú, eflaust fólk, sem er ekki hafið yfir duttlunga eða hvað? Ég er að lesa bók þessa stund- ina sem ber heitið Ertu viss? eftir Thomas Gilovich, þar er m.a. talað um rann- sóknir á ófreski eða skyggnigáfu og þar er talað um að úrvinnsla rannsókna og niður- stöður þeiiTa fari eftir áhuga einstaklingsins sem les niðurstöðum- ar, þannig verður út- koman ekki gallalaus, nú og gleymum ekki hver býr til allt rann- sóknarefnið, þannig að fyrir mér virðist þetta allt vera háð duttlung- um og hégóma mann- anna. Við viljum finna orð yfir alla hluti, allt sem við sjáum og getum snert en það sem við finnum getur verið svo einstaklingsbundið og margbrotið og ef til vill getum við ekki komið með orð yfir það allt og eigum því erfitt með að útskýra það þó við skiljum það fyrir okkur sjálf. Vísindalegar rannsóknir stýrast út frá þekkingu, er einhver skömm að vita ekki eitthvað sem einhver annar veit ef til vill um? Því að úti- loka það sem ég finn en ekki þú? Við skulum hugsa okkur skyggnigáfu eða ófreski, ef það er ekki til, og svo máltækið, börn læra það sem fyrir þeim er haft. Ný þekking kemur með nýjum einstaklingum, hvaðan fá þeir þá nýja þekkingu, og hvar er byrjun- in, hvað var það sem hefur komið því af stað að skyggnigáfa væri til? Hvernig urðu berklar til? Gætum við talað um þá ef þeir væru ekki til? Eða þjófnaður, eða morð, eða bara skápur, eða hvaðan koma orð eins og tilviljun og dulskynjun, gubbuðu tölvur þeim út úr sér eða hvað, hvaðan koma tölvur? Hver eru markmið rannsókna? Jú, að fá niðurstöður, sem menn stjóma frá upphafi til enda, hvað þá með drykkjuáhuga, ef menn eru búnir að segja það við sjálfan sig að það geti verið sjúkdómur hljóta þá ekki markmið rannsókn- anna og niðurstöður þeirra að smitast af þeim hugsunum og jafn- vel vera niðurstaðan, því ætti nið- urstaðan að vera eitthvað sem við þekkjum ekki eða viljum ekki kannast við, hvemig getum við út- skýrt eitthvað sem við ekki vitum eða þekkjum eða er eitthvað svo- leiðis til? Jú, hugsanlega hjá þeim sem trúa því, er þá til eitthvað sem er æðra, hvað er þá æðra, eitthvað sem við ekld vitum eða skiljum. Ég set mig ekki upp á móti áhugamönnum um drykkju frekar en öðmm hópum um áhugamál af einhverju tagi, en ef ég væri spurð þá mundi ég vilja að skattpeningar mínir færa í annað áhugamál en drykkju, t.d. unga fólkið þar sem upphafið er, nýja lífið, að valkostir eins og t.d. íþróttir, tónlist og list af ýmsum toga sé ekki eingöngu fyrir þá sem eiga mestu pening- ana, því hæfileikar liggja ekki síð- ur hjá þeim sem eiga minni pen- inga. Gætum við ef til vill sett eitt- hvert fjármagn til skólanna til þessara mála svo allir eigi jafna möguleika. Því eram við að draga drykkjuáhuga út úr og gera hon- um hátt undir höfði meðan skólar landsins svelta fjárhagslega og jafnvel böm og unglingar mæla göturnar þegar þau gætu jafnvel verið að skapa eitthvað þar sem hæfileikar hvers og eins lægju, í þar til gerðum húsakynnum eða úti í náttúranni með viðeigandi leiðbeinanda, er þetta ekki eitt- hvað sem við þurfum að fara að skoða? Höfundur er leikskðlakokkur. Selma Þorvaldsdóttir TRÚ - FRELSI ÞJÓÐ - KIRKJA NAFNI minn, Hjálmar Amason. Ég las grein þína í Morgunblaðinu, „Trúin - fólkið - ríkið“. Þú væntir jákvæðrar og hispurslausrar um- ræðu, sem þú vonar að verði öfga- og for- dómalaus. Þú reifar málið út frá því að Evrópuráðið sé að gera skýrslu og móta tillögur varðandi trú- arbrögð, stjórnmál og virðingu fyrir trúfrelsi. Þú áréttar jafnan rétt allra manna í lýðræðis- þjóðfélagi og varar við öfgahópum og ofsatrú. Síðan ferðu að tala um þjóðkirkjuna. Þú segir hana starfa undir verndarvæng Alþingis og að rök hnígi að því að ekki skuli vera þjóðkirkja vegna þess að hún geti verið móðgun við innflytjendur og þeirra trú. Þar að auki sé þjóð- kirkjan fjarlæg fólkinu í landinu og telur þú að því er virðist öllum fyrir bestu og kirkjunni sjálfri hollt „að slíta hin formlegu og hugsanlega svæfandi tengsl við ríkisvaldið.“ Þjóðkirkjan, innflytjendur, fordómar Áður en við höldum lengra þarf að hafa nokkrar staðreyndir á hreinu. Mér virðist þú ekki hafa athugað það, að þjóðkirkjur eru á öllum Norðurlöndunum. Hvar í heiminum er meira trúfrelsi, meira lýðræði, meiri mannréttindi en einmitt í þessum skoplitla heims- hluta, Norðurlöndunum? Sérðu nokkurt samhengi þar á milli? Telur þú að það myndi auka trú- frelsi, mannréttindi og lýðræði á Islandi ef þjóðkirkjan væri bönn- uð? Og hvers vegna má ekki hafa þjóðkirkju? Hefur hún lagt stein í götu annarra trúfélaga? Hefur hún alið á fordómum gagnvart innflytj- endum? Vafalaust gæti hún gert betur, en þó hefur þjóðkirkjan ráð- ið sérstakan prest til þess að vera innflytjendum til halds og trausts. Hann virðir áreiðanlega trú og skoðanir þeirra sem era af öðra bergi brotnir. Það gera allir sem láta kærleiksboðskap kristinnar trúar nokkra ráða um framgöngu sína. Skráð trúfélög á Islandi era allmörg, flest lítíl, en þeim er ekki sýnt virðingarleysi. Þú getur virt trúarbrögð annarra þótt þú að- hyllist þau ekki. Hver einstakur er frjáls að því að vera í því trúfélagi sem hann kýs. Hver einstakur er frjáls að því að standa utan trúfé- laga. Hver eru tengsl ríkis og kirkju? Sameiginlegt þjóðkirkjunum á Norðurlöndunum era tengsl við ríkisvaldið. Þær eru breiðar kfrkj- ur sem vilja ná til allrar þjóðarinn- ar og þjónusta þeirra stendur öll- um jafnt til boða, þeim sem þiggja vilja þjónustu þeirra. Þær eiga djúpar rætur í sögu, siðum og menningu þessara landa. Um all- langt skeið hefur átt sér stað um- ræða um þjóðkirkjufyrirkomulagið bæði hér á landi og á hinum Norð- urlöndunum. Fyrir rúmu ári vora samþykkt lög á Alþingi um stöðu, stjórn og starfshætti Þjóðkirkj- unnar og tóku þau gildi í byrjun þessa árs. Jafnframt var gerður samningur milli ríkisvaldsins og Þjóðkirkjunnar um það að ríkið héldi áfram á fyrri braut og leysti til sín verulegan hluta kirkju- eigna gegn því að greiða laun tiltekins fjölda starfsmanna kirkjunnar. Þar var um samning að ræða milli tveggja ábyrgra aðila. Samningurinn var niðurstaða stjórn- enda ríkis og kirkju, gerður á grandvelli ís- lenskra laga þar sem eignarréttur var að sjálfsögðu virtur. Ríkið er ekki að gefa kirkj- unni neitt heldur er það að greiða fyrir þær eignir kirkjunnar sem það hefur leyst til sín. Lög þessi og samningur ríkis Kirkjan lifir ekki í skjóli ríkisvaldsins, segir Hjálmar Jónsson, heldur lifir hún vegna þess að þjóðin vill það. og kirkju um fjármál og eignir hef- ur grundvallarþýðingu. Auðvelt er að stíga skrefin fram til fulls að- skilnaðar ríkis og kirkju ef þjóðin vill. Þá þarf að átta sig á því hvað þurfi að aðskilja. Kirkja þjóðarinnar Hitt er annað mál að andstæð- ingar stórrar þjóðkirkju með breiða skírskotun munu ekki sjá hana hverfa. Kirkjan lifir ekki í skjóli ríkisvaldsins heldur lifir hún vegna þess að þjóðin vill það. Hún starfar alls staðar á byggðu bóli. Hver bær er í kirkjusókn og hver einstakur fær þjónustu prests og kirkju sem þess óskar. Þjóðkirkj- an elur ekki á fordómum og hún tekur ekki upp þá hætti þótt vegið sé að henni með fordómum. Sé hún trú herra sínum og höfundi þá leit- ast hún við að uppræta fordóma. Það gerir hún á grandvelli þess boðskapar sem hún er send með í heiminn. Þjóðkirkjan nýtur í raun- inni engra forréttinda utan þeirra sem fylgja því að vera langstærsta starfandi trúfélagið á íslandi. St- arfsmenn hennar era að vísu emb- ættismenn, skipaðir af ráðherra til fimm ára í senn, en í raun era það söfnuðirnir sem velja þá. Ég tel líklegt og eðlilegt að þau tengsl verði einnig afnumin. Sjálfstæð kirkja Kirkjan lýtur stjórn biskups og Kirkjuþings, sem með lögunum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar er fært mjög mikið vald tO stjórnunar innan hennar. Hún er til að mynda mun sjálf- stæðari gagnvart ríkisvaldinu en kirkjur hinna Norðurlandanna. I boðskap sínum er þjóðkirkjan alls- endis óháð veraldarvaldinu. Ekk- ert veraldlegt vald og engir tíman- legir hagsmunir geta nokkru ráðið um kenningu kirkjunnar. Hún starfar á grandvelli trúarjátninga lúthersk-evangelískrar kirkju- deildar og er sem slík hluti af kirkju Krists á jörð. Málefnum safnaðanna, sem era frjáls félög, er stjórnað af sóknarnefndum, sem kosnar era á aðalfundum safnaðanna þar sem allir hafa að sjálfsögðu jafnan atkvæðisrétt. Ríkið innheimtir sóknargjöld með opinberum gjöldum og skilar þeim til safnaðanna. Það gerist alveg á sama hátt gagnvart öðram trúfé- lögum þannig að ríkið styður ekki þjóðkirkjuna umfram þau. Oháð trúfélagi greiðir hver meðlimur trúfélags sóknargjald, sem ríkið afhendir í réttu hlutfalli við skráða félaga þefrra. Þannig nýtur þjóð- kirkjan ekki fjárhagslegra forrétt- inda. Einnig í þessu efni er jafn- réttis betur gætt gagnvart þeim sem ekki eru í Þjóðkirkjunni en gerist á flestum hinna Norður- landanna. Til dæmis eru Svíar nú fyrst að taka upp þetta fyrirkomu- lag, en hingað til hefur sænska ríkið einungis innheimt kirkju- skatt til sænsku kirkjunnar. Ég fæ ekki séð að önnur trúfélög en þjóðkirkjan séu afskipt á Islandi sökum sambandsleysis við yfir- völd. „I nafni trúfrelsis, lýðræðis og náungakærleika" I nafni trúfrelsis, lýðræðis og náungakærleika telur þú í niður- lagi greinarinnar að við verðum að taka Þjóðkirkjuna til endurskoð- unar. Starf kirkjunnar er alltaf í endurskoðun. Niðurstaða umræðu, endurmats og breyttra þjóðfélags- hátta sést í hinni nýju rammalög- gjöf um þjóðkirkjuna, sem tók gildi um síðustu áramót og við átt- um báðir þátt í að gera að lögum á Alþingi fyrir rúmu ári. Endurskoð- un verður auðvitað seint lokið en þar var góðum áfanga náð. Kirkj- unni sjálfri hefur nú verið fært ákvörðunarvald um það hvernig hún hagar starfi sínu án þess að löggjafínn þurfi að koma að þvi. En þegar þú ferð að endurmeta þjóðkirkjuna í nafni trúfrelsis, lýð- ræðis og náungakærleika þá nær það vonandi allt saman til kirkj- unnar einnig. Láttu hana njóta sannmælis. Virk og vakandi þjóðkirkja Staif þjóðkirkjunnar er afar fjölbreytt, það höfðar til býsna margra og langflestir landsmenn njóta þjónustu hennar. Vissulega má margt betur fara í starfi henn- ar og margt betur gera. Prestum kirkjunnar er það fullvel kunnugt og gjarnan myndu þeir vilja gera miklu betur. Þegar markmiðið er háleitt er að sjálfsögðu erfiðara að ná því. En út á það gengur tilvera hennar að veita réttlæti, miskunn og kærleika um alla stigu mann- legs lífs samkvæmt orði Guðs. Kirkjan vill af fremsta megni þjóna í Krists stað eins og það væri hann sjálfur, sem starfaði, kenndi, leiðbeindi og líknaði. Hún starfar ekki fyrir sjálfa sig sem stofnun heldur fyrir alla menn, karla og konur, unga og gamla. Ekkert félag á landinu er jafn stórt og ekkert hefur jafn marga félaga virka. Fólkið í landinu svar- ar því sjálft hvort það vill þjóð- kfrkju eða ekki. Islendingar eru frjálsir að því að skrá sig í trúfé- lög. Níu af hverjum tíu lands- mönnum era í þjóðkirkjunni sam- kvæmt eigin ákvörðun. Enginn er þvingaður, eða með orðum sálma- skáldsins séra Helga Hálfdanar- sonar: Hún vill aðeins laða og leiða lýð en ei með valdi neyða. Býður frelsi, boðar náð, birtir himneskt líknarráð. Höfundur er prestur og alþingismaður. Hjálmar Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.