Morgunblaðið - 11.08.1998, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1998 39 <
\ Huginn og
Hulda tryggðu
l íslenska liðinu
1 gullin
HESTAR
II e d e 1 a n d
í Daninörku
NORÐURLANDAMÓTí
HESTAÍÞRÓTTUM
Á TVEGGJA ára fresti eru haldin
Norðurlandamót í hestaíþróttum
þar sem auk Islendinga leiða sam-
an hesta sína Norðmenn, Svíar,
Finnar, Færeyingar og Danir, sem
héldu mótið að þessu sinni. Mótin
eru haldin þau ár sem heimsmeist-
aramót eru ekki á dagskrá en
fyrsta mótið var haldið 1976 í Dan-
mörku. Islendingar hafa tekið þátt
í flestum mótanna og síðustu árin
átt mjög góðu gengi að fagna.
Þrjú urðu gullin sem íslenska
landsliðið náði að vinna á Norður-
landamótinu að þessu sinni,
kannski ekki alveg þau gull sem
reiknað var með þegar komið var
að seinni sprettum í 250 metra
skeiðinu. Allt útlit var fyrir að
Hulda Gústafsdóttir og Huginn frá
Kjartansstöðum myndu sigra í
stigakepni mótsins en öllum að
óvörum náði Aðalsteinn Aðal-
steinsson, sem keppti fyrir Noreg
á Ringó frá Ringerike, frábærum
tíma, 22,5 sek., í síðasta spretti og
skaust í efsta sætið í stigakeppn-
inni. Við þessu varð ekki séð og þar
með rann það gullið úr greipum ís-
lenska liðsins. En Hulda lét þetta
ekki á sig fá og mætti tviefld til
leiks á sunnudeginum.
Huginn öryggið
uppmálað
Unnu þau fyrst í slaktaumatölti
eftir að hafa deilt forystunni með
sænskri stúlku í forkeppni. Síðar
um daginn sigruðu þau svo í fimm-
gangi eftir að hafa verið í fjórða
sæti að lokinni forkeppninni. Var
þessi sigur mjög sætur og sýndu
bæði Hulda og Huginn mikið ör-
yggi í úrslitum, gerðu allt vel og
hvergi með lágar einkunnir, sem
færði þeim sigurinn. Það er því
með réttu hægt að segja að Hulda
og Huginn hafi verið hetjur dags-
ins því auk þess unnu þau silfur í
samanlögðu og brons í gæðinga-
skeiði. Þau björguðu sem sagt and-
liti íslendinga á þessu móti, því það
hefði orðið snautlegt að vinna eng-
an sigur.
Þriðja gullið sá svo ungur og
efnilegur knapi, Sigurðui' Straum-
fjörð Pálsson, sem keppti í ung-
lingaflokki, um að innbyrða. Hann
var á hestinum Ivari frá Hæli og
sigruðu þeir í töltinu en það mun
vera í fyrsta skipti sem Islendingar
sigra í þeirri grein á þessum vett-
vangi.
Eins og oft áður setja íslending-
ar sem keppa fyrir aðrar þjóðir
mark sitt á keppnina. Áður var hér
minnst á Aðalstein en ógetið er
Hreggviðs Eyvindssonar sem sigr-
aði með glæsibrag í töltinu á stóð-
hestinum Kjarna frá Kálfhóli. Þar
sigldu þeir nokkuð lygnan sjó en
enginn virtist geta ógnað veldi
þeirra í úrslitunum.
Sáttir við niðurstöðuna
Þótt oft hafi íslenskt lið átt betra
gengi að fagna á Norðurlandamót-
um voru menn almennt sáttir við
afraksturinn að þessu sinni. Ekki
er neinum blöðum um það að fletta
að frændur vorir á Norðurlöndum
veita stöðugt meiri keppni á þess-
um mótum. Þá ber þess að gæta að
Hæsta raunávöxtun síðustu 18 mánuði
Við val á lífeyrissjóði er mikilvægt að skoða hvernig raunávöxtun sjóðanna hefur verið
síðasta árið og hver kostnaðurinn er á hvern félaga í sjóðnum.
I Viðskiptablaðinu 15. júlí 1998 kemur
fram að Frjálsi lífeyrissjóðurinn var
með hæstu hreinu raunávöxtunina
árið 1997 og lægsta kostnað á hvem
virkan sjóðsfélaga.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn þolir því allan
samanburð!
Er nokkur spurning hvaða lífeyrissjóð þú velur?
Hringdu í síma 540 5060 eða komdu til okkar á Laugaveg 170.
Kostnaður á hvern Frjálsi lífeyrissjóðurinn
virkan sjóðsfélaga 1.520 kr.
Hrein raunávöxtun 1997 7,89%
Hrein raunávöxtun 1998 13%
FRJALSI
LÍFEYRISSJÓÐURINN
Frjálsi lífeyrissjóöurinn er stærsti og
elsti séreignarlífeyrissjóður landsins.
í liðinu nú voru margir nýliðar en
góð reynsla vegur mjög þungt á
vogarskálum þessara móta. Ekki
má þó skilja þetta svo að ungu
mennimir hafi ekki staðið sig vel
því það er öðru nær. Reynir Örn
Pálmason á Þræði frá Hvítárholti
og Sigurður H. Óskarsson á Káti
frá Störtal voru til dæmis báðir í A-
úrslitum í tölti og B-úrslitum í fjór-
gangi þar sem Reynir vann sig upp
í A-úrslitin. Þarna eru á ferðinni
einbeittir og ákveðnir keppnis-
menn sem vafalítið eiga eftir að
láta að sér kveða fái þeir hestakost
við hæfi. Sigurður Sæmundsson
liðstjóri sagði það skoðun sína að
leik loknum að vel færi á því að
hafa liðið sem keppir á Norður-
landamóti blöndu af gömlum jöxl-
um og yngri mönnum sem þurfa að
fá reynslu og tækifæri til að sanna
sig.
Vekringamir
bmgðust
Ekki vannst sigur í neinni af
þremur skeiðgreinum mótsins þar
sem fyrirfram hefði mátt ætla að
líkumar væm mestar á sigri en
Herbert Ólason á Spútnik frá Hól-
um og Þórir Grétarsson á Níels frá
Árbæ vom í verðlaunasætum í 250
metrunum. Herbert var auk þess
með verðlaun í flugskeiði, sem var
aukagrein í lok mótsins, en Brjánn
Júlíusson á Eitli frá Akureyri var
þar einnig í verðlaunsæti. En það
var Aðalsteinn sem sigraði í þeirri
grein á Ringó frá Ringerike á frá-
bærum tíma, 7,6 sek.
Urslit Norðurlandamótsins urðu
annars eins og að neðan greinir.
Stig eru úr forkeppni og úrslitum
en þar sem þrjár einkunnir em
birtar hefur viðkomandi keppandi
unnið sig upp úr B-úrslitum.
Tölt
1. Hreggviður Eyvindsson Svíþjóð,
á Kjarna frá Kálfhóli, 7,40/8,22.
2. Erik Andersen Noregi, á Ronju
frá Götarsvik, 7,33/7,83.
Morgunblaðið/V aldimar Kristinsson
BJARGVÆTTIRNAR Hulda Gústafsdóttir og Huginn frá Kjartansstöðum vom betri en enginn fyrir íslenska
liðið og höluðu inn tvenn gullverðlaun, ein silfurverðlaun og ein bronsverðlaun.
SIGURÐUR H. Óskarsson, einn af nýliðunum, stóð sig með prýði á
Káti frá Störtal.
3. Unn Kroghen Noregi, á Hmna
frá Snartarstöðum, 7,19/7,61.
4. Reynir Ö. Pálmason Islandi, á
Þræði frá Hvítárholti, 7,27/7,44.
5. Mikala Saxe Danmörku, á Kol-
brúnu frá Brjánslæk, 6,93/7,06.
6. Sigurður H. Óskarsson íslandi, á
Káti frá Störtal, 6,77/7,67/7,00.
Fjórgangur
1. Unn Kroghen Noregi, á Hmna
frá Snartarstöðum, 7,17/7,80.
2. Hreggviður Eyvindsson Svíþjóð,
á Kjarna frá Kálfhóli, 6,90/7,53.
3. Erik Andersen Noregi, á Ronju
frá Götarsvik, 7,07/7,17.
4. Mikala Saxe Danmörku, á Kol-
brúnu frá Brjánslæk, 6,73/6,97.
5. Ingela Bjurenborg Svíþjóð, á
Nótt frá Arnargerði, 6,73/6,77.
6. Reynir Ö. Pálmason íslandi, á
Þræði frá Hvítárholti,
6,47/6,83/6,70.
Fimmgangur
1. Hulda Gústafsdóttir íslandi, á
Hugin frá Kjartansstöðum,
6,30//7,33.
2. Christina Lund Noregi, á Hlekki
frá Stóra-Hofi, 6,67/7,31.
3. Peter Hággberg Svíþjóð, á
Hrafni frá Örvik, 6,57/7,21.
4. Magnús Skúlason Svíþjóð, á
Dugi frá Minniborg, 5,73/6,81.
SJÁ NÆSTU SÍÐU
LÍFEYRISSJÓÐUR SEM
ÞOLIR ALLAN SAMANBURÐ