Morgunblaðið - 11.08.1998, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1998 41*T
SIGURVININGVI
GUÐJÓNSSON
+ Sigurvin Ingvi Guðjónsson,
fæddist á Núpi, Haukadal,
18. apríl 1927. Hann lést á
Sjúkrahúsi Akraness 1. ágúst
síðastliðinn. Foreldrar hans
voru Guðjdn Gísli Sigurðsson, f.
3. júní 1895, d. 21. ágúst 1982,
og Sólveig Ólafsdóttir, f. 15.10.
1985, d. 13.2. 1936. Hálfsystkini
sammæðra eru 9: Sigríður, Sig-
urlaug, Jóna, Jóhannes, Ólafía
og Kjartan. Þau eru öll látin. Á
lífi eru Guðmundur, Guðfinna
og Jón.
Sigurvin Ingvi giftist eftirlif-
andi konu sinni, Stefaníu Önnu
Guðmundsdóttur frá Krossi í
Haukadal, 7. júlí árið 1951. For-
eldrar hennar voru Guðmundur
Pálmi Ásmundsson og Málm-
fríður Jóhannsdóttir, bændur á
Krossi. Börn Sigurvins Ingva og
Önnu eru: 1) Sólveig Erna, f.
10.10. 1950, gift Gísla Gunn-
laugssyni. Börn þeirra Guðjón
Ingvi og Guðrún Jóhanna. 2)
Málmfríður Guðrún, f. 26.12.
Horfín ertu, Ingvi minn. Þín voru
erfíð sporin. Nú hefur Ingvi fengið
hvíldina löngu. Héma stöndum við
eftir sár. En allt tekur enda, sagði
hann oft. Og aðrir heimar taka við.
En alltaf er sárt að missa ástvini
sína. Já, þann sem maður gat spjall-
að við og fengið oft góða lausn á sín-
um málum hjá, eins og Ingvi gat oft
svarað sínu. Og gefíð öðrum góð ráð
í veganesti. Eg þakka Ingva góð-
semina sem hann lagði að mínum
börnum og móttökurnar. Þær eru
þeim hjartkært veganesti í framtíð-
inni. Orð mín verða ekki mörg, best
er að tala með kyrrð. Mér finnst
þetta vera síðustu orðin, sem þú
sagðir. „Þótt ég sé látinn, harmið
mig ekki með tárum, hugsið ekki
um dauðann með harmi og ótta. Ég
er svo nærri að hvert eitt tár ykkar
snertir mig, og kvelur. En þegar þið
hlæið og syngið með glöðum hug
lyftist sál mín upp í mót til ljóssins.
Verið glöð og þakklát fyrir allt sem
lífið gefur og ég tek þátt í gleði ykk-
ar yfir lífinu.“ (úr Spámanninum.)
1952. Börn Guðmundur Stefán
og Birgir Þór Kjartanssynir.
Guðmundur á einn son. 3) Þórð-
ur Guðni, f. 17.12. 1953, giftur
Hildi Sæmundsdóttur. Börn:
Sigurbjörn Ingvi, Guðni Þór,
Jenný Ósk, Sæmundur Þór og
Anna Soffía. Hún á eina dóttur.
Dóttir Þórðar: Sigrún Herdís.
Hún á tvær dætur.
Ingvi fluttist með foreldrum
sínum til Keflavíkur árið 1933.
Árið 1937 flytur hann aftur
heim í sveitina að Villingadal.
Frá 16 ára aldri var hann í
nokkur ár í Keflavík á vertíð-
um. Ing^vi og Anna hófu búskap
að Vatni í Haukadal árið 1949.
Þau fluttu síðan að Mjóabóli
1959. Árið 1993 brugðu þau búi
og fluttu til Akraness. Með bú-
skapnum stundaði Ingvi ýmsa
almenna vinnu.
títför Sigurvins Ingva verður
gerð frá Akraneskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
veigu, Guðrúnu, Þórði og barna-
börnum sendi ég mínar innilegustu
samúðarkveðjur og megi góður Guð
styðja ykkur og styrkja í sorginni.
Jóhannes Gylfi.
Haustið 1964 við vinnu í slátur-
húsinu í Búðardal lágu leiðir okk-
arw Ingva fyrst saman. Hann vakti
athygli mína strax fyrir hversu orð-
var hann var. Hógværð, eljusemi og
lipurð í lund voru hans aðalsmerki.
Stutt var þó í kímnina og smitandi
hlátur. Hann gat hlegið oft og inni-
lega þegar gantast var í kringum
hann. Fimm árum seinna var Ingvi
orðinn tengdafaðir minn og lítill
nafni á leið í heiminn.
Ingvi ólst upp í fátækt eins og títt
var á þeim tíma. Á unga aldri lenti
hann í mikilli lífsreynslu sem mótaði
hann mjög. 8 ára gamall brenndist
hann illa í einum mannskæðasta
bruna á Islandi þegar samkomuhús-
ið í Keflavík brann. Kviknaði í á
meðan jólatrésskemmtun stóð yfir
30. desember árið 1935. Þar skað-
brenndust um 30 manns og 9 létust.
Merki þessa bruna bar Ingvi alla
tíð. Það var skammt stórra högga á
milli. Einum og hálfum mánuði
seinna missir hann móður sína eftir
erfið veikindi. Þetta voru erfiðir
tímar fyrir ungan dreng. Ingvi fór
að vinna fyrir sér strax og kraftar
leyfðu. En sveitin heillaði. Ingvi hóf
búskap, fyrst með fóður sínum, síð-
an lífsförunautnum. Að byrja bú-
skap í litlum efnum var ekki árenni-
legt en hlutskipti margra á þessum
tíma. Bústofn lítill, tæki fátækleg og
öll aðstaða erfið. Hver man ekki
Ingva við að bera fólk og farangur í
bússum yfir Haukadalsá á móti
Mjóabóli áður en dráttarvélin og
síðan bíllinn, grái russajeppinn,
komu til sögunnar, „gamli sorrý
gráni“. Pabbi tók ekki bflpróf fyrr
en undir fertugt. Það varð mikil
breyting á öllum lífshögum við bfl-
inn og brúna yfir ána. Pabbi var lip-
ur og þáðu margir af honum greiða.
Við munum alltaf gleðina þegar
hann var að hjálpa okkur við að
byggja íbúðarhúsið okkar rigning-
arsumarið 1969.
Þegar sest er niður til að rita
minningar um pabba verða orð og
setningar svo ógnarsmá því minn-
ingarnar hrannast upp.
27. júlí fórum við börn þín og
tengdabörn til Danmerkur. Við
komum heim aðfaranótt 31. júlí,
stuttu seinna ertu fluttur á sjúkra-
hús. Við vissum ekki fyrr en við
komum heim áhyggjurnar sem þú
hafðir af þessari för okkar. Þú vissir
að komið var að leiðarlokum. Förin
yfir móðuna miklu væri óumflýjan-
leg.
Elsku pabbi. Þegar þú yfirgafst
þessa jarðvist sátum við hjá þér.
Andlát þitt var hægt og hljótt á
sama hátt og öll þín lífsins ganga.
Eftir að kveðjustundin var afstaðin
litum við út um gluggann. Það var
hellirigning. Líkast gleðitárum af
himnum ofan. Gleðitár þeirra sem
tóku á móti þér. Móðir þín, sem svo
lítið fékk að njóta þín, faðir, systkini
og aðrir ættingjar og vinir, sem
voru farnir yfir móðuna miklu. Við
þökkum þér allt sem þú hefur gert
fyrir okkur. Elsku mamma, systk-
ini, ættingjar og vinir. Guð styrkir
okkur í sorg okkar. Minningin lifír
um góðan mann.
Gísli og Sólveig.
Við áttum þig að vini frá okkar fyrstu
kynnum,
pft var til þín leitað og þá var hjálpin vís.
í hugum okkar núna við söknuð' sárán
finnum.
Því sjálfúr Drottinn kallaði þig í Paradís.
Við minnumst þinnar gleði á góðra vina
fundum.
Glettni í þínu brosi við leiki og glaðan söng.
Við minnumst þinnar festu á okkar stóru
stundum,
stefna þín var örugg þótt leiðin væri ströng.
Sumar er að líða, sólskinið að dvína, minning
þína,
bömin þín og konu leiði sér við hönd.
Sjálfúr ert þú horfinn í Drottins friðarlönd,
við biðjum Guð á himnum að blessa
fjölskyldu hans og vinar bönd.
t
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
STEINUNN ÓLAFSDÓTTIR THORLACIUS,
Grenimel 3,
lést á Landspítalanum laugardaginn 8. ágúst.
Elísabet Gunnlaugsdóttir, Helgi Halldórsson,
Margrét Gunnlaugsdóttir, Ketill Axelsson,
Kristín Gunnlaugsdóttir, Grétar Franklínsson.
Þökkum þér fyrir allt.
Erla Þórðardóttir.
Þegar ég var 7 ára kynntist ég
fyrst Yngva og Önnu sem þá bjuggu
að Vatni í Haukadal og allt frá þeim
tíma hefur órofin vinátta okkar
haldist. Margs er að minnaset frá
þessum tíma og allt eru það ljúfar
og hlýjar minningar. Yngvi var
alltaf Ijúfur og notalegur persónu-
leiki, hafði að sjálfsögðu sínar skoð-
anir eins og við öll og hann flíkaði
þeim ekki, en var staðfastur í trú
sinni. Alltaf var gott að tala við
Yngva og stutt var í grín og oft mik-
ið hlegið, og á góðum stundum var
lagið tekið. Þótt húsakostur væri
ekki alltaf stór, var nóg rými fyrir
gesti og vel tekið á móti öllum. Á
seinni ánim, þegar aldur fór að
segja til sín, fór heilsunni að hraka
með öllu sem því tilheyrir, var búi
brugðið og flutt á Akranes, þar sem
hann lést 1. ágúst sl. rúmlega 71 árs
að aldri.
Ömmu minni og börnunum Sól-
+
Ástkær sambýlismaður minn og faðir okkar,
SIGURJÓN ÚLFARSSON,
Árskógum 6,
áður Nökkvavogi 5,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum föstudaginn 7. ágúst.
Ólína Kristinsdóttir
og börn hins látna
+
Ástkær móðir okkar,
BJÖRG HELGADÓTTIR,
lést á heimili sínu, Faxatúni 3, Garðabæ, föstudaginn 7. ágúst.
Börn hinnar látnu.
+
Faðir okkar, tengdafaðir, sonur, bróðir og afi,
INGÓLFUR Þ. FALSSON,
lést á Sjúkrahúsi Keflavíkur laugardaginn
8. ágúst.
Margeir Ingólfsson, Sigríður J. Guðmundsdóttir,
Einar Falur Ingólfsson, Ingibjörg Jóhannsdóttir,
Guðrún Helga Ingólfsdóttir,
Kristinn Ágúst Ingólfsson,
Helga Þorsteinsdóttir,
Hörður Falsson, Jóhanna Falsdóttir
og barnaböm.
+
Elskulegur eiginmaður, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
GÍSLI GUÐMUNDSSON,
fyrrv. lögreglumaður,
Skúlagötu 40,
Reykjavík,
andaðist á Landakotsspítala laugardaginn
8. ágúst.
Jarðarförin auglýst síðar.
Elín Helga Þórarinsdóttir,
Þórarinn Gíslason, Bryndís Benediktsdóttir,
Guðný Gísladóttir, Sigurgeir Guðmundsson,
Guðmundur Ingi Gíslason, Vigdís A. Gunnlaugsdóttir,
Hrafnkell V. Gíslason Björg Eysteinsdóttir,
Brynhildur Ósk Gísladóttir
og barnabörn.
JÓHANNES BJÖRNSSON,
Ytri-Tungu,
lést föstudaginn 7. ágúst.
Ásbjörn Jóhannesson,
Sigurveig J. Hultquist, Bengt Hultquist,
Guðrún Jóhannesdóttir, Jón Heiðar Steinþórsson,
Þorgils Jóhannesson, Aðalheiður Stefánsdóttir,
Snjólaug Jóhannesdóttir,
Helgi Jóhannesson, Elfn S. Jónsdóttir,
Hrefna Jóhannesdóttir, Jakob Ragnarsson,
Helga Jóhannesdóttir, Stefán Börkur Jónsson.
+
Okkar ástkæra eiginkona, móðir okkar, systir,
tengdamóðir og amma,
MARÍA KRISTÍN INGIBERGSDÓTTIR,
Túngötu 5,
Reyðarfirði,
lést aðfaranótt laugardagsins 8. ágúst.
Jarðarförin verður auglýst siðar.
Árni Valdór Elfsson,
Elís Árnason, Sigríður Pálsdóttir,
Guðbjörg Árnadóttir, Samer Kudur,
Erla Bjarney Árnadóttir,
Elmar Sófus Ingibergsson, Unnur Lúðvíksdóttir,
Guðríður Ingibergsdóttir, Björn Egilsson
og barnabörn.
+
Ástkær sonur okkar, bróðir, mágur og frændi,
HALLGRÍMUR HELGASON,
lést á Sjúkrahúsi í Torontó, Kanada, fimmtu-
daginn 6. ágúst.
Svava Vigfúsdóttir, Helgi Hallgrimsson,
Rut Helgadóttir, Bragi V. Jónsson,
Helgi Vignir Bragason,
Sif Bragadóttir,
Svava Björk Bragadóttir.