Morgunblaðið - 11.08.1998, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 11.08.1998, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1998 49*'' RAGNA S. JÖRGENSDÓTTIR + Ragna Sigríður Jörgensdóttir fæddist á Þurá í Ölfusi 21. júní 1911. Hún andaðist á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 2. ágúst síð- astliðinn. Foreldr- ar: Anna Bjarna- dóttir og Jörgen Björnsson. Hún var næstelst sjö systk- ina. Ragna giftist 14. desember 1940 Sig- urði Guðmunds- syni, f. 19.5. 1915, d. 16.3. 1986. Börn: Halldór Reynir Ársælsson, f. 17.6. 1936, maki Guðfinna Sigur- Ég heyrði Jesú himnesk orð kom, hvfld ég veiti þér, þitt hjarta er mætt og höfuð þreytt því halla að brjósti mér. (Stefán Thorarensen.) Við kveðjum og minnumst þín, elsku mamma, tengdamamma og amma. Við söknum þín sárt því þú varst okkur svo góð. Við geymum í huga okkar allar minningar um góðu stundirnar okkar saman. Fósturmóðir mín og fósturfaðir minn, Sigurður Guðmundsson, tóku mig til sín þegar ég var tveggja og hálfs árs þegar móðir mín dó, móðir mín var systir Rögnu. Ég tel mig hafa verið mjög lánsama að eignast gott heimili og dásamleg systkini eins og börnin hennar eru. Álsystir mín ólst einnig upp hjá henni um tíma og á hún dásamlegar minning- ar um þann tíma. Hugurinn reikar á Vitastíg, þar var gott að vera. Þar bjuggu for- eldrar Rögnu, sem eru látin, en bræður hennar tveir búa þar enn. Þar var ávallt mikill gestagangur. Kaffi og meðlæti voru alla daga á boðstólum og ef enginn kom heilan dag talaði hún um að þetta væri hræðilegt, að enginn hefði komið í dag. Hún elskaði að hafa fólk í kring- um sig. Móðir mín átti við vanheilsu að stríða í mörg ár en aldrei kvart- aði hún. Lífsgleði, þrautseigja og jákvæðni er mér minnisstæðast. Þegar Jóhannes, maðurinn minn, kom inn í fjölskylduna var tekið á móti honum með opnum örmum. Mamma og pabbi sögðu mjög falleg orð til hans sem hann hugsar oft um og munu geymast í huga hans. Börnum okkar þótti gott að koma til ömmu og afa á Vitastíg þar sem vel var hugsað um þau. Amma bak- aði pönnukökur og kleinur handa þeim og geyma þau góðu minning- amar í huganum. Tengdabörn okkar Jóhannesar þakka þér, elsku mamma, fyrir góðu stundirnar sem þú gafst þeim. Fósturfaðir minn dó 16. mars 1986, sem var mikill missir fyrir móður mína. Hálfu ári síðar flytur hún á Dalbraut 27, þar sem henni fannst gott að vera. Starfsfólkið þar var henni gott og eignaðist hún góða vini og einnig góða vinkonu, sem var henni allt. Stundirnar á Dalbraut voru ógleymanlegar gleðistundir með vinum hennar yfir kaffibolla, með- læti og tölum nú ekki um góðgætið sem hún gaf Sigga litla, nafna afa síns, sem þótti gott að koma til ömmu sinnar og munu þær minn- ingar fylgja honum alla tíð. Það er svo margt sem ég vildi segja en hjartað mitt geymir það hjá mér og fjölskyldu minni. Eftir lifa minningar um góða konu. Hvíl þú í friði, minningin um þig mun lifa með okkur. Elsku fjölskyldu hennar bið ég guð að styrkja. Guðrún, Jdhannes, börn og tengdabörn. Mig langar í örfáum orðum að minnast elskulegrar móðursystur minnar, hennar Rögnu á Vitastígn- jónsddttir. Guð- mundur Ingi Sig- urðsson, f. 2.8. 1942, niaki Guðný S. Baldursdóttir. Kristín Ósk Sigurð- arddttir, f. 2.6. 1945, maki Viðar Björnsson. Fdstur- dóttir Guðrún Guð- mundsdóttir, f. 5.7. 1950, maki Jdhann- es Ragnarsson. Ragna eignaðist 10 barnabörn og 7 barnabarnabörn. Útför Rögnu fer fram frá Fríkirkjunni í Reykja- vík í dag og hefst athöfnin kiukkan 13.30. um eins og hún var oftast kölluð, en þar bjó hún lengst af. Þegar ég var aðeins fjögurra ára gömul, Steindór bróðir minn þriggja ára og Guðrún systir mín tveggja ára misstum við móður okkar, tók Ragna þá mig og Guð- rúnu systur mína til sín, þó svo að hún byggi í þröngu húsnæði og ætti fyrir þrjú börn. Þar var ég í rúmt ár en Guðrúnu gekk hún í móður- stað. Ætíð síðan hefur Ragna verið einn af föstu punktunum í tilver- unni hjá okkur systkinunum. Ragna hafði sterkan persónu- leika, hún hafði skoðun á mönnum og málefnum enda sótti fólk mikið til hennar bæði meðan hún bjó á Vitastíg 17, þar sem hún hélt myndarlegt heimili, þrátt fyrir fötl- un sína. Heimili hennar var ætíð gestkvæmt enda hafði hún gaman af góðum félagsskap og var mjög gestrisin. Á yngri árum vann Ragna á smurbrauðsstofu og var hún alla tíð mikið fyrir að búa til fallegan og góðan mat, voru t.d. brauðtertumar hennar ógleyman- legar. Á miðjum aldri fékk Ragna alvarlega mjaðmakölkun sem leiddi til þess að hún gekk með hækjur upp frá því, hafði það mikil áhrif á líf hennar, þó kvartaði hún aldrei yfir sjúkdómi sínum. Fyrir nokkrum ámm fluttist Ragna í öldrunaríbúð á Dalbraut 27, þar sem vel var hugsað um hana bæði af starfsfólki og vinum. Þar var jafnan gestkvæmt. Henni féll sjald- an verk úr hendi og kom ég sjaldan í heimsókn án þess að hún væri með eitthvað á prjónunum. Báru sokkar og vettlingar sem hún prjónaði vott um einstaka vand- virkni og smekkvísi. Ragna var okkur góður félagi, ég á eftir að sakna þeirra stunda er við sátum og spjölluðum, en Ragna var ein- staklega minnug auk þess sem hún fylgdist vel með öllu því sem gérð- ist í fjölskyldunni. Rögnu verð ég ætíð þakklát fyrir þá umhyggju og þann vinskap sem hún sýndi okkur systkinunum og fjölskyldum okkar. Ég og fjölskylda mín þökkum Rögnu fyrir samfylgdina og biðjum henni, fjölskyldu hennar og ætt- ingjum Guðs blessunar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skait. (V. Briem.) Anna Guðmundsddttir og fjölskylda. lOJium flo mn ad ufl um flÖTÍl flOflC MiKlUMNl • (llíí Upplýsingar í s: 551 1247 Ég kynntist Rögnu Jörgensdótt- ur fyrir um 26 árum, þá bauð hún mér í veislu til sín að Vitastíg 17. Ég var þá nýkomin í fjölskylduna, bara rétt trúlofuð, og kveið ósköp fyrir að hitta þessa konu. Hún var móðursystir unnusta míns. Ég hugsaði um það hvort hún væri lík móður hans sem hafði dáið ung frá þremur ungum bömum, Onnu, Steindóri og Guðrúnu. Kannski var hún alveg eins og tengdamóðir mín hefði getað verið, þvflíkur var þankagangurinn hjá mér. En í veisluna fór ég og þar tók á móti mér þessi fallega, litla, dökkhærða kona með svo falleg brún augu. Hún gekk við tvær hækjur og tók í höndina á mér, faðmaði mig og bauð mig velkomna í fjölskylduna, kynnti mig fyrir Sigurði manninum sínum og öllum sem þarna voru. Þvflíkar móttökur, og svo veislu- borðið og brauðterturnar hennar Rögnu, þær voru engu líkar. Frá þessari stundu tók ég ástfóstri við þessa konu sem skipaði sérstakan heiðurssess hjá okkur hjónum. Ragna var ein af þessum hvunn- dagshetjum, hún eignaðist þrjú böm og tók það fjórða að sér, litlu stúlkuna hennar Boggu systur sinnar, sem var aðeins tveggja og hálfs árs þegar mamma hennar dó,. hana Guðrúnu litlu. Ragna gekk henni í móðurstað. Á miðjum aldri bilaði heilsan og hún þurfti að ganga við hækjur. En Ragna átti góðan mann og sam- heldna fjölskyldu sem studdu hana. Allan þann tíma sem ég þekkti hana og líka fyrir þann tíma bjó hún á Vitastíg 17. Þar höfðu bræð- ur hennar tveir, Bjarni og Guð- mundur, byggt stórt hús með fjór- um íbúðum. Ragna og Sigurður bjuggu í einni íbúðinni eða þangað til hún varð ekkja og flutti á Dal- brautina, í litlu fallegu íbúðina sína. Þar eignaðist hún marga góða vini eins og alltaf. Oft var glatt á hjalla á Vitastígn- um. Ragna var hrókur alls fagnaðar og einhvern veginn var hún mið- punkturinn í þessari stóra fjöl- skyldu, hélt þessu öllu saman. Hún passaði upp á krakkana hennar Boggu sálugu, að þau væra alltaf með, eða svo kom það mér fyrir sjónir. Að öllum hinum ólöstuðum, því öll vora og era þessi systkini yndislegar manneskjur. Ekki má gleyma öllum sokkum og vettlingum sem hún pijónaði á börn, barnabörn, frænkur og frændur, allir í pijónlesi frá Rögnu. Er þess skemmst að minnast þegar dótturdóttir mín, þá tveggja ára, fékk lopapeysu keypta úr búð og var spurð hver hefði prjónað svona fallega peysu handa henni. Var hún þá fljót að svara: „Ragna amma.“ Óðravísi gat það ekki verið því Ragna prjónaði allt, meira að segja líka hunda og ketti, sem ég held að allir litlu krakkamir eigi. Það væri endalaust hægt að skrifa um Rögnu á Vitastígnum eins og við fjölskyld- an kölluðum hana, hún var þessi persóna sem skilur svo mikið eftir, svo stórt tómarúm. Elsku Ragna, ímynduð tengda- mamma, ég þakka þér fyrir okkur öll. Guð veri með þér og börnunum þínum fjóram og allri þinni stóra fjölskyldu. Kveðja, Margrét Brynjólfsdóttir. Persónuleg, alhllða útfararþjónusta. Áralöng reynsla. Sverrir Einarsson, útfararstjðri Sverrir Olsen, útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300 AUan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ + Ástkær faðir okkar, bróðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN KRISTINN VILHJÁLMSSON, Tjarnarlundi 14F Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 10. ágúst. Fríða Margrét Jónsdóttir, Vilhjálmur Jónsson, Sandra Jónsson, Valgerður Jónsdóttir, ívar Harðarson, Ásgeir Jónsson, Valgerður Vilhjálmsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær sonur okkar, fóstursonur, bróðir og bamabarn, JÓHANN ÞÓR JÓHANNSSON, Háengi 8, Selfossi, er lést af slysförum mánudaginn 3. ágúst, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju miðviku- daginn 12. ágúst kl. 13.30. Jóhann Þorvaldsson, Dagbjört K. Ágústsdóttir, Hulda Snorradóttir Jóhann Finnsson, Snorri Þór Jóhannsson, Þorsteinn Jóhannsson, Ágúst Jóhannsson og aðrir aðstandendur. + Elskulegur eiginmaður, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ÁSGRÍMUR P. LÚÐVÍKSSON, vistheimilinu Seljahlíð, Reykjavík, áður til heimilis í Úthlíð 10, sem lést fimmtudaginn 6. ágúst, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 14. ágúst kl. 13.30. Þórunn Egilsdóttir, Egill Ásgrímsson, Sigríður Lúthersdóttir, Ragnheiður M. Ásgrímsdóttir, Guðbjartur K. Sigfússon, Ásgrímur Þ. Ásgrímsson, Marta K. Sigmarsdóttir, Jóhann G. Ásgrímsson, Herdís Alfreðsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskuleg eiginkona, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, PÁLÍNA SIGURÐARDÓTTIR, Gnoðarvogi 78, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 8. ágúst. Jarðarförin fer fram frá Langholtsskirkju föstu- daginn 14. ágúst kl. 15.00. Oddgeir Einarsson, Sigurður Oddgeirsson, Kristín Einarsdóttir, Valdís Oddgeirsdóttir, Jónas Hreinsson, Einar Vignir Oddgeirsson, Gunnar Rúnar Oddgeirsson, Inga Barbara Arthur, barnabörn og barnabarnabörn. + Einlægar þakkir færum við öllum þeim fjölda fólks, sem sýndi okkur einstakan hlýhug og samúð við fráfall LEÓS EGGERTSSONAR fyrrv. aðalféhirðis Tryggingastofnunar ríkisins, Neshaga 15. Heimsóknir ykkar, blómasendingar, minning- arkort, skeyti, símtöl og annar vináttuvottur yljaði okkur um hjartarætur og var okkur ómetanlegur stuðningur. Fríða Björg Loftsdóttir, Stefanía Magnúsdóttir, Jón Sigurjónsson, Jónína Leósdóttir, Árni Leósson, Ásta Stefánsdóttir, Fjóia Eggertsdóttir og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.