Morgunblaðið - 11.08.1998, Side 51

Morgunblaðið - 11.08.1998, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1998 51 FRÉTTIR Úr dagbók lögreglunnar Sérstaklega hugað að notkun bilbelta 7. til 10. ágúst TALSVERT var um fólk í miðbæn- um um helgina, einkum aðfaranótt sunnudags, og þá virtist á tímabili sem samskipti manna á milli gengju treglega. Vegna þessa varð að hand- taka nokkra borgara vegna fram- ferðis þeirra og oft héldu samskiptin áfram að vera erfið eftir að lögregl- an kom til. Umferðarmál Lögi-eglan mun á næstunni huga sérstaklega að notkun öryggisbelta og vill því eindregið koma þeim skilaboðum til ökumanna og farþega að nota þau í hvert sinn sem ekið er í bíl. Ökumenn sem staðnir verða að því að aka án þess að hafa spennt ör- yggisbelti mega búast við að verða stöðvaðir af lögreglu. Sekt fyrir að aka bifreið án þess að hafa öryggis- belti spennt er fjögur þúsund krón- ur en sektir eru hærri fyrir að gæta þess eigi að sérstakur öryggisbún- aður fyrir börn sé ekki notaður, eða átta til tíu þúsund. Um helgina voru 13 ökumenn og farþegar kærðir vegna vanrækslu á því að nota ör- yggisbelti. Hraðakstur Nokki-ir ökumenn voru teknir fyr- ir of hraðan akstur um helgina og virðist sem ökuhraðinn í borginni sé því miður aftur að hækka. Aðgerðir lögreglu í vor og sumar urðu til þess að mjög sló á ökuhraða og varð um- ferðin mun afslappaðri og þá um leið hættuminni fyrir alla vegfarendur, sem var markmið aðgerðanna. Hins vegar hafa því miður ekki allir verið sáttir við þessar aðgerðir og gildi reglugerðar dómsmálaráðuneytis verið dregin í efa með lagatæknileg- um rökum. Það er von lögreglu að von bráðar fáist endanleg lausn um þessi deiluatriði þannig að lögreglu verði gert kleift að tryggja sem best öryggi allra í umferðinni, sem er henni mikið kappsmál. Það er mjög brýnt einkum þegar litið er til þess að nú er stutt í upphaf skólaárs og aðgerðir lögreglu hafa ekki síst ver- ið á þeim svæðum sem eru í kring- um skóla og barnaheimili. Fjórir ökumenn voru stöðvaðir um helgina fyrir of hraðan akstur og voru þeir allir sviptir ökuréttindum. Ellefu ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um ölvun við akstur um helgina, einn þeu-ra eftir að hafa ekið á ljósastaur á Höfðabakka við Fálka- bakka um hádegisbil á laugardag. Mikil mildi var að ekki hlutust af slys er hemlabúnaður virkaði ekki á jeppabifreið sem ekið var á Lauga- ÁRVÍK ÁRMÚLA1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295 vegi um miðjan laugardag. Jeppabif- reiðin rann stjórnlaust utan í tvö ökutæki auk þess að aka niður fjóra ljósastaura (þrjá litla) og endaði síð- an ökuferðina á blómakeri og glugga verslunar. Innbrot - þjófnaðir Athygli vekur að aðeins eitt inn- brot hefur verið tilkynnt til lögreglu um helgina en þrettán þjófnaðir. Kona var handtekin á fóstudag eftir tilkynningu til lögreglu um að hún gengi á Laugaveginum í nýjum pels með verðmiða utan á. Þótti tilkynn- anda hugsanlegt að gleymst hefði að greiða fyrir flíkina. Það reyndist rétt og konan því færð í fangahús lögreglu. Skemmdarverk - veggjakrot Tvær 16 ára stúlkur voru hand- teknar eftir að hafa unnið skemmdir á húsvegg í Thomsensundi. Stúlk- urnar voru fluttar á lögreglustöð og hald lagt á tæki þeirra. Þær mega vænta sektargerðar frá lögreglu vegna skemmda sem þær unnu. Unglingasamkvæmi Lögreglan varð að leysa upp mik- ið unglingasamkvæmi í austurborg- inni að morgni sunnudags. Þar hafði húsráðandi ekki ráðið að fullu við framferði gesta sinna svo kalla varð lögreglu til aðstoðar. Komið hafði til handalögmála milli gesta og ein- hverjir þeirra hlotið sár af. Gestirnir voru því fluttur á slysadeild, til for- eldra sinna eða í fangahús. Líkamsmeiðingar Til átaka kom milli tveggja manna við Ofanleiti að morgni laugardags. Flytja varð annan manninn á slysa- deild til aðhlynningar. Kona var síð- an handtekin eftir að hún hafði kýlt lögreglumann í andlitið þar sem hann var að vinna að rannsókn máls- ins. Ekki liggur ljóst fyrir hvað kon- unni gekk til en hún var flutt á lög- reglustöðina fyrir varðstjóra. Piltur á átjánda ári veitti lög- reglumanni áverka í andliti og auga er lögreglumaðurinn hugðist hafa afskipti af honum vegna framferðis hans. Atburðurinn átti sér stað á Lækjartorgi skömmu eftir miðnætti á sunnudag. Pilturinn, sem var ölv- aður, var fluttur til vistunar í fanga- hús lögreglu. Ráðist var að konu á Laugavegi við Skólavörðustíg að morgni sunnu- dags. Konan var flutt á slysadeild til aðhlynningar en ekki er vitað um árásarmann. Að kvöldi sunnudags urðu lögreglumenn að hlaupa uppi heimilisföður sem skömmu áður hafði lagt íbúð fjölskyldu sinnar í rúst í austurborginni. Fíkniefnamál Við leit lögreglumanna í bifreið einstaklings sem þekktur er fyrir fíkniefnaviðskipti fannst nokkurt magn efna, bæði hass og amfetamín. Maðurinn var handtekinn og fluttur í fangahús. Annað Lögreglu var tilkynnt um ung- barn sem væri á bílastæði í Selja- hverfí að morgni laugardags. Svo virðist sem drengurinn, sem var tveggja ára, hafí farið út úr húsi for- ráðamanna án þeiri-a vitundar á vit ævintýra. Honum var komið í ör- uggt skjól á ný. Par sem var við skemmtun í Breiðholtshverfi að morgni sunnu- dags varð fyrir því óhappi að falla rúma þrjá metra ofan af svölum. Parið, sem hafði komið sér þægilega fyrir úti á svalarhandriði, féll aftur fyrir sig. Þau voru bæði flutt á slysadeild til aðhlynningar. Að morgni sunnudags var til- kynnt um að karlmaður hefði fallið úr tré sem hann hafði klifrað upp í á Laugavegi við Frakkastíg. Maður- inn var fluttur á slysadeild til að- hlynningar vegna höfuðáverka, en ekki liggur ljóst fyrir hvað mannin- um gekk til. BREYTT HEIMIUSFAMG Erum flutt á Suðurlandsbraut 52 (bláu húsin viö Faxafen). Opnunartilboð á skóm næstu daga 10-30% afsláttur SJúkravörur RÝMINCARSALA á úrum og skartgripum í örfáa daga Allt að 50% afsláttur Úr og Skartgripir, Strandgötu 37, Hafnarfirði, sími 565 0590 SÍIVIA TORG Upp spretta upplýsiagar! Símatorg er upplýsingaþjónusta sem einstaklingar, stofnanir og fyrirtæki geta nýtt sér, ýmist til að veita upplýsingar eða nálgast þær. Á Símatorginu er að finna fjölbreyttar upplýsingar um vöru og þjónustu sem lesnar hafa verið inn á sjálfvirkan símsvörunarbúnað. Þú getur, þér að kostnaðarlausu, læst aðgangi að öllum eða þremur efstu flokkum Símatorgsins. Þú getur pantað læsingu að Símatorginu og fengið nánari upplýsingar hjá Þjónustumiðstöð Simans í gjaldfrjálsu númeri 8oo 7000.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.