Morgunblaðið - 11.08.1998, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 11.08.1998, Blaðsíða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ Stórglæsilegur sigur Hannesar Hlífars í DAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Athyglisverð grein í MORGUNBLADINU fostudaginn 24. júlí er at- hyglisverð grein eftir Ásgeir Sverrisson sem hann nefnir „Valdið og fólkið“ og fær mann til að hugsa nánar um sam- skipti lögreglu og borg- ara. Sennilega er lög- reglan haldin of mikilli refsigleði gagnvart bíla- eigendum. Nú á tímum hins mikla hraða og áreitis, sérstak- lega á ungt fólk, er það mikil refsing að taka bíl- inn af því fyrir kannski smá yfirsjón eins og er einstæð móðir þeytist á síðustu stundu inn í búð áður en hún sækir barnið á leikskólann, leggur bílnum öfugt og fær mörg þúsund króna sekt sem hún á ekki fyrir. Það á ekki að vera tilgangur lögreglunnar að gera sem flesta að afbrota- mönnum. Það gera allir yfirsjón- ir, það eigum við að muna. Ég held að besta ráðið væri hin gamal- kunna gulrót. Gerir þú ekkert af þér t.d. í þrjú ár verða yfirsjónir þínar strikaðar út. Prófum það nú um tíma. Það voru mjög merkileg tíðindi sem fréttamenn mættu taka til frekari umræðu þegar Þórhildur Líndal fræddi okkur um að það kostaði jafnmikið að vera 1 ár í Harvard og eitt ár í fangelsi. Það kostaði þjóðfélagið jafn mikið. Það er mjög áríðandi að vinsamlegt andrúms- loft sé milli lögreglu og borgara og það er nú mikill munur á eitur- lyfjasölum, bama- nauðgurum og þessu venjulega fólki sem verð- ur lítilsháttar á í mess- unni í umferðinni. Lögreglan á að muna að við hrösum öll á lífs- leiðinni. Kona. Veðsetning veiðiheimilda! NÚ ÞEGAR fyrirsjáan- leg er sala á ríkislána- stofnunum hlýtur að vakna spurning um það hvar útvegsmenn er veiðiheimildir hafa standa gagnvart þjóðar- eigninni svokölluðu, ef þeir hafa þurft að veð- setja heimildirnar og veðhafarnir eru þær lánastofnanir er ríkis- stjómin ætlar nú að setja á markað og selja bæði innlendum og er- lendum peningamönn- um, því enginn kaupir lánastofnanir án þess að hafa til þess fjárráð. Þó má finna dæmi til þess er SÍS ætlaði að kaupa gjaldþrota banka og var sjálft þá nánast þrotabú. Nú þegar bankarnir era orðnir eign hluthafa og eftir aflatregðuár gæti svo farið að þessir bankar væru orðnir einkaeigendur að öllum fiskveiðiheimildum á Is- landsmiðum, því þótt sj ávarútvegsráðherr a hafi þröngvað fáráðum þingmönnum til að sam- þykkja veðheimildirnar á einhverjum forsend- um, sem ekki eru kunn- ar alþjóð, þá verður víst aldrei komist hjá því að hann, viljandi eða af glópsku, hefur komið því svo fyrir að hin margum- talaða „þjóðareign" verður komin í eigu fárra peningafursta ef aflabrestur verður og bankarnir ganga að veð- unum. Oheillaspor var stigið er framsal, sala og veð- setning á aflaheimildum var heimiluð af þingi. Þá vegur það þungt á meta- skálunum fyrir Sjálf- stæðisflokkinn í næstu kosningum er kjósendur hans átta sig á „kvóta- glæpnum". Jón Hannesson, 190921-3609. Koma vel fram ÉG VIL koma þvi á framfæri að mér finnst þulir ríkissjónvarpsins koma mjög vel fram. Yfirburði hefur samt Ragnheiður Elín Clausen. Hún ber af þul- um sjónvarpsins hvað varðar framburð og skýra rödd. Tapað/fundið Gleraugu týndust GLERAUGU í svörtu pallíettuhulstri týndust miðvikudaginn 29. júlí við Borgarholtsbraut eða Snæland í Fossvogi. Finnandi láti vita í síma 553 8377, fundarlaun. Budda týndist BUDDA, lítil og svört, með tveimur kortum í, týndist nálægt Sól og sælu í Hafnarfirði. Skil- vís finnandi hafi sam- band í síma 565 5607. Dýrahald Köttur í óskilum VIÐ Tryggingastofnun Grettisgötumegin hefur verið köttur á vappi í nokkra daga, greinilega týndur. Kisi er u.þ.b. 5-6 mánaða, ómerktur en með rauða glitrandi ól. Er grábrúnleitur með gular slettur á enni og á feldi, hvíta bringu og hvítt framan á annarri loppu. Mjög fríður og gæfur. Föstudaginn 7.8. var farið með köttinn upp í Kattholt. Eigandi vinsamlega vitji kattar- ins þar. Páfagaukur í óskilum PÁFAGAUKUR, gulur með grænu, fannst við Sundlaugavegi sl. sunnu- dagkvöld. Upplýsingar í síma 699 6911. S.G. Víkveiji skrifar... SKAK Antwerpon, 1—9. ágúst „LOST BOYS“ SKÁKMÓTIÐ Hannes Hlífar Stefánsson sigraði á geysistcrku opnu skákmóti. HANNES Hlífar Stefánsson, stór- meistari, vann stórglæsilegan sigur á „Lost Boys“ skákmótinu sem fram fór í Antwerpen í Belg- íu dagana 1.-9. ágúst. Hannes hlaut 7Vá vinn- ing í 9 umferðum og varð einn í efsta sæti, hálfum vinningi á und- an helstu keppinautum sínum. Helgi Olafsson, stórmeistari, stóð sig einnig mjög vel á mót- inu, hlaut 614 vinning og lenti í 5.-10. sæti. Mótið var bæði sterkt og fjölmennt. I A-riðli vora keppendur 120. Árangur Hannesar er sérlega eftirtektarverð- ur fyrir þá sök að 16 stórmeistarar kepptu á mótinu, þar af sex með meira en 2.600 skákstig. Auk þess tefldi Hannes við alla helstu keppi- nauta sína um efsta sætið. Andstæð- ingar hans voru þessir: 1. Riehard Meulders 2.275 FM 1 v. 2. Kim Le Quang 2.345 FM 1 v. 3. Per Ove Egeli 2.3301 v. 4. Zurab Azmaiparashvili SM 2.655 0 v. 5. Marat Dzhumaev AM 2.435 1 v. 6. Erik van den Doel IM 2.480 1 v. 7. Boris Avrukh SM 2.565 1 v. 8. Jeroen Piket SM 2.605 1 v. 9. Rafael Leitao AM 255014 v. Eins og sést á þessari upptalningu tapaði Hannes einni skák, gegn Azmaiparashvili, og gerði eitt jafn- tefli í siðustu umferð, til að tryggja sér efsta sætið. Einn athyglisverð- asti sigur Hannesar var gegn hol- lenska stórmeistaranum Jeroen Pi- ket (2.605), en Hannes vann skákina í einungis 18 leikjum: Hvítt: Hannes Hlífar Svart: Piket Sikileyjarvörn 1. e4 - c5 2. Rf3 - Rc6 3. d4 - cxd4 4. Rxd4 - Rf6 5. Rc3 - d6 6. Bg5 - e6 7. Dd2 - a6 8. 0-0-0 - h6 9. Be3 - Be7 10. f3 - Rxd4 11. Bxd4 - b5 12. Kbl - Da5?! Svarta drottningin er líklega betur komin á c7, en þar er hún venjulega staðsett í þessu afbrigði Sikileyjar- varnar. 13. a3 - Hb8 14. f4! - b4 Gallinn við staðsetningu svörtu drottningarinnar sést t.d. á því að svartur getur nú ekki hrókað, 14. - 0-0 er svarað með 15. Rd5 15. Bxf6! - Bxf6? Betra var 15. - gxf6, þótt hvítur standi vel eftir 16. Ra2. 16. Dxd6 - Hb6 17. axb4 - Dxb4? Piket hlýtur að hafa yfirsést næsti leikur Hannesar, en svarta staðan var töpuð. Eina leiðin til að fresta uppgjöfinni var að fara út í endatafl tveimur peðum undir: 17. - Hxd6 18. bxa5 - Hxdl+ 19. Rxdl - g5 þótt út- litið sé ekki glæsilegt. 18.Bb5+! og svartur gafst upp því hann tapar miklu liði eða verður mát eftir 18. - Hxb5 19. Dc6+ - Ke7 20. Dc7+ - Bd7 21. Dxd7+ - Kf8 22. Dc8+ - Ke7 23. Hd7 mát. Það er sjaldgæft að stórmeistari með yfir 2.600 stig sé svo grátt leik- inn og með tapinu glataði Piket for- ystunni á mótinu í hendur Hannesai-. Frammistaða Hannesar í mótinu svarar til 2.744 skákstiga og er þetta líklega besti árangurinn á ferli hans. Efstir á mótinu urðu: 1. Hannes H. Stefánsson 7V4 v. 2. Zurab Azmaiparashvili 7 v. 3. Rafael Leitao 7 v. 4. Jeroen Piket 7 v. 5. -10. Helgi Ólafsson 614 v. Boris Avrukh 614 v. Loek van Wely 614 v. Raj Tischbierek 614 v. Dimitri Reinderman 614 v. Ivan Sokolov 614 v. Dan Zoler 614 v. Ýmsir heimsþekktir stórmeistarar urðu að sætta sig við færri vinn- inga. Þannig fékk Mich- ael Gurevieh (2.610) 6 vinninga og franski stórmeistarinn Joel Lautier (2.625) fékk 5‘Á vinning. Helgi Ólafsson tefldi við Lautier og vakti skák þeirra mikla athygli. Helgi fékk mjög erfiða stöðu og missti peð, en tókst að tryggja sér jafntefli á ævintýralegan hátt. Þetta er annar sigur Hannesar á skákmóti á stuttum tíma, en í síðasta mánuði sigraði hann á opna Kaup- mannahafnarmótinu. Með þeim sigri tók hann jafnframt forystuna í nor- rænu bikarkeppninni, sem VISA stendur fyrir. Fimm íslendingar keppa á Spáni Fimm íslenskir skákmenn taka nú þátt í opnu skákmóti á Spáni. Mótið fer fram í borginni Badalona, skammt fyrir norðan Barcelona. Þetta er í 24. skipti sem mótið er haldið og era þátttakendur u.þ.b. 200. Sjö umferðum er nú lokið á mót- inu og að þeim loknum er vinninga- fjöldi Islendinganna þessi: Bragi Þorfinnsson 5'4 v. Jón Viktor Gunnarsson 5 v. Amar E. Gunnarsson 5 v. Bergsteinn Einarsson 414 v. Jóhann H. Ragnarsson 4 v. Þrátt fyrir góðan árangur á Bragi ekki möguleika á alþjóðlegum áfanga, en hann hefur m.a. mætt tveimur stigalausum andstæðingum. Mótið er dýrmæt reynsla fyrir þessa ungu skákmenn, sem fá að kynnast því hvernig er að tefla á suðlægum slóðum. Hitinn í Badalona fer yfir 30 gráður þessa dagana og getur gert mönnum erfitt fyrir. Það er hins veg- ar ekki ónýtt að hafa Jóhann H. Ragnarsson með í hópnum, því hann hann hefur teflt töluvert á Spáni og er vel að sér í spænskunni. Keppni taflfélaga á SV-Iandi Öfugt við það sem gerist annars staðar í Evrópu má segja að skáklífið leggist í dvala yfir sumarmánuðina hér á landi. Nú styttist hins vegar í að skákmótahald hefjist hér aftur af fullum krafti. Fyrsta merkið um það er hraðskákkeppni taflfélaga á Suð- vesturlandi. Átta taflfélög taka þátt í keppninni sem nú er haldin í fjórða skipti. Það var Taflfélagið Hellir sem átti frumkvæðið að þessari keppni. Keppnin fer fram með útsláttar- fyrirkomulagi og er þremur viður- eignum af fjóram lokið í fyrstu um- ferð keppninnar. Úrslitin urðu þessi: Hellir - Skákfélag Hafnarfj. 4214-29'A Tafif. Garðab. - Taflf. Akraness 3914-3214 Taflf. Reykjav. - Taflf. Kópav. 39'/2-32>/2 Viðureign Skákfélags Reykjanes- bæjar og Skákfélags Selfoss og ná- grennis er ólokið. Einar Hjalti Jensson náði bestum árangri í viðureign TR og TK, hlaut 10 vinninga af 12 mögulegum. I viðureign Hellis og Skákfélags Hafn- arfjarðar stóð Ingvar Ásmundsson sig best, fékk 814 vinning af 12. Margeir Pétursson Daði Örn Jónsson FYRR á þessu ári kom út í Bandaríkjunum bók eftir Rich- ard Holbrooke, aðalsamningamann Bandaríkjastjómar í Bosníudeil- unni, sem nú hefur verið tilnefndur sendiherra Bandaríkjanna hjá Sa- meinuðu þjóðunum. I bók þessari lýsir Holbrooke aðdraganda Dayton-samkomulagsins, sem leiddi að lokum til friðar í Bosníu. Síðustu kaflar bókarinnar fjalla um þróun mála á fyrstu mánuðum þessa árs. í stuttu máli er langt síðan Vík- verji hefur lesið jafn vel skrifaða bók um samtímaatburði. Jafnframt bregður Holbrooke upp mjög skýrri mynd af stöðu mála á Balkanskaga, svo að lesandi, sem hefur fylgzt með þessum atburðum úr fjarlægð, hefur í fyrsta sinn möguleika á að a.m.k. byrja að skilja hvað þama var um að vera. Enginn vafi er á því, að Hol- brooke og samstarfsmenn hans hafa unnið mikið afrek með friðar- samningunum, sem gerðir voru í Bosníu. Þótt starfsvettvangur hans hafi verið mun þrengri en Kissin- gers á sínum tíma er tæpast hægt að verjast þeirri hugsun, að þama sé kominn fram á sjónarsviðið nýr forystumaður í Bandaríkjunum á sviði alþjóðamála, sem líklegt megi telja að láti að sér kveða á næstu ár- um. Verði Albert Gore, varaforseti Bandaríkjanna, kjörinn forseti í næstu forsetakosningum að rúmum tveimur áram liðnum er ekki ólík- legt, að frami Holbrookes eigi eftir að verða mikill, en hann var í hópi stuðningsmanna Gore, þegar hann barðist fyrir útnefningu sem for- setaefni demókrata á sínum tíma. Þeim, sem á annað borð hafa áhuga á að öðlast skilning á Bosn- íudeilunni er eindregið ráðlagt að lesa bók Richard Holbrooke, sem nefnist „To End a War“ og er gefin út af Random House, bókaforlag- inu í New York. xxx VEGIR með varanlegu slitlagi, og nú síðast Hvalfjarðargöng- in, hafa breytt Islandi. Þetta er nýtt land. Eitt af því, sem hefur gerzt í kjölfar hinnar nýju vega- gerðar, er að byggðir hafa færzt saman. Það er nokkuð langt um lið- ið frá því að höfuðborgarsvæðið og byggðarlögin fyrir austan fjall urðu svo nátengd, að það tekur ekki lengri tíma að aka til Hvera- gerðis en á milli sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Enda er um- ferðin á þessu svæði mikil. Þetta hefur svo aftur leitt til þess, að á Suðurlandi hafa á undan- förnum árum verið opnuð ný þjón- ustufyrirtæki, sem vert er fyrir höfuðborgarsvæðisbúa að gefa gaum. Eitt slíkt er lítið veitingahús á Stokkseyri, sem nefnist Við fjöruborðið. Það stendur skammt frá sjónum í gömlu húsi en þar er óhætt að fullyrða að hægt er að fá bezta og jafnframt ódýrasta hum- ar, sem kostur er á, í veitingahúsi á íslandi. Það er vel þess virði að skreppa þangað austur eina kvöld- stund og kynnast þessum skemmtilega stað. xxx FYRIR skömmu varð hörmulegt dauðaslys, þegar erlendir ferðamenn reyndu að komast hjá því að aka á kindur, sem skyndi- lega stukku upp á veginn, þar sem þeir vora á ferð. I framhaldi af þeim sorglega atburði urðu nokkr- ar umræður um lausagöngu sauð- fjár og haft var á orði, að Islend- ingar kynnu betur að varast þær hættur en útlendingar. Þetta er áreiðanlega ofmælt. I fyrrakvöld var Víkverji að aka niður af Hellisheiði og þar var eng- ar kindur að sjá. Á sekúndubroti skauzt kind fram fyrir bifreið Vík- verja, sem var á innan við 90 km hraða eins og lög leyfa á þeim slóð- um. Kindin hafði bersýnilega ásamt lambi verið í lægð við vegar- brúnina og engin leið að veita henni eftirtekt. Það munaði hársbreidd að hún yrði fyrir bílnum og hefði verið úti- lokað að koma í veg fyrir það með sérstökum aðgerðum af hálfu bíl- stjóra, sem hemlaði að sjálfsögðu skyndilega. Á eftir Víkveija var löng röð bíla á svipuðum hraða. Það var líka hundaheppni, að þeir lentu ekki allir í einni árekstrarkös og ómögulegt að vita hvaða slys hefðu orðið á fólki, ef svo illa hefði farið. Þetta er gersamlega óviðunandi ástand. Það er af og frá, að það sé hægt að þola lausagöngu sauðfjár á svæðum, þar sem svo mikil umferð er eins og á þessum fjölfarna þjóð- vegi. Lögreglan hefur náð góðum árangri í að hægja á umferðinni. Næsta aðgerð hennar hlýtur að vera að sjá til þess, að fé verði smalað saman á landsvæðum, þar sem fjölfamir þjóðvegir liggja um og það flutt annað. Og svo eiga bfleigendur að borga bændum skaðabætur!! Hannes Hlífar Stefánsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.