Morgunblaðið - 11.08.1998, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1998 55
FÓLK í FRÉTTUM
Köttarar og
Valsarar
hita upp saman
KÖTTARAR, stuðningsmanna-
lið úrvalsdeildarliðsins Þróttar
í fótbolta, buðu stuðnings-
mönnum Valsara í grill og upp-
hitun fyrir leik liðanna sem fór
fram á dögunum. Gleðin var
haldin við Þróttheima og voru
grillaðar pylsur fyrir málaða
og uppáklædda fótboltaaðdá-
endur sem sýndu íþrótta-
mannslega framkomu með því
að hita upp saman fyrir leik-
inn.
Nýr geisladiskur Þróttara
var að sjálfsögðu við höndina
en þar er að finna nokkur fót-
boltalög sem tónlistarmaðurinn
Jón Ólafsson hefur veg og
vanda af. Það heyrir til tíðinda
að íþróttaplata af þessu tagi sé
gefin út því venjulega hafa fé-
lagsliðin látið sér nægja að
gefa út eitt hvatningarlag. Á
myndunum má sjá að vel fór á
með fótboltaunnendum lið-
anna, háum sem lágum.
VINKONURNAR Guðný Vilhjálmsdóttir, Þuríður Magnúsdóttir og
Hera Gulladóttir ætluðu að sjá leik Þróttar og Vals.
KARL Bretaprins á skíðum með Vilhjálmi og Harry en hann er sagð-
ur liafa orðið öskuillur þegar hann sá myndir af glæfralegu sigi
drengjanna.
Glæfralegl sig prinsanna
veldur uppnámi
KARL Bretaprins hefur boðað
Tiggy Legge-Bourke, fyrrverandi
barnfóstru sona sinna, Vilhjálms og
Han-y, á sinn fund vegna fréttar
dagblaðsins News of the World af
glæfralegu sigi drengjanna niður
stífluvegg í Wales. Prinsarnir voru í
heimsókn hjá foreldrum barnfóstr-
unnar þegar blaðið náði myndum af
hinum 13 ára gamla Harry fara nið-
ur 50 metra háan stífluvegg án þess
að vera með hjálm, í gönguskóm eða
með öryggislínu.
„Þau eru óteljandi skiptin sem
Karl hefur gert öllum það ljóst að
Vilhjálmur og HaiTy mega ekki gera
hvað sem þeir vilja því þeir eru eng-
in venjuleg börn,“ var haft eftir nán-
um vini Karls Bretaprins. Hann er
sagður hafa orðið öskuillur þegar
hann sá myndirnar en hinn 16 ára
gamli Vilhjálmur, sem er erfíngi
krúnunnar, mun einnig_ hafa sigið án
alls öryggisbúnaðar. Á myndunum
má sjá Harry fara nánast á hvolfi
niður brattan stífluvegginn og þykir
það bera merki um vítavert gáleysi
allra viðstaddra að öryggis
prinsanna var ekki gætt.
„Fólk sem ógnaði lífi kóngafólksins
fyrr á tímum vai- dregið til Tower of
London þaðan sem stutt var til af-
tökupallsins. Látum einhver höfuð
fjúka að nýju,“ vai- skrifað í dagblaðið
Daily Mirror vegna málsins. Mjög
strangar siðavenjur gilda í kringum
konungsfjölskylduna og ferðast Karl
Bretaprins og Vilhjálmur, sonur hans
og erfingi krúnunnar, aldrei í sömu
flugvél svo eitthvað sé nefnt. Að sögn
talsmanna bresku konungsfjölskyld-
unnar verður atvikið rannsakað.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
ÁSMUNDUR Helgason býður Markúsi Mána Valsara upp á grillaða pylsu.
EIÐUR Rafn Gunnarsson sýndi
og sannaði að sjaldan fellur
eplið langt frá eikinni.
JÓN Ólafsson tónlistarmaður afliendir Maríu Edwardsdóttur nýút-
kominn geisladisk Þróttara, sem er seldur til stuðnings knattspyrnu-
deild félagsins.
Búseturéttur til sölu
BÚSETI umsóknarfrestur til 18. ágúst
2ja herb. 3ja herb. 4ra herh.
Miðholt 1, Mosfellsbæ Trönuhjalli 13, Kópavogi Frostafold 20, Reykjavík
59m2 íbúð, 102 Almennt lán 84m2 íbúð, 302 Félagslegt lán 88m2 íbúð, 301 Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 919.598 Búseturéttur kr. 1.437.065 Búseturéttur kr. 1.130.753
Búsetugjald kr. 32.659 Búsetugjald kr. 37.272 Búsetugjald kr. 42.617
Birkihlíð 2b, Hafnarfirði Berjarimi 1, Reykjavík Berjarimi 1, Reykjavík
67m2 íbúð, 121 Almennt lán 72m2 íbúð, 301 Félagslegt lán 87m2 íbúð, 202 Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 703.211 Búseturéttur kr. 1.243.348 Búseturéttur kr. 1.501.415
Búsetugjald kr. 48.326 Búsetugjald kr. 36.770 Búsetugjald kr. 44.283
Miðholt 1, Mosfellsbæ Skólatún 2, Álftanesi Trönuhjalli 15, Kópavogi
59m2 íbúð, 122 Félagslegt lán 93m2 íbúð, 102 Félagslegt lán 95m2 íbúðir, 202 Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 919.598 Búseturéttur kr. 1.251.024 Búseturéttur kr. 1.622.658
Búsetugjald kr. 26.127 Búsetugjald kr. 33.279 Búsetugjald kr. 41.865
Berjarimi 5, Reykjavík Skólatún 2, Álftanesi Dvergholt 1, Hafnarfirði
65m2 íbúð, 102 Félagslegt lán 93m2 fbúð, 121 Almennt lán 97m2 fbúðir, 121 Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 1.022.295 Búseturéttur kr. 1.251.024 Búseturéttur kr. 1.216.803
Búsetugjald kr. 36.136 Búsetugjald kr. 48.259 Búsetugjald kr. 42.186
3ja herb. 4ra herb. Suðurhvammur 13, Hafnarfirði 1
102m2 íbúð, 301 Félagslegt lán
Frostafold 20, Reykjavík Skólatún 4, Álftanesi Búseturéttur kr. 1.662.089
1 78m2 íbúðir, 202,505,605 Fél. lán 114m2 íbúð, 201 Félagslegt Ián Búsetugjald kr. 45.892
Búseturéttur kr. 1.043.002 Búseturéttur kr. 1.535.041
Búsetugjald kr. 38.425 Búsetugjald kr. 40.470 Laugavegur 146, Reykjavík
93m2 íbúð, 203 Félagslegt lán
Garðhús 4, Reykjavík Dvergholt 1, Hafnarfirði Búseturéttur kr. 1.147.459
92m2 íbúð, 102 Félagslegt lán 97m2 fbúðir, 101 Almennt lán Búsetugjald kr. 38.697
Búseturéttur kr. 1.541.302 Búseturéttur kr. 1.143.603
Búsetugjald kr. 36.452 Búsetugjald kr. 60.645 I Ækranes
Nánari upplýsingar á skrifstofu Búseta hsf. íbúðirnar eru til sýnis 1
eftir samkomulagi til 18. ágúst. Með umsóknum þarf að skila skatt- Lerkigrund 5, Akranesi
framtölum síðustu þriggja ára, staðfestum af skattstjóra, ásamt fjöl- 94m2 fbúð, 102 Félagslegt lán
I skylduvottorði frá Hagstofunni. Búseturéttur kr. 1.098.445
IJthlutun íbúðanna fer fram miðvikudaoinn 19. áaúst kl. 12 að Búsetugjald kr. 39.239
SKEIFUNNI19, 3.HÆÐ. Umsækjendur verða að mæta!
Búseti hefur flutt skrifstofu sína í Skeifuna 19
Nýtt símanúmer 520-5788
Sjá myndir á www.buseti.is