Morgunblaðið - 11.08.1998, Side 60
60 ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐAVERÐ KR. 500 Á ALLAR MYNDIR~<L. 5 OG 7 OG KR 600 KL. 9 OG 11 j
NIKOLAJ COSTER WAtDAL/ MADSMimLSEN PÁLlNAJÓNSDÚWR
& Laurence
LelksUórl: SIMON STAHO ASalframletBentlur
PETER AALBÆK JENSEN og FRIÐRIK ÞÓR
FRIÐRIKSSON Framleltiandl FlENRIK DANSTRUP
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. b. i. 12.
■ 1 FYRIR
■I 990 FUIJKTA
? FERDU í BÍÓ
Alfabakka 8, simi 587 8900 og 587 8905
Hagatorgi, sími 552 2140
WILUS
Einhser veit ol mikið
Duimal sem enginn
átti að geta leyst.
Lögpegtumaður sem
enginn getur stöðvað
|DAN AYKROYD JOHN GOODMAN
Tilboö 400 kr.
Tilboð 400 kr.
www.samfilm.is
DUCHOVNY segir hann og Anderson eiga gott vinnusamband þar sem þau treysti hvort öðru full-
komlega. Þau hittist hins vegar aldrei utan vinnunar.
Duchovny
tjáir sig um
kvenréttindi
NÝJA bíómyndin með skötuhjúun-
um Scully og Mulder í sjónvarps-
þáttaröðinni Ráðgátum heitir X-Fi-
Ies: Fight the Future. Leikarinn
David Duchovny fór í viðtal um
myndina til The Guardian á dögun-
um. Eftir að hafa rætt kvikmyndina
fer blaðamaður að ýja að baráttu
meðleikara hans Gillian Anderson
til að fá jafnhátt kaup og hann.
Þetta umræðuefni fer greinilega í
taugarnar á Duchovny því hann lét
eftirfarandi eftir sér hafa; „Sann-
leikurinn er sá að í Hollywood
vinnur maður sér inn eins mikla
peninga og mögulegt er. Ef Gillian
fær minna útborgað en ég, á hún
að kenna umboðsmanninum sínum
um það, lögfræðingnum eða sjálfri
sér en ekki mér eða kynferði sínu.
Demi Moore er betur launuð en ég,
samt vinn ég jafnmikið og hún. Er
það af því að hún er kona, af því að
hún hefur brjóst? Mér finnst eins
og Gillian sé að ýja að því að ég fái
of mikið borgað, og það fínnst mér
ósmekklegt af henni.“
Og eitthvað er hann pirraður út í
konur gæskurinn; „Mér fínnst óþol-
andi þegar konur vilja meira en
jafnrétti sér til handa. Konur og
menn eru mjög ólík. Samfélagið á
að meðhöndla þau á sama hátt, þau
eiga að fá sama kaup fyrir sömu
vinnu og allt það. En að segja að
við séum ekki ólík, það er hreint
bull,“ sagði Duchovny í sama við-
tali.
Blaðamaður kemur að því að
Mulder bjargi Scully oftar en öfugt
í þáttunum. „Þetta er fáránlegt.
Mulder hefur tapað öllum slagsmál-
um sem hann hefur lent í í þáttun-
um, en Scully unnið öll. Samt er
hún mun minni en ég og ekki jafn-
sterk og það ætti því að vera öfugt.
En þar sem hún er kona er ekki
hægt að láta hana tapa. Konur eru
heilaþvegnar af því að konur verði
að hafa sama rétt og karlar og líka
af því að þeim geti ekki mistekist."
Svo mörg voru þau orð.
JONATHAN Dylan Thomas ætlar að einbeita sér að skól-
anum í vetur.
Thomas
kveður
Handlaginn
heimilis-
föður
JONATHAN Taylor Thom-
as, sem leikur son Tims Al-
lens í Handlögnum heimilis-
föður, hefur ákveðið að
hætta í þáttunum eftir tvo
fyrstu þættina í haust.
Thomas segist vilja fá tíma
til þess að undirbúa sig und-
ir góðan háskóla.
Eftir fyrstu tvo þættina
mun Thomas yfírgefa heim-
ilisfóðurinn handlagna og
verður skýringin sú að hann
ætli á starfsþjálíunarnám-
skeið til þess að fá útrás fyr-
ir áhuga sinn á umhverfis-
málum.“
Thomas sagði í yfírlýs-
ingu að hann væri „þakklát-
ur“ yfírmönnum Disney fyr-
ir að styðja þá ákvörðun „að
einbeita mér betur að nám-
inu“ og „ég á virkilega eftir
að sjá eftir öllum hlátrun-
um“.
Áttunda tímabil Handlag-
ins heimilisfóður hefst í vet-
ur og er talið að þetta verði
það síðasta.
A sldðum
Star
Trek
PARAMOUNT-kvikmynda-
verið hefur greitt tæpa 9
milljarða fyrir heimildar-
myndina „Trekkies“ sem
fjallar um áhangendur fram-
haldsþáttanna og kvikmynd-
anna um Star Trek. Ekki
hefur verið ákveðið hvenær
myndin verður frumsýnd.
Heimildarmyndin var tek-
in upp á 12 mánaða tímabili
frá 1996 til 1997 og er henni
leikstýrt af Roger Nygard.
Þar eru viðtöl við aðalleik-
ara myndanna og þáttanna,
meðal annars Leonard
Nimoy, Brent Spiner og Ka-
te Mulgrew.
En það sem mesta athygli
vekur er umfjöllun um áhan-
gendurna, meðal annars
mann sem tók upp nafnið
James T. Kirk árið 1974,
konu sem vakti athygli fjöl-
miðla þegar hún mætti í St-
ar Trek-búningi í kviðdóm,
stofnanda tungumálaskóla í
Minnesota þar sem fólk get-
ur lært klingon og tann-
læknastofu í Orlando þar
sem allt starfsfólkið er í Star
Trek-búningum.