Morgunblaðið - 11.08.1998, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 11.08.1998, Qupperneq 64
Atvinnutryggingar MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Þýskra feðga er saknað eftir að flugvél týndist nálægt Höfn í gær Myrkur og1 erfíðar aðstæður hömluðu leit LEIT var hætt á miðnætti að flug- vélinni sem týndist með þremur mönnum norðaustur af Höfn í Hornaflrði í gærdag. Von var á síð- ustu leitarmönnum til byggða rétt fyrir klukkan eitt. Ekki var viðlit að leita lengur vegna myrkurs og erf- _^.iðra leitarskilyrða. Vildu stjórnend- ur leitarinnar ekki tefla öryggi björgunarsveitarmanna í tvísýnu því víða leyndust hættur í fjalllend- inu, skriður og hættulegir klettar. Þýskir feðgar voru um borð í vél- inni, flugmaðurinn og tveir synir hans. Flugmaðurinn er 46 ára gam- all og synir hans eru 20 ára og 12 ára. Voru þeir að koma frá Reykja- vík og ætluðu að lenda á Höfn til þess að taka eldsneyti áður en þeir héldu til Færeyja. Tilkynnti að hann væri í aðflugi að Höfn Fiugmaðm- vélarinnar tilkynnti um kiukkan 12.45 að hann væri í að- flugslínu við flugvöllinn á Höfn. Klukkan 13 nam radarinn á Stokks- nesi neyðarkall flugvélarinnar en leit björgunarsveita hófst klukkan 14. Að sögn Arna Birgissonar hjá stjómstöð leitarinnar á Höfn voru leitarskilyrði mjög erfið í gær, þungskýjað, þoka og rigning auk þess sem leitarsvæðið er illt yfir- ferðar. Um 150 björgunarsveitar- menn leituðu í gær. Undir kvöld bættist við 220 manna liðsstyrkur björgunarsveit- armanna allt frá Egilsstöðum suður '*■' ’til Reykjavíkur. Sá mannskapur var settur í hvfld við komuna til Hafnar og átti að ræsa hann til leitar við birtingu í morgun. Um 400 manns munu því leita flugvélarinnar í dag og verður leitarsvæði stækkað. Vonast er til að þyrla Landhelgis- gæslunnar geti tekið þátt í leitinni en hún varð frá að hverfa vegna lé- legs skyggnis í gær. Leit var skipulögð á 50 ferkfló- metra svæði í gær. Aðalleitin var í kringum svonefndan Náttmálstind á um 13 ferkflómetra svæði. Þar var Morgunblaðið/Garðar Sigurvaldason FEÐGARNIR sem saknað er lentu í óhappi við Mývatn í síðustu viku. Var myndin þá tekin af flugmanninum og sonum hans tveimur við vélina. síðast vitað um ferðir flugvélarinn- ar, að sögn leitarstjórnar. Einn leit- armanna, sem Morgunblaðið ræddi við í gær, sagði að þétt þoka hafí verið niður í miðjar hlíðar og skyggni slæmt og efst á tindum hafí skyggni ekkert verið. Voru í sumarleyfí hér og ætluðu að æfa flug Faðirinn og eldri sonur hans eru báðir með flugréttindi. Þeir hafa báðir flogið um það bil 700 flugtíma. Voru þeir hér í sumarleyfi sínu að æfa flug. Þeir komu hingað til lands í síðustu viku frá Færeyjum og lentu fyrst á Höfn þar sem þeir voru tollafgreiddir. Flugu þeir til fleiri staða, svo sem til Akureyrar og Reykjavíkur. Til Mývatns komu þeir miðviku- daginn 5. ágúst sl. Þegar þeir lentu á flugvellinum við Mývatn varð það óhapp að hjólbarði sprakk við lend- ingu. Rann vélin þversum á flug- brautinni. Vélin skemmdist ekki að öðru leyti og engin meiðsli urðu. Flugvél Þjóðverjanna er eins- hreyfils af gerðinni Piper Saratoga og er hún skrásett í Bandaríkjunum. ■ Leitarsvæðið erfitt/4 Morgunblaðið/Þorkell LEITIN skipulögð í stjórnstöðinni á Höfn í gærkvöldi. Afkastageta álvers Norðuráls eykst dag frá degi 60 ker í notkun í lok þessa mánaðar Komutími Keikos staðfestur KEIKO-stofnunin í Banda- ríkjunum sendi frá sér frétta- tilkynningu í gærkvöldi þar sem staðfest er að háhyrning- urinn mun koma til Vest- mannaeyja að morgni fimmtudagsins 10. september nk. Daginn áður verður Keiko settur um borð í C-17-flutn- ingaflugvél bandaríska hers- ins. A leiðinni til Islands mun hún taka eldsneyti úr sér- stakri eldsneytisvél sem fylg- ir henni. Áætluð lending er klukkan 9 að morgni í Vest- mannaeyjum. FRAMLEIÐSLA gengur nokkurn veginn samkvæmt áætlun í álveri Norðuráls á Grundartanga. Fram- leiðslugetan eykst jafnt og þétt og hafa nú verið tekin í notkun 30 ker af alls 60 í fyrri áfanga% Að sögn Þórðar S. Óskarssonar, framkvæmdastjóra starfsmanna- og stjórnunarsviðs Norðuráls, er gert ráð fyrir að önnur 30 ker verði komin í gang í lok þessa mánaðar og þar með verði helmingur verk- smiðjunnar kominn í rekstur. Ekki verður byrjað að gangsetja hin 60 kerin í síðari hluta áfangans fyrr en í nóvember eða á þeim tíma sem Landsvirkjun er reiðubúin að útvega orku, að sögn Þórðar. Þá má gera ráð fýrir ef allt gengur að ósk- um að verksmiðjan verði komin í fullan rekstur í lok ársins, að hans sögn. 18.000 tonna súrálsfarmur losaður með nýjum búnaði Vandamál komu upp í júní við losun súráls úr skipinu MS-Stril- berg yfír í súrálsgeyma Norðuráls vegna bilunar í tækjabúnaði skips- ins. Þessi vandamál eru nú að baki þar sem Norðurál hefur tekið í notkun nýjan og fullkominn losun- arbúnað. Var 18.000 tonna farmi dælt með hinum nýja búnaði úr súrálsskipi sem kom 4. ágúst með hráefni frá Surinam. Var losun lokið síðdegis 7. ágúst. „Þetta er alveg nýr losunar- búnaður, sem virkaði mjög vel,“ sagði Þórður. Nú starfa um 115 starfsmenn í álveri Norðuráls á Grundartanga. Hannes Hlífar vann sterkt mót HANNES Hlífar Stefánsson stórmeistari vann sigur á skákmóti sem fram fór í Antwerpen í Belgíu og lauk síðastliðinn sunnudag. Hlaut hann 7‘A vinning af 9 mögulegum og varð einn I efsta sæti, hálfum vinningi yfir helstu keppinautum sínum. Mótið var bæði sterkt og fjöl- mennt en frammistaða hans á mótinu svarar til 2.744 skák- stiga sem er með því hæsta sem íslenskur skákmaður hef- ur náð. Þetta er annar sigur Hannes- ar á skákmóti á stuttum tíma. ■ Stórglæsilegur sigur/52
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.