Morgunblaðið - 27.09.1998, Page 3
Sem barn heillaðist ég af Reykjalundi. Umfram
allt vegna þess að þar voru Legókubbarnir
framleiddir. Fyrir mér voru þeir makalaust
skemmtilegt fyrirbæri, uppspretta takmarkalausra
möguleika og ótal ævintýra þegar kubbi var raðað
við kubb og draumahús og hallir risu og leikurinn
lifnaði. Enn tengist Reykjalundur ævintýrum í huga
mínum, ævintýrum raunverulegrar uppbyggingar í
þágu umönnunar og endurhæfingar.
Uppbyggingin á Reykjalundi og það starf sem þar
er unnið er einstakt undur og ævintýri. ( skugga
heimsstyrjaldar tóku berklasjúklingar höndum
saman við ódeiga hugsjónamenn og kölluðu á
samstarf og samstöðu landsmanna um átak til
endurhæfingar. Þeir náðu einstæðum árangri.
Þjóðin öll hefur uppskorið ríkulega, í betri heilsu og
líðan hinna ótal mörgu sem hafa sótttil Reykja-
lundar bót meina sinna og efldan þrótt og
endurnýjað þrek til að takast á við lífið. ísland er til
muna auðugra fyrir vikið.
Stöðugt eykst þörfin á endurhæfingu og
kröfurnar vaxa um skjóta og góða þjónustu.
Þegar SÍBS leitar nú til þjóðarinnar um aðstoð við
að efla og auka þennan þátt starfseminnar á
Reykjalundi þá megum við ekki láta okkar hlut eftir
liggja. Við skulum muna að við stöndum í
þakkarskuld sem þjóð. Við njótum svo margs vegna
gjafmildi og örlæti fólks sem hefur verið reiðubúið
að láta gott af sér leiða. Hvar værum við stödd án
þess? Nú er leitað til okkar um hjálp. Ég vil með
gleði leggja því lið með svolitlu fjárframlagi, leggja
af mörkum lítinn kubb í uppbygginguna á
Reykjalundi. Vertu með! Ég er þakklátur vegna
þessa árangurs sem ég hef séð af starfinu þar og
þakklátur fyrir að fá að taka þátt í því ævintýri. Ég
bið Guð að blessa Reykjalund, allt sem þar er unnið
og starfað og sérhvern þann sem þangað leita
hjálpar, og framlögin okkar stór og smá til þessa
mikilvæga verkefnis.
r-----------------------------------------------------------------------------------------------
Tll lesenda
Þetta blað, sem er aukaútgáfa af SÍBS fréttum, er fylgirit Morgunblaðsins og kemur út í yfir
60 þúsund eintökum. í blaðinu er gerð grein fyrir væntanlegum framkvæmdum á
Reykjalundi og landssöfnuninni sem hefst í Ríkissjónvarpinu nk. föstudag.
Ennfremur koma fram í viðtölum og öðrum skrifum ýmsar upplýsingar um SÍBS,
Happdrætti SÍBS, Reykjalund og stöðu endurhæfingarmála.
Að blaðinu hafa, auk SÍBS félaga, unnið Auglýsingastofan Hér og Nú, Jóhannes Long
Ijósmyndari, Jón Birgir Pétursson blm. og Steindórsprent Gutenberg. Ritstjóri og
ábyrgðarmaður er Sigurjón Jóhannsson.
^^lwnniii hhhhhhhhhhhh 'ihihiwmiiiiwk
Landssöfnun 2.-4. október
fyrir endurhæfingu á Reykjalundi