Morgunblaðið - 27.09.1998, Side 7
Haukur Þórdarson, yfiriæknir a
Reykjalundi
Samvinna við sjúklinga
félög er mjög æskileg
Haukur Þórðarson, yfirlæknir á Reykjalundi,
hefur starfað þar í rúm 36 ár og lætur af
störfum vegna aldurs nú um áramótin. Við spyrjum
hann fyrst hvers vegna Reykjalundur hefði orðið
miðstöð endurhæfingarstarfs á íslandi.
- Endurhæfing sem þjónustuþáttur fór að gera sig
gildandi hér á íslandi um miðja öldina.
Reykjalundur hóf starfsemi sína árið 1945 og sú
starfsemi var vissulega endurhæfingartilboð þess
tíma. Þegar berklarnir voru horfnir breyttist hlutverk
Reykjalundar. Segja má að
endurhæfingarstarfsemin hafi þróast þar eftir
hendinni, en það var að sjálfsögðu ásetningur okkar
að mæta þörf landsmanna á þessu sviði.
Horft til nýrrar aldar
Nú, þegar horft er til nýrrar aldar, er nauðsynlegt að
gera sér grein fyrir með hvaða hætti við mætum
aukinni þörf fyrir endurhæfingu. Sú ákvörðun að
hefja hér byggingu þjálfunarhúss og sundlaugar er
liður í að skipuleggja endurhæfingarstarfið á
Reykjalundi á fyrstu áratugum næstu aldar.
- Má ekki hugsa sér að Reykjalundur yrði mun
stærri stofnun en hún er í dag?
- Reykjalundur er í dag allstór stofnun á íslenskan
mælikvarða með 170 rúm. Ég held að ekki sé
grundvöllur að fjölga þeim, en það má auka
gegnumstreymið, fjölga þeim sem koma og fara,
með skilvirkari vinnubrögðum í endurhæfingunni.
- Er hugsanlegt að stór félagasamtök, t.d.
verkalýðsfélög, kæmu til samstarfs við ykkur,
kannski með eignaraðild?
- Ég sé ekki hvernig það gæti orðið, en samvinna
við sjúklingafélög er mjög æskileg. Það hefur
myndast samstaða með einum fimmtán félögum
sjúklinga og fatlaðra um söfnunina sem er
framundan. Kannski gætu myndast fleiri slíkir
stuðningshópar í framtíðinni í sambandi við
starfsemina hér.
- Hvernig má nýta nýju aðstöðuna fyrir aðra en þá
sem dvelja á Reykjalundi?
- Við sjáum fyrir okkur að geta nýtt þessa aðstöðu
fyrir aðra eftir að vinnudegi sjúklinganna lýkur hér-
frá um klukkan 5 síðdegis og fram eftir kvöldi og
jafnvel um helgar. Það er rekin HL stöð í Reykjavík
með ágætum og það kann að vera þörf fyrir aðra
slíka hér á þessu svæði. Slík aðstaða gæti skapast
hér.
Rekstrarerf iðleikar
- Við erum flest mjög ánægð með Reykjalund, en
er eitthvað sem vantar eða gera má betur?
- Það er alltaf barningur með sjálfan reksturinn,
fjárhagsgrunninn, og fer versnandi. Við reynum að
sinna þörfum sem flestra sjúklingahópa. Við teljum
að nú sé nægilegt framboð á þjálfun fyrir hjarta- og
lungnasjúklinga. Á gigtar- og miðtaugasviðum
önnum við ekki eftirspurn, en aðrir aðilar eru með
endurhæfingartilboð fyrir þessa sjúklingahópa. Það
hefur verið rætt um sértæka endurhæfingu fyrir
krabbameinssjúklinga en málið er enn á
umræðustigi.
- Nú ertu að láta af störfum sem yfirlæknir um
áramótin. Hvað er þér efst í huga við þau tímamót?
- Já, ég hef starfað hér í rúm 36 ár. Á þessum tíma
hefur orðið gífurleg og jákvæð breyting á
rekstrinum og það er vissulega ánægjulegt að líta
til baka yfir þetta tímabil. Það kemur maður í
manns stað og ég hef engar áhyggjur af þróun
endurhæfingar hér á Reykjalundi í framtíðinni.
Landssöfnun 2.-4. október
fyrir endurhæfingu á Reykjalundi