Morgunblaðið - 27.09.1998, Qupperneq 10
Hjarta íslens
Rætt við Björn Ólaf Hallgrímsson, formann stjórnar Reykja-
lundar, um þá miklu uppbyggingu í þágu sjúkra, sem ákveðið
hefur verið að ráðast í á Reykjalundi
„SÍBS er staðráðið í að gera Reykjalund að
endurhæfingarmiðstöð framtíðarinnar. Við erum að
stíga stórt skref fram á við. Ýmsir þröskuldar hafa
staðið okkur í vegi. Við höfum beðið færis og
safnað kröftum en nú blásum við til leiks." sagði
Björn Ólafur Hallgrímsson formaður stjórnar
Reykjalundar í viðtali. „Það nægir ekki að
Reykjalundur lifi á fornri frægð, hann verður sem
endranær að þróast með þeirri bestu þekkingu og
nýjungum í endurhæfingu sem völ er á. Þar nefni
ég til dæmis vatnsmeðferð, sem auðveldar mjög að
ná árangri í endurhæfingu og sjúkraþjálfun".
Það reyndist ekkert létt verk að ná í Björn Ólaf
Hallgrímsson, þegartaka átti við hann viðtal. Hann
er nýkominn af fundi hjá SÍBS, og þegar í hann
næst, er það í gegnum gemsa. Hann er nefnilega á
Vesturlandsveginum á leiðinni upp á Reykjalund á
annan fund. Það er eitthvað mikið að gerast. Björn
Ólafur er formaður stjórnar Reykjalundar en situr
auk þess í stjórn SÍBS. Þrátt fyrir allar breytingarnar
í þjóðfélaginu breytist það þó ekki, - að ævinlega
finnast menn sem fórna af tíma sínum í ýmis störf
fyrir SÍBS og Reykjalund án þess að endurgjald sé
sett á oddinn. Árangur og þakklæti eru mörgum
verðmætari en fjármunir.
Reykjalundur má ekki staðna
Björn Ólafur er hæstaréttarlögmaður og rekur stofu
innst við Suðurlandsbraut. Hann gefur sér góðan
tíma til að ræða málefni Reykjalundar, en þar hefur
hann verið stjórnarformaður í næstum fimm ár.
Hann kom inn í starfsemina gegnum Astma- og
ofnæmisfélagið sem er eitt þeirra félaga sem fengið
hefur aðild að SÍBS í tímans rás. Forystumenn
berklasjúklinga fyrir aldarfjórðungi voru bæði
víðsýnir og framsýnir og ákváðu að taka undir sinn
verndarvæng fleiri samtök sjúklinga, þegar Ijóst
þótti að berklaveikin væri nánast yfirunnin. Síðar
hafa svo Landssamtök hjartasjúklinga bæst í hópinn
og lætur þá nærri að félagatal SÍBS sé orðið um 6
þúsund manns. SÍBS er nú komið á sjötugsaldurinn
og mun vera elst íslenskra sjúklingafélaga og
fjölmennast.
Birni Ólafi er greinilega mjög hugleikið að efla enn
og styrkja Reykjalund. Góð þjónusta á að verða enn
betri. „Við ætlum ekki að stækka reksturinn núna
með fjölgun sjúkrarúma, hvað sem síðar verður, en
þau eru um 170 í dag. En við ætlum að stórbæta
þjónustuna og gera hana árangursríkari.
Reykjalundur má ekki staðna. Hann skal verða í
forystu endurhæfingarstarfs hérlendis og jafnvel
erlendis eins og hann hefur ætíð verið. Með
fyrirhugaðri byggingu sundlaugar, þjálfunarlaugar
og stórum þjálfunarsal komum við upp nýju
þjálfunarferli eða stórendurbættu. Fyrst og fremst
verður það gagnvart þeim sem eru inniliggjandi
sem þjónustan batnar. En það opnast um leið ýmsir
nýir möguleikar til þjónustu í anda markmiða SÍBS.
Þarna er í dag lítill tækjasalur, mjög óhentugur
hópþjálfunarsalur og pínulítil þjálfunarlaug á mjög
óhentugum stað niðri í kjallara. Núverandi aðstaða
er dreifð í byggingum Reykjalundar og því mjög
óþénug, auk þess sem flytja hefur þurft sjúklinga-
hópa til sund- og þrekþjálfunar í sundlaug Mosfells-
bæjar. Með nýbyggingunum einföldum við því
ýmsa þætti sem eru til trafala í dag. Laugar- og
þjálfunarbygging verður í beinum starfstengslum
og tengjast um leið núverandi þjálfunarbyggingu í
stað þess að vera slitið í sundur hvert frá öðru. Með
þessu móti verður minna um tilflutning starfsfólks
og sjúklinga milli staða, vinnuafl og ýmis kostnaður
sparast og dýrmætur tími nýtist til muna betur. Á
hinn bóginn leiðir aukið endurhæfingarrými af sér
einhvern viðbótarkostnað í rekstri, en ég tel
kostnaðaraukann verða hverfandi, þegartillit er
tekið til þess sem á móti sparast", sagði Björn
Ólafur þegar hann er beðinn að lýsa í stuttu máli
þeim framkvæmdum sem framundan eru á
Reykjalundi.
Menn koma út með nýja lífssýn
Björn Ólafur er hreykinn af þeim árangri sem
ótvírætt hefur náðst á Reykjalundi, fyrst í stað með
berklasjúklinga og síðustu tvo áratugina með
sjúklinga með hina ýmsu sjúkdóma, sem flestir
hafa hlotið mikla bót og endurnýjun krafta sinna
með árangursríkri endurhæfingu á Reykjalundi.
„Mér er sagt af mörgum sem til þekkja og reynt
hafa að menn komi gjörbreyttir frá okkur, ekki bara