Morgunblaðið - 27.09.1998, Page 27
Ur ýmsum áttum
Gott að vera hérna og
starfsfólkið er frábært
Sverrir Örn Ólsen, úr Njarðvíkum sat á bekk úti
undir beru lofti á Reykjalundi. Hann lá fram á
hækjurnar og naut veðurblíðunnar. Stór, kröftugur
maður með hækjur. Hvað hafði komið fyrir?
- Ég lenti í tveimur bílslysum og er hér í
endurhæfingu. Ég hlakkaði til að koma hingað því
ég hafði heyrt látið vel af staðnum úr mörgum
áttum. Ég hef trú á því að ég nái mér á strik aftur.
- Hvernig lentirðu í þessum slysum?
- í fyrra skiptið lenti ég í því að mæta bílstjóra sem
hafði sofnað undir stýri en hitt slysið var í snjókófi -
kannski átti ég ekkert að vera á ferðinni þá. En þetta
fór svona.
- Hvað ertu búinn að vera lengi hérna?
- Þetta er þriðja vikan mín. Það er gott að vera
hérna og starfsfólkið er frábært.
„Ég hef margar ástæður til að styðja þetta átak. Það er mikils virði fyrir hjartasjúklinga að byggja upp
þrek að aðgerð lokinni. Þá er ekki síður mikilvægt fyrir börn, sem eru t.a.m. með ör um allan líkamann
eftir hjartaskurð, að geta farið í sund með börnum sem eins er ástatt hjá. Alltof mörg börn, sem bera
einhverskonar lýti eða eru fötluð, vilja ekki sýna sig á stóru sundstöðunum. Því styð ég nýja sundlaug
á Reykjalundi".
(Margrét M. Ragnars, stjórnarmaður í Landssamtökum hjartasjúklinga).
„Oft er þörf en nú er nauðsyn. Kæru landsmenn, ég veit að þetta framtak fær góðan hljómgrunn hjá
þjóðinni og átakið mun ganga vel".
(Hjalti Ragnarsson, formaður Félags heilablóðfallsskaðaðra).
Heilsan er dýrmætasta eign hvers manns. Hvaða hlutverk getur verið göfugra en að aðstoða þá sem
hafa glatað henni til að öðlast hana að nýju? Það getum við gert - hver og einn - með framlagi til
endurhæfingarstöðvarinnar að Reykjalundi.
(Sigurrós Sigurðardóttir, Geðvernd).
V_______________________________________________________________________________________________________/
Landssöfnun 2.-4. október
fyrir endurhæfingu á Reykjalundi
V