Morgunblaðið - 27.09.1998, Blaðsíða 30
Ur ýmsum áttum
Sagt um Reykjalund
Endurborinn
„Eftir allt þetta ferli er ég rétt eins og nýendurborinn
maður, og það vorum við allir félagarnir, þökk sé
afbragðs fagfólki á Reykjalundi" (Þorsteinn Gíslason,
fyrrum skipstjóri og fiskimálastjóri í viðtali við Dag um
dvöl sína sem hjartasjúklingur á Reykjalundi).
Gæfa að vera hérna
„Þetta er sér gæfa að fá að vera hérna", segir
Ragnheiður og Svala bætir við að blaðamanni sé
heimilt að nota efsta stig lýsingarorða yfir alla
starfsemina á Reykjalundi. (Úrviðtali í SÍBS fréttum,
janúar 1998).
Skilar árangri
Um 89.6% þeirra sem dvalist hafa á Reykjalundi
segja að meðferðin hafi bætt möguleika þeirra á að
lifa eðlilegu lífi, eða eins og sjúkdómur þeirra leyfir.
Gistihús lækningar og
kærleiksþjónustu
„Hinir bjartsýnu og djörfu brautryðjendur verð-
skulda stuðning allrar þjóðarinnar... Reykjalundur er
gistihús lækningar og kærleiksþjónustu. (Sigurgeir
Sigurðsson, biskup árið 1947).
W e m » ii m §air«iítts6S#ii» G e r tt u 6» e r g
r.«í: WEWAm*, - SÍM»! ®£.7 - SM ÆS77 ftr.iQ/
HAMPIÐJAN
Handverkið eflir sjálfsstyrk
vistmanna
Þessar tvær stúlkur voru að föndra þegar okkur bar að
garði í iðjuþjálfunaraðstöðu á Reykjalundi. Lára Ólafs-
dóttir, til hægri, er að mála gifsmynd sem hún hefur
mótað sjálf. Kristín Kristjánsdóttir er hér að skoða
málverk eftir annan vistmann, en Kristín var reyndar
að vinna við körfugerð í öðru herbergi rétt áður en
myndin var tekin. Þær stöllur eru í föndri klukkutíma í
senn þrisvar í viku milli 11 og 12. Vistmenn geta valið
sér viðfangsefni eftir áhugasviði - málning, gifs, leður,
körfugerð, silkimálun, saumar og smíðar.
Þetta kom fram í spjalli við Þórunni Gunnarsdóttur,
iðjuþjálfa. Hún var spurð hvort þessi tegund iðju-
þjálfunar hefði breyst umtalsvert á síðustu árum?
- Já, nú er t.d. mikill áhugi fyrir gifssteypu.
Körfugerðin er vinsæl núna, en vefnaður hefur lagst
af, en kann að blómstra síðar - það eru dálitlar
tískusveiflur í þessu sem öðru. Þá er í tísku núna að
flétta kransa úr náttúrulegum efnum.
Lilja Ingvarsson, yfiriðjuþjálfi, sagði af þessu tilefni
að handverkið efldi sjálfsstyrk vistmanna og sjálfs-
mynd. Hugað væri m.a. að styrkingu handa og
félagsleg samskipti og samvera væri líka stór þáttur í
þessari vinnu.
- Eru vistmenn áhugasamir?
- Mjög áhugasamir. Margir vilja koma og vinna hér
utan dagskrár en við höfum hvorki mannafla né
húsnæði til að sinna almennum þörfum á þessu
sviði. Það væri gaman að geta boðið upp á eitthvað
slíkt síðar meir.