Morgunblaðið - 03.10.1998, Side 2
2 LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Jafnréttisráð um tilnefningu
dómara við Mannréttindadómstól
Harmað að stjórn-
völd virði ekki
skuldbindingar
JAFNRÉTTISRÁÐ harmar að
íslensk stjórnvöld hafi ekki virt
lagalegar og alþjóðlegar skuld-
bindingar sínar með tilnefningu
þriggja karla í embætti dómara
við Mannréttindadómstól Evr-
ópu, sem tekur til starfa 1.
nóvember næstkomandi.
Jafnréttisráð segir að þegar
aðalritari Evrópuráðsins hafi
leitað tilnefninga í embætti
dómara frá aðildarríkjum hafi
verið vakin athygli á tilmælum
ráðherraráðs Evrópuráðsins til
aðildarríkjanna um jafnara hlut-
fall kynja meðal dómara í hinum
nýja Mannréttindadómstól.
Ráðherraráðið hefði hvatt
rikisstjórnir aðildarríkjanna til
þess annars vegar að stuðla að
jafnara hlutfalli kvenna og karla
við útnefningu í dómstólinn og
ti-yggja hins vegar að þau sem
tilnefnd væru, karlar sem konur,
væru búin þeirri hæfni og
reynslu að þau ættu sambæri-
lega möguleika á að ná kjöri.
I dómstólnum situr einn
dómari frá hverju aðildarland-
anna, en hvert þeirra átti að til-
nefna þrjá og teldist sá rétt kjör-
inn frá hverju landi sem fengi
flest atkvæði þingmanna á þingi
Evrópuráðsins.
Island tilnefndi þrjá karla,
hæstaréttai’dómarana Markús
Sigurbjömsson og Arnljót
Bjömsson og Gauk Jömndsson,
umboðsmann Alþingis, en mælt
var með kjöri hans.
Sniðgengu eigin tilmæli
„Með tilnefningu þriggja karla
ákveða íslensk stjórnvöld að
sniðganga tilmæli ráðherraráðs
Evrópuráðsins, tilmæli sem þau,
með aðild sinni að ráðherra-
ráðinu, hafa sjálf átt þátt í að
samþykkja. Nefna má að Island
eitt Norðurlanda tilnefndi ekki
konu,“ segir í samþykkt Jafn-
réttisráðs.
„Jafnréttisráð harmar þá af-
stöðu íslenskra stjórnvalda að
virða ekki lagalegar og alþjóðleg-
ar skuldbindingar sínar. Með
þessu er þó á engan hátt vegið að
þeim þremur körlum sem til-
nefndir vora. Þeir era allir hæfir
til þess hlutverks sem þeir vora
tilnefndir til. Staðreynd er hins
vegar að ísland á einnig hæfar
konur til að setja á þann lista,“
segir Jafnréttisráð.
Þorsteinn Pálsson, dómsmál-
aráðherra vildi ekki tjá sig um
ályktun Jafnréttisráðs þegar
Morgunblaðið hafði samband við
hann í gær þar sem ályktunin
hafði ekki borist honum.
Morgunblaðið/Ásdís
Haustlitir í Laugardal
Haustið er komið. Lauf trjánna er á göngu utan alfaraleiða eða á
og grösin eru orðin litskrúðug og bekk í útivistarperlu á borð við
þess vegna kjósa margir helst Laugardalinn í miðri Reykjavík-
haustið til útivistar, hvort heldur urborg.
Samkeppnisstofnun mælist til að Landssími lækki ekki GSM-þjónustu
Kröfu Tals um að lækkanir
verði afturkallaðar hafnað
SAMKEPPNISYFIRVÖLD höfnuðu í gær
beiðni Tals hf. um bráðabirgðaúrskurð þar sem
farið er fram á að Landssími Islands hf. aftur-
kalli lækkanir sínar á farsímaþjónustu að undan-
förnu. Samkeppnisstofnun beinir hins vegar
þeim tilmælum til Landssímans að ráðast ekki í
frekari verðlækkun á GSM-þjónustu félagsins á
meðan rannsókn samkeppnisyfirvalda stendur
yfir.
I bréfi Samkeppnisstofnunar til Tals segir
meðal annars að Samkeppnisstofnun telji að
ekki séu á þessu stigi málsins skilyrði til þess að
taka bráðabirgðaákvörðun samkvæmt 8. gr.
samkeppnislaga. Samkeppnisstofnun beini hins
vegar þeim eindregnu tilmælum til Landssíma
íslands hf. að ráðast ekki í frekari verðlækkun á
GSM-þjónustu félagsins á meðan rannsókn sam-
keppnisyfírvalda stendur yfir. Meðferð málsins
verður hraðað eins og unnt er að því er fram
kemur í úrskurði Samkeppnisstofnunar.
Guðmundur Bjömsson, forstjóri Landssíma
íslands hf., segir að tilmæli Samkeppnisstofnun-
ar verði skoðuð og fyrirtækið vilji vinna með
samkeppnisyfirvöldum.
„Okkur þætti miður ef verðlækkanir á
símaþjónustu yrðu stöðvaðar og eram við þá
með hag neytenda í huga. Þegar samkeppni var
innleidd hér átti hún að leiða til lægra vöruverðs.
Við sjáum þessa samkeppni alls staðar, í mat-
vöra, fjölmiðlum, ferðaþjónustu og nánast í
hverju sem er. Okkur þætti það mjög á skjön við
það sem er að gerast annars staðar ef stoppa
ætti verðlækkanir á farsímaþjónustu. En það er
ekkert í þessum úrskurði sem segir það,“ segir
forstjóri Landssímans.
Þórólfur Arnason, forstjóri Tals hf., segist
vera ánægður með niðurstöðu Samkeppnisstofn-
unar. „Það er verið að skoða málið í heild sinni
og það rannsakað. Þetta er að minnsta kosti
fyrsta vísbending þess að Landssímanum eru
settar hömlur á sínum verðbreytingum meðan
rannsókn stendur yfir,“ segir Þórólfur.
Að hans sögn standa vonir til þess að niður-
staða liggi fyrir í málinu í lok október, en Lands-
síminn hefur frest til 15. október til þess að skila
inn skýringum til samkeppnisyfirvalda.
Tal hf. sendi Samkeppnisstofnun hinn 22.
september erindi vegna meintra samkeppnis-
hamlandi aðgerða Landssíma íslands. í erindinu
er krafizt algers aðskilnaðar GSM-þjónustu
Landssímans frá annarri starfsemi fyrirtækis-
ins, þannig að sett verði á fót sérstök rekstrar-
eining ellegar sjálfstætt fyrirtæki. I erindinu er
þess jafnframt krafizt að GSM-einingin sé metin
á markaðsvirði, þar sem ekki séu aðeins metnar
eignir og búnaður við yfirtöku heldur einnig
samningar, aðstaða, viðskiptavild og aðrir þeir
þættir, sem komi við sögu við verðlagningu fyr-
irtækja.
Þá krefst Tal þess að GSM-eining Lands-
símans beri eðlilega markaðsvexti af skuld
sinni við Landssímann og greiði fyrir þátttöku í
yfirstjórn fyrirtækisins, stoðdeildum, dreifi-
kerfi, fasteignum og tölvuvinnslu. Tal krefst
þess jafnframt að þeir starfsmenn GSM-
þjónustunnar, sem fara með daglega stjórn,
skuli ekki jafnframt gegna starfi hjá öðrum
rekstrarsviðum. Auk þess fór Tal fram á að
Landssímanum verði gert að taka til baka ný-
lega lækkun á verði GSM-þjónustunnar og er
það sú beiðni sem tekin var fyrir hjá Sam-
keppnisstofnun í gær.
Héraðsdémur
Reykjavíkur
Dæmdir í
tveggja og
sex ára
fangelsi
ÞRÍR menn vora dæmdir í
fangelsi í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær fyrir
margháttuð brot á almennum
hegningarlögum. Alvarleg-
ustu brotin vora framin 18.
nóvember 1997 þegar hinir
ákærðu bratust inn í íbúð á
Kleppsvegi í Reykjavík, mis-
þyrmdu húsráðanda, stálu
verðmætum fyrir tvær millj-
ónir og skildu húsráðanda
bjargarlausan eftir. Hlaut
einn árásarmannanna, Einar
Sigurjónsson, sex ára fangels-
isdóm og annar, Brynjólfur
Jónsson, tveggja ára fangels-
isdóm. Þeir hafa báðir hlotið
um tug refsidóma á liðnum
áram fyrir ýmis brot. Félagi
þeirra hlaut fimm mánaða
fangelsi.
Bundu á höndum
og fótum
Lögregla var kvödd að
Kleppsvegi 90 18. nóvember
sl. kl. 2.59 þar sem fyrir var
brotaþoli. Kvaðst hann hafa
orðið fyrir árás þriggja
manna, sem rótuðu í hirslum
hans og höfðu á brott með sér
ýmis verðmæti. Hafi þeir
bundið sig á höndum og fót-
um, sett snöra um háls sér og
skilið sig þannig eftir liggj-
andi á gólfinu í forstofunni.
Auk þess hafi þeir haft í hót-
unum við hann. Árásarmenn-
imir vora handteknir sama
dag og viðurkenndu þeir allir
aðild sína að málinu. Þeir
vora úrskurðaðir í gæslu-
varðhald sem dregst frá fang-
elsisdómi þeirra.
Olympíu-
skákmótið
Tap gegn
Portúgal
ÍSLENDINGAR töpuðu fyr-
ir Portúgölum með einum og
hálfum vinningi gegn tveimur
og hálfum á Olympíuskák-
mótinu í Elistíu, höfuðborg
rússeska sjálfsstjórnar-
lýðveldisins Kalmykíu í gær.
Þröstur Þórhallsson, Jón
Garðar Viðarsson og Helgi
Áss Grétarsson gerðu jafn-
tefli í sínum skákum en Jón
Viktor Gunnarsson tapaði.
Af öðrum úrslitum má
nefna að Bandaríkjamenn
töpuðu fyrir Rússum, lVz-2 '/2
og Ungverjar unnu Svía með
sama mun.
Sérblöð í dag
A LAUGARDOGUM
¥ 17
LLaöl>i\
ecco
Cangur Itltint
Með
blaðinu í
dag fylgir
8 síðna
auglýs-
ingablað
frá
ECCO,
„ECCO -
gangur
lífsins".
Hlynur Stefánsson leik-
maður Morgunblaðsins/BI
Genk vill framlengja
samninginn við Þórð/B1
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is