Morgunblaðið - 03.10.1998, Page 10
10 LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Stærstur hluti þjóðarinnar í útgerð?
Hugmynd Davíðs Oddssonar forsætisráðherra um að
stærstur hluti þjóðarinnar taki þátt í útgerð sem hann
setti fram 1 stefnuræðu sinni á Alþingi í fyrradag fær
varfærnislegar móttökur hjá nokkrum stjórnmála-
x /
mönnum og formanni LIU. Segja þeir hana ekki nógu
mótaða til að hægt sé að fjalla mikið um hana.
Morgunblaðið/Ásdís
Davíð Oddsson telur mikilvægt að skapa
meiri sátt um sjávarútveginn
Kemur til greina að
bj óða hlutafj árafslátt
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
segir að ríkisvaldið geti beitt sér
með formlegum og óformlegum
hætti fyrir þvi að almenningur
eignist í auknum mæli hlut i sjávar-
útvegsfyrirtækj-
um. Hann segir
mikilvægt að
skapa meiri sátt
um sjávarútveg-
inn og telur koma
til greina að ríkis-
valdið stuðli að
slíkri þróun með
því að bjóða sér-
stakan afslátt vegna hlutafjár-
kaupa.
Davíð sagði að sú hugmynd, sem
hann setti fram í stefnuræðu á Al-
þingi, hefði þroskast í kjölfar vel
heppnaðrar sölu á bréfum í Lands-
banka Islands. Þetta væri ekkd að
öllu leyti ný hugmynd, en salan á
Landsbanknum sýndi að það væri
hugsanlega jarðvegur fyrir hana
núna.
„Við sem förum fyrir ríkisstjórn-
inni teljum að í öllum meginatriðum
hafí okkar fiskveiðistjórnunarkerfi
verið hagstætt að því leyti að sjáv-
arútvegsfyrirtækin hafa náð að
hagræða og styrkjast. Á hinn bóg-
inn er vitað að meðal þjóðarinnar
hefur verið óánægja með vissa
þætti og ákveðin tortryggni verið
uppi. Eg hef talið að það væri þýð-
ingarmikið að svo mikilvæg at-
vinnugrein eins og sjávarútvegur-
inn er nyti almenns trausts í land-
inu og um hana yrði friður.
Hagnaður fari fljótt
út í þjóðfélagið
Menn eru að tala um að leggja á
veiðileyfagjald, en segja jafnframt
að hagur sjávarútvegsins sé þannig
núna að veiðileyfagjald hlyti að
verða afar lágt. Þeir búast hins veg-
ar við því að í framtíðinni verði sjáv-
arútvegurinn gríðarlega öflugur og
þar myndist gríðarlegur gróði. Þá
veltir maður fyrir sér hvort ekki sé
hægt að stuðla að því að eignar-
dreifingin í sjávarútegi verði mun
meiri en nú er og í beinni tengslum
við almenning í landinu þannig að ef
hagur greinarinnar batni svo mjög,
sem margir spá, flæði sá hagnaður
fljótt út í þjóðfélagið."
Davíð sagði að hann væri ekki að
segja að þessi hugmynd væri ein-
hver endanleg lausn. Það væri hins
vegar ástæða til að ræða þetta og
kanna gaumgæfilega allar hliðar
málsins.
„Mér finnst hins vegar viðbrögð
sumra við þessu vera dálítið kynd-
ug. Ég hefði talið að menn myndu
taka svona hugmyndum með opn-
um huga og átta sig á að þarna er
kannski að finnast leið til þess að
komast hjá þvi sem þeir hafa óttast,
að sá mikli hagnaður, sem þeir telja
að verði, muni lenda aðeins á fárra
manna höndum. Þetta gæti annars
vegar verið friðsamleg leið til að
tryggja að almenningur njóti ágóð-
ans með venjulegum markaðsleg-
um hætti í gegnum skatt og mark-
aðslögmálin, eins og við gerum
núna og hins vegar myndi almenn-
ingur njóta þess í gegnum almenna
eignadreifingu.
Fyrir mér vakir að við náum að
halda sátt um sjávarútveginn; hann
nái að eflast eins og hann hefur ver-
ið að gera á undanfómum árum,
tortryggni verði eytt og menn telji
að sanngjarnar lausnar hafi verið
leitað," sagði Davíð.
„Ríkisvaldið getur beitt sér fyrir
þessu með formlegum og óformleg-
um hætti, bæði í samráði við út-
vegsmenn og jafnframt gæti ríkis-
valdið beitt sér fyrir því að þessar
breytingar gengju hratt fyrir sig
með ákveðnum tilboðum varðandi
afslátt vegna hlutafjárkaupa. Það
er ómögulegt að hafa mikla ósátt
um þessa atvinnugrein og ég tel
mig bera nokkra skyldu til þess
meðan ég gegni þessu starfi, að
skoða alla möguleika á að skapa
meiri sátt um hana án þess þó að
þeir kostir sem við teljum að núver-
andi kerfi búi við hverfi.“
Sighvatur
Björgvinsson
A varla við
þjóðnýtingu
„ÞAÐ eru aðeins tvær skýringar á
þessum hugmyndum, skýring gár-
unganna um að forsætisráðheiTa
vilji þjóðnýta útgerðina, en ég á
ekki von á að hann meini það, en
hin er sú að hann
geri því skóna að
almenningur
kaupi sjávarút-
vegsfyrirtækin,“
segir Sighvatur
Björgvinsson.
„Mest verð-
mæti sjávarút-
vegsfyrirtækja í
dag er fólgið í ókeypis veiðiheimild-
um sem sjávarútvegurinn hefur
fengið frá þjóðinni. Á hann þá við
að þjóðin kaupi heimildirnar? Þá er
hann að tala um öfugt veiðileyfa-
gjald, að þjóðin eigi að borga út-
gerðarmenn út úr útgerðinni. Mér
finnst þetta hins vegar óskýrt hjá
honum, en ef þetta er skýringin þá
undrast ég mjög að leiðarahöfund-
ur Morgunblaðsins skuli telja þetta
athyglisverða aðferð, að leggja á öf-
ugt veiðileyfagjald," segir Sighvat-
ur ennfremur.
Þingmaðurinn nefndi að lokum
þriðju skýringuna: „Hann ætlar
kannski að meta hinar ókeypis út-
hlutuðu veiðiheimildir til verðs og
senda þjóðinni hlutabréf í útgerðar-
fyrirtækjunum sem því nemur fyrir
ekki neitt, að þjóðin eignist sem
svarar andvirði verðmætis sem
ókeypis úthlutun aflaheimilda þýð-
ir. En hins vegar er erfitt að ræða
svo óljóst mál.“
Guðný
Guðbjörnsdóttir
Má kannski
þróa frekar
„MÉR fannst þessi orð forsætis-
ráðherra merki um ákveðin geð-
brigði, að hann hefði orðið slæma
samvisku og fyndi fyrir því órétt-
læti að allur arður fer til nokkurra
sægreifa,“ sagði
Guðný Guðbjörns-
dóttir.
„Fólki finnst
auðlindin vera í
sameign allrar
þjóðarinnar, en
aðeins fáir fái af
henni beinan arð.
Mér fannst þessi
hugmynd, að allir Islendingar
tækju þátt í útgerð, svipuð því sem
margir hafa sett fram í sambandi
við sölu á bönkunum, að allir
fengju hreinlega hlutabréf og það
væri ein leið. Trúlega hefur ráð-
herrann þó verið að hugsa að þessi
stóru fyrirtæki yrðu almennings-
hlutafélög, sem mér finnst ekki
HEFUR ÞÚ KYNNT ÞÉR...
ARBONNE
INTERNATIONAL
Jurtasnyrtivörur
án ilmefna
fyrir húð og hár.
Útsölustaðir um land allt
nærri eins spennandi hugmynd, en
það má hugsanlega þróa hana eitt-
hvað frekar. Kannski mætti byrja
á að bjóða sjómönnum og fisk-
vinnslufólki aðild og viðkomandi
byggðarlögum, þetta þarfnast allt
skoðunar. Það væri ekki nægjan-
legt að segja að allir gætu bara
keypt sig inn í hlutafélög, sumir
hafa ekki efni á því og aðrir láta
ekki verða af því. Allir Islendingar
ættu að njóta arðsins með beinni
hætti en nú er og ættu því hrein-
lega að fá send hlutabréf heim. En
ég held að ráðherrann sé fyrst og
fremst með slæma samvisku yfir
þessari réttlátu reiði sem ríkir í
þjóðfélaginu. Þetta er meginókost-
ur kvótakerfisins, að arðurinn fer
til lítils hóps, og þess vegna finnst
okkur að taka beri veiðileyfa-
gjald."
Steingrímur J.
Sigfússon
Ekki mikil
tíðindi
„ÉG VÆRI fylgjandi því í sjálfu
sér ef ég skildi það sem þama er á
ferðinni en verð að játa að ég las
ekki út úr þessum orðum ráðheir-
ans nein mikil tíðindi vegna þess að
mér fannst í
fyrsta lagi ekki al-
veg skýrt í hvað
hann var að vísa,“
sagði Steingrímur
J. Sigfússon.
„I öðru lagi
kom mér í hug að
Davíð væri að tala
fyrir dreifðari
eignaraðild stærri sjávarútvegsfyr-
irtækja sem almenningshlutafé-
laga. Ég fékk ekki annan botn í
málið og það mátti skilja það svo að
hann væri að boða það sem æski-
legt markmið að eignaraðild í
stærri sjávarútvegsfyrirtækjum
gæti verið sem allra dreifðust og
það getur verið gott og blessað í
sjálfu sér. En þetta skiptir engum
sköpum hvað varðar deilur um nýt-
ingu auðlindarinnar eða skattlagn-
ingu á sjávarútveg nema verið sé að
bjóða til einhvers konar þjóðnýt-
ingar,“ sagði Steingrímur og sagði
ráðherrann þurfa að skýra betur
hvað hann væri að fara áður en
hægt væri að tjá sig að marki um
þessar hugmyndir.
Margrét
Frímannsdóttir
í lagi að
skoða nánar
„ÉG VIL ekki fella neina sleggju-
dóma yfir þessari hugmynd fyrr en
ég hef fengið að sjá nánari út-
færslu, en mér finnst allt í lagi að
skoða hana nánar,“ sagði Margrét
Frímannsdóttir.
„Það fyi-sta sem
mér ftaug í hug
var sú staðreynd
að mestur hluti
íbúa í minni sjáv-
arútvegsbæjum
um land allt hefur
tekið þátt í upp-
byggingu á útgerð
og fiskvinnslu en við stjórnvaldsað-
gerðir og aðgerðir stofnana ríkisins
hefur þessi eign fólks orðið verð-
laus í mörgum tilvikum. Þar á ég
við sameiningu fyrirtækja, verð-
lagningu kvóta og ýmsar aðrar að-
gerðir," sagði Margrét og rifjaði
upp að þannig hefði málum verið
háttað t.d. á Stokkseyri. „Nánast
hvert einasta heimili tók þátt í að
byggja upp frystihúsið og kaupa
báta með því að eiga hlutabréf og
gefa eftir hluta af launum sínum til
fyrirtækisins. Síðan er það samein-
að öðru og eignarhlutur einstak-
linga og hreppsfélagsins varð ekki
að neinu.“
Margrét sagði þessar hugmyndir
ekki nýjar, þær hefðu til dæmis
verið ræddar í mörg ár innan Al-
þýðubandalagsins. „En ég vil bíða
með að afgreiða þessar hugmyndir
þar til ég hef fengið að sjá þá hugs-
un og útfærslu sem liggur að baki
þeim.“
Kristján
Ragnarsson
/
Ahugi
almennings
hefur vaknað
„ÉG ÆTLA ekki að forsætisráð-
herra vilji að hér eigi að fara að
hefja einhverja ríkisútgerð eða
endurreisa bæjarútgerðir, því eng-
inn hefur að mínu mati staðið sig
betur en einmitt
hann í að afnema
þær þegar hann
var borgarstjóri í
Reykjavík og
breytti með mik-
illi framsýni og
áræði bæjarút-
gerðinni í Granda
og seldi,“ sagði
Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands íslenskra útvegs-
manna.
„Það sem ég held að vaki fyrir
honum er að leggja áherslu á þær
miklu breytingar sem orðið hafa í
sjávarútvegi á undanfórnum árum
með tilkomu þess að hlutabréf eru
farin að ganga kaupum og sölum á
markaði. Nú eru 16 fyrirtæki í sjáv-
arútvegi skráð á Verðbréfaþingi og
fleiri á leiðinni þar sem eru mjög
ströng skilyrði um dreifða eignar-
aðild. 48 fyrirtæki eru á Opna til-
boðsmarkaðnum og það lýsir þeirri
umbyltingu sem orðið hefur hjá
þessum stærstu fyrirtækjum,"
sagði Kristján.
Hann benti einnig á að um 13
þúsund einstaklingar væru með
tæplega helming eignarhalds í þeim
tíu sjávarútvegsfyrirtækjum sem
hefðu mestar veiðiheimildir, aðrir
hluthafar væru hlutabréfasjóðir
sem fólk fjárfesti í, lífeyrissjóðir
sem nærri því hálf þjóðin ætti í og
hefðu valið í auknum mæli að
leggja fé í sjávarútvegsfyrirtæki,
auk flutningafyrirtækja og olíufé-
laga sem fjöldi hluthafa stæði að.
„Almenningur hefur vaknað til vit-
undar um að það er mikilvægt að
þessari grein vegni vel og að hún
geti skilað hluthöfum arði með
sambærilegum hætti og hlutafélög í
öðrum starfsgreinum.
Ég ætla að með þeirri ákvörðun
ríkisstjórnarinnar að skerða ekki
frekar skattaafslátt vegna hluta-
bréfakaupa sé verið að vísa til þess
að hvetja fólk til að eignast hlut í
atvinnurekstri. Ég vil hins vegar
undirstrika og hef enga ástæðu til
að ætla að ráðherrann sé að tala um
að uppræta einstaklingsútgerð og
einyrkja, sem hafa verið mikil fót-
festa í þessari gi-ein, og að ein-
hverjir verði neyddir á markað með
slík fyrirtæki. Én æ fleiri fyrii-tæki
eru að opnast almenningi og ég get
mér þess til að það sé vilji hans í
þessu efni.“
Vantar — Vantar
sérhæð, 10 — 12 millj. með sérinng. 120 — 140
fm í austurbænum. Teigar — Lækir — Sundin
— Kleppsholt — Vogar. /
Fjársterkur traustur kaupandi.
Búinn að selja.
Upplýsingar gefur Ágúst sölu-
maður í síma 551 0090.
tfÓLL
FASTEIGIMASALA