Morgunblaðið - 03.10.1998, Page 16
16 LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Yeitingastaðurinn Rex opnaður í kvöld
Á GÓLFINU er annars vegar svart granít og hins vegar
svört bandarísk hnota. Borðin og stólarnir eru úr The
Terenee Conran Shop og eru stólarnir úr áli.
í ANDDYRI veitingahússins hefur upprunalegri hönnun
verið haldið að mestu leyti. Fyrir ofan innganginn er
nafn staðarins.
Á NEÐRI hæð staðarins getur að líta þennan einstaka
símaklefa. Ef menn vilja næði er honum lokað með þungri
hurð af peningaskáp.
Afturhvarf
til ein-
faldleikans
BARINN blasir upplýstur við þegar komið er inn á staðinn. Við hann standa barstólar úr áli, sem fengnir eru úr verslun hönnuðarins.
Veitinga- og skemmtistaður-
inn Rex verður opnaður í
kvöld klukkan 18. Mikið er í
staðinn lagt og var til að
mynda einn frægasti hönnuð-
ur Breta fenginn til að hanna
staðinn. Ragna Sara Jóns-
dóttir og Golli ljósmyndari
litu inn á Rex, skoðuðu
„mafíuherbergið“, 300 hólfa
vindlahirslu og friðaðar
skreytingar í lofti þessarar
sögulegu byggingar.
VEITINGASTAÐURINN Rex er til húsa í
Austurstræti 9 þar sem verslun Egils Jac-
obsen var lengi til húsa. Staðurinn er stíl-
hreinn, hönnunin nýtískuleg í stíl við veit-
ingastaði helstu stórborga heimsins, en
Terence Conran, hönnuður staðarins, er
eigandi tjölda veitingahúsa um allan heim
sem hann hefur sjálfur hannað. Austur-
stræti 9 var byggt árið 1921 fyrir verslun
Egils Jacobsen. Húsið var teiknað af Jens
Eyjólfssyni arkitekt og var fyrsta húsið í
Reykjavík sem var með steyptu stuðla-
bergi. Grátt, hvítt og svart eru litirnir sem
prýða Rex og er einfaldleikinn í fyrirrúmi.
Stflhreinir fletir blasa við í bland við upp-
runalegan stfl hússins, sem einnig fær að
njóta sin.
300 manna meðlimaklúbbur
Á veitingastaðnum Rex verður bryddað
á ýmsum nýjungum sem eru lítið þekktar
á skemmtistöðum hér á landi en eiga
sterkar fyrirmyndir erlendis frá. Staður-
inn er á tveimur hæðum. Á efri hæðinni er
almenn veitingasala og munu Ásgeir Sæ-
mundsson, Geir Sveinsson, Magnús Örn
Guðmundsson og Sverrir Halldórsson sjá
um framreiðslu veitinga. Boðið verður
upp á fremur léttan mat, fisk, fuglakjöt og
grænmeti, en minna verður um rautt kjöt
og hveitisósur. Á daginn er þar rekið
kaffihús og bar á kvöldin, en selt er inn
eftir klukkan 23. Barinn verður almennt
opinn og verður boðið upp á hanastél í
bland við öl og aðra drykki. Staðurinn tek-
ur 80 manns í sæti og hefur skemmtana-
leyfi fyrir u.þ.b. 200 manns.
I kjallara staðarins eru salerni, síma-
klefi og sérstakt herbergi sem kallast
„mafíuherbergið“. Verður það eingöngu
opið félögum meðlimaklúbbs sem starf-
ræktur verður innan staðarins. Að sögn
Einars Bárðarsonar, markaðsstjóra Rex,
er öllum frjálst að ganga í klúbbinn
STEYPT mynstur í loflinu hafa verið silfruð,
en skreytingarnar eru friðaðar svo þeim má
ekki breyta á neinn hátt nema mála.
þangað til í hann hafa gengið 300 manns,
þá verður honum lokað. Meðlimir greiða
ákveðið mánaðargjald og njóta ýmissa
fríðinda í staðinn. í „mafíuherberginu"
munu allir meðlimir meðal annars eiga
sérstakt vindlahólf sem geymir hágæða-
vindla við rétt raka- og hitastig. Bólstruð
„hólf ‘ eru einnig í veggjunum þar sem
hægt er að koma sér fyrir og láta fara vel
um sig. í þeim eru ljós sem skipta litum og
skapa rétta stemmningu í herberginu.
Rétta stemmningin sköpuð
Að sögn Einars Bárðarsonar er James
Soane yfirhönnuður og annað starfsfólk
Conran Design Group komið til landsins til
að vera viðstatt opnun staðarins, en von er
á Terence Conran sjálfum síðar í vetur.
Hönnunin var alfarið í höndum Conrans,
en Teiknistofan Ármúla sá um samskipti
milli hans og smiðanna. Fjölmargir aðrir
hafa komið að undirbúningi Rex, sem hef-
ur staðið yfir í hálft annað ár. Undanfar-
inn mánuð hefur til dæmis verið tónlistar-
maður í að velja tónlist, sem ætlað er að
skapa rétta andrúmsloftið. Á staðnum
verður einnig notast við nýtt afgreiðslu-
kerfi, hið fyrsta sinnar tegundar á íslandi.
Það fylgir vörunum eftir frá því þær koma
í hús og þar til þær eru seldar og sparar
þar með mikla vinnu við vörutalningu og
eftirlit. Verslunin Lumex hefur séð um
lýsinguna á staðnum, sem þó er hönnuð af
Terence Conran. Þorvaldur Skúlason er
framkvæmdastjóri Rex.
Að sögn Einars er staðurinn afturhvarf
til einfaldleikans, þar sem formfagrir og
stflhreinir hlutir eru allsráðandi. „Það má
segja að á Rex sé horfið aftur til James
Bond-tímans, þar sem boðið verður upp á
Martini-kokkteil á barnum og fyrsta
flokks þjónustu."