Morgunblaðið - 03.10.1998, Síða 18

Morgunblaðið - 03.10.1998, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Vilja bólusetja við inflúensu og lungnabólgu FELLUR þú næst? er yfirskrift fræðslubækfings sem embætti landlæknis, Félag íslenskra heim- ilislækna, heilbrigðis- og trygg- ingaráðuneytið og Trygginga- stofnun ríkisins hafa gefið út til að benda á gagnsemi bólusetninga við inflúensu og lungnabólgu. Kemur þar fram að bólusetning sé áhrifa- rík vörn, ekki síst fyrir þá sem eru 60 ára og eldri, en einnig hjá ýms- um áhættuhópum, svo sem þeim sem hafa langvinna hjarta- eða lungnasjúkdóma, nýrnasjúkdóma eða eru með skert ónæmiskerfi. Sigurður Helgason, læknir á heilsugæslustöðinni í Arbæ í Reykjavík, samdi bæklinginn og er frumkvöðull þess að hrinda kynn- ingarátakinu af stað. Segir hann nauðsynlegt að uppfræða fólk um gildi bólusetninga, ekki dugi að læknar einir viti af því, enda sé mjög misjafnt frá einum lækni til annars og milli heilsugæslustöðva hvernig minnt sé á bólusetningar. Ólafur Ólafsson landlæknir sagði að tilgangur bólusetninga hjá fólki 60 ára og eldri væri meðal annars sá að fækka legudögum vegna sjúkdóma, ekki síst þeim sem tengdust lungnabólgu og hefði embættið byrjað árið 1991 að vekja athygli á bólusetningum með skipulegum hætti. Hann sagði að gera þyrfti enn betur í þessum efnum og því væri sérstök ástæða til að fagna þessu fræðsluframtaki. Nýja bæklingnum verður dreift á heilsugæslustöðvum, á félagsmið- stöðvum aldraðra og landlæknis- embættið sendir hann einnig öllum læknum. Um bólusetningu gegn inftúensu segir í bæklingnum að árleg bólu- setning veiti allt að 90% vörn og sé áhrifarík leið til að sleppa við hana. Hún er ráðlögð árlega, þar sem veiran breytir sér milli ára. Þar kemur einnig fram að árlega deyja tugþúsundir manna um all- an heim af völdum inflúensu. Har- aldur Briem sóttvarnalæknir seg- ir að búast megi við inflúensu hér á hverju ári og segir að oft hafi forráðamenn fjölmennra vinnu- staða boðið starfsfólki endur- gjaldslausa bólusetningu til að draga úr hugsanlegum veikinda- fjarvistum. Hann segir það taka 5 til 6 daga fyrir fullhraust fólk að ná sér af inflúensu en allt uppí hálfan mánuð fyrir þá sem eldri eru og lasburða. I bæklingnum kemur fram að bólusetning gegn lungnabólgu sé ráðlögð öllum sem eru 60 ára og eldri. Hægt sé að bólusetja gegn einni tegund lungnabólgu, en sömu bakteríur geti einnig valdið kinnholubólgu, heilahimnubólgu og blóðsýkingu, sem í sumum til- vikum sé hægt að koma í veg fyrir með bólusetningu. Þá segir að með vaxandi ónæmi baktería gegn sýklalyfjum sé enn ríkari ástæða til bólusetninga. Ekki þarf að endurtaka bólusetningu gegn lungnabólgu fyrr en eftir 5 til 10 ár.Bólusetning gegn inflúensu kostar um 1.200 krónur, en nokkru meira vegna lungnabólgu, en ekkert mælir gegn því að bólu- sett sé gegn báðum sjúkdómunum samtímis. Þeir sem njóta afsláttar þurfa að greiða hátt í tvö þúsund krónur fyrir báðar bólusetning- arnar. Ráðstefna Arkitektafélagsins og umhverf- isráðuneytis um snjóvarnargarða Rætt um gagrt- semi og um- h verfíssj ónarmið ARKITEKTAFÉLAG íslands á frumkvæði að því í samvinnu við umhverfisráðuneytið að efna til ráðstefnu um snjóvarnargarða sem haldin verður í Norræna hús- inu í Reykjavík á mánudag. Sig- urður Harðarson arkitekt, sem hefur annast undirbúning, segir að þarna eigi að ræða um varnar- garða frá ýmsum hliðum, m.a gagnsemi, kostnað, öryggi, um- hverfisáhrif og byggðasjónarmið. Bygging Sjóvarnargarða „Tilefni ráðstefnunnar er bygg- ing snjóvamargarða á nokkrum stöðum á landinu og hefur Ai'ki- tektafélagið lýst áhyggjum sínum vegna þeirra," segir Sigurður en félagið telur þá erfiða hvað varðar umhverfi og útlit. „Við viljum fá umræðu um málið frá sem flestum sjónarhornum, teljum okkur ekki neina sérfræðinga í snjóflóðavörn- um, en viljum að málin séu skoðuð í heild sem virðist ekki hafa verið gert.“ Sigurður segir arkitekta hafa heyrt efasemdarraddir um gagnsemi slíkra garða og því vilji þeir lýsa eftir öðram lausnum sem nota mætti meðfram eða í staðinn. Á ráðstefnunni verða viðrað sjónarmið þeirra aðila sem komið hafa við sögu við undirbúning og byggingu snjóvarnargarðanna, rædd umhverfis- og skipulagssjón- armið, hvernig málið horfir við sveitarfélögum og rætt um áhættu. „Við viljum hugleiða áhættu í víðu samhengi, hvaða áhætta er yf- irleitt við það að búa í þessu landi, í umferðinni eða hjá þeim sem sækja sjóinn frá þessum stöðum sem snjóflóðahætta er á og síðan má líka hugleiða hvort markmið um öryggi muni nást og hvort varnargarðar verði til þess að fólk flytur síður úr þessum byggðum. Hér er um fjárfrek mannvirki að ræða og við sjáum ekki eftir þeim peningum en það er samt ástæða til að skoða hvort þessi markmið muni nást,“ segir Sigurður enn fremur. „Ráðstefnan er ekki her- ferð gegn snjóvamargörðum. Henni er fyrst og fremst ætlað að fá fram umræðu um þá í sem víð- ustu samhengi.“ Ráðstefnan hefst klukkan 9 á mánudag og stendur fram undir klukkan 17. FRÉTTIR „SJÁÐU þessa,“ gæti Broddi verið að segja við Halldór sem virðist ekki sannfærður. ÁGÚST Guðmundsson, leiksljóri Dansins, og Lísa Pálsdóttir, útvarpsmaður á Rás 2, fylgjast með og virðast hafa fundið eitthvað við sitt hæfi. Söngvísnakeppni úr kvikmyndinni Dansinum Enginn veit hver gist- ir í annars hjónasæng NÝLEGA var efnt tfi samkeppni um bestu söngvísuna úr kvik- myndinni Dansinum og réðust úrslit á fostudag. Tæplega 30 höf- undar sendu inn kvæði í keppnina og voru úrslitin tilkynnt á Rás 2 í gær af Halldóri Blöndal sam- gönguráðherra sem var formaður dómnefndar. Aðrir í dómnefnd- inni voru Broddi Broddason, fréttamaður á Rfldsútvarpinu, og Pétur Blöndal, blaðamaður á Morgunblaðinu. Guðmundur Kri- stjánsson frá Akranesi og Hall- mundur Kristinsson frá Akureyri báru sigur úr býtum og hlutu að launum ferð til Færeyja. Einnig vora 5 færeyskar húfur í verðlaun. Elís Kjaran Friðfinns- son frá Þingeyri sendi inn léttan hátt og vann húfu fyrir skemmti- legt viðlag. Það var svohljóðandi: Morgunblaðið/Halldór DÓMNEFNDINA skipuðu Pétur Blöndal frá Morgunblaðinu, Halldór Blöndal samgönguráðherra og Broddi Broddason, fréttamaður á Rík- isútvarpinu. Hér blaða þeir í þeim kvæðum sem bárust í keppnina. „Víst er stundum vergjöm frú til vandræða. Víst er stundum vergjörn frú til vandræða glöð.“ Ragnar Guðmundsson fékk húfu fyrir dýran kveðskap. Fyrsta hringhendan er svona: „Dansinn renna daga þijá dulúð kvenna njóta mittispenna megaþá máttinn kenna skjóta." Verðlaunaljóð Guðmundar Sirsa dóttir sýslumanns er sögð á kostum laus, við skulum dansa daganaþijá- en óðalsbóndann Harald sem eiginmann hún kaus. Svo er að sjá. Harald Dofri Hermannsson, sem leikur raunar í myndinni, fékk húfu fyrir færeyskt yfirbragð á sinni söngvísu. Niðurlagið var þannig: „Sirsa út í sortann skyggnist, sáran kvíða ber hún. Til Ivars ber hún hjarta hlýtt en Haraldar kona er hún.“ Lárus Jón Guðmundsson vann húfu fyrir sterka hrynjandi og gott viðlag sem var svohljóðandi: Hvala-Pétur hvatlegur og hvergi smeykur var, við skulum dansa dagana þijá - því hraustum manni leyfist að hremma stelpumar. Svo er að sjá. Anna Linda ung og kát er engill fólks í neyð, við skulum dansa dagana þrjá - að höfuðsári gerði og hjarta stal um leið. Svo er að sjá. „Lensan mín er stálblá, beitt og bitur, blóðrauður er ástarinnar litur.“ Loks fékk Torfi Ólafsson húfu fyr- ir gott kvæði og setti hann ásamt svo mörgum öðrum dómnefndina í vanda eins og eftirfarandi brot úr kvæðinu ber með sér: Brúðurin er brosandi en brjóstið fullt af þrá við skulum dansa dagana þrjá - og elskhuganum Pétur þeim eldi sagði frá. Svo er að sjá. Manndómslöngun meyja á mikinn skilning átti. Dátt því feginn daga þrjá dansinn stíga mátti. Brattur fer því brátt á stjá í brúðkaupsveislu Pétur. Dátt og vel í daga þijá dansinn stigið getur. Einum skapast örlög grá aðrir gæfu hljóta. Dátt þó allir daga þijá dansins mega njóta. Augu brúðar eigra frá ástarmegi réttum. Dátt í næstu daga þrjá dansi hvergi léttum. Vini þótti vert að tjá hve víða kenndir hníga. Dátt hann skal í daga þijá dansinn keikur stíga. Að hann með því ylli vá orðinn var þó smeykur. Dátt hann skal í daga þrjá dansinn stíga keikur. Höfuðsár því hlaut að fá hann að sögulaunum. Dátt þó skal í daga þrjá dansað burt frá raunum. Lík til bæjar borið var, brá þá öllum gestum. Klerk einn greitt að garði bar: „Gleðskap hér við frestum!" Brúður sagði að svona bón síst hún mundi ansa, það væru eintóm erkiflón sem ekki vildu dansa. Líkt og fuglinn lyftir sér í leik á breiðum væng við skulum dansa dagana þrjá - og enginn veit hver gistir í annars hjónasæng. Svo er að sjá. Verðlaunaljóð Hallmundar Umbúð fékk hann Önnu hjá og annað með því hlotið. Dátt í næstu daga þrjá dansins gat hann notið. Fyrr þó enginn fær að sjá en fagur dagur rennur. Dátt hvar helst í daga þrjá dansinn heitast brennur. „Líkið mundi’ ei lifna við lát þótt yrði’ á gleði. Höldum frekar fornum sið, fjöri’ og léttu geði.“ Fyrir Pétri frami lá og fór í brúðkaupsgildi. Dátt því feginn daga þijá dansinn stíga vildi. Enginn veit hver ylinn má og elsku brúðar njóta. Dátt þó menn í daga þrjá dansa allir hljóta.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.