Morgunblaðið - 03.10.1998, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1998
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Morgunblaðið/Kristján
Háskólanemar sprella
NEMENDUR Háskólans á Akur-
eyri lögðu frá sér skólabækurnar
eftir hádegi í gær og efndu þess í
stað tii Sprellmóts. Herlegheitin
byrjuðu á Ráðhústorgi þar sem
fulltrúar deilda skóians sungu af
hjartans list. Síðan var haldið í
skrúðgöngu að Iþróttaskemm-
unni, þar sem keppt var í öllum
helstu ólympíugreinunum, eins og
Björn Gíslason, nemandi í sjávar-
útvegsdeild skóians orðaði það.
Sprellmótinu lauk svo á Kaffi
Akureyri í gærkvöld, þar sem
m.a. fór fram söngvakeppni nem-
enda. A myndinni eru nemendur
kennaradeiidar í nokkuð góðu
skapi en eins og sést á áletrun-
inni á bol þeirra, virðist vanta
fleiri karlmenn í kennaradeild
skólans.
Morgunblaðið/
STEFÁN Jeppesen, framkvæmdastjóri Blómavals á Akureyri, afhend-
ir Baldri Gunnlaugssyni, verkstjóra umhverfisdeildar, ávísun upp á
2.000 haustlauka.
Blómaval gefur umhverf-
isdeild haustlauka
Þjálfunariaug á
Kristnesspítala
Leitað eftir
fjár-
stuðningi
BÆJARRÁÐI hefur borist erindi
frá Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak-
ureyri, þar sem óskað er eftir
viðræðum við Akureyrarbæ
varðandi fjárstuðning til fram-
kvæmda við þjálfunarlaug á Krist-
nesspítala.
Bæjarráð samþykkti á fundi sín-
um í vikunni að leggja til við
bæjarstjórn að skipaður verði 3ja
manna starfshópur sem fái það
verkefni að gera nákvæma úttekt á
möguleikum fatlaðra til sundiðk-
ana. Bæjarráð vill að starfshópur-
inn hraði vinnu sinni sem kostur er
og leggi fyrir tillögur að framtíðar-
skipulagi þessara mála.
-----♦-♦“•---
Atdagur
ATDAGUR verður haldinn í skák-
heimilinu við Þingvallastræti 18 á
morgun, sunnudaginn 4. október kl.
14. Tefldar verða atskákir og
hraðskákir.
BLÓMAVAL á Akureyri færði í
gær umhverfísdeild Akureyrarbæj-
ar 2.000 haustlauka af ýmsum teg-
undum, en þeim hefur verið ætlaður
staður í nýjum kringlóttum blóma-
beðum sem bærinn lét nýverið gera
við Hafnarstræti, sunnan við flötina
við Samkomuhúsið.
Stefán Jeppesen, framkvæmda-
stjóri Blómavals á Akureyri, sagði
að starfsfólkið vonaðist til að þetta
yrði fyrsta skrefið af mörgum í þá
átt að skipa Akureyri á stall með
litríkustu og blómlegustu bæjum
landsins. Heimamenn og gestir
myndu eflaust fagna litríkum um-
ferðareyjum sem kæmu undan
grámyglulegum vetrargarranum,
en haustlaukar gæfu fyrirheit um
litríkt vor.
Blómaval hefur verið að dreifa
haustlaukabæklingi sínum til Norð-
lendinga síðustu viku en þar er að
fmna ýmsar upplýsingar um úrval
haust- og jólalauka, meðhöndlun
þeirra og umhirðu.
Kirkjustarf
AKUREYRARKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli á morgun kl. 11. Öll
börn velkomin. Guðsþjónusta á
sunnudag kl. 14. Messukaffi á eft-
ir. Öldruðum er boðið upp á akst-
ur til kirkjunnar. Bíll frá BSO fer
frá Víðilundi kl. 13.40 og kemur
við á Hlíð. Farið til baka kl. 16.
Æskulýðsfundur í kapellunni kl.
17 á sunnudag. Æðruleysismessa
kl. 20.30 á sunnudagskvöld. Eyþór
Ingi Jónsson organisti leikur á
orgelið frá kl. 20.15. Prestar eru
Svavar A. Jónsson og Jóna Lísa
Þorsteinsdóttir. Tónlist annast
Snorri Guðvarðarson og Viðar
Garðarsson og Inga Eydal syng-
ur. Molasopi á eftir. Fyrsti biblíu-
lestur vetrarins í Safnaðarheimil-
inu kl. 20.30 á mánudagskvöld í
umsjá sr. Guðmundar Guðmunds-
sonar. Bæn og íhugun Davíðs-
sálma er yfírskrift lestranna í vet-
ur og verður byrjað á 1. sálmi.
„Konur eru konum bestar“ er yfir-
skrift á sjálfstyrkingarnámskeiði
sem haldið verður í Laxdalshúsi
dagana 6. og 8. október frá kl. 20
til 23 bæði kvöldin. Skráning og
upplýsingar eru hjá fræðslufull-
trúa kirkjunnar, Jónu Lísu Þor-
steinsdóttur í síma 462 7540 og
462 3122.
GLERÁRKIRKJA: Bamasamvera
og guðsþjónusta verða í kirkjunni
á sama tíma á morgun, sunnudag-
inn 4. október kl. 11. Undir sálmi
fyrir prédikun ganga bömin í
safnaðarsalinn þar sem skemmti-
legur sunnudagaskóli fer fram.
Michael Jón Clarke syngur
einsöng í guðsþjónustunni. Kyrrð-
ar- og tilbeiðslustund í kirkjunm
kl. 18.10 á þriðjudag. Hádegissam-
vera frá 12 til 13 á miðvikudag.
Helgistund og léttur málsverður í
safnaðarsal. Opið hús fyrir for-
eldra og böm kl. 10 til 12 á
fímmtudag.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Kvöld-
vaka í kvöld, laugardagskvöldið 3.
október, kl. 20. Major Daníel
Óskarsson stjórnar og talar.
Happdrætti og veitingar. Allir vel-
komnir. Sunnudagaskóli kl. 11 á
morgun, almenn samkoma kl. 17.
Heimilasamband fyrir konur kl. 15
á mánudag. Unglingasamkoma á
þriðjudag kl. 20, krakkaklúbbur kl.
17 á miðvikudag fyrir 7-10 ára,
hjálparflokkur sama dag kl. 17, 11
plús mínus kl. 17 á fostudag fyrir
10-12 ára. Fatamarkaður á föstu-
dag frá 10-17.
HVITASUNNUKIRKJAN: Verk-
leg þjálfun fyrir unglinga kl. 14 i
dag, laugardag, bænastund í kvöld
kl. 20. Sunnudagaskóli fjölskyld-
unnar kl. 11.30 á morgun, biblíu-
kennsla fyrir alla aldurshópa.
Léttur hádegisverður á vægu
verði. Samkoma sama dag kl. 20.
Stella Sverrisdóttir predikar, fjöl-
breyttur söngur, barnapössun fyr-
ir yngri en 6 ára. Vonarlínan;
462 1210, símsvari með uppörvun-
arorðum úr ritningunni.
HRÍSEYJARPRESTAKALL:
Guðsþjónusta í Stærri-Árskógs-
kirkju kl. 14 á sunnudag. Eftir at-
höfnina verður fundur í kirkjunni
með fermingarbörnum og foreldr-
um þeirra.
ÓLAFSFJARÐARPRESTAKALL:
Messa í Ólafsfjarðarkirkju kl. 11 í
dag, laugardag, í upphafi héraðs-
fundar. Sr. Magnús Gamalíel
Gunnarsson prédikar, sr. Sigríður
Guðmarsdóttir og sr. Hannes Örn
Blandon þjóna fyrir altari. Fjöl-
skyldumessa í Ölafsfjarðarkirkju
kl. 11 á morgun, sunnudag. Upp-
haf sunnudagaskólans.
Laugardagur 26. september
12.00Þ-Skjáfréttir
17.00ÞDagstofan Umræðuþáttur
í samvinnu við Dag. (e)
21.00ÞKvöldIjós Kristilegt efni
frá sjónvarpsstöðinni Omega.
Sunnudagur 27. september
12.00^-Skjáfréttir
17.00Þ-Dagstofan Umræðuþáttur
í samvinnu við Dag. (e)
21.00ÞKvöldljós Kristilegt efni
frá sjónvarpsstöðinni Omega.
Mánudagur 28. september
12.00^-Skjáfréttir
18.15Þ-Kortér Fréttaþáttur í sam-
vinnu við Dag. Endursýndur kl.
18.45,19.15,19.45,20.15,20.45.
21 .OOÞ-Mánudagsmyndin - Laun-
ráð (Scam) Glæsikvendið Maggie
Rohrer lifír á því að táldraga og
féfletta einmana karlpening á fínni
hótelum Miamiborgar. En dag einn
hittir hún ofjarl sinn og þá kárnar
gamanið. Aðalhlutverk. Christoph-
er Walken og Lorraine Bracco.
1994.
Morgunblaðið/Silli
FRÁ fundi sveitarstjórnarmanna um sorpeyðingarmál sem haldinn
var á Húsavík.
Sorpeyðingarmál
Þingeyinga
Húsavík - Nefnd um stefnumótun í
umhverfismálum hjá Húsavíkur-
kaupstað undir stjóm Margrétar M.
Sigurðardóttur, lögfræðings, boðaði
sveitarstjórnarmenn í Þingeyjar-
sýslu til ráðstefnu um sorpmál á
Hótel Húsavík um síðustu helgi. Þar
voru mættir sérfræðingar á sviði
sorpmála sem héldu þar fróðlega
fyrirlestra.
Margrét María setti ráðsteínuna
og kvaddi Reynhard Reynisson,
bæjai-stjóra, til ráðstefnustjórnar.
Mættir voru um 50 framámenn í
sveitarstjómarmálum Þingeyinga.
Friðfínnur Einarsson, framkvæmda-
stjóri Islenskrai' umhverfístækni ehf.
ræddi um kosti og galla sorp-
brennslu. Bjöm Guðbrandui' Jóns-
son, umhverfisverkfræðingur hjá
Línuhönnun hf. nefndi erindi sitt
Græn og hagræn sorphirða. Magnús
Stephensen, deildai'stjóri hjá Sorpu,
talaði um urðun og endurvinnslu.
Hugi Ólafsson, deildarstjóri hjá um-
hverfisráðuneytinu, sagði frá stefnu
stjórvalda í þesum álum. Lúðvík
Gústafsson, sérfræðingur, í sorpmál-
um hjá Hollustuvernd ríkisins, skýrði
kröfur stjómvalda í framkvæmd.
Að framsöguerindum loknum bái'u
ráðstefnuþátttakendur fram ýmsar
fyrirspurnir sem var gi-eiðlega
svarað. En ljóst var að hér er um
mikið vandamál að ræða og brýnt
væri fyrir sveitastjórnarmenn að
hefja rækilegan undirbúning þeirra
framkvæmda sem þeir ætluðu að
ráðast í, áður en í framkvæmdir væri
farið.
• •
Minnisvarði í Or-
lygshöfn afhjúpaður
RÍKISSTJÓRN íslands ákvað, að
tillögu Halldórs Ásgrímssonar, ut-
anríkisráðherra hinn 24. apríl sl. að
láta smíða og reisa minnisvarða við
minjasafnið að Hnjóti í Örlygshöfn
til að minnast afreka íslenskra
björgunarmanna við björgun inn-
lendra og erlendra sjómanna úr
sjávarháska og til minningar um þá
sem ekki varð bjargað.
Minnisvarðinn verður afhjúpaður
af Halldóri Ásgrímssyni utanríkis-
ráðherra í dag, laugardaginn 3.
október, kl. 13.30.
Hönnuður minnisvarðans er Bjami
Jónsson. Hann var smíðaður í
Vélsmiðjunni Orra í Mosfellsbæ og
smiður hans var Ólafur Þorvarðarson.
Morgunblaðið/Silli
FULLTRÚAR Landsbankans, Verkalýðsfélags Húsavíkur, Húsavíkur-
bæjar og Völsungs.
Vallarklukka
á Húsavíkurvöll
Húsavík - Knattspyrnuvöllur
Húsavíkur er talinn einn af bestu
vöilum landsins og Iofuðu hann
mjög þeir sem iéku landsleiki á
honum í sumar. En eitt töldu þeir
vanta á hann, vallarklukku.
Nú hefur verið ákveðið að bæta
úr því. Þrír aðilar, Landsbankinn,
Verkalýðsfélag Húsavíkur og
Húsavíkurbær, hafa ákveðið að
kosta sameiginlega kaup og upp-
setningu á vallarklukku sem kom-
in skal til afnota fyrir næsta
keppnisár. Uppsett klukka mun
kostar nær 500 þúsundum króna.
Klukkustandinn hefur Einar Kol-
beinsson hannað.
Sveinn Hreinsson, tómstunda-
fulltrúi, skýrði nú nýlega
blaðamönnum frá aðdraganda
þessa máls að viðstöddum gefend-
um og formanni Völsungs.
Sigurður Árnason, bankaútibú-
stjóri, og Aðalsteinn Á. Baldurs-
son, formaður Verkalýðsfélags-
ins, töldu mikilsvert að efla alla
íþróttastarfsemi æskunnar og
töldu að með því væru þeir að
vinna forvarnarstarf æskulýð
Húsavíkur til heilla.,
Ingólfur Freysson, formaður
Völsungs, fór mörgum lofsamleg-
um orðum um þann mikia stuðn-
ing sem Landsbankinn og
Verkalýðsfélagið sýndu nú og
hefðu sýnt starfsemi félagsins.
Hann sagði að tilkoma klukkunn-
ar mundi verða til þess að fleiri
stórleikir knattspyrnunnar
yrðu í framtíðinni leiknir á Húsa-
vík.
Forseti bæjarsljórnar, Tryggvi
Jóhannsson, þakkaði meðgefend-
um samstarfið og þann stuðning
sem þeir veittu bænum með því að
vera þátttakendur í þessu máli.