Morgunblaðið - 03.10.1998, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 03.10.1998, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1998 23 Minnkandi fjárþörf ríkisins Eykur líkur á vaxtalækkun STARFSFÓLKI Loðskinns hefur fækkað um helmíng á árinu. Landsbanki Islands Gengið sveiflast NOKKRAR sveiflur hafa verið á gengi hlutabréfa Landsbank- ans síðustu daga. Fjárvangur gekk frá samningum um sölu hlutafjárloforða fyrr í vikunni á genginu 2,50 en í fyrradag var gengið frá sambærilegum samn- ingi á genginu 2,35. I gær var talið að gengi hlutafjárloforð- anna væri á bilinu 2,35 til 2,40. Þeir sérfræðingar á hluta- bréfamarkaði sem Morgunblað- ið hefur rætt við hallast að því að stór hluti kaupenda hluta- bréfa í Landsbankanum vilji innleysa hagnaðinn hið fyrsta sem muni leiða til mikils fram- boðs á markaðinum til að byrja með. Hætt er við að gengið lækki nokkuð í kjölfarið en taki kipp upp á við á ný um leið og um hægist. Við það mun hlut- höfum bankans væntanlega fækka mjög. Loðskinn tapaði 140 milljónum kr. á síðasta ári Hlutafé skrifað niður og aukið aftur MINNKANDI fjárþörf ríkisins á fjármagnsmörkuðum eykur líkur á að langtímavextir á verðtryggðum skuldabréfum haldi áfram að lækka. Sögulegt lágmark á vaxtastigi lang- tíma skuldabréfa gefur þó tilefni til að ætla að markaðurinn hafí gert ráð fyrir og náð að aðlaga sig að breyttum aðstæðum. Þetta er mat Yngva Arnars Kristinssonar, fram- kvæmdastjóra peningamálasviðs hjá Seðlabanka íslands. Yngvi segir ljóst að með minnk- andi fjárþörf hins opinbera dragi úr spennu á innlendum lánamarkaði og líkur á að langtímavextir geti lækk- að enn frekar aukast: „Reyndar virðist markaðurinn hafa gert ráð fyrir þessum breytingum og aðlag- að þær verðlagningu sinni því und- anfarið hafa vextir á langtímabréf- um farið lækkandi. Tuttugu ára spariskírteini eru t.a.m. komin nið- ur í rúmlega 4% sem er sögulegt lágmark. Þá eru vextir á millilöngu bréfum ríkissjóðs (3-7 ára) komin niður í 4,7%. Þannig virðist markað- urinn hafa gert ráð fyrir minnkandi umsvifum ríkisins á lánamarkaði og aðlagað sig breytingunum." Yngvi leggur áherslu á að vaxta- stigið í landinu ákvarðist ekki ein- göngu af fjármagnsþörf ríkisins, heldur hafi aðrir þættir einnig áhrif á þróun mála. Þar beri þó hæst fjár- magnsþörf heimilanna og fjár- magnsjöfnuður sem hefur verið hagstæður undanfarin 2 ár og þrýst niður vöxtum: „Annað sem hafa þarf í huga sem hugsanlegan áhrifa- vald á vaxtalækkun hér á landi er að ávöxtun á verðtryggðum skulda- bréfum í erlendum iðnríkjum hefur farið lækkandi undanfarin ár og er t.a.m. komin undir 3% í Bretlandi og Frakklandi." Yngvi segir þó óheppilegt að á sama tíma og hér ríkir mikil upp- sveifla í efnahagslífinu séu vextir að lækka. Samþætting þeirra þátta geti haft í för með sér aukna þenslu sem er nú þegar meiri en góðu hófi gegnir að mati sérfræðinga. Hann vísar þó til þess að vaxtastigið ráð- ist ekki eingöngu af lánsþörf ríkis- ins auk þess sem verið getur að markaðurinn hafi þegar aðlagað sig og vaxtalækkunin sé hugsanlega komin fram. HLUTAFÉ Loðskinns hf. á Sauð- árkróki verður fært niður um 90% til að mæta 140 milljóna króna tapi fyrirtækisins á síðasta ári. A aðal- fundi félagsins, sem haldinn var í vikunni, var jafnframt ákveðið að auka hlutaféð aftur um 150 milljónir og fram kom að fyrir liggja hluta- fjárloforð fyrir liðlega 130 milljón- um af því. Þá var ný stjórn kjörin. Loðskinn hf., sem rekm- sútunar- verksmiðju á Sauðárkróki, var gert upp með um 140 milljóna króna tapi á síðasta ári. Að sögn Margeirs Friðrikssonar, sem tók við starfi framkvæmdastjóra í júlí sl., stafar tapið aðallega af niðurfærslu birgða og gengishalla. Þá er fjármagns- kostnaður mikill. Birgðir voru færð- ar niður um 90 milljónir kr. Margeir segir að það hafi verið leiðrétting á gömlum birgðum auk verðlækkun- ar. Þá var gengistap félagsins á þriðja tug milljóna kr. Félagið var með afurðalán í dollurum og enga áhættudreifingu í því efni. Því hefur verið breytt og nú er miðað við gengiskörfu. „Köld vatnsgusa“ Á undanförnum mánuðum hefur verið farið yfir rekstur félagsins og leitað leiða til að halda honum gang- andi. Sveitarfélagið Skagafjörður hefur haft forystu um það ásamt Búnaðarbanka Islands. Sveitarfé- lagið og Búnaðarbankinn hafa lofað að leggja fram 50 milljónir hvor að- ili í nýtt hlutafé, íslenska umboðs- salan hf. leggur til 15 milljónir, Kaupfélag Skagfirðinga 12,5 millj- ónir kr. og aðrir minna. Samtals nema hlutafjárloforð 130,6 milljón- um kr. en samþykkt hefur verið heimild til aukningar hlutafjár um 150 milljónir kr. alls. Áður verður núverandi hlutafé, sem samtals nemur 157 milljónum, skrifað niður um 90% til að mæta taprekstrinum, það fer niður í 15,7 milljónir kr. Margeir segir að þessar ráðstaf- anir séu taldar duga miðað við þær áætlanir sem gerðar hafi verið. Hins vegar hafi bæst við erfiðleika skinnaiðnaðarins vegna lokunar Rússlandsmarkaðar. Hann tekur þannig til orða að þeir hafi komið eins og köld vatnsgusa framan í þá sem stóðu að björgun fyrirtækisins. Starfsfólki Loðskinns hefur fækkað um helming frá áramótum, án þess að komið hafi til uppsagna, og eru starfsmenn nú fjörutíu. Framleitt er í birgðageymslur því lítið selst, þó þannig að skinnin eru ekki fullunnin, heldur tilbúin til lit- unar. Margeir segir að svo virðist sem einhver vakning sé að verða á markaðnum, fyrirspurnir séu að aukast, enda talið að verslanir og saumastofur séu að verða uppi- skroppa með skinn og flíkur. Þannig segir hann að Loðskinn bíði nú eftir staðfestingu á þokkalega stórri pöntun. Hún myndi hleypa ágætu lífi í starfsemina á ný. Nýr stjórnarformaður Ný stjóm var kjörin á aðalfundin- um. Fulltrúar sveitarfélagsins eru Bjarni Ragnar Brynjólfsson, sem er nýr formaður, og Jón Magnússon, fyrrverandi forstöðumaður Byggða- stofnunar á Sauðárkróki. Margeir Pétursson lögfræðingur og Einar Einarsson, framkvæmdastjóri Steinullarverksmiðjunnar, eru full- trúar Búnaðarbankans. Fimmti stjórnarmaðurinn er Bjarni V. Magnússon, eigandi íslensku um- boðssölunnar og fyrrverandi for- maður stjórnar Loðskinns hf. FBA og Kaupþing hafa selt 41% í Baugi Sjóðir kaupa 8,5% eignahlut KAUPÞING hf. og Fjárfestingar- banki atvinnulífsins hf. (FBA) hafa selt tólf lífeyrissjóðum auk helstu verðbréfa- og hlutabréfasjóða landsins samtals 8,5% hlut í Baugi hf., eignarhaldsfélagi Hagkaups, Nýkaups og Bónuss. Einnig hefur Búnaðarbankinn tryggt sér tæplega 2% hlut í félaginu. Fyrirtækin eiga því eftir að selja um 34% hlut í Baugi, en þau kauptu 75% félagsins í vor. Verðbréfa- og hlutabréfasjóðirnir eru í vörslu Landsbréfa, VÍB og Kaupþings. Bjarni Ái-mannsson, forstjóri FBA, segir samkomulag um að gefa ekki upp nöfn lífeyris- sjóðanna sem keypt hafa hlut í FBA og gengi bréfanna verði upplýst síð- ar, í tengslum við almennt hluta- fjárútboð. Fyrirtækin hafa sett sér það markmið að selja 8-12% hlut í Baugi til stofnanafjárfesta nú á haustmánuðum. Bjami segir að við- ræður standi yfir við fleiri stóra að- ila og segir hugsanlegt að meira verði selt nú en stefnt var að. Það skýrist á næstunni. Eftir að selja 34% Með sölu þeirra hlutabréfa sem nú er greint frá hafa FBA og Kaup- þing selt um 41% eignarhlut í Baugi hf. en félögin keyptu sem kunnugt er 75% félagsins á sínum tíma. Eftir eru um það bil 34%. FBA og Kaupþing vilja tryggja mjög dreifða eignaraðild að Baugi hf., meðal annars í þeim tilgangi að fullnægja kröfum Verðbréfaþings Islands, en stefnt er að skráningu félagsins í nóvember. Stefnt er að sölu að minnsta kosti 10-12% fé- lagsins til almennings fyrir áramót, en komið hefur fram hjá stjómend- um félaganna að það getur orðið meira ef markaðsaðstæður leyfa. Miðað er við að sala til almennings hefjist í nóvember.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.