Morgunblaðið - 03.10.1998, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1998 27
ERLENT
Indíánar
undirbúa
hvalveiðar
Neah Bay. Reuters.
INDÍÁNAÞJÓÐFLOKKUR í
Bandaríkjunum býr sig nú undir
að hefja hvalveiðar en hvala-
verndunarsinnar hafa skipulagt
mótmæli og aðgerðir til að koma í
veg fyrir þær.
Makah-indíánar í Washington-
ríki hættu hvalveiðum fyrir 70 ár-
um og höfðu þá stundað þær í
margar aldir. I samningi við
Bandaríkjastjórn frá 19. öld er
kveðið sérstaklega á um að þjóð-
flokkurinn hafi rétt til að veiða
hvali.
Alþjóðahvalveiðiráðið hefur
heimilað indíánunum að veiða allt
að fimm sandlægjur og veiðitíma-
bilið hófst formlega á fimmtudag.
Flest benti þó til þess í gær að
indíánarnir myndu ekki hefja
veiðamar á næstu dögum eða
jafnvel vikum.
Watson hyggst hindra
veiðamar
Sea Shepherd-samtökin hafa
sent nokkra báta að strönd vernd-
arsvæðis indíánanna og leiðtogi
samtakanna, Paul Watson, kveðst
staðráðinn í að hindra veiðamar,
m.a. með því að fæla sandlægjurn-
ar í burtu með hljóðum af hvala-
árás úr neðansjávarhátöluram.
Bandaríska strandgæslan fylgist
grannt með bátum samtakanna.
Keith Johnson, fonnaður hval-
veiðinefndar Makah-indíána, seg-
ir að hvalveiðar hafi gegnt mikil-
„ _ Reuters
INDIANAR stunda hvalveiðarnar á áttæringum eins og þessum. Nota þeir skutul og mjög öflugan riffil.
vægu hlutverki í menningu þjóð-
flokksins í margar aldir. „Þær
sameina okkur,“ sagði hann. „All-
ir söngvar og dansar okkar, allir
þættir menningar okkar, tengjast
beint hvalnum og hvalveiðum."
Sandlægjur vora teknar af lista
bandan'skra stjómvalda yfir
dýrategundir í útrýmingarhættu
árið 1994. Paul Watson sagði að
samt væri full þörf á því að
vemda hvalina.
Lögmenn Clint-
ons bjóða Paulu
hærri upphæð
Washington. Reuters.
LÖGFRÆÐINGAR Bills Clintons,
forseta Bandaríkjanna, hafa hækk-
að tilboð sitt til Paulu Jones úr 35
milljónum ísl. kr. í tæplega 50
milljónir ísl. kr. ef hún samþykkir
að láta niður falla mál sitt
gegn forsetanum um kyn-
ferðislega áreitni.
Heimildarmenn The
Washington Post segjast
hins vegar svartsýnni en
áður á að samningar takist
því bæði era lögfræðingar
Jones tregir til að sætta
sig við minna en 70 millj-
ónir ísl. kr. og einnig
kunni forsetinn því að
sögn afar illa þegar lög-
menn Jones staðhæfðu í viðræðu-
þáttum í sjónvarpi síðastliðinn
sunnudag að með því að semja í
málinu gæfi forsetinn í raun til
kynna sekt sína.
Máli Jones var vísað frá í apríl
en hún hefur áfrýjað og þykir hafa
öllu beittari vopn í höndunum nú
eftir að Clinton játaði í yfirheyrsl-
um vegna Lewinsky-málsins að
hafa ekki sagt fyllilega rétt frá í
vitnisburði sínum í Jones-málinu í
janúar. Jones er hins vegar illa
stödd fjárhagslega og vill því
gjarnan semja í málinu og er talið
að Hvíta húsið sé einnig
mjög áfram um að ná
samningum svo Clinton og
menn hans geti einbeitt
sér að slagnum sem í
vændum er á Bandaríkja-
þingi, en líklegt er að sam-
þykkt verði þar að hefja
rannsókn sem leitt gæti til
málshöfðunar til embætt-
ismissis á hendur forset-
anum.
Var einnig greint frá því
í gær að margmilljónamæringur-
inn Abe Hirschfeld hefði boðist til
að greiða Jones 70 milljónir ísl. kr.
gegn því að hún léti málið niður
falla. Segist Hirschfeld telja að
málshöfðun Jones, og rannsókn
Kenneths Staras á málefnum Clint-
ons, hafi „algerlega gert stjómvöld
í Washington óstarfhæf‘, sem valdi
Bandaríkjunum ómældum skaða.
Paula
Jones
Meðferðin á
Anwar fordæmd
Kuala Lumpur, Maníla. Reuters.
ÞJÓÐARLEIÐTOGAR keppt-
ust í gær við að fordæma
meintar barsmíðar lögreglunnar
í Malasíu á Anwar Ibrahim, fyrr-
verandi aðstoðarforsætisráð-
herra landsins, sem ákærður var
í vikunni fyrir samkynhneigð og
spillingu. Vora Kofi Annan,
framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, Robert Rubin, fjár-
málaráðherra Bandaríkjanna, og
James Wolfensohn, forseti Al-
þjóðabankans, meðal þeiira sem
lýstu áhyggjum sínum.
,úUiwar er vinur minn og þeg-
ar ég sá myndir af honum með
glóðarauga og marbletti varð ég
áhyggjufullur," sagði Wol-
fensohn í gær. Anwar heldur því
fram að lögreglan hafi barið
hann, á meðan á yfirheyrslum
yfir honum stóð, skilið hann eft-
ir meðvitundarlausan og neitað
honum um læknisaðstoð.
Samskipti Malasíu við grann-
ríki sín í Asíu virðast í uppnámi
og vottaði Joseph Estrada, for-
seti á Filippseyjum, Anwar sam-
úð í gær. Jafnframt var Jakarta
Post, helsta dagblað í Indónesíu,
afar harðort í garð stjórnvalda í
Malasíu í gær og sagði í leiðara
þess að Mahathir Mohamad,
forsætisráðherra Malasíu, hefði
tekist að „sá fræjum eigin falls.
Hann hefur búið til píslarvott."
Whirlpool þvottavélarnar
■ Lágt verö!
• Stór hurð sem opnast 156°.
• „Water lift system“ sem
eykur gæði þvottarins.
• Ullarvagga. Vélin „vaggar"
þvottinum líkt og um
handþvott væri að ræða.
•Nýtt silkiprógramm.
• Barnalæsing.
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SÍMI 5691500
www.ht.is
Umboðsmenn um land allt
r Byggingavörudeild KEA Akureyri Mosfell Hellu
2 Einar Stefánsson Búðardal Póllinn ísafirði
Elis Guðnason Eskifirði Rafmagnsverkstæði KR Hvolsvelli
Eyjaradió Vestmannaeyjum Radíónaust Akureyrí
r- Fossraf Selfossi Rafborg Gríndavik
* Guðni Hallgrímsson Grundarfirði Rafbær Siglufirði
• Hljómsýn Akranesi Rafmætti Hafnarfirði
z Kask - vöruhús Höfn Hornafirði Rás Þoríákshöfn
z Kaupf. Húnvetninga Blönduósi Skipavík Stykkishólmi
5 Kaupf. Borgfirðinga Borgamesi Skúli Þórsson Hafnarfirði
u Kaupf. Héraðsbúa Egilsstöðum Turnbræður Seyðisfirði
0 Kaupf. Þingeyinga Húsavík Valberg Ólafsfirði
z Kaupf. V- Húnvetninga Hvammstanga Viðarsbúð Fáskrúðsfirði
z Kaupf. Skagfirðinga Sauðárkróki Samkaup - Njarðvik Reykjanesbæ
0 z Kaupf. Vopnfirðinga Vopnafirði Blómsturvellir Hellissandi