Morgunblaðið - 03.10.1998, Qupperneq 34
34 LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Gnocchi
Nafnið „gnocchi“ er í raun samheiti á
ítölsku yfír bollur af ýmsu tagi sem búnar
eru til úr hveiti eða öðru sterkjuríku hrá-
efni og síðan soðnar eða bakaðar. Stundum
er uppistaðan spínat og ricotta-ostur (sá
réttur er oft kallaður malafatta), í kringum
Róm er semolina-gnocchi algengt en
þekktast er líklega kartöflu-gnocchi.
Morgunblaðið/Golli
LOGI Hilmarsson, matreiðslumeistari á La Primavera, með Gnocchi á
diski, enda er rétturinn á matseðli veitingahússins og hefur verið lengi.
Þetta er einn af þessum
yndislegu ítölsku rétt-
um sem kostar smá fyr-
irhöfn en er
í raun ótrúlega ein-
faldur þegar
maður er kom-
inn upp á lagið.
í réttinn þarf
um eitt kíló af
kartöflum,
hveiti og salt.
Flóknara er það
nú ekki.
Byrjið á því
að flysja kart-
öflurnar, setjið
þær í eldfast
mót og bakið
við 200 stiga
hita í ofni þar
til auðvelt er að
stinga gaffli inn
í kartöflurnar.
Rífið kartöfl-
urnar niður á
riíjárni, setjið í
stóra skál og
hrærið saman
við 5-6 dl af
hveiti og hálfa teskeið af salti.
Hveitimagnið getur verið eitt-
hvað breytilegt. Mikilvægt er
að ná sem mestum vökva úr
kartöflunum og passa upp á að
blandan verði ekki blaut.
Einnig er hægt að flysja kart-
öflurnar, skera í bita og sjóða
og setja síðan í heitan ofn í
nokkrar mínútur til að þerra
þær. í stað þess að rífa kartöfl-
urnar niður má einnig keyra
þær í gegnum mat-
vinnsluvél í nokkr-
ar sekúndur.
Vilji menn
grænt gnocchi
er hægt að bæta
um 150 g af
spínati saman
við í mat-
vinnsluvélinni.
Þegar búið er
að blanda hveiti
og kartöflum
vel saman og
mynda deig er
það tekið úr
skálinni og
hnoðað á vinnu-
bekk. Stráið
hveiti yfir borð-
ið áður. Myndið
sfðan rúllur úr
deiginu, þegar
búið er að
hnoða það vel
saman. Skerið
þær síðan niður
í litla bita, um 2x2 cm að stærð
hver. Gnocchi-bitana má einnig
búa til með teskeið. Látið vatn
sjóða í stórum potti og setjið
gnocchi-bitana ofan í í nokkrum
skömmtum. Sjóðið þá þar til
þeir fljóta, sem tekur yfirleitt
um tvær mínútur.
Með gnocchi er tilvalið að
bera fram pestó og parmesa-
nost, einnig er hægt að búa til
sósu úr ferskum tómötum og
kryddjurtum og parmesan.
Steikið lauk og hvítlauk á
pönnu í allmikilli ólivuoliu. Bæt-
ið við tómötum. Tómatarnir
verða að vera vel rauðir,
þroskaðir og bragðmiklir, sem
þeir fslensku eru því miður
sjaldan. Finnið þið ekki slíka
tómata er betra að nota tómata
úr dós, heila eða choice cut.
Látið krauma í 20-25 mínútur á
meðalhita og maukið í mat-
vinnsluvél að lokum. Saltið eftir
smekk og bragðbætið með söx-
uðu fersku basil. Berið fram
með gnocchi og rifnum parmes-
an. Þá getur verið gott að hafa
gráðostasósu með gnocchi. Hit-
ið gráðaost og ijóma saman í
potti þar til osturinn hefur
bráðnað og sósan byijar að
þykkna. Um 100 g af Gor-
gonzola þarf á móti einum pela
af rjóma. Kryddið með hvítum
pipar og hugsanlega salti ef
osturinn gefur ekki næga seltu.
Möguleikarnir eru óendanlegir.
SPURT ER
Hvað er
Menning - listir
1. Hvað er Konungsskuggsjá og
hvaða lærdóm er þar að finna?
2. Hvað eiga skáldin Egill Skalla-
grímsson, Gísli Illugason, Óttar
svarti og Þórarinn Loftunga
sameiginlegt?
3. Hvernig merkti listmálarinn
Vincent van Gogh jafnan mynd-
ir sínar?
SAGA
4. Hver var Sólon og hvað vann
hann sér helst til frægðar?
5. Hvað felst í „dómínókenning-
unni“ og hver setti hana fram
fyrstur manna?
6. Spurt er um Bandaríkjaforseta
sem varð að segja af sér vegna
hneykslismáls fyrr á þessari öld.
Hver var það, við hvað var málið
kennt og um hvað snerist það?
LANDAFRÆÐI
7. Hvar eru Brennisteinsfjöll?
8. Hvar er kirkjustaðurinn Eydalir,
hvert er annað nafn á staðnum
og hvaða þekkt sálmaskáld bjó
þar fyrr á öldum?
9. Fellibylurinn Georges fór með-
al annars yfír eyjuna Hispa-
njólu í Karíbahafi nú ný-
lega. Hvaða þjóðrfki eru á eyj-
unni?
ÍÞRÓTTIR
10. KR og ÍBV léku til úrslita um
Islandsmeistaratitilinn í meist-
araflokki karla í knattspyrnu um
síðustu helgi. Eykjamenn sigr-
uðu með tveimur mörkum gegn
engu. Hverjir skoruðu mörkin
og hver er fyrirliði Eyjamanna?
11. Islenskur knattspyrnumaður
var nýlega seldur fyrir metupp-
hæð til 3. deildarliðs á
Englandi. Hvað heitir maður-
inn, með hvaða liði lék hann á
Islandi, með hvaða liði lék hann
til skamms ti'ma á Englandi og
til hvaða liðs var hann seldur?
12. „Rekstur knattspymudeildar er
orðinn hörð viðskipti," sagði for-
Sælkerinn
GNOCCHI: í réttinn þarf um
eitt kfló af kartöflum, hveiti og
salt. Flóknara er það nú ekki.
Draumur mánans
DRAUMSTAFIR Kristjáns Frímanns
Mynd/Kristján Kristjánsson
MÁNAMÆRIN baðar sig í draumi jarðar.
TUNGLIÐ, tunglið taktu mig og
berðu mig upp til skýja. Tunglið
hefur óumdeilanleg áhrif á menn,
málleysingja og náttúru, það
stjórnar vatns- og sjávarföllum,
tíðahringjum og ferli margra
dýrategunda. En máninn er einnig
aflgjafi hugmynda og með dular-
fullri nánd sinni við manninn býr
hann honum efni í skáldsögur, æv-
intýri og drauma. Tunglið kveikir
kalt ljós sagna um einfara hjá
norðanmanninum en það tendrar
eld í sögum sunnanmannsins og
þegar ný og nið ná saman verða
sögurnar magnað samspil ólíkra
afla með framandi ívafí líkt og
sagan um varúlfinn, rólega herra-
manninn sem breyttist í blóðþyrst
villdýr á fullu tungli. Þar sem í
mörgum öðrum náttfarasögum
birtist máninn sem vinur þess er
einn veg ratar og samlagast ekki
öðrum, hann er vemdari einmana-
leikans og bakhjarl brostinna
hjarta. Tunglið er draumur
mannsins um einstaklinginn sem
sigrar náttúruöflin, storkar forlög-
unum og fer sína eigin leið.
Mannsins sem kemur og fer þegar
honum hentar, kaldur og yfirveg-
aður, heitur og lostafenginn með
örlaganomimar veikar af ást á sér
en hjartað vel varið í helli sínum. I
skini mánanum birtist draumurinn
um tvíeðlið, að geta skipt um ham
og verið einhver annar en
maður er, órðið persóna með
yfirnáttúrlega hæfileika,
ótrúlegan kraft og kænsku,
fögur vera og limalöng sem
allir elska en enginn getur
snert. Draumurinn um mán-
ann er draumur um æðra
sjálf, sjálfstæða vitund sem
máninn hátt á himni speglar
í skini hrímfölu á drauminn
þinn gráa.
Draumar
„Sólveigar“
I. Dreymt í maí um sauð-
burð. Ég var á vakt í fjárhús-
unum, það var ekkert að gera
svo ég ákvað að líta til ná-
grannakonu minnar, Mar-
grétar. Mér fannst innan-
gengt úr mínu fjárhúsi í
hennar og er ég kem til
hennar skítug og rifin (sem
ég er venjulega í fjárhúsi)
var hún í sparifötunum,
dökkbláu pilsi og blússu að
hjálpa ánum að bera. Tilþrif-
in voru mikil og hafði ég aldrei séð
annað eins, og þetta gat hún án
þess að óhreinka sig. Við töluð-
umst ekki við eins og þess þyrfti
ekki. Þá ákvað ég að gá hvort eitt-
hvað væri að gerast hjá mér. Þeg-
ar ég opna hlöðuhurðina mætir
mér (að mér fannst) prestur og
fyllir alveg út í dyragættina. Hann
var alveg hvítur, í hvítum kyrtli
með hvítt skegg og hár. Hann rétt-
ir mér hendumar og segir blíðlega
„ekki vera hrædd“ og biður mig að
koma með sér. Við svífum upp og
ég verð ofsalega hrædd, lít niður
og sé Sigurð kaupfélagsstjóra
standa í sparifótunum við fóður-
ganginn og horfa yfir fjárhúsin. Þá
ríf ég mig lausa frá prestinum og
sný við.
II. Mig dreymdi að ég var á
hlaupum með barnavagn og syst-
ursonur minn væri í honum. Við
vorum í Reykjavík í umferðinni og
það var farið að skyggja. Við
vorum á flótta undan lög-
reglunni og mér fannst eins
og ég hefði stolið systurson-
inum. Flúði inn í kjallara á
fjölbýlishúsi og inn í lítið
herbergi. Það var hvítt á lit-
inn og bjart en þar var ekk-
ert að setjast á. Lítill gluggi
var á herberginu og var ég
að gá hvort við hefðum
sloppið. Barnið var ánægt en
fyrirferðarmikið og alltaf á
ferðinni. Þá gerði ég mér
grein fyrir því að ég væri að
gera rangt og yrði að gefa
mig fram við lögregluna og
skila baminu þó ég fengi
dóm fyrir. Mér létti er ég
var búin að ákveða að gefast
upp taka afleiðingum gerða
minna.
Ráðning
Þeir erfiðleikar sem
draumarnir tala um og þú
stóðst frammi íýrir á sínum
tíma era nú að leysast vegna
stöðuglyndis þíns og atorku. Upp-
gjöf er ekki orð sem fellur að þín-
um draumum og ekki ertu heldur
ginnkeypt fyrir hugmyndum fjálg-
legra viðmælenda. Veturinn er þó
eftir með ákveðnum átökum sem
krefjast einbeitingar svo verk þitt
gloprist ekki niður, en í því sam-