Morgunblaðið - 03.10.1998, Side 42
42 LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1998
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Skynsemi
og virðing
Að rætt sé urn vín, að börn og ungling-
ar skilji hvað áfengi er og hvernig sé
best að nota það - og hvernig verst - er
ákveðin forvörn. Líka klisjan: Taktu
aldrei fyrsta sopann, það er hœttulegt
Líklega mælir enginn
með ofdrykkju áfeng-
is. Ýmsir telja algjört
bindindi heillavæn-
legast en aðrir hallast
að því að hófleg drykkja sé í góðu
lagi, jafnvel holl. Mismunandi
skoðanir eru eðlilegar, hvort sem
er varðandi áfengi eða annað í
daglegu lífí. En hvort sem menn
aðhyllast algjört bindindi eða
vilja frekar útrýma ofdrykkjunni
eiga væntanlega flestir eitt sam-
eiginlegt; þá skoðun að markmiði
sínu sé hægt að ná með einhvers
konar forvömum. Því er fróðlegt
að velta fyrir sér eðli forvama,
hvort og hvernig þær virki.
Ég er á því að feluleikur, boð
og bönn séu
VIÐHORF vond forvörn.
------ Itreka það sem
Eftir Skapta ég sagði fyrr í
Hallgrímsson sumar í einum
þessara pistla:
forboðnu ávextirnir em alltaf
mest spennandi. Það hefur marg-
sannað sig. Eða þekkja ekki allir
þá staðreynd? Er það heimska í
mér að telja það bömum mínum
hollara að horfa á mig sötra eitt
rauðvínsglas, jafnvel tvö, með
kvöldmat - ræða jafnvel við þau
um þennan eðla drykk og fræða
- heldur en ég kæmi heim sót-
dmkkinn og snarvitlaus eftir
þamb einhvers staðar úti i bæ?
Að rætt sé um vín á þennan
hátt, að böm og unglingar skilji
hvað áfengi er og hvernig sé best
að nota það - og hvernig verst -
er ákveðin forvöm. Það er líka
forvörn að endurtaka í sífellu:
Taktu aldrei fyrsta sopann. Það
erhættulegt. Ef þú tekur einn
sopa er ekki víst að þú getir
nokkurn tíma hætt að drekka.
Ég hef bara enga trú á því að
síðara dæmið virki gagnvart
ungu fólki í dag. Ungt fólk vill
prófa sig áfram, og þegar ein-
hliða áróður á þessum nótum
glymur í eyrum þess hljómar það
mjög spennandi fyrir marga að
athuga hvort þetta sé virkilega
rétt. Og þegar sú tilraunastarf-
semi hefst er einmitt hætta á
ferðum; ég hef á tilfinningunni að
þá séu meiri líkur á að sá ung-
lingur sem ekkert veit um áfengi
taki tappa úr flösku og sturti í
sig en sá sem hefur verið frædd-
ur.
Unglingar eiga auðvitað ekki
að drekka áfengi, það er ólöglegt
fyrr en fólk verður tvítugt. Stað-
reyndin er hins vegar sú að þeir
gera það; að einhverju leyti
vegna þess hve fullorðna fólkið
er „glæsilegar" fyrirmyndir og
að einhverju leyti vegna þess hve
þessir mjög svo forboðnu ávextir
em spennandi. Þess vegna skipt-
ir fræðslan svo miklu máli.
Guðmundur J. Mikaelsson
verslunarmaður, sveitungi minn,
eins og hann kallar sig, skrifaði
mér fallegt, opið bréf sem birtist
hér í blaðinu fyrir skömmu. Það
gerir hann í framhaldi skrifa
minna um áfengi á þessum vett-
vangi í sumar og þó svo við séum
ekki sammála á þessu sviði segir
hann fjarri sér að kveða upp
þungan áfellisdóm yfir mér og
greinaskrifum mínum. Gott er til
þess að vita, að skynsemin ræður
á sumum bæjum, og ég þakka
honum hlý orð í minn garð.
Guðmundur skorar á mig að
leggjast á árar með þeim sem
hafa uppi varnarorð gegn áfengi
og öðrum vímuefnum. Þetta tel
ég mig einmitt hafa verið að
gera, bara á svolítið annan hátt
en bindindismennirnir eru vanir.
Ég er alfarið á móti ofdrykkju
landsmanna, harma hana reynd-
ar mjög, enda er hún ömurleg
upp á að horfa. Vandamálið er
ofdrykkjan. Á henni þarf að
taka; kenna fólki að bera virð-
ingu fyrir sjálfu sér og öðrum.
Sýna því hve heimskuleg mikil
drykkja er.
Haldið ykkur nú fast, bindind-
ismenn allir: ég þekki málið af
eigin raun. Drakk of mikið á
tímabili, og skil raunar - eftir á
að hyggja - ekki í sjálfúm mér.
Og ég er ekki einn um þetta;
þessi lífsstfll fylgir einhverra
hluta vegna oft ákveðnum kafla í
lífi fólks. Til dæmis árunum í
menntaskóla og tímabili þar á
eftir, eins og í mínu tilfelli.
En svo kom sjálfsaginn til sög-
unnar. Skynsemin og virðingin.
Orðin sem ég benti á í pistlinum
á fimmtudaginn. Ég er ekki alkó-
hólisti, en drakk of mikið og fór
stundum illa með vín. Að hætta
slíkri drykkju er þroskamerki, að
mínu mati. Það getur verið erfitt
að aga sjálfan sig, en er
skemmtilegt viðfangsefni. Bæði
hvað varðar drykkju áfengis og
annað. Sumir leita sér aðstoðar
og hætta alveg, aðrir segja við
sjálfa sig: hingað, og ekki lengra.
Og geta, eftir sem áður, fengið
sér léttvínstár með mat þegar þá
lystir. Jafnvel eitt og eitt glas af
sterku víni.
Fyllirí hefur fylgt manninum
frá alda öðli, en hverjum finnst
slíkt athæfi spennandi þegar
grannt er skoðað? Hvers vegna
þessa misnotkun vörunnar? Ég
hef aldrei fengið nein alvöru svör
við því. Þetta gerði maður nú
samt á sínum tíma, en þroskað-
ist. Ég kalla það þroska að hætta
slíkri drykkju en kjósa frekar að
fá sér rauðvínstár með mat ann-
að veifið.
Frægasti sveitungi okkar Guð-
mundar, Kristján Jóhannsson óp-
erusöngvari, lýsti því yfir í viðtali
fyrir nokkrum árum að hann
drykki vín flesta daga, léttvín
með mat. En langt væri síðan
hann hefði farið á gamaldags, ís-
lenskt fyllirí. Halda menn að Kri-
stján sé fullur alla daga fyrst
hann drekkur vín reglulega með
mat? Nei, varla nokkur maður.
Þess konar drykkja er liður í
menningu ítala og fleiri þjóða og
góð sönnun þess að menn geta
drukkið vín og liðið yndislega eft-
ir sem áður.
Að svo mæltu vonast ég til
þess að geta hætt, í bili að
minnsta kosti, að kvelja bind-
indismenn með skoðunum mín-
um um áfengi. Hef engu við að
bæta að sinni, held ég. Við skul-
um bara hafa okkar skoðanir,
hver í sínu horni, þær eru og
verða bersýnilega mjög ólíkar.
Ég nenni alltént ekki meiru.
Leyfi mér þó að halda fram,
eins og fyrr í sumar - og alls
ekki í einhverju virðingarleysi
gagnvart starfi bindindishreyf-
ingarinnar - að ég tel líkur á að
stúkumenn næðu betri árangri
en hingað til ef þeir breyttu
áherslum í starfi.
Skattlagning lífeyrissjóðs-
tekna og skerðing bóta
Á AÐALFUNDI Fé-
lags eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni,
sem haldinn var í Glæsi-
bæ 1. mars s.l., voru
bornar upp nokkrar til-
lögur stjómai', sem all-
ar voru samþykktar.
Fyrsta tillagan, sem
Páll Gíslason fiutti og
ég ætla að fjalla um í
þessari grein, hljóðaði
þannig: „Nú hefur verið
lagður 10% skattur á
fjármagnstekjur, því
telur aðalfundur Félags
eldri borgara í Reykja-
vík og nágrenni, að
sama prósenta eigi að
gilda varðandi 2/3 hluta tekna úr líf-
eyrissjóðum, og krefst þess að sama
gildi fyrir hvorutveggja, þar sem um
það bil 2/3 hlutar greiðslna eru
ávöxtun af því fé, sem fólk greiddi á
þeim tíma, þegar greidd voru 4% af
tekjum í lífeyrissjóð.“
Þessari tillögu fylgdi greinar-
gerð, þar sem greint var frá stað-
reyndum. Tryggingastærðfræðing-
ur hefur reiknað út, að 2J3 hlutar af
lífeyrissjóðsgreiðslum, miðað við
3,5% raunávöxtun, eru vaxtatekjur
og 1/3 greidd iðgjöld lífeyrisþega.
Hvers vegna erum við látin greiða
39,02% í skatt af vaxtatekjum, þeg-
ar aðrir greiða 10% í skatt? Og
hvers vegna höfum við, sem greidd-
um skatt af 4% iðgjaldinu á árunum
1988 til 1995, ekki
fengið hann endur-
greiddan? Þeir, sem
voru orðnir sjötugir og
eldri árið 1995 og
höfðu margir aldrei
greitt skatt af 4 pró-
sentunum, fengu 15%
skattaívilnun. Hvað
með alla, sem voru
yngri og á vinnumark-
aði þessi ár, hvenær fá
þeir endurgreiðslu?
Svo þegar við fáum
þessar upphæðir úr líf-
eyrissjóðunum aftur,
borgum við 39,02% í
skatt. Er þetta ekld
tvísköttun?
Fólk er stundum að spyrja mig,
hvort það eigi að fara að vinna, það
geti fengið smávinnu og t.d. 30.000
kr. í laun á mánuði. Eg verð að
svara því, að það haldi kannski eftir
3.000 til 4.000 kr. af þessum 30.000
kr. Tekjutrygging skerðist um
13.500 kr., heimilisuppbót um 6.455
kr., uppbótin fellur niður og skatt-
urinn hækkar smávegis. Hér á ég
við einstakling, sem býr einn, sjá
töflu I.
Tekjutrygging hjá einstaklingi,
sem fær greiðslur úr lífeyrissjóði,
byrjar að skerðast, ef tekjur eru
hærri en 29.217 kr. á mánuði og fer
niður í 0, ef tekjurnar eru 91.048 kr.
eða hærri á mánuði.
Ellilífeyrir byrjar að skerðast, ef
Margrét H.
Sigurðardóttir
TAFLAI: September 1998
Tveir einbúar sem fá greiðslur úr Irfeyrissjóði
Einbúi I Einbúi U Mism.
kr. kr. kr.
Lífeyrissj óðsgreiðslur 29.217 91.048 61.831
Ellilífeyrir 15.123 15.123 0
Tekjutiyggmg 27.824 0 -27.824
Heimilisuppbót 13.304 0 -13.304
Uppbót á lifeyri 40% -&sm 0 -6.049
91.517 106.171 14.654
Skattur 39,02% -12.350 —-18.068 -5.718
Samtais: 79.167 88.103 8.936
Tannviðgerðir 12.000 kr.
Greiðsla Tryggingastofimar 75% 9.000 0 -9.000
Afsláttur af dagblaði m 0 =200
Allsi 89.067 88.103 -Má
TAFLAII: September 1998. Sömu einstaklingar, en
farið með 2/3 lífeyríssjóðstekna eins og fjármagnstekjur.
Aðeins heimingur fjármagnstekna skerðir tekjutryggingu.
Einbúi I Einbúi U Mism.
kr. kr. kr.
lnnborganir 1/3 9.739 30.349 20.610
Vaxtatekjur 2/3 19.478 60.699 -41.221
Lífeyrissjóðsgreiðslur 29.217 91.048 61.831
Ellilifeyrir 15.123 15.123 0
Tekjutrygging 27.824 13.657 -14.167
Heimilisuppbót 13.304 6.530 - 6.774
Uppbót á lífeyri ...6.049 0 — .6,049
91.517 126.358 34.841
Skattur 39,02 -4.750 -2.260 2.490
Skattur 10% -1,948 -6.070 AA22
Samtals: 84.819 118.028 33.209
Tannviðgerðir 12.000 kr.
Endurgreiðsla Tryggingastofeuna 9.000 6.000 -3.000
Afsláttur af dagblaði .. 900 0 =2QQ
Allsi 94,719 124.028 22JQ2
Kosið verður til þings á
ári aldraðra, segir Mar-
grét H. Sigurðardóttir,
og þeir þurfa að skoða
grannt hvað að
þeim snýr.
tekjur (laun og helmingur fjár-
magnstekna) eru hærri en 91.048
kr. á mánuði og fer niður í 0, ef tekj-
ur eru 141.458 kr. eða hærri hjá ein-
staklingi. Verst er að vera með tekj-
ur á bilinu 60.000-91.048 kr. Þá
skerðast bætumar, og skattur er
líka tekinn.
Þið sjáið á töflunni, að jaðaráhrif-
in (skerðing bóta) og jaðarskattarn-
ir leiða til þess, að sá sem er með
29.217 kr. úr lífeyrissjóði á mánuði
er betur settur en hinn, sem fær
91.048 kr. á mánuði. Sá síðarnefndi
borgar meira í skatt, en hann fær í
bætur frá Tryggingastofnun. Er
þetta hægt? Á hann ekkert inni hjá
þjóðfélaginu? Ef vilji hefði verið
fyrir hendi, hefði jaðarskattanefnd-
in, sem sett var á laggimar fyrir
nokkmm ámm og átti að gera eitt-
hvað í því að laga þessi mál, átt að
skila einhverjum árangri. Hún skil-
aði engum niðurstöðum og er hætt
störfum.
Sjá töflu II. Þessi tafla er draum-
sýn, sem ég vona að rætist. Notaðar
eru sömu tölur og í fyrri töflunni, en
hér er farið með 2J3 hluta lífeyris-
sjóðsgreiðslna eins og fjár-
magnstekjur, enda réttlætismál.
Auk þess er það aðeins helmingur
fjármagnstekna (vaxtatekna), sem
skerðir ellilífeyri og tekjutryggingu.
Einbúinn með hærri lífeyrissjóðs-
tekjurnar fengi nú skerta tekju-
tryggingu og heimilisuppbót og ætti
nú rétt á að fá endurgreiðslu frá
Tryggingastofnun vegna tannvið-
gerða.
Ég vona, að hlutur lífeyrissjóðs-
þega verði leiðréttur sem allra
fyrst. Þeir hafa greitt sín iðgjöld til
lífeyrissjóða eins og þeim bar, en
bera skarðan hlut miðað við hina,
sem hafa vanrækt þessar skyldur.
Þeir hafa lagt sína peninga í banka
eða annað og era verðlaunaðir með
10% skatti og aðeins helmingur
fjármagnstekna þeirra skerðir
tekjutryggingu og ellilífeyri. Það
hefur ekld staðið á því að setja lög
og reglugerðir til að skerða bætur
eldri borgai-a hin síðari ár.
Ef hækka á bætur eldri borgara,
þá eru skipaðar nefndir, bæði til að
endurskoða lög almannatrygginga
og athuga jaðarskatta og ekkert
skeður, allt er óbreytt. Nú er ár
aldraðra að ganga í garð. Hvað ætla
stjórnvöld að gera fyrir okkur eldri
borgara?
Svo eru alþingiskosningar á
næsta ári. Við eldri borgarar mun-
um fylgjast vel með því á næstu
mánuðum, hvaða alþingismenn
standa með okkur í okkar málum,
sem flutt verða á Alþingi.
Höfundur er viðskiptafræðingur og
varaformaður FEB.
Biblían er auðskHdarí
enþiggrunar
'oðunarkirkjan
fflWBl'
Mánudaga og miðvikudaga ki. 20.00.
Námskeiðíð byrjar mánudaginn 5. oktúber.
Þar sem fjöldi þátttakenda er takmarkaður, er skynsamlegt að
innritast sem fyrst. Með einu símtali tryggir þú þér þátttöku,
.■><w vönduð námsgögn, skriffæri og eintak af Biblíunni
'oknu
niunt
3 öiiklu
og
Allt ókeypis! -
et óWVP's
Hvað ber framtíðin í skauti sér?
Hver er tilgangur lífsins?
Hvaða hlutskipti bíður bín að iokum?
Komdu, bvi mörgum spurningum bínum verður svarað.
Leiðbeinandi er dr. Steinþór Þórðarson,
sem hefur staðið fyrir slíkum námskeiðum
áratugum saman á íslandi og erlendis.
Innritun og nánari upplýsingar alla daga í símum 421 5674,421 4474 og 861 5371.