Morgunblaðið - 03.10.1998, Page 45

Morgunblaðið - 03.10.1998, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1998 45, að sér kennslu í almennri hjúkrun þá um haustið. En fjárveiting til kennsl- unnar var óleyst vandamál þar til að- stoð barst frá Rauða krossi íslands. Innritun í námsbraut í hjúki’unar- fræði við Háskóla íslands hófst 2. október 1973. Mótun námsbrautar- innar og þróun var þó rétt að hefjast og mikið uppbyggingarstarf unnið á fyrstu árunum. Oft hefur því verið haldið fram að það hafi nánast verið tilviljun að námsbrautin hóf göngu sína. Eftir þessa skoðun á atburðarásinni fallast höfundar ekki á þá ályktun, því ljóst er að fjölmargir einstaklingar komu við sögu á nokkrum ái’um og lögðu á sig mikla vinnu til þess að koma á breytingum á menntun hjúki’unar- fræðinga. Lokaorð Nú er á vegum námsbrautar í hjúkrunarfræði boðið upp á fjöl- breytt nám, grunnnám, sérskipulagt nám fyrir hjúkrunarfræðinga, ljósmæðranám og ýmis konar viðbótarnám, auk þess sem hafin er kennsla til M.Sc.-gráðu í hjúknmar- fræði. Nám í hjúkrunarfræði við Háskóla íslands hefur líka verið fyr- irmynd að námi í hjúkrunarfræði við Heilbrigðisdeild Háskólans á Akur- eyi’i. Námsbrautin nýtur viðurkenn- ingar og námið virðist falla vel að þörfum samfélagsins. Tuttugu og fímm ár eru ekki lang- ur tími í sögu skóla eða námsleiðar en á þessum árum hefur námsbraut í hjúkrunai’fræði tekist að sanna gildi sitt og mikilvægi tilvistar sinnar fyr- ir heilbrigðisþjónustuna á Islandi. Vilborg Ingólfsdóttir er yfírhjúkr- unarfræðingur hjá Landlæknis- embættinu. Ragnheiður Haralds- dóttir er skrifstofustjóri í heilbrigð- is- og tryggingaráðuneytinu. 3. Þriðjudaginn 28. júlí birtist á bls. 6 í Morgunblaðinu, einni helztu fi’éttasíðu blaðsins, athugasemd frá Gallup. Þar sagði m.a.: „Könnunin var gerð til að kanna afstöðu þjóðar- innar til veiðileyfagjalds. Hlutfall sjó- manna í slíkri könnun er um 2%, enda var henni ekki ætlað að mæla þann hóp sérstaklega, en ef svo hefði verið hefði úrtak sjómanna verið miklu stærra. Niðurstöður könnunaiinnar gefa því ekki tilefni til að álykta sér- staklega um skoðanir sjómanna um veiðileyfagjald." 4. Þessar útskýringar fylgdu ekki með, þegar Morgunblaðið fékk til birtingar sundurgi’einingu á hinni upphaflegu skoðanakönnun Gallup. 5. Hinn 19. ágúst sl. birtist í sér- blaði Morgunblaðsins um sjávarút- veg, Ur verinu, grein eftii’ Sigurgeii’ Jónsson, smábátaeiganda og sjó- mann, þar sem hann lýsti þeirri skoðun að frásagnir Morgunblaðsins af niðurstöðum skoðanakönnunai’ Gallup sýndu, að „Moggalygin er sko alls ekki dauð“. Rétt er að taka fram í þessu sambandi, að á dögum kalda stríðsins notuðu kommúnistai’ á ís- landi orðið „Moggalygin" yfir lýsing- ar blaðsins á ástandinu í Sovétríkjun- um og leppi-íkjum þeirra. Eftir lok kalda stríðsins hefur verið staðfest af sagnfræðingum með tilvísun í skjala- söfn í Moskvu og víðar að hvert orð af því, sem kommúnistar kölluðu „Moggalygi", var sannleikur. 6. Vegna greinar Sigui’geirs Jóns- sonar óskaði Morgunblaðið eftir gi’einargerð frá Gallup, enda hafði blaðið ekki gert annað en bii-ta þær upplýsingar, sem Gallup lét blaðinu í té. I þessari greinargerð segh’ m.a.: „Greint eftir starfsflokkum kemur í ljós að meirihluti allra hópa, að nem- endum undanskildum, er fylgjandi veiðileyfagjaldi. Þar sést m.a., að rúmlega 77% svarenda í starfaflokkn- um „sjómenn og bændur“ eru fylgj- andi veiðileyfagjaldi, en þar sem fáir eru í þessum hópi í úrtakinu er ekki hægt að álykta með nákvæmni um skoðanir þessa hóps um veiðileyfa- gjald. Niðurstöðumar gefa þó vis- bendingu um, að fleiri sjómenn og bændur séu fylgjandi veiðileyfagjaldi en andvígir." Þetta eru staðreyndir málsins. Að öðru leyti er ekki ástæða til að fjalla um hatursfull skrif Daníels Sigurðs- sonar í garð Morgunblaðsins. Hann verður að atast við einhverja aðra en Morgunblaðið úr því sem komið er. Málinu er lokið hér í blaðinu. i I ÞAÐ VAR vor í Reykjavík árið 1994, þegar Reyþjavíkurlistinn komst til valda. Regn- boginn blikaði, þetta fal- lega náttúrufyrirbrigði sem myndast þegar sól og regn bregða á leik. Þessi sigur var söguleg- ur, en skiptar skoðanir eru á því hvort hann hafi verið sjálfstæðismönnum að þakka. Reykjavíkur- listanum fundu sjálf- stæðismenn allt til foráttu, allt frá stefnu- leysi til þess að litir í merki listans, regnbog- anum, sneru öfugt. Bláir voru þeir pennar og blá voru þeirra skrif. Því gripu þeir til þess ráðs að banna nafn listans, frambjóðendur og stuðningsmenn, en allt kom fyrir ekki. Fylkingin marseraði inn í ráðhúsið eftir að hafa leikið lausum hala um alla borgina. Þessi sigur Reykjavíkurlistans þreytti svo sjálfstæðismenn að þeh’ sofnuðu værum svefni, eftir erfitt dagsverk. Þvílík feikn og firnindi myndu ekki dynja framar yfir flokk- inn. Regnboginn sæist ekki á fleiri stöðum en í Reykjavík. A öðrum stöðum væru menn litblindir og þyrfti ekki frekar að hafa áhyggjur af því. Breytingar bæru vott um dómgreindarskort og bamaskap og slíkt væri eingöngu að finna í Reykjavík. Sjálfstæðisflokkurinn setti því upp sólgleraugu og friður íhaldssemi og forsjár- hyggju færðist yfir þá. Fátt virtist geta raskað þeirri ró nema barna- söngur á heiði. En bragð er að þá barnið finnur, hvort sem það er sætt eða óbragð. Börnin, öðru nafni KRAKKARNIR, höfðu vaxið úr grasi í regnbogans litum, með- an sjálfstæðisflokkur- inn svaf. Vöknuðu blá- menn því upp af værum svefni, við að friðar- spillirinn, samfylking vinstri manna, væri far- in að leika lausum hala um land allt. Svo langt sem augað eygði máttu sjálfstæðis- menn þola, að horfa upp á fullorðin börn í regnbogans litum ramba upp um hóla og hæðir. Til sjávar, borga og sveita hafði barnasöngurinn breyst. „Nu er de blevet voksne" eins og segir í dönskum dægur- lagstexta. Nú voru góð ráð dýr, þannig að eingöngu var um það að ræða að grípa til ódýrra ráða fyrir blámenn- ina í Valhöll. Blátt bann skyldi það vera. Eingöngu sjálfstæðisflokkur- inn skyldi hafa einkaleyfi á því að flokkar væru stofnaðir, lagðir nið- ur, færu í samfylkingu eða breyttu um stefnu. Eingöngu með því móti að sjálfstæðismenn semdu verk- efna- og stefnuskrá fyrir aðra flokka væri hægt að tryggja efna- Sigur Reykjavíkurlist- ans var sögulegur, seg- ir Védís Daníelsdóttir, en skiptar skoðanir eru á því hvort hann hafi verið sjálfstæðis- mönnum að þakka. hagslegan stöðugleika. Keppinaut- ar og andstæðingar skyldu bannað- ir. Leita skyldi allra ráða til að höndla náttúrufyrirbærið regnbog- ann, þannig að það sæist ekki á Is- landi. Til að tryggja þetta enn frekar þurfa blámenn að velja frambjóðend- ur og stuðningsmenn annaira flokka. Einnig þarf aðgerðir til að koma í veg fyrir að svona hamfarir endurtaki sig. Besta ráðið við því væri bann við börnum, þar sem þau fullorðnast. Banna þarf barneignir þein-a sem hafa ekki flokkskírteini blámanna. Með því er gulltryggt að ósköpin endurtaki sig. Gullið undir regnboganum myndi falla í hlut sjálfstæðismanna og þeir væru lausir við regnbogann. Það mælti mín móð- ir að virða bæri keppinauta og and- stæðinga. Vanmat á þeim hefði fellt margan manninn. „Já mikil er mæða þín maður.“ Höfundur er viðskiptafræðingur. ÍSLEIVSKT MAL GESTUMBLINDI (Óðinn) kvað: Hafa vildak, þat er ek hafða í gær. Vittu, hvat þat var: Lýða lemill, orða tefill ok orða upphefill. Heiðrekr konungr, hyggðu at gátu. Konungr segir: „Góð er gáta þín, Gestumblindi, getit er þess- ar. Færi honum mungát. Þat lemr margra vit, ok margir eru þá margmálgari, er mungát ferr á, en sumum vefsk tungan, svá at ekki verðr at orði.“ Þetta var brot úr Heiðreks- sögu. Hér langar umsjónarmann til þess að staldra við orðið upp- hefíll. Það er sá (það) sem hefur eitthvað upp, lyftir því, kemur því af stað. Mungát (= öl) verður til þess að menn verða málreifari með því, en án þess. Þó getur farið svo að drykkurinn verði orða tefíll. Þá þvogla menn fyrst og verða síðan það sem Danir kalla stum. Menn hætta að tala, verða alveg stúmm. Stundum þykir það betra en röflið. Capio í latínu merkir að taka til sín, en hefur e.t.v. aðra frum- merkingu. Samkvæmt lögmálun- um verður þessi sögn í máli okk- ar hefja; á frumnorrænu *hafjan. Sögnin beygist mjög fallega, eftir 6. hljóðskiptaröð: hefja, hóf, hófum, hafinn, sbr. fara, fór, fórum, farinn. Svo er þessi sögn, hefja, skyld lýsingar- orðinu höfugur = þungur, ensku heavy. Segja má að sögnin að hefja hafi á sér nokkurn viðhafnarblæ, svo að í daglegu tali notum við frekar að lyfta, eða jafnvel frænku fyrrnefndu sagnarinnar, tökusögnina að hífa. Við þágum hana frá Dönum á 19. öld. Sögnin að hífa beygist með tvennu móti: hífa, hífaði, hífað (1. röð í veikri beygingu) og hífa, hífði, híft (4. röð veikrar beyg- ingar), en þó munu menn alltaf Umsjónarmaður Gísli Jónsson 973. þáttur segja í nútíð ég hífa, ekki ég *hífi. Þessi sögn þykir ekki mjög sviphrein eða virðuleg, en lýsing- arháttur þátíðar, hífaður, hefur fengið sérmerkinguna, „upplyft- ur“ af víni. Gerði Sigurður Þórar- insson orðið frægt í söngtexta: Mikið lifandi skelfingar ósköp er gaman/ að vera svolítið hífaður. Enn biður umsjónarmaður náungann að falla ekki í fátækt- argryfjuna. Margumtalaður háhyrningur var í fréttum jafnan „hífður" upp. Miðað við allt til- standið hefði hafinn upp verið verjandi orðalag, en hreinlegast og einfaldast hefði verið að segja að hvalnum væri lyft. En þarna höfðum við a.m.k. þrjá kosti, og best var að taka þá alla til skipt- is. Þá hefðum við fengið blæbrigði í málið. ★ „Jón Þorláksson var fyrsti endurreisnarmaður íslenzks máls á mörkum 18. og 19. aldar. Þótt hann stæði báðum fótum í fornri erfð íslenzkrar ljóðlistar; þá orti hann ekki á „fommáli“. I rauninni leggur hann með ljóðaþýðingum sínum gi’undvöll- inn að íslenzku nútíðarmáli, íyrnska er undantekning í skáld- skap hans, þýddum og frum- sömdum. Honum tókst hvort tveggja í senn, að seiða fram úr málinu hinn mjúka klið og búa það eigindum hins soðna stáls, hörku og fjaðurmagni." (Sverrir Ki’istjánsson: Gamlar slóðir.) ★ Þórhildur þaðan kvað: Honura Sigmundi siginn er larður, sá var hér áður mjög harður í huga og hönd; ekki héldu nein bönd, engin verja, ekki grjótvamargarður. ★ „Þetta er gott, samanborið við síðastliðið ár.“ Engu skiptir hvar ég sá þessa leiðinlegu setningu. Hún virðist nokkuð hrá þýðing á ensku. Á einföldu mannamáli ís- lensku væri þetta: Þetta er betra en í fyrra. Eg bið menn enn lengstra orða að láta ekki „compared to“ útrýma saman- burðartengingunni en, svo stutt og laggóð sem hún er. Esse qu- am videri bonus malebat, var haft eftir Markúsi Cicero. Það útleggst: Hann vildi heldur vera góður en sýnast það. Gagnstæðistengingin en er sömuleiðis miklu fáheyrðari en góðu hófi gegnir. Það mun vera vegna vankunnáttu í ensku. Eg fæ ekki betur séð en ýmsir haldi að while í ensku merki aðeins „á meðan“. En while getur sem best verið annað en tíðartenging, sem sé gagnstæðistenging: The Liberal party won 20 seats while the National party won 30. Þama eigum við að segja: Frjálslyndi flokkurinn fékk 20 þingsæti, en (ekki „á meðan“) Þjóðernisflokkurinn fékk 30. Orð eiga síst að gjalda þess að vera lítil fyrh’ferðar. Ef merking þeirra er jafnframt skýr og sterk, eiga þau að njóta þess. ★ Skulum ei gull gimast, gráti veldur úr máta. Ollu í eilífð spillir of dátt látið að velli. Fár veit hversu féið fári veldur og sáram. Geld eg glapa kaldra, get ei vist með Kristi. Ef einhver kann deili á þessari vísu, væri umsjónarmanni þægð í að hann yrði látinn vita. ★ Vilfríður vestan kvað: Miðillinn Mikel van Toft fékk margslungin skilaboð oft, og vanda hans stórum jók vöntun á orðabók. Um hríð sá í hæla upp í loft. Auk þess minnir Jón ísberg á að karlar kvænist (af kván= kona) en konur ekki. Þó má vera að þetta sé að breytast. AÐSENPAR GREINAR_____ Blátt bann blámanna Védís Daníelsdóttir STEINAR WAAGE SKÓVERSIUN KRINGLUNNi Calvin Klein Calvin Klein Calvin Klein Calvin Klein

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.